Þjóðviljinn - 02.12.1959, Page 7
Ákafur áróSur dynur nú á
þjóðinni síknt og heilagt. í
vmsum rr.ynfum og tiibrigðum
er bonum haldið að fólkinu.
,.ÞjóSin 'evðir meiru en hún
aflar1’, .íslaadingar lifa um efni
fram“, ..í'lendingar kunna ekki
með fé’ að fara“, „íslendingar
kunna ekki að spara“. „Pen-
ingafiófið er að e.vðileggja þjóð-
ina“, Fólkif heimtar og heimt-
ar. en vill ekkert á sig leggja“
■o.s.frv., o.s.frv. Á þessu er klif-
að i ræðum og ritum hinna
,.ábvrgu“ stjórnmála- og fjár-
málamanna og hver væluskjóða
og pokaprestur, sem kemur í
útvarpið. rsynir að koma þessu
að. Það liggur nærri að ætla að
það sé . t.d. sett sem skilyrði
fyrir því að menn fái að tala
um daginn og veginn að þeir
faki þátt í þessum söng. Hver
étur og lepur þetta eftir öðrum
án þess vart verði að þeir hafi
hugmynd um. hvað þeir eru að
ræða. Þetta þykir bara fint,
þykir bera vott um mikla
ábyrgðartilfinningu, sannleiks-
ást og hreinskilni!
Hver er tilgangurinn með
þessu? Er hann sá, að boða
fólkinu sannleika, uppfræða
þjóðina um vandamál henn-
ar? Ef svo væri, myndu
þessar fiigru dyggðir, sem
inenn ætla að springa af,
þegar þeir tala eða skrifa,
koma fram í breytni þeirra
og aðgeróum þess utan. Að
vLsu skal ekki dregið í efa,
að einh.verjir taii í góðri
roeiningu, en þeir ættu þá
að athuga um hvað þeir
eru að tala.
Hinn raunverulegi tilgang-
ur er sá, að koma inn sekt-
artilfinningu hjá öllum al-
íroennmgi, fá hvern alþýðu-
nsann til að trúa því, að
hver biti o? sopi. sem liann
og fjölskylda hans lætur of-
an í sig, sé óráðseyðsla, sem
honum og þjóðinni allri mun
hefnast fyrir.
Af öllum bessum áróðri gæti
maíur hsldið. að síðustu tutt-
ugu árin bæfðu verið sem eitt
allsherjar fyllirí upp á krít, og
nú sé ekkert annað eftir en
timburménn og skuldir.
Eignir bióðarbúsins
ba og nú.
En hver er sannleikurinn?
Eí. við ætlum að gera okkur
grein fj-rir því, á hvern hátt
þetta tímabil hefur breytt efna-
hag þjóðarinnar; liggur næst að
xeyna að meta eignir þjóðarbús-
ins þá og nú. Ekkert slíkt upp-
gjör hefur farið fram svo vit-
að sé, en við skulum líta á
Lífskjörum almennings hefur hrakað
Er þetta
óráJseySsSa? —
Saments-
verksmiðjan
á Akranesi
í smíðum
helztu þættina. sem bera uppi
framleiðslu og menningarlíf
þjóðarinnar í dag.
Togaraflotinn. sem flytur á
land um helming sjávaraflans,
var ekki til fyrir tuttugu árum.
Þeir togarar, sem þá voru til,
voru úr sér gengnir og á eftir
tímanum. Mikill hluti bátaflot-
ans hefur orðið til á þessum
árum og sá bátafloti, sem þá
var til þolir engan samanburð
við bátaflotann nú, hvorki að
því er stærð né búnað snertir.
Hraðfrystihúsin, sem eru í dag
ein meginstoð útflutningsfram-
leiðslunnar. hafa orðið til á
þessum . tíma. Meginhluti iðn-
fyrirtækja hefur risið upp á
þessum tíma og þau eldri hafa
endurnýjað og aukið svo véla-
og húsakost sinn, að þau mega
teljast ný. Mikill hluti ræktun-
ar í sveitum og allur véla-
kostur bændanna hefur líka
orðið til á þéssum árum. Mik-
ill hluti vega og brúa, sem nú
tengja saman byggðir landsins,
hefur orðið til á þessum ár-
um. Flugvellir og flugvélakost-
ur landsmanna. sem eru nú
einn meginþáttur samgang'na og
flutninga bæði innanlands og
milii landa. voru ekki til fyrir
tuttugu árum. Mikill hluti
þeirra lmsa, sem þjóðin býr nú
í bæði í sveit og við sjó, er
yngri en tuttugu ára. Sama má
segja um félagsheimili, sam-
koinuhiis, skóla, o.s.frv. Fyrir
tuttugu árum var aðeins Ljósa-
fossstöðin til við Sog, þá var
engin Skeiðsfossvirkjun til,
engin Andakílsárvirkjun, engin
Mjólkárvirkjun, engin Grímsár-
virkjun. Þá var engin áburðar-
verksmiðja til né sementsverk-
smiðja. Og svona mætti lengi
telja. Lítum bara í kringum
okkur og athugum, hvað af því
sem fyrir augun ber, var til
fyrir tuttugu árum. Ber það
allt vott um evðslu og dugleysi?
