Þjóðviljinn - 02.12.1959, Side 12
þlÓÐVILJINN
Miðvikudagur 2. desember 1959 — 24. árgangur — 265. tbl.
Alþingi kýs í dag
ótal ráð og neðndir
Bandormur í eíri deild
í neðri deild
Greiðsluheimildir
ÍS
Hvíti refurinn” í Gálga-
var unninn i gær
Sveinn Einarsson, veiðistjóri fór í gær ásamt fjórum
veiðifélögum sínum að svipast um eftir „hvíta refnum“,
sem undanfarið hefur sézt í Gálgahrauni. Þessi veiðiför
þeirra félaga tókst með þeim ágætum að eftir svo sem
hálfrar klukkustundar eltingarleik við dýrið, voru þeir
búnir að vinna það, og kom í ljós, að hér var um hvíta
tík að ræða.
Blaðinu bárust fregnir af
þessu í gær, og sneri það sér
til veiðistjóra, og bað hann um
upplýsingar. Skýrði hann svo
frá, að fyrst hefði orðið vart
við dýr þetta í vor og hefði það
einkum haldið sig í Gálga-
hrauni neðan við Silfurtún, en
einnig sézt uppí Víðihlíð. Töldu
allir, sem dýrið sáu; að hér
væri um ref að ræða og var
Handrit selt á
65.090 pund
Lýst handrit frá 13. öld,
Opinberunarbókin, var í gær
selt á uppboðj Sotheby í
London á 65.000 sterlingspund.
45 önnur gömul handrit voru
Éeld á uppboðinu fyrir samtals
nær 300.000 sterlingspund.
Sild veiðist nú í
Miðnessjó
.11—12 Akranesbátar fengu
síld í fyrrinótt og gærmorgun;
30—110 tunnur hver bátur.
Síldin viddist í Miðnessjó og
var það Fanney sem fanm síld-
ína og vísaði á hana. Þetta er
5 fyrsta sinn á þessu hausti að
síldin veiðist í Miðnessjó, eða
á sömu slóðum og hún hefur
á’ður verið á haustin, 30—34 míl-
ur frá Garðskaga.
Síld þesi er ljómandi falleg.
Ekki fengu allir bátarnir síld
sem köstuðu, enda leiðindaveður.
í gær komu 16 bátar til
Sandgerðis með samtals 276
tunnur. Aflahæst voru Hrönn II.
með 78 tunnur og Guðfinnur KV
með 65 tunnur. Hringnótabátar
gátu ekki athafnað sig í fyrri-
nótt vegna veðurs. Síldin er nú
mun betri en hún hefur verið
að undanförnu.
,,honum“ eignað. bæði fjárdráp
og hænsnadráp. Veiðistjóri taldi,
að þar hefðu verið á ferðinni
bæði minkur og tófa, en „hvíti
rebbi“ hefði síðan hirt leifarn-
ar. Hefði honum því verið
kenndur meiri óskundi en hann
hefði unnið.
Varð allt til lífs
Fjölmargar tilraunir hafa ver-
ið gerðar til þess að vinna á
„rebba“, en allar hafa þær mis-
tekizt, þar til í gær. Skotin hafa
klikkað og flest gengið á móti
veiðimönnum, en orðið ,,rebba“
til lífs. T.d. var vanur skotmað-
ur að eltast við hann lengi
dags í fyrradag, en allt kom
fyrir ekki.
Dýrið unnið
Fyrir hádegi í gær fór Sveinn
Einarsson, veiðistjóri, ásamt fé-
lögum sinum að svipast um eft-
ir dýrinu. Voru þeir allvel bún-
ir skotvopnum og höfðu einnig
með sér veiðihunda. Er þeir
voru komnir kippkorn út í
hraunið, sáu þeir hilla undir
allstórt hvítt dýr útí miðju
hrauni. Dýrið stakk sér þegar
undan og í hvarf. Þeir félagar
skiptu sér nú og höfðu byss-
urnar til taks. Flæmdist dýrið
þá út úr hrauninu, en ætlaði
Framhald á 10. síðu.
Kom inn með
bilaða vél
í fyrradag kom togarinn
Pétur Halldórsson inn með bil-
aða vél. Var hann á leið til
Nýfundnalands og var kominn
um 5—6 hundruð mílur, er
hann varð að snúa aftur. Við-
gerð á vélinni mun taka 10 til
14 daga. Hafþór frá Neskaup-
stað kom einnig inn sama dag
með bilaða vél. Hefur hann
verið í síldarrannsóknum að
undanförnu.
„Hvíti refurinn“, sem und-
anfarið hefur haldið sig
í Gálgahrauni og þar í
grennd. En loks „þegar
björninn var unninn“ kom
í ljós að hér var um að
ræða hundtík, sem hefur
samið sig að háttum refa,
og svipar raunar ótrúlega
mikið »iil þeirra að ýmsu
leyti. (Ljósm. Sig. Guðm)
Á kvöldfundi efri deildar í fyrrakvöld og nýjum fund-
um sem stóðu fram til kl. 3 um nóttina vra’ frumvarpið
um greiðsluheimildir úr ríkssjóði í janúar og febrúar
1960 afgreitt úr efri deild. Bandormsfrumvarpinu um
íramlengingu tekjuöflunarlaganna fimm var vísað til
2. umræðu og fjárhagsnefndar. ,
Menningarskipti
Sovétríkjanna og
Bratlands
í gær var undirritaður samn-
ingur í London miili Sovétríkj-
anna og Bretlands um menn-
ingarskipti á næsta ári. Gert
er ráð fyrir að skipzt verði á
heimsóknum vísindamanna,
kennara og stúdenta, svo og
sérfræðinga í iðnaði, landbún-
aði og læknisvísindum. Einnig
munu teknar upp1 viðræður um
að stöðva truflanir á útvarps-
sendingum.
