Þjóðviljinn - 09.04.1960, Síða 9

Þjóðviljinn - 09.04.1960, Síða 9
4J — ÓSKASTUNDIN AMMA MÍN Kæra Óskastund! Ég ætla að senda .þér mynd, sem ég teiknaði sjálf af ömmu. Ég vona að þú birtir hana. Ég ætlaði að senda þér tízkudömu, en ég veit að þú ert hætt að birta þær, svo ég sendi þér ömmu. Hvernig er skriftin? Bryndís Torfadóttir, 12 ára, Húsavík. Það er alveg rétt, Bryndís, okkur finnst komið nóg af dömum' í bili. Blaðið verður leiðin- legt, ef alltaf er sama efni í því. Þið getið breytt til og sent okkur myndir af einhverju öðru. Skrifað okkur fréttabréf, sögur, vísur. leikrit og sagt.frá „safn- inu ykkar“, eða ein- hverju öðru, sem ykkur kynni að detta í hug. Þú skrifar og teiknar vel. S^EITABÆR: Sumarið kemur bráðum og börn- in fara í sveitina. Þenn- an bæ teiknaði Theódóra Thoroddsen, 10 ára. GÁTA Hvernig verður svert- ingi ef hann dettur í Rauðahafið? Pétur Guðjónsson, 9 ára, sendi. Ráðning á gátu í síðasta blaði. Kýrnar eru tennurnar og bolinn er tungan. Lausn gátunnar er því munnur- inn. MARGT BYR I ÞOKUNNI Einu sinni var bónda- dóttir á bæ. Hún vakti um nótt í rúmi sínu, en aðrir sváfu. Þá heyrði hún að komið var upp á gluggann yfir rúminu og sagt: ) „Margt býr í þokunni, þokaðu úr lokunni, sííssmísmm 1 lindin min Ijúf og trá“» Bóndadóttir svarar þegar; „Fólkið mín saknar, og faðir minn vaknar; liann vakir svo vel sem þú“. Við það hvarf komu- maður burt, og. vitjaði hennar aldrei aftur. iiimimiiiiimmiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimmimimiiiiiiiimimi NAFNAGÁTA (mannanöfn) Eftirfarandi gátu sendi 'Bjarni Pálsson, Blönduósi. Höfundurinn Ingibjörg Sigfúsdóttir, Refsstöð- um. gaf leyfi til að gátan yrði birt í Óskastundinni. Lausn gát- unnar birtum við í næsta blaði. Lesendur okkar hafa sannarlega nokkuð að glíma við þangað til. 1. Jarðar. flipa fyrstan tel. 2. Firrtur næsti harmi. 3. Á sjónum þreytir sundið vel. 4. Sést á meyjar armi. 5. Finnst sá ætið fátækur. 6. Fjöllin hæstu krýnir. 7. Hann er aldrei hýrleitur. 8. Hölda friði týnir. 9. Sat á.hendi höfðingjans. 10. Húmið víkja lætur. 11. Þessi heitir múgur manns. 12. Margar dimmar nætur. 13. Oft í skógum unir sér. 14. Aldrei réttur stendur. 15. Dauðinn honum framhjá fer. 16. Funa neðan brenndur. 17. Föðurland sá ekkert á. 18. Oft í slíðrum borinn. 19. Lengst á hræjum lifa má. 20. Laufgast æ á vorin. 21. Lappa þjóðum þarfur er. 22. Þegnum undir vekur. 23. IIús og báta byggja fer. 24. Burtu' lognið hrekur. 25. Eignarfall af farveg ár. 26. Fótganganda vegur. 27. Angantýs hét unda Ijár. 28. Óforgengilegur. 29. Til hans stefna allar ár. .30. Oft í.veggjum sitja. 31. Músum er hið mesta fár. 32. Menn á þessum flytja. 33. Smiða fremstur ætíð er. . 34. Aldrei finnst sá heima. 35. Fyrr var borinn fyrir sér. 36. í flokkum illir sveima. 37. Kórónu á kolli ber. 38. Kunnur að ljóða smíði. 39. Letur fornt þar lítum vér. 40. Leggst í vetrar hýði. 41. Áður vörðu engi og tún. 42. ítum flaugar sendi. 43. Fjölum marga færði rún. 44. í fjöllum gullið brenndi. 45. Ber sá heitið beitilönd. 46. Beimur mjög við aldur.. 47. Fljóða og drengja fótabönd. 48. Að friðslitunum valdur. 