Þjóðviljinn - 02.06.1960, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.06.1960, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 2. júní 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (3 jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiimii | Atta nýtízkulegar læknastofur á einni hæð | Læknar hafa lagt undir sig þriðju hæð stórhýsisins að Klapparstíg 26 og nú um mánaðamótin hafa níu lækn- ar, sérfræðingar í ýmsum greinum læknavísinda, flutt þangað stofur sínar. I húsnæði þessu geta starfað i einu 8 læknar. Hefur húsrýmið verið inn- réttað með það sérstaklega fyrir augum að læknastofur séu þar. Þegar blaðamaður Þjóðviljans skoðaði húsa- kynnin á dögunum sögðu læknarnir, að allur frágang- ur væri við það miðaður að sjúklingarnir fengju sem bezta þjónustu og afgreiðslu á sem stytztum tima. Með því að hafa svo margar læknastofur á sama stað skapast mörg betri skilyrði fyrir bættri þjónustu við sjúklinga, t.d. verður þarna opin símaþjónusta frá kl. 9 árdegis til 6 síðdegis alla virka daga. Ætti það að verða til mikilla þæginda fyrir þá sem þurfa að ná til viðkomandi læknis á sem stytztum tíma og með minnstri fyrirhöfn. Einnig skapast möguleiki á að sjúklingurinn geti hringt til læknisins áður en hann kemur og fengið þá vit- neskju um hvenær hann (sjúklingurinn) myndi kom- ast að, í stað þess að þurfa að bíða e.t.v. margar klukku- stundir eftir viðtali. Hin nýju húsakynni eru öll með miklum snyrti- og myndarbrag, nema hvað not- ast verður við bráðabirgða- inngang frá Hverfisgötu, þar sem aðalinngangur hússins, frá Klapparstíg, er enn ekki fullgerður. Halldór Hjálm- arsson innanhússarkitekt hefur gert teikningar að inn- réttingu og húsgögnum og haft yfirumsjón með verk- inu. 111111i111111111111[111]1111111111111111111111111111111111i1111111111111111111111111111111II11111111111111111111111111111111111111111iii1111111111 Úlfar sfnir til fjögurra ferða Ferðaskrifstofa Úlfars Ja- cobsen efnir til fjögurra 2(4 ■dags ferða um hvítasunnuna: Ferð í Kerlingarfjöil (40manns hafa þsgar látið skrá sig í þá ferð), Snæfellsnesferð, ferð í' Breiðaf jarðareyjar og ferð í Þórsmörk. Lagt verður af stað í þessar ferðir klukkan tvö á laugardag frá skrifstofunni Austurstræti níu. 92 milljóna velta Útgerðarfé- lags Akureyringa hf. á sl. ári Akureyrþ Frá fréttaritara Þjóðviljans. Aöalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf. var hald- inn í sl. viku. Reikningar félagsins fyrir liðið ár sýna nettóhagnað kr. 121 þús., en þá hafa eignir veriö af- skrifaðar um 4.769.000 kr. Félagrið gerir út fjóra togara og var heildaraflamagn þeirra á síðasta ári 15.214.460 kg. á móti 19.505.388 kg. árið 1958. MikiII mcirihluti af afla skipanna var Ferðskrifstofan liefur þegar ^ unninn í hraðfrystihúsi félags- .gengið frá sumaráætluninni og ( ins. Nam framleiðsla þess á ár- ■verður nánar skýrt frá henni inu 116.033 kössum eða 3496.460 •síðar. kg. Á árinu 1958 var fram- Samþykktir sjómannaráðstefnunnar Framhald af l. síðu iyrs4 imi sinn. Jafnframt leggur fundurinn til að stjórn A.S.I. boði tii ráðstefnu fulitrúa frá ölluin sjómanuafélögiun innan sain- bandsins og fulltrúuni verka- lýðsfélaganna sem samnings- réót eiga um sjómannakjörin, sem nsest þeim tíma sem þing A.S.I. verður háð á n.k. hausti, til að undirbúa nýja kjara- .sanininga og samræmingu ]>eirra svo sem tök verða á. Leggur fundurinn til við öll félög, sem ekki hafa lausa ^samninga um sjóinannakjör að s:egja upp gildandi sanmingum þegar sainningsbundinn upp- sagnarfrestur leyfir það.