Þjóðviljinn - 17.11.1959, Page 1

Þjóðviljinn - 17.11.1959, Page 1
■- Þriðjudagur 17. nóvember 1959 — 24. árgangur — 252. tölublað ráðstafanir sem verulega þýðingu •ii Stefnuyfirlýsing samstjórnar ihalds og AlþýSuflokks sem tilkynnt verSur einhvern nœstu daga Búizt er við að liin nýja samstjórn Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins verði tilkynnt á morgun eöa fimmtudag. Allar horfur eru á að 7 ráðherrar verði 1 stjórninni, 4 frá Sjálfstæðisflokknum og 3 frá Alþýðu- flokknum, en forsætisráðherra veröi Ólafur Thors. Það er til marks um eðli þeirra samninga sem fram hafa farið undanfarna daga, . að þar hefur lítið verið rætt um mál- efni; hins vegar hefur ráðherra- fjöldinn orðið langvinnt deilu- mál. Sjálfstæðisflokkurinn krafð- ist þess að fá fleiri ráðherra en Alþýðuflokkurinn til að sýna húsbóndavald sitt. Alþýðuflokk- urinn var lengi tregur, en lét þó tilleiðast að lokum. Sjálfstæðis- flokkurinn lagði þá til að ráð- herrar yrðu 5, 3 frá Sjálfstæð- isflokknum og 2 frá Alþýðu- flokknum, þar sem það væri hæpinn ávinningur að slá nýtt met í ráðherrafjölda á íslandi, en Alþýðuflokkurinn gerði það að ófrávíkjanlegu skilyrði að hann fengi 3 ráðherra (það mun vera eina skilyrði hans að þessu sinni!) En nú mun hafa verið sætzt á það að slá metið og hafa ráðherrana 7. Mikojan kemur við í Keflavík Anastas Mikojan, fyrsti aðstoð- forsætisráðherra Sovétríkjanna, er væntanlegur til Keflavíkur- flugvallar klukkan hálfellefu í Ráðherrarnir , Ráðherrar af hálfu Sjálfstæð- isfjokksins munu verða Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thoroddsen og Ingólfur Jónsson, en Aiþýðuflokksráð' herrarnir munu verða Emil Jóns- son, Guðmundur f. Guðmunds- son og Gylfi Þ. Gíslason. Um verkaskiptingu er Þjóðviljanum ekki kunnugt í einstökum atrið- um. Sú mun þó ætlunin að Ólaf- ur taki lítíl verkefni að sér önnur en forsætisráðuneytið. Gylfi mun verða menntamálaráð- herra áfram. og jafnframt hafa þeir Alþýðuflokksmenn hug á að fá í sinn hiut bæði utanríkismál og fjármál, en talið er frekar ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn láti sér það lynda. Sammála íyriríram! Samningar um málefni hafa verið mjög losaraiegir, og gefur Morgunblaðið í fyrradag þessa skýringu á því: „Kosningastefnuskrár flokk- anna voru svo líkar, að ef taka mátti mark á þeim yfir- lýsingum, sem þar voru fram settar, lilaut það að leiða til samstjórnar þeirra ... Sam- vinna Sjálfstæðismanna og Al- þýðuflokks nú er eðlileg, af því þeir virðast öðruin fremur vera sammála um þau mál, sem krefjast úrlausnar". Samningar flokkanna voru þannig óþarfir; þeir höfðu fyrir- fram sömu skoðanir á öllu! V Hljóta að bitna beint á almenningi Minna hefur verið sagt um hitt hvernig þær skoðanir muni birtast í framkvæmd. Þó kemst Morgunblaðið svo að orði um efnahagsmálin í Reykjavíkur- bréfi í fyrradag, en þær greinar eru sem kunnugt er skrifaðar af Bjarna Benediktssyni sem verð- ur einn helzti ráðamaður næstu stjórnar: „Engum dylst að efnaliags- málin eru nú í miklu öngþveiti. Þar hefur oltið á ýmsu, margt liefur verið vel gert, annað tekizt iniður, eins og oft vill verða. Aðaleinkennið er þó að þjóðin liefur lifað umfram efni undanfarin ár ... Hér á landi liljóta allar ráðstafanir sem verulega þýðingu hafa í efna- hagsmálum að bitna beint á almenningi“. Þetta er ákaflega skýr stefnu- yfirlýsing, svo er hitt fyrirkomu- lagsatriði hvaða aðferðum verður beitt til að láta ráðstafanirnar