Þjóðviljinn - 17.11.1959, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 17.11.1959, Qupperneq 9
Þriðjudagur 17. nóvember 1959 — ÞJÓ.Ð[VILJINN — (9 IP' í 1 ÞRÓ' r f J RITSTJ ÓRT^^^^y^. Vl&lr*-7 ' j Úr 10 ára afmælishófi Knaítspyrnufélagsins Þróttar: Félagntu kárust góðar gjafir og skeyti - Forseti ÍSI og margir félagsraeii feeiraðir Knattspyrnufélagið Þróttur gekkst fyrir myndarlegum fagn- aði í tilefni af 10 ára of>v.æij félagslns og Tór hann fram í Framsóknarhúsinu sl. laugardag Var þar margt manna saman- komið, bæði gestir og eins fé- lagar. Aðalræðuna við þetta tæki- færi flutti formaður félagsins, Óskar Pétursson, og kom hann víða við. Rakti hann hina stöð- ugu þrá ungu drengjanna á „Holtinu" til að leika sér með knött og stofna knattspyrnufé- lag. Urðu nokkur félög til og þeim fyigdi yfirleitt það, að völlur var ruddur á hinum opnu svæðum melanna. Friðhelgi þeirra var oftast skammvinn, því að þeir urðu að víkja fyrir byggingum sem risu af grunni. Nefndi Óskar t.d. tvö félög, sem hlutu nafnið Baldur og Dögun. Þar komu við sögu menn, sem nú eru kunnir á öðrum sviðum, og nefndi hann þar Áka Jakobs- son og Eðvarð Sigurðsson. Það merkilega var, að hið sameigin- lega heiti liða, sem tóku þátt í leikjum utan „Holtsins" var Þróttur. Svo kom hernámið og þá þurfti mikið land undir herbúðir og voru þá allir vellir teknir undir skálana, og allt félagsstarf lagð- ist niður. Eftir stríð vaknaði áhuginn aftur og enn tóku drengirnir af „Holtinu11 að safna liði, og hefja keppni við starfsmannalið. Og nú varð þetta ekki stöðvað. Formieg auglýsing er upp sett og boðað til stofnfundar 5. ágúst 1949. Félagið Þróttur er stofnað og formlega er það tekið í í- þróttasamtökin — íþróttasam- bandið — 20. nóv. s.á. Rakti Óskar síðan í stórum \ dráttum sögu félagsins. Marga erfiðleika hefði þurft að yfir- stíga, því að öll byrjun er erfið. Leyndi það sér ekki að mikið félagslegt starf hefur verið lagt af mörkum úír hipu .wiga'iifélágfcr Þátttaka í- -mötum, --uteílfarir, innra félagslíf með fundum, spila- kvöldum, ferðalögum, og nú teldi Þróttur orðið yfir 500 félags- menn. Hann þakkaði hinum mörgu samstarfsmönnum sem Þróttur hafði átt saman við að sælda, og þau samskipti hefðu á allau hátt verið hin vinsamlegustu. Hefði það haft mikla þýðingu fyrir félagið, hvað allir aðilai innan íþróttahreyfingarinnar hefðu ætíð brugðizt vel við, þeg- ar til þeirra var leitað. Óskar gat þess að félagið hefði iátið teikna félagsheimili, og það væri draumur félagsins að geta sem fyrst eignast samastað og athafnasvæði. Að lokinni ræðu sinni afhenti hann tveim aðalhvatamönnum að stofnun félagsins, þeim Halldóri Sigurðssyni og Eyjólfi Jónssyni, sinn bikarinn hvorum til minja og fengu þeir mikið lófatak allra viðstaddra. Næstur tók til máls Halldór Sigurðsson, annar aðalstofnand- inn, og minntist fyrstu afskipta sinna af knattspyrnu vestur í Hnífsdal, þar sem knötturinn var tuskubolti, troðinn út með heyi. Meðan hann stundaði siglingar horfði hann oft á knattspyrnu- leiki, og þegar heim kom var áhuginn sá sámi. Að lokum hvatti hann alla Þróttara til dáða fyrir félag sitt og bað menn að taka Eyjólf Jónsson sér til fyrirmynd- ar um elju og vilja. Halldór afhenti Ómari Magn- úss.yni bikar fyrir hönd Ung- lingaráðs, sem viðurkenningu fyr- ir áhuga og framför í knattspyrnu. Árnaðaróskir og kveð.iur Af hálfu gesta tók forseti ÍSÍ, Ben. G. Waage fyrstur til máls og þakkaði Þrótti starfið í þessi 10 ár. Flutti hann félaginu kveðj- ur íþróttasambandsins og afhenti því oddfána þess. Biörgvin Sehram ávarpaði fé- lagið fyrir hönd KSÍ, og sagði að það hefðj þurft mikla bjart- sýni til að stofná nýtt félag, þótt bað