Þjóðviljinn - 12.12.1959, Page 12
Brp þörf að vegferendur sýni mlkla IMÓÐVIUINN
aðgát í umferðinni í jólaösinni
laugardagur 12. desember 1959 — 24. árgangur — 274_ tbl.
Lögreglan setur takmarkanir á umferS i miSbœnum
og umferSagœzlan verÖur aukin til mikilla muna
Eins og venja er fyrir jólin, gerir lögi'eglan í Reykja-
vík sérstakar rá'östafanir vegna aukinnar umferðar og
slysahættu og taka þær gildi n.k. mánudag. Felast þær
bæði í nokkurri takmörkun á umferð í rniðbænum og
stóraukinni löggæzlu víðsvegar um bæinn.
I gær skýrði Sigurjón Sigurðs-
son lögreglustjóri fréttamönnum
frá þeim ráðstöfunum, sem gerð-
ar yrðu að þessu sinni. Benti
hann á, að auk þess, sem
skammdegið væri alltaf hættu-
legasti árstíminn í umferðinni,
skapaði hin stóraukna umferð
fyrir jólin alltaí nauðsyn á meiri
aðgát vegfarenda og auknu eftir-
Jiti löggæzlunnar. Bifreiðafjöld-
inn eykst einnig á hverju ári
svo og bifreiðanotkunin. Þannig
voru í Reykjavík skráðar 8716
bifreiðir um síðustu áramót, en
þeim mun hafa fjöigað á ‘árinu
um nálega 800. Auk þess er hér
svo daglega á götunum mikill
fjöldi aðkomubifreiða úr nær-
liggjandi héruðum.
Ráðstafanir þær, sem lögregl-
an gerir að þessu sinni eru eink-
um fólgnar í tvennu. í fyrsta lagi
eru settar ýmsar takmarkanir á
umferð og stöður bifreiða í mið- 1
bænum og nágrenni og er sér-
staklega áríðandi, að allir bif-
reiðastjórar hlíti þeim reglum.
Taka þær gildi n.kT mánudag, 14.
þ.m. Reglurnar eru auglýstar á
5. síðu blaðsins í dag og eru bif-
reiðastjórar áminntir um að lesa
þær vel og geyma blaðið með
þeim.
í öðru lagi verður umferðar-
gæzlan aukin mjög mikið tím-
ann fram að jólum. Venjulega er
bænum skipt niður í 16 varð-
svæði en þeim verður nú fjölg-
að upp í 25—30 og síðustu dag-
ana fyrir jól upp undir 40. Verð-
jj 11111111111111111111 m 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111 m 111111111111 r
1 Stúlkur í Keflavík hopa ekki
íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii
Bragi Friðriksson skrifstofu-
stjóri Vinnuveitendasambands fs-
lands fór í gær til Keflavíkur
til samningaviðræðna við söltun-
arstúikurnar og stóðu þær samn-
ingaviðræður til kvölds.
Söltunarstúlkurnar höfðu kos-
ið eina stúlku af hverri söltun-
arstöð til að semja fyrir sig,
ásamt með konum úr stjórn
Verkakvennafélagsins.
f samningaviðræðunum tóku
stúlkurnar ekki í mál að semja
um þrjú verð fyrir söltunina og
kváðu þriðja flokkinn hreina
blekkingUj enda munu verkstjór-
ar á stöðvunum telja þriggja
flokka skiptingu óframkvæman-
lega nema með því að telja í
hverja einustu tunnu, annað yrði
ágizkanir einar og stöðugt deilu-
efni.
Samningaviðræðurnar báru því
ekki árangur. en mun verða hald-
ið áfram i dag.
- Sigurrós Sveinsdóttir, formaður
Framtíðarinnar í Hafnarfirði.
kvað félagið hafa samþykkt til-
boð atvinnurekenda um 3 flokka
!! 111!1111111II1111111111111111111
og heimilað Óskari Hallgríms-
syni að skrifa undir fyrir sína
hönd — ef verkakvennafélagið
í Keflavík samþykkti samning-
ana einnig, en á því virðast ekki
horfur.