Átti r'íkisstjórnin enn mjög
í vök að verjast fyrir harðri
gagnrýnj stjórnarandstæðinga.
á kvöld- og næturfundunum og
ekki bætti það úr skák að fund-
arstjórn öll lenti í har.tdaskol-
um hjá hinum nýja forseta,
Sigurði Ó. Ólafssyni. Einn þing-
manna stjórnarliðsins var i
veizlu úti í Sjálfstæðishúsinu og
þurfti hvað eftir annað að
draga, hann úr veizlufagnaðin-
um til að greiða atkvæði, kom
þá snöggvast í þingsalinn, í
veizlufötum, til að rétta upp
höndina. Einu sinni, er
greiðsluheimildafrumvarpinu
skyldi vísað til 3. umræðu, gáði
forseti þess eigi að hann fékk
ékki nema tíu atkvæði með, því
hinn veizluklæddi hafði orðið
eitthvað seint fyrir á hlaupun-
um. Sleit forseti umræðunni,
en varð að klúðrast við að taka
málið aftur á dagskrá til sömu
umræðu og áður hafði verið
slitið. Með þeim endemum var
málið talið afgreitt til 3. um-
ræðu!
Fundir eru boðaðir 1 dag í
sameinuðu þingi og í báðum
þingdeildum að loknum fundi
sameinaðs þings. Er frestunar-
tillagan ekki á dagskrá, en
kosningar í ótal ráð og nefnd-
ir og er upptalning þeirra í
dagskrá þingsins á 2. síðu. í
efri deild er bandormurinn einn
á dagskrá og í neðri deild
greiðsluheimildirnar.
GísRi Sveins-
son látinn
Gísli Sveinsson, fjTrverandi
þin.gforseti og sendiherra, and-
aðist í Landspítalanuin í fyrra-
dag, tæplega 79 ára að aldri.
Gísli var fæddur 7. des. 1880
að Sandfelli í Öræfum, lauk
stúdentsprófi 1903 og embætt-
isprófi í lögfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1910. Yf-
irdómslögmaður í Reykjavík
var hann 1910—1918, er hann
Jólablað Þjóðviljans kemur út
í dag, f jölbreytt og stórt
Jólablað Þjóðviljans 1959 kemur út í dag, 64 blaðsíður
að stærð í litprentaðri kápu, fjölbreytt að efni.
í blaðinu eru frumsamin ljóð
eftir Guðmund Böðvarsson, Jón
frá Pálmholti, Hannes Sig'fússon
og Þorstein Valdimarsson. Einn-
ig Ijóð eftir Ezra Pound í þýð-
ingu Málfríðár Einarsdóttur.
Sögur eru eftir Elías Mar,
Einar H. Kvaran og Wlad.vslaw
Þannig lítur forsíða jólablaðsins
út; gulbrún og' græn að lit.
Reymont, en greinar skrifa Sig-
fús Daðason, Hans Scherfig, Árni
Bergmann, Póll Bergþórsson, EI-
ías Guðmundsson, auk fjölda
þýddra g'reina. Ferðaþætti skrifa
þeir Gunnar Benediktsson, Jó-
hann Briem og Sigurjón Einars-
son úr Ketildölum. Af fleira efni
má nefna Óskastund ó jólum
tikningar eftir Bidstrup, mynda-
síður: svartlist frá Búlgaríu og
Danmörku, og fornaldarhetjur
Daumiers. Birtur er leikþáttur
eftir Svása Svaldal. einnig er í
þlaðinu skákþáttur. Loks er að
geta skákþrauta, en heitið er
600 kr. verðlaunum fyrir réttar
lausnir þeirra. Verðiaunakross-
gáta er að sjálfsögðu i blaðinu
og verðlaunin 1000 krónur.
Káputeikningu jólablaðsins
hefur Ragnar Lárusson gert, svo
og myndskreytingar.
Gísli Sveinsson
fyrrv. Alþingisforseti
var skipaður sýslumaður
Skaftfellinga, en því embætti
gegndi hann til ársins 1946, er
hann var skipaður fyrsti sendi-
herra Isiands í Noregi. Sendi-
herraembættinu gegndi hann
til ársins 1951. Þingmaður
Vestur-Skaftafellinga var Gísli
Sveinsson 1916—1921 og 1933
—1942. Landskjörinn þingmað-
ur var hann 1942—1946. Hann
var um skeið forseti sameinaðs
þings, m.a. stjórnaði hann
þingfundi á Lögbergi 17. júní
1944, er lýðveldi var stofnað.
Gísli Sveinsson var kvæntur
Guðrúnu Einarsdóttur og áttu
þau 4 börn.
Fundur í Sósíalistafélagi
Reykjavikur í kvöld kl. 8V2
Fundur verður lialdinn í Sósialistafélagi Reykja-
víkur í kvöld kl. 8.30 í Tjarnargötu 20. —
Áríðandi mál á dagskrá.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna og mætæ.
réttstundis.