Þjóðviljinn - 12.06.1960, Side 12
W&&M.
AS leik í
sólskininu
Börnin kunna vel að meta
góðviðrið og fjölbreytnin í
vorleikjum þeirra er mikil.
Boltaleikir ýmiskonar eru
alltaf vinsælir, svo og „paris-
ar-leikirnir“ eins og sá sem
krakkarnir á myndinni eru í.
Myndin var tekin hér í bæn-
fyrir fáum dögum.
(Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Vanskilaskuldir ríkissjóðs við
bæjarsjóð ukust á síðasta ári
Þá átti jbó ihaldicS fjármálaráBherrann
en þurfti ekki aS rukka Eystein Jónsson
þlÓÐVILJINN
Sunnudagur 12. júní 1960 — 25. árgangur — 132. tölublað
7 DAGAR
KEFLA-
VÍKURGANGAN
Bnn er ein vika til stefnu.
Munið að skrifstoía framkvæmdanefndar er í
Mjóstræti 3, annarri hæð, sími 23647.
iNauðsynlegt er að fólk hafi samband við skrifstof-
una og láti skrá sig sem allra fyrst.
Þeir sem safnað hafa göngufólki til þátttöku þurfa
að láta skrifstofuna vita strax um sérhvem nýjan
þátttakanda.
Hver og einn sem ætlar að verða með er beðinn að
koma í Mjóstræti 3.
(Skrifstofan er opin í dag, sunnudag, sem aðra
daga frá klukkan 2 til 10 síðdegis.
Við fyrstu umræðu um bæjar-
reikningana á síðasta bæjar-
stjórnarfundi vakti Guðmundur
Vigfússon athygli 'á því hversu
erfiðlega bænum gengi að inn-
heimta lögboðnar greiðslur ríkis-
ins til skóla- og sjúkrahúsbygg-
inga og reksturs þessara stofn-
ana. Reikningarnir bæru nieð sér
að skuldir ríkissjóðs við. bæinn
hefðu aukizt um 1,2 milljónir
1959, hækkað úr 19,6 millj. í
20,8 milljónir.
Benti Guðmundur á það óhag-
ræði sem bærinn hefði af þess-
ari skuldasöfnun ríkisins. hún
yki óhjákvæmilega erfiðieika
bæjarins í sambandi við skóla-
og sjúkrahús.byggingar, fram-
kvæmd verkefnanna gengi hægar
og seinna en ella þegar framlög
annars aðilans fengjust ekki
skiivíslega greidd. Málið hefði oft
verið rætt í bæjarstjórn og
fyrrv. borgarstjóri oft verið
hvattur til að ganga rösklegar
Sram í innheimtu þessara skuida.
Svör Gunnars Thoroddsen hefðu
venjulega verið þau að Eysteinn
Jónsson væri skuldseigur og erf-
iður viðureignar. En á s.l. ári
heíði svo skipazt, að nýr maður.
Guðm. í. Guðmundsson, hefði
farið með fjármál rikisins og
notið stuðnings Sjálfstæðisflokks-
ins. Utkoman hefði samt ekki
batnað, skuldir ríkisins við bæ-
inn hefðu þvert á móti aukizt um
hálfa aðra milljón króna.
Guðmundur Vigfússon kvað
þess að vænta, nú þegar
Gunnar Thoroddsen hefði
sjálfur tekið við fjármálum
ríkisins, að á þessu yrði skjót
breyting, ekki aðeins tekið
fyrir frekari skuldasöfnun
heldur yrð|i vanskilaskuldin
greidd niður fljótt og vel. Nú-
verandi fjármálaráðherra ætti
samkv. fyrri yfirlýsingum að
hafa góðan skilning á þiirfum
bæjarfélaganna. Skoraði Guð-
mundur á Geir Hallgrímsson
borgarstjóra fjármála að vera
Gylfi til Sovétríkjanna -
sovézkir þingmenn hingað
Gylfi Þ. Gíslason ráðherra
menntamála og viðskiptamála
er á förum í opinbera heim-
sókn tii Sovétríkjanna. Fer
hann ásamt konu sinni um
næstu helgi; munu þau dveljast
í Sovétríkjunum eina til tvær
vikur á vegum menntamála-
ráðuneytisins þar og ferðast
væntanlega eitthvað um landið.