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II11111111111 Laugardagur 9. apríl 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9 •m sc; nsc TC. tA rJt; Svlin m rn'L I ■Ut; ESI §1 13T? sps I 1 m fxcr. m i® öf=£ [EH! : 'r„ Ritsfjóri: Frímcinn Helgason 5®dlþ® • * * mpr s um i mmm Kepmsfioicicum nema einum * Úrslit í handknattleiksmótinu um þessa helgi I kvöld og annað kvöld fara fram síðustu leikir Islands- inötsins í handknattleik 1960, D,g verða úrslit í 8 flokkum. Að lokinni keppni annað kvöld verður mó*iinu svo liátíðlega Slitið i Lido. Fyrsti leikurinn 'í kvöld er toilli Víkings og KR í 1. fl kvenna. Hafa fyrri leikar farið þannig að vinni Vílnngur ræð- ur markatala. þar sem öll 3 liðin eru með jöfn stig, en Ármann var líka í þessari keppni. Næsti leikur er í 2. fl. kvenna og keppa þar FH og Fram. Eftir leikjum FH-stúlknanna undanfarið að dæma ættu þær að sigra nokkuð auðveldlega. Þriðji leikurinn er í 3. flokki <karla B., og verða þar í úr- slitum Fram og Haukar. Eru bæði þessi lið vel leikaudi og því tvísýn keppni þeirra í milli. 1 þriðja flokki A eigast við Víkingur og ÍR og verður það skemmtilegur leikur og erfitt að spá hvor sigrar. í 2. fl. karla hafa FH-ingar sýnt mjög góða leiki og unnið með miklum yfirburðum. Ár- menningar 'hafa lí'ka sýnt góða leiki og eiga sterkt lið, en hvort þeir standast hraða og kraft Hafnfirðinga er eftir að sjá, en vafalaust verður þetta alltvísýnn leikur. FH. verður einnig í úrslitum í 1. flokki karla og keppir við ÍR. Sennilega vinna Hafnfirð- ingamir með inokkrum mun, enda hafa þeir mikið.úrval leik. manna og hafa sýnt góða leiki í mótinu. Tekst KR að koma á óvart móti FH Annar aðalleikurinn annað kvöld verður milli KR og Hafn- firðinga. Munu margir bíða hans með mikilli eftirvæntingu. Flestir munu þeirrar skoðunar að FH vinni leikinn, og það heldur léttilega. Hvorugt liðið hefur tapað leik ennþá og koma þau því jöfn til leiks. Verði hinsvegar jafntefli hefur FH mun betri markastöðu. Yfirleitt hefur FH sýnt sterkari leiki i mótinu hingað til og ef til vill aldrei verið betri en ! dag. KR hefur aftur á móti ekki haft þá yfirburði í leikjum sln- um sem hefði mátt vænta. Á það má þó benda að þeir hafa alltaf unnið og það meira að segja ÍR, sem leikur góðan handknattleik, þó með litlum mun væri. Það er því ekki útilokað, að KR getai komið á ðvart móti FH, og vfst er það að KR-ing- ar eiga í fórum sínum það sem marga vantar en það er að gameinast sérstaklega þegar um sigur og heiður KR er að ræða. Eftir öllum sólarmedkjum að dæma virðist FH líklegra til sigurs í úrslitaleik þessum. Vafalaust verður hann mjög skemmtilegur og ekki eftir gef- ið. Erfitt fyrir KR að verja titilinn í kvennaflokki ? ' Leikurinn í meistaraflokki kvenna verður sennilega mjög s’kemmtilegur, og gæti orðið tv’ísýnn. Sennilegt er þó að það verði KR-stúlkunum erfitt að verja titilinn fyrir Ármanni að þessu sinni. Fyrr í vetur munaði ekki miklu á þessum tveim liðum, en það er eins og KR hafi heldur gefið eftir eða það væri kannski réttara að orða það þannig, að Ármannsstúlk- urnar hefðu tekið mun meiri framförum íer á leið. Þær virð- ast því hafa meiri möguleika til að vinna þó margt geti skeð í handknattleik. Þriðji leikurinn annað kvöld er milli FH og Fram í 2. fl. karla B., og er það úrslita- leikur. Mótsslit í Lídó Að loknum leik FH og KR í meistaraflokki verða mótslit og verðlaunaafhendingar til sigurvegara, og fer það fram í Lídó. Verður þangað boðið öllum sigurvegurum mótsins og mun formaður KSÍ afhenda verðlaunin. Að því loknu verður dansað til kl. 2. Auk þess verða ýmis skemmtiatriði fyrir gesti. Er það Víkingur sem hefur fengið leyfi HKRR og HSÍ til að ann- ast þetta og fer vel á því að handknatleiksfólkið komi saman eftir þetta langa úthald og margar skemmtilegar stundir í Hálogalandi í vetur. Trúloíunarhringir, Steln- : hringir, Hálsmen, 14 og i 18 kt. gull.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.