Meiri ölvun --
Fleiri bíla-
árekstrar
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Reykjavík
urðu alls 1547 bifreiða-
árekstrar hér í bænum ár-
ið 1958. Það sem af er
þessu ári eða fram til 9.
þ.m. hafa hins vegar orðið
1719 bifreiðaárekstrar,
þannig að þeir eru þegar
orðnir 172 fleiri en í fyrra.
Á sama tíma hafði þeim,
sem teknir voru ölvaðir við
akstur, fjölgað um 71. Ár-
ið 1958 var tala þeirra 198,
en 9. desember á ár voru
þeir komnir upp í 269.
ur tala lögregluþjóna á vakt þá
orðin tvöföld frá því sem nú er
eða 80 í stað 40.
Að lokum kvað lögreglustjóri
mjög áríðandi, að allir vegfar-
endur bæði bifreiðastjórar og
gangandi fólk gættu fyllstu var-
úðar í umferðinni, fylgdu sett-
um reglum og hlýddu fyrirmæl-
um umferðalögreglunnar í hví-
vetna’, til þess að koma í veg
fyrir slys á jólaföstunni.
Selma Jónsdóttir
ísbjörn unninn í
Drangavík 1932
ísbirnir munu síðast hafa
gengið hér á land svo ör-
ugglega sé vitað í april 1932.
Frá þessu skýrði Guð-
mundur Guðni Guðmunds-
son, Langholtsvegi 182,
Þjóðviljanum í gær, út af
ummælum í fréttinni um
dýrin sem sáust í Þingeyj-
arsýslu í fyrra. Guðmundi
er kunnugt um að 8. apríl
1932 vann Guðmundur Guð-
brandsson, bóndi í Dranga-
vík í Strandasýslu, bjarn-
dýr sem þar gekk á land.
Feldurinn af því er nú í
eigu Jóns Eiríkssonar skip-
stjóra. Um svipað leyti rak
annað dýr dautt í Veiði-
leysu. Var þá töluverður
hafís á Húnaflóa.
Ekki má miklu muna, þegar nýjustu langferðabílarnir aka
um hina 47 ára gömlu brú á Yíri-Rangá.
Fjalabrot skýra menningar-
sambönd íslendinga á söguöld
Selma Jónsdóttir ver doktorsritgerð við
Háskóla íslands fyrst kvenna
Til eru í ÞjóÖminjasafni 13 fjalabrot sem þangaö bárust
lxá Bjarnastaöahlíö í Skagafirði, og er á þeim forn
myndskurður. Þessi fjalabrot hafa orðiö tilefni doktors-
ritgerðar sem kemur út í dag: Dómsdagurinn í Flata-
tungu, eftir Selmu Jónsdóttur listfræðing.
Selma hefur komizt að þeirri
niðurstöðu í rannsóknum sínum
að fjalir þessar séu úr býzanzkri
dómsdagsmynd frá síðari hluta
11. aldar. Hafi í hinum sögu-
fræga Flatatunguskála verið út-
skorin dómsdagsmynd, 5,2 m á
breidd og 2,3 m á hæð, en stíl-
einkennin benda á náinn skyld-
leika við list þá sem var í Monte
Cassino í Suður-Ítalíu á síðari
hluta 11. aldar. Bendir Selma á
að fyrirmyndin kunni að hafa
komið hingað til lands með þeim
þrem ermsku biskupum sem
nefndir eru í íslendingabók Ara
fróða, en íslenzkur listamaður
hafi síðan skorið myndina í tré.
Rannsóknir Selmu hafa þannig
víðtækt menningarsögulegt gildi
og munu þykja forvitnilegar
þeim sem áhuga hafa á íslenzk-
um fræðum.
