Þjóðviljinn - 12.06.1960, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 12. júní 1960
Hvers vegna er fiskverð svona lágt?
Framh. af 7. síðu ;
ásamt stjórafærum og lítið
ilréginni línu grotna niður og
verða einskis nýtt sökum
vanhirðu, sem annað tveggja
má rekja til vankunnáttu eða
trassaháttar 'og er hvorugt
afsakanlegt. Hér fara mikil
verðmæti forgörðum áriega,
sem flutt eru inn til landsins
fyrir rándýran gjaldeyri.
Eg hef hér bent á nokkur
atriði sem þurfa endurskoð-
unar við í útgerðarmálum
okkar Islendinga, og er þó
fleiru hægt við að bæta, svo
sem því, að ending mótorvéla
hér í fiskiflotanum er oft ekki
nema hálf, miðað við það sem
gerist hjá öðrum fiskveiði-
þjóðum. Þetta stafar að lik-
indum mest af því, að vélarn-
ar eru oftast píndar á síðasta
snúning, en slíkt flýtir fyrir
sliti vélarinnar og olíueyðslan
margfaldast, sem þýðir dýr-
ari, — óhagkvæmari rekstur.
Eg sagði frá því hér að
framan að hinum erlenda út-
vegsmanni þótti viðhald vél-
bátanna hér slæmt, eða þann-
ig kom það honum fyrir sjón-
ir. Hinu ber þó ekki að leyna,
að ýmsir útvegsmenn gera
þarna vel, og þeim hinum
sömu er það metnaðarmál að
bátar þeirra séu í góðu standi
og vel útlítandi, en þó eru
þeir alltof margir sem hafa
báta í vanhirðu, og þó er
ástar.dið í þessum efnum
hvergi verra en þar, sem
bankarnir hafa mest ítök
og hefur stundum mátt sjá
spegilmynd af slíku hér í
Reykjavíkurhöfn. Þétta er
því undarlegra þar sem ætla
hefði mátt að hér væru fjár-
málamé.nn að verrki, sem
tryggðu það að veð bank-
anna yrðu ekki einskis nýt
sökum vanhirðu. Erlendis,
þar sem bankar lána til út-
gerðar, hafa eftirlitsmenn
bankanna nákvæmt eftirlit
með að slíkt sem þetta komi
ekki fyrir. En einmitt slíkt
eftirlitskerfi skapar nauðsyn-
legt aðhald, sé það í lagi og
eftirlitsmennirnir starfinu
vaxnir.
Það hefur með réttu verið
kvartað undan lélegum netja-
fiski i verstöðvunum á síð-
ustu árum, eftir að netjaveið-
arnar urðu allsráðandi á ver-
tíðinni. Hinu má þá heldur
ekki leyna, að þó oft hafi bor-
izt slæmur fiskur á land, þá
hefur hann í mörgum tilfell-
um verið gerður helmingi
verri í lahdi á meðan hann
beið vinnslunnar, sökum
óhæfra geymsluskilyrða. Ár-
lega fara forgörðum tug-
milljónir króna af þessum
sökum einum miðað við allar
verstöðvarnar hér sunnan-
lands og vestan. Þetta verður
að teljast algjörléga óviðun-
andi ástand, og þó hefur ver-
ið gert mjög lítið til að bæta
það.
I sumum stórum verstöðv-
um finnast varla ísvélar, þó
mörg frystihús séu starfandi
á staðnum. En það verður að
teljast algjör lágmarkskrafa
þar sem frystihús er starf-
andi, að það búi við ótak-
markaða ísframleiðslu og geti
þannig haldið aflanum nægi-
lega kældum meðan á vinnslu
stendur.
Á saltfiskstöðvunum, þegar
mikill fiskur berst á land, þá
eyðileggst hann í mjög stór-
um stíl sökum þess að ekki
hefst undan í aðgerðinni. Hér
er hægt að koma á umbótum
með því að kæla fiskinn nið-
ur í sjósöltu vatni. Slíkur út-
búnaður mundi bjarga mikl-
um verðmætum cg gera
vinnsluna um leið ódýrari.
Fiskur geymdur í slíkri kæli-
geymslu væri jafngóður og
nýr til vinnslu í salt einum
til tveimur sólarhringum eft-
ir að hann kom í land. Eg
fullýrði að á stórum saltfisk-
stöðvum fara árlega forgörð-
um verðmæti sem nægja
myndu til byggingar slíkrar
kæligeymslu. Það má máski
segja að það hafi verið afsak-
anlegt á sínum tíma, þegar
ég benti samtökum Saltfisk-
framleiðenda á þessa leið, að
hefjast ekki handa með úr-
bætur, þar sem þessi aðferð
var þá algjörlega óþekkt. En
nú er þetta ekki lengur fyrir
hendi, þar sem aðrar þjóðir
eins og t.d. Bandaríkjamenn
hafa, fyrir löngu gert þessa
geymsluaðferð að veruleika
með ágætum árangri.
