Þjóðviljinn - 15.12.1959, Síða 1
I'riðjudagur 15. desember 1959 — 24. árgangur — 276. tbl.
Neytendur og íramleiðendnr semja
um breytta lögujöf um búvöruverð
Fallizf á sjónarmiS neytenda i veigamiklum atriðum —
ný bráSabirgSalög eru vœntanleg I dag!
Eldtir í vél-
bát í höfninni
í fyrrinótt kom upp eldur í vél—
bátnum Ásdísi RE 60 þar sem
hann lá við verbúðabryggjuna.
Þegar að var komið var mikill
reykur í lúkarnum og fann lög-
reglan, sem kom fyrst á vett-
vang sofandi mann og gat bjarg-
að honum út. Kviknað hafði í út
frá eldavél og komizt eldur í
klæðningu í hásetaklefanum.
Slökkviliðið réð fljótlega niður-
lögum eldsins og urðu skemmd--
ir ekki miklar.
Xáðst hefur samkomulag milli fulltrúa neytenda og
íramleiðenda um mjög veigamiklar breytingar á lögun-
um um verölagningu landbúnaðarafurða. Samkvæmt
binu nýja samkomulagi er algerlega óheimilt að hœkka
verð á landbúnaðatvörum innanlands til aö bœta upp
verð á útfluttum landbúnaöarvörum. í annan stað er á-
kvörðunin um dreifingarkosnað nú tékin úr höndum
framleiðsluráðs landbúnaðarins og afhent sex manna
nefnd neytenda og framleiðenda, pannig að sú nefnd
ákveður eftirleiðis bœði v,erð pað sem bændur eiga að
fá og paö sem neytendur eiga að greiða.
Ætlun ríkisstjórnarinnar mun vera að staðfesta þetta
nýja samkomulag með nýjum bráðabirgðalögum í dag
— sama daginn og hin frægu fyrri bráðabirgðalög falla
ur gildi!
Deilurnar í sex manna nefnd-
inni spruttu sem kunnugt er
fýrst og fremst út af því að
Framleiðsluráð ákvað verð-
hækkun á kjöti hér innanlands
til þess að bæta upp lágt verð
á útfluttu kjöti. Töldu fulltrú-
ar neytenda að Framleiðsluráð-
ið hefði ekki heimild til að á-
kveða slíka verðhækkun upp á
sitt einsdæmi og höfðuðu mál
af þessu tilefni. Dómur féll
hins vegar framleiðsluráði í
vil bæði í undirrétti og hæsta-
rétti. Aðilar þeir sem tilnefna
fulltrua af hálfu neytenda í
sex manna nefndina ákváðu þá
að draga fulltrúa eína til baka
þar sem dómurinn svipti burt
þeim grundvelli sem þátttaka
neytenda í nefndinni byggist á.
Varð landbúnaðarverð þá ekki
ákveðið á löglegan hátt, en rík-
isstjórnin greip til hinna frægu
bráoabirgðalaga sinna.
Dómnum hrundið með
nýjum lögum.
Viðræður milli fulltrúa neyt-
enda og framleiðenda um
brevtingar á lögum til þess að
tryggja áframhaldandi sam-
vinnu í sex manna nefndinni
hófust óformlega fyrir nokkru
og hafa síðan þróazt stig af
stigi, þar til formlegt * sam-
komulag var gert í fyrrakvöld.
Varðandi aða'deilumálið er
samkomulagið í því fólgið að
skýrt skuli fram tekið í lög-
um
,,að óheimilt er aff bæta
upp söluverð landbúnaðar-
vara á erlendum markaði
með því að hækka söluverð
þeirra innanlands“.
Er þarna gengið að fullu að
kröfum neytenda og fylgt þeim
sjónarmiðum sem fram liafa
komið í ályktunum Sósíalista-
flökksins og Alþýðubandaiags-
ins um þstta efni.
Sex manna nefndin
ákveður allt verðlag.