Bókin er gefin út á mjög vand-
aðan hátt af Almenna bókafélag-
inu. Hún er að fullu prentuð í
Sviss og er í stóru broti. 66
myndir eru i bókinni, bæði af
fjalabrotunum og erlendri mynd-
iist sem tekin er til hliðsjónar
við röksemdafærslu bókarinnar.
Sjálf ritgerðin er 91 blaðsíða og
skiptist hún í sjö kafla. Jafn-
framt ísienzku útgáfunni kemur
ritgerðin einnig út á ensku.
Ritgerð Selmu var tekin gild
til doktorsvarnar 12. júní s.l. af
dómnefnd sem Háskóli íslands
skipaði, en í henni áttu sæti
Magnús Már Lárusson prófess-
or, doktor Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður og doktor
Francis Wormald prófessor
við Lundúnaháskóla. Verða tveir
þeir síðartöldu andmælendur
við doktorsvörnina sem fer fram
16. janúar n.k. Er Selma fyrsta
íslenzka konan sem ver doktors-
ritgerð við Háskóla íslands, og
aðeins ein íslenzk kona hefur
áður lokið doktorsprófi, Björg
C. Þorláksson, við háskólann í
París.
Sjö metra akbraut, auk gangstétta á
nýrri bru yfir YtriRangá hjá Hellu
Frá fréttaritara Þjóðvilj-
ans í Rangárvallasýslu.
Einstök veðrátta hefur ríkt
hér síðasta mánuðinn. Snjó-
laust er enn með öllu og frost
hefur ekki staðið lengi svo
heitið geti. Sunnan andvari
og smáskúrir hafa skipzt á
síðustu dagana og er þetta
eitt hið mildasta vetrarveður
sem menn muna eftir. Sauðfé
hefur því verið létt á fóðri og
sums staðar hefur það ekki
verið tekið á gjöf, enda kem-
ur það sér vel fyrir bæntdur
eftir annað eins óþurrkasum-
ar og liðið er.
Af stórframkvæmdum hér
í Rangárþingi má helzt nefna
brúarsmíði á Ytri-Rangá, fyr-
ir framan Hellu. Á brúin að
verða með 7 metra breiðri
akbraut auk gangstétta. Þar
sem gamla brúin, sem byggð
var árið 1912, er orðin ófull-
nægjandi er þetta þýðingar-
mikil hagsbót fyrir vegfar-
endur og þá ekki sízt He’lu-
búa ejálfa, þar sem þeir
munu að mestu leyti losna
við skarkala umferðarinnar.
Hinsvegar er það almælt að
sumum þyki sem þeir missi
spón úr aski sínum, þegar
bilar skemmtiferðafólks hætta
að aka fram hjá verzlunar-
húsinu og sælgætissjoppum
þess.
Af öðrum framkvæmdum
má minnast á byggingu
þvottahúss við Kaupfélag
Rangæinga að Rauðalæk og
félagsheimilis á Hvolsvelli,
sem væntanlega mun verða
fu’lgert á næsta ári.
Stjórnarkiör
S. R,
Kjörstjórn Sjómannafé-
lags Reykjavíkur hefur
beðið blaðið að geta þess
að allsherjaratkvæða-
greiðsla við stjórnarkjör
í S.R. fer daglega fram
í skrifstofu félagsins Al-
þýðuhúsinu frá kl. 10—
12 f.h. og 3—G e.h. Á
morgun, sunnudag, verður
kosið frá klukkan fvö lil
níu e.h.
Listi starfandi sjómanna
er B-listi
Sýningu Eyjólfs
lýkur á morgun
Umi helgina eru síðustu for-
vöð að sjá sýningu Eyjólfs
J. Eyfells að Selvogsgrunni 10.
Hún verður opin í dag og á
morgun ki. 2—10 síðdegis.
Aðsókn að sýningunni hef-
ur verið ágæt; höfðu á níunda
og margar myndir selzt. Sýn-
hundrað manns séð hana í gær
ingunni lýkur annað kvöld.