hefði í sjálfu sér verið tíma- faærtí' tfrtoíniih fðlága Wéfðf*dft ver- i#íreynd"Tén hétíð ’mistékitt, en Þróttur lifði með góðum árangri. Að lokum sagðist Björgvin vilja þakka frumherjum Þróttar og óska félaginu til hamingju með 10 ára afmælið. Afhenti hann formanni síðan fána KSÍ til minia. Gísli Halldórsson, formaður ÍBR. sagði m.a. að árið 1949 hefði verið merkilegt. Þá voru stofnuð tvö félög, félagsstofnun væri alltaf merkisviðburður Hann sagði að erfiðustu árin væru yfirunnin. Félaaið hefði strax lagt grundvöllinn rétt, teflt fram sveitum í öllum ald- ursflokkum í knattspyrnu og síð- ar í handknattleik og minntist hann árangurs þess sem t.d. kvennadeildin hafði náð. Gat Gísli þess að félaginu hefði fyrir nokkru verið ætlað land þar sem yrði athafnasvæði þess, og kvaðst hann vona að á næstu 10 árum mundi þar upp- rísa heimili og vellir, svo að starfið mætti blómgast enn meir á komandi árum. Formaður KRR, Jón Guðjóns- son, kvaðst vilja fyrir hönd ráðsins þakka Þrótti fyrir það starf sem félagið hefur lagt til knattspyrnumálanna í bænum. Það var mikil bjartsýni, sugði Jón ennfremur, að ráðast í 'f.að að stofna knattspyrnufélag, og margir töldu að það yrði ekki langlíft, en sú spá rættist ekki. Nú eru félagarnir orðnir um 500 og ég vona að þeir verði orðnir 1000 að 10 árum liðnum, sagði Jón að lokum. Síðan afhenti hann félaginu fána KRR. Ásbjörn Sigurjónsson. formað- ur Handknattleikssambandsins, bakkaði Þrótti fyrir framlag fé- lagsins til handknattleiksmála, og kvaðst vona að Þróttur héldi áfram að vaxa og þroskast á komandi árum. Erlingur Pálsson kvað sér það gleðiefni að ávarpa, þar sem „vormenn íslands" fagna 10 ára sigri. Kvað hann að það hefði sannast á Þrótti bað sem skpldið sagði: Ef æskan vill rétta þér örfandi hönd, þá ert, þú á fram- tíðarvegi. Að ..Igfcuirhfi sagðigt Eflirigur; viljá færa félaginu hugheílar árnaðaróskir með hinn mikla sundkappa Eyjólf Jónsson, og að Þróttar.menn erfi og beri unpi bað sem bezt er í fari Eyjólfs: Styrkur, vilji, þrautseigja og bindindissemi, því hverjum þeim sem tileinkar sér þá eiginleika er sigurinn vís. Einar Sæmundsson, formaður KR. flutti kveðjur íþróttafélaga í Reykjavík og nágrenni, og þakkaði samstarfið á þessum fvrstu 10 árum. Færði hann og félaginu að gjöf peningaupphæð frá sömu félögum. Formaður Dómarafélagsins, Grétar Norðfiörð, flutti kveðjur frá Dómarafélaginu. Lýsti hann og nokkuð átökum þeim sem oft urðu er leikir voru háðir þar suður frá. Urðu stundum úr þessu svæsnir götubardagar og þá haft til vopna það sem nær- tækt var. Engin stórslys urðu, svo vitað var, en nú eru þetta að verða þjóðsögur, sem gaman er áð rifja upp við hátiðleg' tæki- færi. Að lokum hvatti Grétar félags- menn til dáða og sagði að merki Þróttar væri þeirra merki. Af- henti hann siðan félaginu fána Dómarafélagsins. Guðjón Einarsson, varaforseti ÍSÍ, ávarpaði afmælisbarnið og sagði m.a. að það væri ekkert smáverk að stofna knattspyrnu- félag. Það heíðu margir reynt og ekki tekizt. Halldóri Sigurðs- syni tókst það, ásamt ungum drengjum á ,.HoItinu“ og bað Guðjón alla viðstadda að hrópa ferfalt húrra fyrir brautr.vðj- andanum, og var hressilega tek- ið undir það. 