“ Nærri kyrrstæð lægð yfir Grænlandshafi. Veðurhorfur: Suðvestan og síðar suðausian gola. Skúrir. Samræming kjara Einnig var gerð þessi álykt- un um samræmingu sjómanna- kjara: „Sjómannaráðstefna Alþýðu- sambands íslands haldin 29. maí 1960, telur mjög mikils- vert og jafnvel nauðsynlegt að kjör bátasjómanna um land allt verði samræmd betur en tekizt hefur til þessa, og legg- ur áherzlu á, að nefndir þær, er tilnefndar hafa verið af hálfu Alþýðusambandsins ann- ars vegar og Landssambands ísl. útvegsmanna hinsvegar, komi saman, og reyni að finna grundvöll að bátakjarasamn- ingum sem gilt geti fyrir land- ið allt. Náist samkomulag milli nefndanna um grundvöll, verði tillögur þeirra sendar öllum sjómannafélögum A.S.I. til um- sagnar og ákvörðunar og saran- ingar því aðeina gerðir á þeim grurdvelli, að samþykkt sé af félögunum sjálfum. Lífeyrissjóður Loks var gerð þessi sam- þykkt um lífeyrissjóð sjó- manna: „Sjómannaráðstefna A’þýðu- sambands íslands haldin 29. maí 1960, lýsir ánægju sinni yfir því að ur.dirbúið hefur verið frumvarp til iaga um líf- eyrissjóð allra sjómanna og skorar eindregið á félagsmála- ráðherra að láta flytja frum- varp það, sem minnihluti líf- eyriss jóðsnefndar skilaði að loknu starfi nefndarinnar og skorar jafnframt á Alþingi að samþykkja frumvarpið þegar það verður lagt fram, væntan- lega á komandi hausti.“ Frá Grænlandi leiðslan 152.920 kassar. Heildarvelta félagsins á árinu nam tæpum 92 milljónum króna. Hraðfrystihúsið sýnir á reikn- ingunum 2.012.000 kr. nettóhagn- að. Hafa þá verið afskrifaðar 2.112.000 krónur. Einn togaranna, Svalbakur, skilar kr. 447 þús. í hagnað, en allir reikningar hinna togaranna sýna tap, þegar afskriftir hafa verið reiknaðar. Þess er vert að gcta i sam- bandi við rekstur hraðfrysti- hússins, að það grciddi til skipanna 15 aurum hærra verð á hvert kíló fiskjar en almenna verðið var á árinu og nemur sú upphæð sem frystihúsið hefur þannig greitt umfram fiskverðið 2.090.000 kr. í bein vinnulaun greiddi fé- lagið á árinu um 22 millj. króna, þar af eru launagreiðslur hraðfrystihússins 5,6 millj kr., en launagreiðslur til áhafna tog- a.ranna 11,4 milljónir. Stjórn íélagsins var öll end- urkjörin. en hún er þannig skip- uð: Helgi PáfsSon, Albert Söíva-- son, Tryggvi Helgason, Jónas G. Rafnar og Jakob Frímanns son. Hálfsmánaðar ferð til Grænlands í sumar efnir danska ferða- skrifstofan Aero-Lloyd til nokk- urra 16 daga ferða til Grænlands og hefur Ferðaskrifstofa Páls Arasonar fengið til ráðstöfunar 20 sæti í eina ferðina, 30. júní, en alls verða um 60 manns i hverri ferð. Ferðum er þannig hagað að ■iimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiii I Hvítasunnuferð I | ÆFR og ÆFK | x í gaer var fyrirsjáanlegt E = að þátttaka í hvítasunnu- = = ferð Æskulýðsfylkingarinn- = = ar í Breiðafjarðareyjar 5 X myndi verða mjög mikil. x = Um kaffileytið í gærdag = E höfðu 51 skráð sig til far- Z E arinnar, en vitað var að x E margir áttu eftir að bætast = 5 við. x ^ Enn eru nokkur sæti laus x 5 í ferðina. Þeir sem ætla að x £ fara en hafa ekki látið skrá = x sig hafi samband við skrif = X stofu ÆFR, sími 17513. x