En skuldirnar? Víst hvíla á
okkur skuldir, en það er þó
ekki verst hvað þær eru miklar,
heldur hyað þær eru óhagstæð-
ar. En voru- ekki til skuldir
fyrir tuttugu árum? Er enginn
sem minnist þess, að þá voru
meira að segja tolltekjurnar
veðsettar útlendum lánardrottn-
um?
Þíóðin leagur til hliðar
allt að briðjung
tekna sinna.
Sannleikurinn er sá. að þau
verðmæti. sem þessi ár skilja
eftir. í þjóðarbúinu, hafa gjör-
breytt öllum möguleikum þjóð-
arinnar til að lifa í landinu.
ÖIl þessi verfftmæti hefur
þjóðin skapað með mikiiii
vinnu og ráðdeild. Þjóðin kann
ekki að spara, segja menn. En
hvað segir aðalhagfræðingur
Landsbankans og núverandi
bankastjóri, Jóhannes Nordal,
um það? Fyrir stuttu síðan
komst hann að þeirri niður-
stöðu í tímariti bankans, að ís-
lendingar legfu til hliðar allt
að ÞRIÐJUNGITEKNA SINNA.
.Gera aðrar þjóðir betur?
Landsbankinn hefur þó ekki
hingað til staðið fyrir því, að
ljúga dyggðum upp á þjóðina
í peningasökum.
Skipulagsleysið er stór-
felldasta sóunin.
En er þá engin eyðsla tii?
Jú hún er til. Ýmsir braskarar
sem hafa rakað og raka til sín
stórgróða á kostnað vinnandi
fólks, hafa velt sér í margs-
konar lúxus bæði í húsbúnaði,
bilum, ferðalögum og öðrum
lifnaðarháttum, sem ekki eru
þjóðinni samboðnir. Auðmenn-
irnir íslenzku hafa sannarlega
ekki sýnt yfirleitt þá ráðdeild,
að þeim sé trúantíi fyrir meiri
peningum. eins og nú virðist
vera ætlunin. Og vissulega hafa
ýmsir efnaminni reynt að apa
eftir og" lifað umfram sín per-
sónulegu efni. En stórfelldasta
eyðslan er þó fólgin i því
skipulagsleysi, sem er á þjóð-
arbúskapnum. Ef rétt hefði ver-
ið að farið, hefði verið hægt að
skapa meiri varanleg verðmæti
og notadrýgri og um leið búa
þjóðinni betri lífskjör en hún
hefur.
Kjörin hafa ekki fylgt
framleiðslumættinum.
Já, lífskjörin, eru þau ekki að
siiga þjóðarbúið, enda hin
beztu í heimi?
Sé borinn saman fram-
leiðslumáttur þjóðarinnar nú
og fyrir tuttugu árum, verð-
ur það að segjast, að lífs-
kjörin hafa ekki batnað að
sama skapi. Og séu laun
manna nú borin saman við
það, sem þeir fengu þá fyr-
ir sama vinnutíma, bá er um
afturför að ræða. Hvort
heldur er um að ræða verka-
mann í fuilri dagvinnu árið
um kring eða fastlaunaðan
mann á heim árum. þá gátu
þeir leyft sér meira, lifað
betra lífi, heldur en sömu
menn nú með aðeins dag-
vinnu eða föstu launin ein
saman. Að bera saman lifs-
kjör manns, sem ekki hefur
atvinnu nema hluta eðlilegs
vinnutima og manns sem
ekki einasta vinnur fullan
vinnutíma heldur mikla yfir-
vinnu, kemur hins vegar
ekki til greina og er hrein
vitleysa. Af sömu ástæðu er
villandi að bera lífskjör ís-
lendinga saman við bað, sem
er hjá öðrum þjóðum, þar
sem yfirvinna tíðkast ekki
nema sem hrein undantekn-
ing. Annars liggur fátt hlut-
lægt fyrir um það, hvort og
að hve miklu leyti kjör ís-
lendinga eru betri en ann-
arra þjóða og þá hverra. Og
því má ekki gleyma, að
vinnutíminn er líka hluti
lífskjaranna. Það eru út af
fyrir sig engin hlunnindi að
fá að þræla.
Enginn ástæða til
samvizkubits.
Það eru því sannarlega ekki
Hfskjör vinnandi fólks, sem eru
að sliga þjóðarbúið — Og í
rauninni er það ekkert nálægt
því að sligast. Enginn alþýðu-
maður, sem lifir á vinnu sinni
einni saman, þarf bví að ganga
með neitt samvizkubit vegna
kjara sinna. Hann á ekki að
leggja eyru að vælinu um
eyðslu og lúxuslifnað, hann get-
ur ekki tekið bað til sín. Held-
ur á hann í fullri hreinskilní
við sjálfan sig og aðra að reyna
að gera sér sem gleggsta grein
fyrir hag sínum í sambandi við
hag þjóðarinnar í heild.
Þjóðin er vissulega ekkert
að komast á vonarvöl. Og ef
þeir „vísu“ sérfræðingar, sem
nú sitja sveittir við að reikna
út kauprán og verðbólgu yfir
þjóðina og eru sífellt að basla
við að troða íslenzku efnahags-
lífi í amerískar krepnuformúl-
ur, notuðu lærdóm sinn til að
reikna út, hvernig þjóðarbú-
skapurinn yrði bezt skipulagð-
ur til hagsbóta hveríum vinn-
andi manni, þá þyrftum við
ekki að kvíða.
Launþegi.
miðað við launin fyrir fastan, eðlilegan vinnutíma