Fyrri hluta júlímánaðar
kemur svo hingað nefnd frá
Æðsta ráði Sovétríkjanna i
boði Alþingis íslendinga. ís-
lenzkir alþingismenn ferðuðust
sem kunnugt er um Sovétrík-
in fyrir nokkrum árum og hafa
inú boðið starfsbræðrum sínum
eystra að kynnast íslandi.
Munu forsetar Alþingis standa
f.vrir móttökunum og skipu-
leggja dvöl sovézku þingmann-
anna hér.
iiniiiiiiimiiiimmiiiiiiiiiiimiiimiiiiii
I Hinn nýi síid-
| veiðantbúnaður
- Sem óðast er nú verið að búa
= bátaflotann til sumarsíld-
5 veiða. Talsverður hluti flot-
= ans mun í sumar verða búinn
E kraftblökk, sem reyndist vel
= í fvrra. Mun láta nærri að 40-
E bátar verði með þennan út-
= búnað í sumar, en í fyrra
— voru kraftblakkir í aðeins
5 fjórum bátum. — Myndin var
= tekin í bátahöfninni í Reykja-
E vík fyrir nokkrum dögum af
=• kraftblökk, sem verið var að
H koma fyrir í einum bátanna.
5 (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
samt vel vakandi í þessu efni
og ganga rösklega og ríkt eft-
ir rétti Reykjavíkur til þess-
ara vanskilaskulda ríkisins.
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri skýrði frá þvi í svarræðu
sinni að skuldin hefði lækkað
nokkuð það sem aí væri þessu
ári. Ekki taldi hann óstæðu til
að bæjarstjórn samþykkfi neina
áskorun um rösklegri innheimtu
eða greiðslu skuldanna, en til-
laga um það lá fyrir fundunum (
fró Þórði Björnssyni, bæjarfull-
trúa Framsóknar.
Vestmannaeyjum 11. júní.
Frá fréttár. Þjóðviljans.
Héðau munu milli 30 og 40
fyrstu fara þegar í næstu viku.;
Héðan munu 30 bátar róá j
sumar og um 15 bátar munu
veiða með dragnót og eru
nokkrir þegar byrjaðir ög hafa
fengið góðan afla.
Hátíðahöld sjómannadagsins
byrjuðu hér í gær með keppni
kappróðri, stakkasundi,
björgrunaræfingum og kapp-
splæsingu í friðarhöfninni. Kl.
8 í kvöld verður svo skemmtun
í samkomuhúsinu.
Á morgun, sunnudag, verður
hátíðin sett af Páli Þorbjörns-
syni, skrúðganga mun halda
að minnismerki hrapaðra og
drukknaðra og lúðrasveit Vest-
mannaeyja leikur fyrir göng-
unni. Þar mun Einar J. Gísla-
son halda ræðu og síðan verð-
ur blómsveigur lagður við fót-
stall minnismerkisins og að
iokum verður guðsþjónusta.
Kl. 4 verða útihátíðahöld á
Stakkagerðistúni, þar mun
fara fram handboltakeppni
kvenna, ræðuhöld. verðlauna-
afhending og ýmis skemmtiatr-
iði. Kl. 8 um kvöldið vérður
skemmtun með líku sniði og
skemmtunin kvöldið áður í
Samkomuhúsinu. Að henni
lokinni verður aflakóngur
Vestmannaeyja, Helgi Berg-
vinsson skipstjóri á Stíganda,
heiðraður.
23. sjómannadag-
urinn í dag
Tuttugasti og þriðji sjómanna-
dagurinn er hátíðlegur lialdinn í
dag.
Hér í Reykjavík hefjast há-
tíðahöld við Austurvöll kl. 1,30
síðdegis. Þar mun Óskar J. Þor-
láksson dómkirkjuprestur m.a.
minnast drukknaðra sjómanna,
ræður flytja Emil Jónsson ráð-
herra, Haísteinn Baldvinsson
íullt.rúi útgerðarmanna og' Egill
Hjörvar véístjóri, Kristinn Halls-
son syngur og lúðrasveit leikur.
Verðlaun og heiðursmerki af-
hendir Ilenry Hálfdanarson for-
maður sjómannadagsráðs. Að
loknum hátíðahöldunum við
Austurvöll, um kl. 3.45 heíst
kappróðrarkeppni á Reykjavíkur-
höfn. Dansleikir verða á nokkr-
um skemmtistöðum i kvöld.