Þjóðviljinn - 12.12.1959, Page 1
Herstjórn Bandaríkjamcmna hefur
haft islenzk stjórnarvöld cð spotti
BiSur hvorki eftir hinni,,gaumgæfilegu athugun"
isienzku stjórnarinnar né ,,ákvörSunum" hennar!
Auknar kröf-
ur við ökupróf
Samkvæmt upplýsingum
írá lögreglustjóra hefur um-
ferðalaganefnd nú lokið
samningu tveggja nýrra
reglugerða er varða um-
ferðamál. Önnur reglugerð-
in fjallar um ökukennslu og
ökupróf. Eru í henni ýmis
nýmæli, er miða að aukinni
kennslu og' meiri prófkröf-
um. Hefur reglugerðin ver-
ið send dómsmálaráðuneyt-
inu. Hin reglugerðin, sem
send var menntamálaráðu-
neytinu, fjallar um um-
ferðakennslu í barna- og
unglingaskólum, að hún
verði gerð að sérstakri
námsgrein og tekin próf í
umferðarreglum.
Enn einu sinni hefur sannazt á hinn( ljósasta hátt aö
bandarísk stjórnarvöld taka sínar ákvarðanir um her-
nám íslands án þess að láta svo lítiðj aö tala viö ríkis-
stjórnina og' aðalagenta sína hér á landi. í fyrradag til-
kvnnti Bandaríkjastjórn að hún hefði ákveöið upp á
sítt eindæmi að kalla heim allan landher sinn frá ís-
landi, 1.200 manns — á sama tíma og" ríkisstjórn íslands
þóttist vera að byrja að athuga það hvort hún sam-
i'Vkkti slíkar ráðstafanir!! Eflaust verður svo flotaliöið
nýja flutt til landsins á sama hátt.
sein sérfræðingar *íollyfirvaldanna töldu vera danska útflutningsframleiðslu. Þetta er alíslenzk
framleiðsla. — Myndin er tekin í Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar í gær.
Húsgögn smíðuð hér í Reykja-
vík haldin smyglvara í Eyjum
í gær hafði blaðið spurnir af því aö tollyfirvöldin væru
að rannsaka, hvaö hæft væri í því aö erlend húsgögn
og þá einkum dönsk, væru til sölu í húsgagnaverzlunum.
Inn í þessa rannsókn hefur jafnframt dregizt íslenzk
framleiösla, sem álitið var að væri dönsk.
Þegar blaðafregnir bárust fyrst
um það að til stæðu breytingar
á hernáminu bar Einar Olgeirs-
son fram fyrirspurn á þingi til
utanríkisráðherra. Guðmundur í.
Guðmundsson kvað fram hafa
komið hugmyndir um skipulags-
breytingar, án þess að um nokkra
fækkun væri að ræða( og hélt
síðan áfram:
,,Þetta mál er að sjálfsögðu
á algeru frum- og byrjunar-
stigi og hefur ríkisstjórn ís-
lands hvorki unnizt tími né
tóm til að athuga þetta mál
og ræða sem skyldi. Rikis-
stjórnin mun að sjálfsögðu at-
huga málið gaumgæfilega og
þegar sú athugun hefur far-
Ið fram, þá mun hún taka sín-
ar ákvarðanir, en um fækkun
eða brottför varnarliðsins er
ekki að ræða, heldur eingöngu
um skipulagsbreytingu og
samsetningu þess“.
I
Ráðherrann gerður að
ósannindamanni
Þetta sagði utanríkisráðherra
á Alþingi 7. desember. En 10.
desember, þremur dögum síðar,
tilkynnti hermálaráðuneyti
Bandaríkjanna opinberlega að
þessar breytingar hefðu verið
ákveðnar endanlega og einhliða
og yrði landher Bandaríkjanna,
1200 manns, fluttur burt á fyrra
heimingi næsta árs. Bandarísk
stjórnarvöltf sáu þannig enga á-
stæðu til að bíða eftir liinni
„gaumgæfilegu athugun" íslenzku
stjórnarinnar eða „ákvörðunum"
hennar! Og þau létu ekki einu
sinni svo lítið að skýra íslenzku
stjórninni frá hinni opinberu tii-
kvnningu sinni; þegar Þjóðvilj-
inn hafði samband við utanríkis-
Nýr viti lýsir á
Meðallandssandi
I síðasta mánuði var kveikt
á riýjum vita á Meðallands-
sandi. Er þetta stálgrindar-
viti með ljóskeri í 25 metra
hæð yfir sjávarmál og sést
til hans úr 13 sjómílna fjar-
lægð.
ráðuneytið i fyrrakvöld og spurð-
ist fyrir um mélið — vissu starfs-
menn þess ekki neitt í sinn haus.