'Félaginu bárust skevti frá ýmsum aðilum, og þar á meðal frá Borgarstjóranum í Reykja- vik. Sennilega munu margir Þróttarar hafa búizt við því að í hófi þessu mundi fulltrúi frá^ Reykjavíkurbæ nota tækifærið til þess að ganga endanlega frá afhendingu athafnasvæðis til fé- lagsins., Að lokum þakkaði Ó.skar Pét- ursson gjafir og árnaðaróskir, og endurtók þakkir til allra, þeirra sem aðstoðað hefðu félagið á undanförnum árum. Fór hóf þetta fram með miklum myndar- brag, og var hið virðulegasta í alla staði. Einar Björnsson stjórn- aði samkvæminu með röggsemi og háttvísi. Eins og frá liefur verið sagt, gengst Sunddeild Ármanns fyrir fyrsta sundmóti vetrarins, og hefst það í kvöld. Hefur Ármann vandað til þess og boðið til þess mjög góðu sundfólki, einni stúlku og þrem körlum. Kom sund- fólk þetta með fliigvél á sunnu- daginn og hafði Ármann þá mót- tökuatliöfn í tilefni af komu þess og hauð m. a. þangað blaðamönnum. Fararstjórinn Gerhard T.ewin er varaformaður í sundsambandi Austur-Þýzkalands. Sagði h'ann að keppnisl.imr.hilið : hjá ]>eim væri nú að enda. Upplýst hann að Dietze hefði unnið í lands- keppninni við Svía um daginn og eins hefði Wiegand unnið i sömu keppni á 400 m, en hanD er skriðsundsmaður, aðeins 16 ára. Hann á beztan árangur á 100 m í 50 m, laug 58.4 og á 200 m 2,38.9. Júrgen Dietze er baksundsmað- ur 17 ára og á þýzkt unglinga- met á 100 m baksundi, 1.06.2 mín. Hann er líka ágætur flug- sundsmaður og hefur synt 200 m á 2,38,0 mín. Stúlkan Gisela Weiss, sem er 16 ára, hefur tekið gífurlegum framförum á tiltölulega stuttum tíma. Bezti tími hennar á 100 m í 50 m laug er 1,07,0 mín, en í 25 m laug 1,04,9, og 200 m á 2,28,0 mín. Snjallasti maðurinn í hópnum er bringusundsmaðurinn Konrad Enke, og á hann Evrópumet í 200 m bringusundi og er tími Afhending lieiðursviður- kenninga í hófi Þróttar voru afhent heiðursskjöl. og fylgir því pen- ingur með lárviðarsveig. Er þetta veitt mönnum sem hafa unnið gott starf fyrir félagið og verið þvi til mikillar aðstoðar á þess- um 10 árum. Þeir sem fehgu heiðursviðurkenningu þessa voru: Ben. G. Waage, Halldór Sig- urðsson, Eyjólfur Jónsson, Ein- ar Jónsson, Óskar Pétursson Haraldur Snorrason, Magnús Pét- ursson, Gunnar Pétursson. Arl Jónsson, Jón Guðmundss., Helgn Emilsdóttir, Baldur Ólafsson, Daníel Scheving, Bjarni Bjarna- son og Frímann Helgason. Þá var frumherjunum tveim. Halldóri Sigurðssyni og Eyjólfi Jónssyni, afhent til heiðurs ,og minja sinn bikarinn hvorum og voru það fyrstu sigurvegarar Þróttar sem að þeirri gjöf stéðu, fjórði ílokkur frá 1951. Þá var íslandsmeisturunum í handknattleik afhent heiðurssk og . peningur í tilefni ,.af . sigri þeirra 1957, en þær voru: Hel°o Emilsdóttir, Katrín Gústafsdó'.t- ir, Elín Guðmundsdóttir, Gréta Hjálmtýsdóttir, Ragnheiður Matt- híasdóttir, Lára Magnúsdóttir. Guðrún Steingrímsdóttir, Ólafia Lárusdóttir, og Sveinbjörg Karls- dóttir. hans 2,38,6. 100 m hefur hann synt á 1,13,4. Þegar Lewin var að því spurð- ur hvort hann byggist við því að eitthvað af fólki þessu mundi fara tiL O.L. í Róm næsta ár, brosti hann og sagði að það væri erfitt að segja, því að þeir yrðu fyrst að heyja „olympíuleiki*' heima fyrir ferðina til Rómar, því að Þjóðverjar verða að senda sameiginlega þangað! Sundfólk þetta hefur keppt bæði á Norðurlöndum og eins i Áusjur-Evrópu. Vcl'rður gaman að sjá hvernig sundfólk okkar stendur sig í .keppninni við þetta fólk, og þá sérstaklega hvernig Guðmundi og Ágústu tekst upp, en þau munu bæði vera í allgóðri þjálfun. Annars verða á mótinu sund- menn frá Akranesi, Keflavík, Hafnarfirði og Akureyri auk fé- laganna úr Reykjavík. KR hefur forysf- una í meistara- flokkunum Handknattleiksmóti Reykjavík- ur var haídið áfram sl. sunnud.- kvöld. í meistaraflokki kvenna urðu úrslit þau, að Ármann sigr- aði Val 8:5 og KR Víking 9:6. í meistaraflokki karla vann Vík- ingur Þrótt 7:6, ÍR vann Fram 12:9 og KR sigraði Val 10:9. — Nánar um leikina á morgun. Þróttarstúlkurnar, sem urðu íslandsmeistarar í handknattleik I 2. flokki kvenna 1952. Fjórir austurþýzkir gestir á Sundmóti Ármanns í kvöld

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.