Þjóðviljinn - 20.05.1960, Blaðsíða 9
Föstud&gur 20. maí 1960 — ÞJÖÐVILJINN ~ (9
ttd* 8 illlSli
s CVI É 3B
Tilkvnning * |
um loðahreinsun í Iíópavogi
Samkvæmt 2. kafla heilbrlgðissamþykktar fyrir
Kópavogskaupstað er lóðareigendum skylt að halda
lóðum sínum hreinum og þrifalegum.
Ritstjóri: Frímann Helgason
„Drengur” sigrar Ray Norton
Það þótti miklum tiðindum
sæta, á móti sem haldið var í
Fresno í Kaliforniu um helgina,
að ungur hlaupari vann hinn
heimsfræga spretthlaupara Ray
Norton í 100 jarda hlaupi. Þrjá-
tíu sinnum í röð hefur hann
sigrað á þessari vegalengd.
Þessi ungi maður heitir Doug
Smith og er frá Occidental-skól-
«num. Tími Smith var 9,4 sek.,
en bezti tími hans áður var 9,6.
Hann tók þátt í móti um fyrri
helgi og hljóp þá 100 metra á
10,3 sek. Norton hafði sama tíma
í því hlaupi, og gefur það nokk-
uð til kynna að þarna er geysi-
3egt efni á ferðinni.
Munur á spretthlaupurum er
ekki mikill þarna vestra, því að
þriðji maðurinn á 100 jördunum
var á 9,5 sek. og fjórði á sama
tíma.
f viðureign hinna „þriggja
stóru“ kúluvarþara — sem raun-
ar eru orðnir fjórir, — kom það
'á óvart að sá sem hingað til hef-
ur staðið svolítið að baki hinum
vann, og vakti það mikla at-
hygli, en það var Dave Davis.
Hann varpaði kúlunni 18,79 m,
en Dallas Long náði ,,aðeins“
18,77 m. Bill Nieder hafði verið
skráður til keppninnar lika en
hann hætti við keppnina vegna
vöðvaslits.
í öðrum greinum náðist góður
árangur og má þar nefna há-
stökkið. þar sem Charlie Dumas
OB og IÍB efst í
dönsku knatt-
spyrnukeppninni
Um síðustu helgi fóru þessir
leikir fram í dönsku knatt-
spyrnukeppninni, fyrstu deild:
K.B. — O.B. 1:1, Vejle — Frem
1:1, B-93 — Esbjerg 1:1, Skogs-
hoved — A.B. 3:0.
K.B. og O.B. eru efst með 12
stig hvort, næst koma: Esbjerg
11, B-1909 10, AGF og Fredriks-
havn 9, B-1909, Vejle, B-1913
og Frem, öll með 8 stig. Skogs-
hoved 6 og A.B. neðst með 3
stig.
Fluminese vann
Norrköbing 4:0
Hið kunna knattspyrnulið
frá Brasilíu, Fluminese, sem
verið heíur í keppniferðalagi
um Evrópu, þar á meðal í Bret-
landi, keppti nýlega við Norköp-
ing í Svíþjóð og vann með 4:0.
Nörrköping var á keppniferða-
lagi í Brasilíu 1950 og þá skyldu
liðin þannig að Svíarnir töpuðu
með aðeins 1 gegn 0.
Voru Svíarnir að vona að þeir
mundu nú geta hefnt fyrir það
tap, en Brasilíumennirnir voru
miklu betri og úrslitin 4:0 eru
talin vera góð mynd af leikn-
um.
í hálfleik stóðu leikar 2:0.
vann, stökk 2.12 m., og var vel
yfir. Mundu ekki margir undr-
ast þó að hann og John Tomas
Ray Norton
berðust um gullið í Róm í þess-
ari grein.
Stangarstökkið vann hinn ungi
stangarstökkvari J. D. Martin á
4,65 m, og langstökkið vann
Darre Horn. Hann stökk 7,76 m.
400 m grindahlaupið vann
Dick Howard á 57,7 sek.
„Drengurinn11 Gary Stenlund
kastaði spjótinu 79,36 metra, en
aðeins Bill Allen á betra kast
Framhald á 10. síðu.