Ringulreiðin alger
Svo fullkomin er ringulreiðin
hjá hernámsmönnum að Alþýðu-
blaðið, sjálft málgagn utanríkis-
ráðherra, birti í gær forustugrein
um málið, þar sem rætt er um
„óstaðfestar tilgátur“ hjá banda-
ríska blaðinu New York Times.
Síðan . segir svo í forustugrein-
inni með feitu letri;
Framhald á 9. síðu
Bráðkvaddur
í bíl sínum
Laust fyrir kl. 18 í gærdag
varð Karl Magnússon, Rauða-
læk 33, bráðkvaddur í bíl sín-
um á mótum Höfða og Boga-
túns.
Vegfarendur munu hafa veitt
því eftirtekt að allt væri ekki
með felldu er þeir sáu til bif-
reiðarinnar og við nánari at-
hugun kom í Ijós að Karl lá
í bifreið sinni meðvitundarlaus.
Var ekið með hann á Slysa-
varðstofuna en þar kom í ljós
að hann var látinn.
Karl Magnússon var á sex-
tugsaldri.
ri111111111111111111111111111111!i ■
I gær fann flugvél frá
bandaríska flotanum flugvélar-
flak á ísnum við austurströnd
Grænlands og gerði flugum-
ferðastjórninni í Reykjavík að-
vart og fór björgunarflugvél
frá Keflavíkurflugvelli á vett-
vang að beiðni flugmálastjórn-
arinnar. Björgunarflugvélin
fann flugvélina og flaug yfir
hana, sá áhöfnin slóðir um-
hverfis vélarflakið en vissi
ekki, hvort heldur þar væri um
að ræða spor eftir menn eða
hvítabirni. Flugmennimir töldu>
Þjóðviljinn náði tali af Frey-
móði Þorsteinssyni, fulltrúa
bæjarfógeta í Vestmannaeyj-
um, og gaf hann þær upplýs-
IIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllIII
að flugvélin væri bandarísk að
gerð, DC3 eða Douglasvél.
Hins vegar töldu þeir einkenn-
isstafi vélarinnar rússneska.
Flugumferðastjórnin snéri
sér í gær til sovézka sendiráðs-
ins og bað það að grennslast
eftir því, hvort nokkurrar sov-
ézkrar flugvélar væri saknað á
þessum slóðum. Hafði svar
ekki borizt við þeirri fyrir-
spurn í gærkvöld, en ekki er
vitað til þess, að nein flugvél
hafi týnzt þarna nýverið. Upp-
^ramhald á 8. síðu.
ingar, að tollyfirvöldum hefði
borizt kæra um að Húsgagna-
verzlun Hafnarfjarðar (útibú í
Vestm.) hefði til sölu hús-
gögn, sem framleidd væru er-
ler(lis. Rannsókn var þegar
hafin og leiddi hún í ljós, að
verzlunin var með lítið eitt af
erlendum húsgögnum á boð-
stólum, meginhlutinn var hms
vegar íslenzk framleiðsla.
Sérfræðingar töldu
húsgögnin clönsk
Það vakti sérstaka athygli,
að af íslenzku húsgögnunum
var framleiðsla eins fyrirtæk-
is talin dönsk.
Sérfróðir menn voru til
kvaddir og töldu þeir eiigan
mun sjáanlegan á þessari
framleiðsln og því bezta
sem Danir frainleiða af
sams konar húsgögnnm, en
hér var nm að ræða borð-
stofuhúsgögn og stóla og
skápa. Var þá kvaddur til
maður frá fyrirtækinu og
staðfesti hann, að umrædíl
liúsgögn væru teiknuð og
smíðuð af Húsgagnavinnu-
stofu Helga Einarssonar,
Brautarholti 26, sér í bæ.
Hús.gögnin frá Helga Einars-
syni eru öll merkt á þaim hátt
sem myndin sýnir. Tollyfir-
völdin munn liafa liaft grun-
semdir um að slíkir miðar
liefðu verið límdir á dönsk
liúsgögn. Sá grunur reyndizt
rangur. Öll húsgögnin, sem
merkt voru á þennan liátt í
Húsgagnaverziun Hafnarfjarð-
ar, reyndust vera frá Helga
Einarssyni.
Mál þetta er enn í rannsókn
að því er viðkemur erlendu
húsgögnunum og vinna toll-
yfirvöldin hér í Reykjavík að
rannsókn þess.
Framhald á 11. síðu. . t
JJJ1111111111111111111111111111111111111111111111II1111 Ml 1111111111111111111111111111111111111U
| Flugvélarflak finnst í
I á ísiium við Grænland I