Ferðafólk athugi eftirfar- = x andi: = X 1) Lag't verður af stáð kl. = 2 eh. á laugardag frá = Tjarnargötu 20. X 2) Fargjald kr. 300 greið- = ist í skrifstofu ÆER = ekki seinna en á föstu- = dagskvöld: = x 3) Hafið. með ykkur nesti = og búið ykkur vel. Miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiinii flogið er til Narssarssuak á Suðvest.ur-Grænlandi en þar verður ferðamönnunum skipt í þrjá hópa, er munu dveljast til skiptis í Narssarssuak, Narssak og Julianeháb og fara þaðan í ferðalög um nágrennið. Verður m.a. gengið á jökul og skoðaðar rústir í íslendingabyggðunum fornu. Þeir sem það kjósa geta einnig farið á veiðar og er það innifalið í fargjaldinu. í far- gjaldinu. sem varla mun fara yfir 10 þús. kr. er innifalið fæði og allar ferðir meðan dvalið er á Grænlandi. Þátttökutilkynning- ar þurfa að berast sem fyrst til Ferðaskrifstofu Páls Arasonar, Haínarstræti 8. Steingrímur missti en Geir fékk Veiðitími í ýmsum laxárn, þar á meðal Elliðaánum, hófst í gær. Eftir að Steingrímur Jóns- son, rafmagnsstjóri hafði misst einn lax í Elliðaánum í gærmorgun, varð borgarstjóri, Geir Hallgrímsson var og landaði fyrsta laxinum í ár; 8 punda laxi. Að auki veidd- ust tveir aðrir laxar, sem báðir voru um 8 pund, og voru það Steingrímur Jónsson og Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráðherra sem drógu þá. Þegar fréttamaður Þjóðvilj- ans kom inn að Elliðaánum um 6 leytið í gærdag hafði veiðzt einn lax til viðbótar. liillllillllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllltlllllllllliiiillllllllllllliilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu Frelsi heildsalafrúarinnar Morgunblaðið birtir í gær viðtöl við þrjá kaupsýslu- menn, einn hagfræðiprófessor og þrjá ráðherra í tilefni þess að þá hafi runnið upp „dag- ur frjálsrar verzlunar“. Ráð- herrarnir eru Bjarni Bene- diktsson, Ólafur Thórs og Gylfi Þ. Gíslason, og eru birt- ar myndir af þeim á forsíðu í þakklætisskyni fyrir afrek þeirra í þágu íhaldsstefnunn- ar >— og Gylíi haíður yzt til hægri á síðunni eins og vera ber. Hins vegar fer minna fyr- ir því að blaðið ræði við það íólk sem á að standa undir ,,frelsinu“ og hefur óþyrmi- lega fengið að kynnast því í verki í verzlununum undan- farnar vikur. Þó hefur blaðinu tekizt að finna eina húsmóð- ur í Reykjavík sem er mjög ánægð með frelsið, enda er þar um heildsalafrú að ræða. Sú gerir þá grein fyrir gleði sinni að nú geti hún keypt á sama hátt og í útlöndum: „Erlendis þar sem ég þekki til fer viðskiptavinurinn í þá verzlun sem líkleg er til að hafa það sem honum hentar. Hann getur fengið sæmilega vöru fyrir sæmilegt verð eða lúxusýöru fyrir hátt verð. Hann hefur valið. Sjálfri finnst mér borga sig að kaupa góða vöru, þó hún sé krónunni dýrari, en svo getur verið að annarri konu finnist borga sig að horfa í krónuna. Báðar ættu að geta fengið það sem þær vilja“. Þannig blasir frelsið við heildsalafrúnni. Nú getur hún keypt meira af dýrum lúxus- vörum, því hún þarf ekki að velta krónunni í lófa sínum. En konan við hliðina á henni, sem neyðist til að kaupa lé- legustu vörurnar, gerir það ekki vegna þess að hún „vilji“ það eða haldi að það „borgi sig“; frelsi hennar til vöru- kaupa hefur aðeins verið skert til þess að veita heild- salafrúnni aukið frjálsræði. — Austri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.