M. Bignal 6,27 m
í langstökki
Hin kunna íþróttakona Mary
Bignal setti um síðustu helgi
samveldismet í langstökki á móti
sem haldið var í London, og
varð árangur hennar 6,27. Er
það aðeins 9 sm styttra en heims-
met pólsku stúlkunnar Elisbieta
Krzesinska.
Mary sagðist aldrei hafa hitt
• plankann vel í keppninni, en ef
það tækist ætti hún að geta
stokkið 6,40 m.
Eigendur og umráðamenn lóða eru hérmeð áminntir
um að flytja burt af lóðum sínum allt, er veldur
óþrifnaði og óprýði og hafa lokið þv’í fyrir 15. júní
næstkomandi.
Hreinsun verður þá að öðrum kosti framkvæmd á ■
kostnað lóðareiganda.
Rusl, sem hreinsað verður af lóðum, má láta í
gamlar malargryfjur við HraðfrystihúsiS við Fífu-
hvammsveg, en annarsstaðar ekki.
Kópavogi, 16. maí 1960. ‘ "
Heilbrigðisnefnd Kópavogs
Yoshikuni lida
heldur sýningu á málverkum hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins. — Málverkin verða þar til sölu.
Tilhoð óskast
^ ! jeppabifreiðir, pick up og vörubifreiðir, landbún-
aðartraktora og gaffallyftur, er verða til sýnis í
dag kl. 1—3. — Tilboðin verða opnuð í skrifstofu
\ vorri kl. 5 sama dag.
SÖLUNEFND VARNARLTOSEIGNA
Höfum fyrirliggjandi eftirtaldar vörur frá
Sovétríkjunum:
¥ MAS0NITE þilplötur
1 TRÉTEX
¥ BAÐKER
Stanley MaÞthews
Mattbcws: Ég of
gamall, en sontir-
inn of imgnr
Stanley Matthews á son sem er
í þann veginn að verða einn af
beztu tennismönnum Bretlands.
Þó var það svo að Stanley
„junior“ var neitað um að taka
þátt í brezku innanhúss-meist-
arakeppninni, af því að hann
var aðeins 14 ára. Þegar pabb-
inn fékk að vita þetta andvarp-
aði hann og sagði: „Hvernig
vilja menn eiginlega hafa þetta?
Stanley fær ekki að vera með
vegna þess að hann er of ung-
ur. Mig vilja þeir helzt burt
vegna þess að ég er of gamall!
Athygllsyerðar tölur
í fyrra heimsóttu 6 millj-
ónir manna stærsta íþrótta-
mannvirki Sovétríkjanna,
— Lenín-leikvanginn í
Moskvu, og 1,5 milljón
íþróttamanna þjálfuðu eða
tóku þar þátt í keppni í
hinum ýmsu íþróttagrein-
um.
Leikvangurinn stendur
opinn öllum sem óska að
leika skák, borðtennis.
körfuknattleik, blak eða
eitthvað annað. Árangurinn-
er sá að suma daga koma
tugir þúsunda og stundum
hundruð þúsunda sem iðka
íþróttir á leikvanginum.
Auk þess hafa um 12 þús.
manna verið með í 500
hópum sem iðka hressing-
aríþróttir.
Lenín-leikvangurinn er
einn af mörgum þúsunda
leikvanga í Sovétríkjunum.
Aðeins úti á landsbyggð-
inni hafa á síðustu árum
verið teknir í notkun 350
leikvangar, 15.000 knatt-
spyrnuvellir, 70,000 blak-
vellir og körfuknattleiks-
vellir. Gert er ráð fyrir að
í ár muni um 6,5 millj.
manna vera starfandi í
íþróttum.
vg«F
HJÓLBARÐA o% SLÖNGUR
á flestar tegundir bifreiða og landbúnaðarvéla
RAFMAGNSPERUR
,,Oreol“ 1000 tíma perur
„Krypton" gasfylltar perur. Eyða minna rafmagni
en vanalegar perur og endast lengur.
Kaupendur að ofangreindum vörum hafi
samband við okkur sem fyrst, ,
Mars Trading Company h.f.
Klapparstíg 20, sími 1-73-73.