Aðgerðahús eru hér sum-
staðar i miður góðu ásig-
komulagi, gólf víða uppbrotin
og árlegt viðhald í mikilli
vanhirðu. Þetta setur leiðin-
legan ómenningarsvip á þenn-
an höfuðatvinnuveg lands-
manna. Hér var á ferð ný-
lega umboðsmaður frá er-
lendum fiskkaupendum og
skoðaði hann að sjálfsögðu
slægingarhús og vinnslustöðv-
ar víða á þessu ferðalagi, og
þótti að vonum að hér þyrfti
umbóta við, og meiri snyrti-
mennsku.
Við skulum gera okkur það
fullkomlega ljóst, að í þessu
efni erum við undir smásjá
þeirra þjóða sém fiskafurðir
kaupa liéðan og við erum
dæmdir af verkunum og verk-
unum einum. Að þessi mál
séu á hverjum tíma í góðu
lagi, það er höfuðnauðsyn,
sem aldrei má gleyma. Al-
þingi hefur nú nýverið sam-
þykkt lög um ferskfiskeftirlit,
en undir það á að heyra allur
nýr fiskur til vinnslu, fiski-
lestar og ásigkomulag aðgerð-
arhúsa. Við skulum vona áð
þessu nýja eftirliti takist að
koma hér á umbótum, því
þeirra er mikil þörf, eins og
hér hefur verið bent á að
framan.
VI
Eg hef hér rætt nokkuð um
galla sem eru áberandi í und-
irstöðuatvinnuvegi þjóðarinn-
ar og sem þurfa lagfæringu
við En til þess að valda ekki
misskilningi, þá þykir mér
rétt að taka fram, að allir
eiga hér ekki jafna sök. Til
eru menn sem gera vel í
mörgum þessum greinum, en
hinir eru þó fleiri sem lýsing-
una hér að framan eiga full-
komlega við. Skrifað stendur:
,,Heilbrigðir þurfa ekki lækn-ý
is við, heldur þeir sem sjúkir
eru“. Og það er vegna hins
sjúklega ástands, sem er áber-
andi í útgerðarmálunum og
fiskvinnslunni að við þurfum
að leggjast á eitt og koma
fram gagngerum endurbótum.
1 upphafi máls míns gat ég
þess, að sjómenn og aðrir
íbúar sjóþorpanna hefðu að
vonum rætt mikið um þá frétt
að ferskfiskverð í Noregi
væri svo ótrúlega mikið hærra
en hér, bæði til útvegsmanna
og sjómenn, eða kr. 4.21-4.80
fyrir hvert kg í Noregi. Hér
kemur sjálfsagt margt . til
greina. Sölusambönd, hag-
kvæm lán til fiskvinnslu-
stöðva og margt fleira. En
það skulum við líka gera okk-
ur ljóst, að svo lengi sem
hægt er að rökstyðja, að
ástand útgerðarmála og fisk-
vinnslu sé að miklum hluta í
því ásigkomulagi sem ég hef
verið að ræða. hér um, þá
hlýtur hlutur margra sem við
þessa atvinnuvegi fást að
verða rýrari en efni standa
til. Hagsýni í öllum rekstri
og vandaðar fiskafurðir er
það sem við verðum að byggja
framtíðin á, önnur leið er
ekki t’L En leiðarsteinar inn
í þá framtíð eru: Betri kjör
sjómönnum til handa, mikið
hærra ferskfiskverð fyrir
góðan fisk heldur en slæman,
útgerðar- og fiskvinnslulán
með lágum vöxtum, náuðsyn-
legt eftirlit frá hendi bank-
anna um að veðum sé haldið
í fullkomnu verðgildi, og
kennsla í betri meðferð á
veiðarfærum, bátum og öðru
því sem skapar hagkvæman
rekstur. / ^
Reykjavík 6/6 1960.
Leiðir allra sem ætla að
kaupa eða selja
BÍL
liggja til okkar.
BÍLASALAN
Klapparstíg d7.
Sími 1-90-32.
Sjómanna-
dasnrinn
Málverk eftir Cunnlaug Sclieving
er hátíðisdagnr íslenzkra sjómanna, sem sækja björg á miðin,
fram og víða ut um heim.
sigla með ströndum
SÆJflRUTGES® HAFNARFJARÐAR
óskar öllum sjómönnum gæfu og
gengis í íramtíðinni í tilefni af
deginum.