bitna á almenningi í skertum lífs- kjörum. rf ’ Ríkisstjórnin hefur á- kvéðið að koma á fót ráðuneytj, er framkvæmi athuganir á efnahagsmál- um og sé ríkisstjórninni til ráðuneytis í þeim mál. um. Er ætlunin að koma með þessu móti í fastara og hagkvæmara horf þeim atliugunum efnahagsmála, sem um undanfarin ár hafa verið unnar á veg- um ríkisstjórnarinnar. Jónas H. Haralz, hag- fræðingur, verður ráðu- neytisstjóri hins nýja ráðuneytis. Jafnframtj þessu embætti mun hann þó fyrst um sinn eins og að undanförnu gegna störfum sem ráðuneytis- stjóri viðskiptamála-ráðu- neytisins. (Frá ríkisstj.) Alltaf fyrir fullu húsi Flokkur Peking-óperunnar liefur nú lokið sýningum sín- um hér ií Þjóðleikhúsinu. Var fimmta og síðasta sýn- ingin í gærkvöld. Ilúsfyllj liefur verið á hverri sýningu og hrifning áhorfenda mjög mikil. — Á myiulinni sést eitt atriðanna, senr kínversku listamennirnir sýndu í Þjóðleikhúsinu, en fleiri myndir eru birtar með um- sögn Ásgeirs Hjartarsonar, leiklistargagnrýnanda Þjóð- viljans, á 6. síðu. Andstœðingar okkar í landhelgis móiinu halda ráðstefnu T London 11 fash-i Tíu Atlanzbandalagsriki, Bandarikin meStalin, og Spánn undirbúa haflagaráSstefnuna i Genf i vor Helztu andstæðingar íslands í landhelgismálinu sitja nú á rökstólum í London. Ætlun þeirra er að samræma þar afstöðu og aðgerðir sínar á hinni alþjóðlegu haflagaráðstefnu sem haldin verður í Genf í vor, og reyna að knýja framl lausn í sam- ræmi við sérhagsmuni ,Breta. Anastas Mikojan. dag með flugvél frá Sovétríkjun- um. Mikojan er á leið til Mexíkó, þar sem hann á að opna sovézka sýningu. Gert er ráð fyrir að ílugvél hans standi við í tvo klukkutíma í Keflavík. Á ráðstefnu þessari eiga ein- göngu sæti fulltrúar Atlanzhafs- bandalagsríkja — og Spánar, sem reyndar er þegar kominn með annan fótinn inn í banda- lagið. Fulltrúar frá þessum löndum sækja ráðstefnuna sem hófst í London í gær: Bretlandi, Frakk- landi, Belgíu, Vestur-Þýzkalandi, Grikklandi, Ítalíu, Hollandi, Portúgal, Tyrklandi, Bandaríkj- unurn og Spáni. Aðeins’ fimm Atlanzbandalagsríki eiga ekki fulltrúa þarna: ísland, Danmörk og Noregur, Lúxemborg og Kan- ada. , Til að samræma sjónarmið í Reutersfregn í gærkvöld var það haft eítir góðum heimildum að Bretar hefðu boðað tii þessar- ar ráðstefnu í því skyni að sam- ræma sjónarmið þeirra ríkja sem vitað sé að séu andvíg' 12 mílna fiskveiðilögsögu. I Bandaríska tillagan til grundvallar Segir í fréttinni að leggja eigi til grundvallar bandarísku til- löguna sem lögð var fram i Genf um 6 mílna landhelgi og 6 mílna fiskveiðilögsögu til við- bótar sem strandríki skuli ráða, en þar sem öðrum ríkjum skuli heimilt að stunda veiðar, hafi þau gert það í 5 ár áður en samkomulagið er gert. Ríkjum sem vilja 12 mílna fiskveiðilögsögu, svo sem íslandi og Kanada, var ekki boðið að senda fulltrúa, var sagt í Reut- ersfréttinni, né heldur Noregi og Danmörku. Það ætti að liggja í augum' uppi hvers vegna íslendingar eiga ekki fulltrúa á þessari ráð- stefnu sem beinlínis er haldin tif að samræma aðgerðir andstæð- inga okkar. Danir og Norðmenií hafa einnig nokkra sérstöðu I landhelgismálum og sama málí gegnir um Kanada, sem á fyrrí haflagaráðstefnunni í Genf beittl sér fyrir reglunni um 12 mílna fiskveiðilögsögu strandríkja. Lúx- emborg hefur af skiljanlegum ástæðum ekki erindi á slíka ráð- stefnu. Það er því augljóst að á hana Framhald á 12. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.