Annað ágreiningsefni í nefnd-
inni spratt af því að Fram-
leiðsluráðið fór með ákvarðanir
um dreifingarkostnað, og hækk-
aði stundum verð á landbúnað-
arvörum eftir að sex manna
nefr.din hafði gert sínar loka-
ákvarðanir. Einnig á þessu
sviði hefur verið samið um
hinar veigamestu breytingar,
þannig,
að við aðalverðlaginu á
haustin, 1. september, fjall-
Framhald á 11. síðu.
Myndin er af samkomu-
lagsnefndinni: Eðvarð,
Sæmundi, Einari, Sverri,
Sveinj og Sigurjóni, ásamt
Ingólfi Jónssyni, landbún-
aðarráðherra og Gunn-
laugi Briem, ráðuneytis-
stjóra. (Á myndina vant-
ar Steingrím Steinþórs-
son, búnaðarmálastjóra).
Eins o,g skýrt var frá liér
í Þjóðviljanum á sunnu-
daginn, hélt stjórn liluta-
félagsins Vegamóta fyrsta
fund sinn á þaki nýbygg-
ingarinnar við Laugaveg
á laugardaginn. Þá var
þessi mynd tekin af fé-
lagsstjórninni. Frá vinstri:
Sigvahli Tliordarson, Sig-
urður Thoroddsen, Einar
Andrésson framkvæmda-
stjóri Vegamóta, Bene-
diltj Stefánsson, Kristinn
E. Andrésson formaður
Vegamóta, Adolf Björns-
son, Bagnar Ólafsson o.g
Guðmundur Hjartarson.
(Ljósm. Sig. Guðm.).
Scsmheldni síldar-
stúlkna órjúfandi
í Keflavík — Tvífella tilboð atvinnurek-
enda um 3 verðflokka við söltun
Á sunnudaginn hélt Verka-’til að ræða tilboð atvinnurek-
kvennafélagið í Keflavík fund enda um þrjá taxtaflokka við
síIdarsöÞtun. Felldu þær tilboð—.
ið öðru sinni og nú með 65
atkv. gegn 5 og annað óform-
Jegt tilboð með 70 atkv., eða
allra fundarkvenna.
Tilboð atvinnurekenda um 3
verð var lagt fyrir fundinn nú
samkvæmt tilmælum atvinnu-
rekenda, enda þótt félagið hefði
áður fellt tilboð þeirra.
Einnig var lagt fyrir þennan
fund óformlegt tiiboð frá at-
vinnurekendum og fellt með
samhljóða atkvæðum.
Stúlkurnar telja óframkvæm-
anlegt að hafa þrjá flokka við
söltunina nema því aðeins að
telja í hverja tunnu. Verkstjór-
ar á söltunarstöðvunum í Kefla-
vík og aðrir sem þar vinna
.Framhald á 3." síðu.
• *
eri s tyju
irunaour um
372 þus kr. vantar í bæjarsjoð árið 1956 «g 1957
Vestmannaey jum.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
hefur kært fyrrverandi bæjar-
gjaldkera, Halldór Örn Magnús-
son, fyrir meintan fjárdrátt og'
skjalafölsun á árunum 1956—
57. er liann gegndi þessu starfi.
Fyrir nokkru var hafin endur-
skoðun bæjarreikninganna fyrir
árin 1956—’57 og komust endur-
skoðendur að þeirri niðurstöðu,
að í bæjarsjóð vantaði 372.000,00
kr. frá þessum tíma. Endurskoð-
endur reikninganna voru þeir
Ágúst Bjarnason, Páll Þorbjarn-
arson og Óskar Sigurösson. Bæj-
arstjórnin liélt aukafund um
þetta mál í gærmorgun og lá þar
fyrir skýrsla frá endurskoðend- i
um, en bæjarstjórnin hefur nú
falið bæjarfógeta að rannsalca
málið.
Ilalldór Örn Magnússon liefur
verið kaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Vestmannaeyja frá því
liann lét af embætti bæjargjald-*.,,
kera.