Þjóðviljinn - 31.03.1960, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 31. marz 1960
TILKYNNING
iiitt söluskcitt uí innlendum viðskiptum
samkvæmt lögum nr. 10. 22. mcsrz 1960
i. VI.
Frá«l. apríl 1960 skal greiða 3% söluskatt af andvirði seldrar
vöru og verðmæta og endurgjaldi fyrir hverskonar starfsemi og
j:;jónustu. Til skattskyldra viðskipta telst öll sala eða afhending
vcru, þar með talin sala pöntunarfélaga, umboðssala, sala við
frjáls uppboð svo og öll vinna og þjónusta, sem látin er í té
af iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, elnstaklingum eða stofn-
unum, er stunda hverskonar sjálfstæða starfsemi. Einnig er
skattskyld úttekt eigendi úr eigin fyrirtæki, jafnt vara, vinna
(g þjónusta.
11.
Söluskattskyldir eru allir þeir, sem annast söluskattskyld við-
skipti og skiptir ekki máli í því sambandi hvort hlutaðeigandi
er einstaklingur, firma eða félag, opinber stofnun, fyrirtæki rík-
is eða sveitarfélags, eða aðrir aðilar, þótt undanþegnir séu skatt-
fkyldu samkv. lögum nr. 46/1954 um tekjuskatt og eignar-
skatt eða öðrum lögurr. Einnig eru umboðsmenn og fyrir-
svarsmenn erlendra aðila. sem hafa söluskattskylda starfsemi
hér á landi, skattskyldir af slíkri starfsemi.
m.
Skattskylda er almennt bundin við síðasta stig viðskipta. Það
cr því aðalregla að sala til neytanda er skattskyld, sala ‘til
cndurseljanda skattfrjáls Neytandi telst sá, sem kaupir vöru,
vinnu eða þjónustu til eigin nota eða neyzlu, endurseljandi sá,
sem kaupir vöru eða vinnu til að selja aftui eða notar vöruna
|
eem efni í vöru, sem framleidd er í atvinnuskyni. Þetta gildir
þó ekki um óvaranlegar rekstrarvörur og hjálparefni til fram- ,
leiðslustarfsemi, sem e'kki mynda efnisþátt framleiðslunnar, og-
skal endurseljandi greiða söluskatt af kaupverði sl'íkra vara.
IV.
Því aðeins er heimilt að selja endurseljanda vöru, vinnu eða
þjónustu án söluskatts að hann hafi tilkynnt skattyfirvöldum
i m starfsemi sína og sýni skirteini er sanni að hann hafi heim-
i'd til að kaupa viðkomandi vöru án söluskatts sem endurselj-
andi.
Eyðublöð þessi ásamt leiðbeiningum fást hjá skattstofum og
skattanefndum. Skulu allir söluskattskyldir aðilar, í síðaMta lagi
1. maí n. k., hafa tilkynnt skattayfirvöldum um atvinnu-
rekstur sinn eða starfsemi eftir því sem fyrir er mælt og feng-
ið viðurkenningu fyrir móttöku tilkynningar. Gildir sú viður-
kenning sem bráðabirgða heimild til kaupa á vöru án sölu-
skatts. Þeir sem liefja starfsemi eftir að lögin öðlast gildi skulu
tilkynna það áður en starfsemi hefst. Ef söluskattskyldur aðili
hættir starfsemi þeirri, sem tilkynnt hefur verið, fellur um-
rædd heimild úr gildi, og skal tilkynnt um það til skattyfir-
valda.
V.
Eftirfarandi sérákvæði gilda um innheimtu söluskatts af neðan-
t'.ilinni starfsemi og viðskiptum:
a. Seljendur skulu taka söluskatt af verði allrar vöru og þjón-
ustu, sem seld er í smásölu og skiptir þá ekki máli, hvort
um er að ræða sölu til neytenda eða endurseljenda, þó skal
ekki innheimta söluskatt af sölu á timbd, trjávörum, steypu-
styrktarjárni og sementi til endurseljenda.
b. Söluskattur og aðgangseyrir að skemmtunum skal innheimt-
ur með skemmtanaskatti.
e. Af vörum þeim, sem Tóbakseinkasala ríkisins selur, greiða
þeir aðilar, sem hafa með höndum smásölu ^líkra vara, einka-
sölunni söluskatt af þeim vörum um leið og þeir greiða kaup-
verð varanna og er skatturinn miðaður við smásöluverð.
d. Innflytjendur olíu og benzíns skulu taka söluskatt við sö’u
eða afhendingu þessara vara til umboðsmanna sinna eða
annara aðila. Skatturinn miðast við smásöluverð.
Smásalar og umboðssalar sem að kveldi hins 31. mrrz 1960
eiga óseldar slikar vörur skulu innheimta söluskatt af sölu-
verði þeirra og standa skil á honum í ríkissjóð.
Skatturinn miðast við heildarandvirði eða heildarendurgjald.
vóru, vinnu eða þjónustu, án frádráttar nokkurs kostnaðar.
Verð vöru, vinnu og þjónustu má hækka sem söluskatti nemur.
Vanræki einhver að taka söluskatt af skattskyldum viðskipt-
im, ber honum eigi að síður að standa skil á skattinum.
\II.
Undanþegin söluskatti er sala eftirtalinna vara og verðmæta:
Vörur seldar úr landi, nýmjólk, nema 'í veitingasölu, fiskum-
búðir og kjötpokar, fiskinet, fiskilínur, önglar og önglultaumar,
(þó_ekki sporttæki), salt, annað en í smásöluumbúðum, beitu-
s'Id, tilbúinn áburður, annar en í smásöluumbúðum, grasfræ,
fóðurvörur, flugvélaeldsneyti, innlend dagblöð og hliðstæð blöð,
svo og tímarit, sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni. Ennfremur
fasteignir, skip, flugvélar og flugvélavarahlutar, einnig lausa-
ié, sem seljandi hefur notað í eigin þágu eða við starfsemi
fcína, enda geti salan ekki talizt til atvinnurekstrar. Ekki skal
skattlögð heimilisnotkun framleiðenda landbúnaðar og sjávaraf-
urða á eigin framleiðsluvörum.
VIII.
lindanþegin söluskatti er eftirtalin starfsemi og þjónusta:
a. Vinna við húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð eða við
endurbætur og viðhald slíkra eigna. Undanþágan tekur þó
einvörðungu til þeirrar vinnu, sem unnin er á byggingarstað,
en ekki til vinnu við framleiðslú eða aðvinnslu byggingar-
vara í verksmiðju, verkstæði eða starfsstöð.
b. Vinna við skipa- og flugvelayiðgerðir, yöruflutningar enn-
fremur fólksflutningar almennra leigubifreiða á stöð.
c. Húsaleiga, þó ekki leiga gistihúsa og samkomuhúsa, útfarar-
þjónusta, rekstur sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, heilsuhæla
og annarra þvilíkra stofnana, sala fasteigna, skipa, flugvéla,
verðbréfa og annara þvílíkra verðmæta. Ennfremur lækning-
ar, lögfræðistörf og önnur hliðstæð þjónusta, sala listamanna
á eigin verkum, sala neyzluvatns, póst- og símaþjónusta, svo
og þjónusta banka og sparisjóða.
IX.
.Allir söluskattskyldir aðilar skulu senda hlutaðeigandi skatt-
yfirvaldi skýrslu um heildarveltu sína hvern ársfjórðung á þar
til gerðum eyðublöðum, ásamt upplýsingum um einkaúttekt,
skattfrjálsa sölu og annað er máli skiptir við ákvörðun skattsins.
Söluskattsskýrsla skal hafa borizt skattyfirvöldum í s'íðasta l*gi
innan 15 daga frá lokum hvers ársfjórðungs.
X. ,
Söluskatt skal greiða til innheimtumanns rikissjóðs í síðasta
lagi fyrir lok framtalsfrests hvers ársfjórðungs.
Hafi einhver, sem greiða skal söluskatt, eigi skilað honum til
innheimtumanns ríkissjóðs innan mánaðar frá gjalddaga, skal
hann greiða l1/2% í dráttarvexti fyrir hvern byrjaðan mán-
uð frá gjalddaga,
Verði vanskil á greiðslu skattsins, má innheimtumaður láta lög-
leglustjóra stöðva atvinnurékstur þess, sem eigi hefur staðið i
skilum, þar til full skil eru gerð, með því m.a. að setja verk-
stofur, skrifstofur, útsölur, tæki og vörur undir innsigli.
Hér eru aðeins rakin höfuðatriði hinna nýju söluskattslaga og
því nauðsynlegt að allir söluskattskyldir aðilar kynni sér sem
tezt lögin í heild, og söluskattsreglugerð sem birt verður.
Reykjavík, 30. marz 1960
Skattstjárimi í Reykjavík