Þjóðviljinn - 22.07.1960, Blaðsíða 3
Föstudagur 22. júlí '1960 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Glæsileg snekkja -
lítið sjóskip
Fran/, Terso við Grandagarð
Það liggur fallegt skip niður
við Grandagarð núna. Franz
Terso heitir J>að og er i eigu
ítalsks auðmanns frá Mílanó, að
nafni Monzino. Fréttamaður frá
Þjóðviljanum íór um borð í þetta
skip og hitti þar að máii tvo
af áhöfn þess og átti við þá
eítirfarandi samtal:
— Þið komið frá Hollandi?
— Já, l'rá Amsterdam. þaðan
fórum við til Aberdeen og svo
þaðan til Vestmannaeyja eins og
þú kannske veizt. Við fengum
slæmt veður og báðum um hjálp,
Þór kom okkur til hjálpar og
l'ylgdi okkur til Vestmannaeyja.
— Þið urðuð að greiða björg-
unarlaun?
— Við settum tryggingu fyrir
þeim, til að geta farið frjálsir
ferða okkar, annars er málinu
ekki lokið ennþá.
— Hvað ætlið þið að dvelja
lengi } Rej’kjavík?
— Hér ætlum við að láta yf-
irfara skipið og sjá um að allt
sé í góðu lagi áður en við för-
um af stað aftur.
— Hvert er ferðinni heitið?
— Til Grænlands, S.vkúrtopps-
ins, þangað ætlar eigandinn að
koma flugleiðis ásamt fimm
mönnum öðrum. þar á meðal
þrem beztu fjallgönaumönnum
ítaliu. Meiningin er að þeir klífi
Níu mörk gegn
einu
í æfingaleik laiulsliðsins og
„blaðaliðsins" í gærkvöld fóru
leikar svo að landsliðið vann
með 9 mörkuin gegn einu.
Sykurtoppinn, en Monzino er á-
hugamaður um fjallgöngur.
Ætlið þið að skoða ykkur
um hér í nágrenni Reykjavíkur
áður en þið farið af stað aftur?
— Við erum ekki á skemmti-
ferðalagi, og ráðum ekki ferðum
okkar sjálfir.
— Hvað gengur skipið margar
m’lur á klst?
— Það gengur 14 milur á
íullri ferð. Skipið er knúið tveim
díselvélum sem eru 300 hestöfl
hvor, eða samanlagt 600 hest-
öfl. Radar, talstöð og miðunar-
stöð eru í skipinu. fuHkominn
öryggisútbúnaður.
Fréttamanninum var síðan boð-
ið að skoða skipið sem er hið
vandaðasta í hvivetna. en kann-
ske í minna lagi fyrir uthafs-
siglingar. Fremst er lúkar fyrir
tvo menn síðan eldhús og til
hliðar við það íbúð skipsljóra.
Aftan við eldhúsið er borðsal-
ur með kojurn fyrir sex manns.
Úr borðsal er gengið niður og
aítur í skipið en þar eru snyrti-
herbergi og íbúðir skipsmanna
og aftast er svo íbúð eigandans
en þar býr skipstjórinn meðan
eigandinn er ekki um borð. Vél-
arnar eru staðsettar í miðju'
skipi undir borðsalnum. Skipið er
byggt hjá DE BEER nv. í Zaan-
dam í Hollandi, og er sem fyrr
segir hið vandaðasta að öllum
írágangi.
Ákvörðun í dragnótamálinu
verður tekin eftir helgina
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Gunnlaugi Briem, ráðuneytisstj.,
um dragnótamálið og skýrði hann
svo irá að endanlega yrði geng-
ið frá opnun veiðisvæða eftir
helgina, þegar Fiskifélagið hefur
að fullu athugað skýrslur þeirra
aðila, sem um málið fjalla.
Fiskifélag íslands hefur gert
Veðurliorfur.
Hæg breytileg átt fram eft-
ir degi, suðaustan kaldi og
skýjað í kvöld.
Svarta þoka á
austursvæðinu
en gott veður
Frá fréttaritara Þjóðviljans
á Raufarhöfn:
Flotinn heldur sig hjá Kol-
beinsey, nokkrir bátar eru vest-
an við Strandagrunnshorn og
á Norðfjarðardýpi. Á austur-
svæðinu er nú biksvarta þoka,
en gott veður. Um hádegi í
gær köstuðu nokkrir bátar við
Kolbeinsey, og er vitað um afla
eftirtalinna báta: •
; Helga TH 200 tunnur, Ólaf-
Ur Magnússon EA 400, Sæljcn
RE 300, Unnur 300, Guðfinn-
ur 150, Arnfirðingur 120.
Fyrtaldir bátar hafa þegar
landað eða eru á leið til lands.
Varðskipið Ægir sendi eftir-
farandi skeyti kl_ 20.45 í gær-
kvöld:
Höfum í dag leitað um Reyð-
arfjarðarál allt að 75 sjóm.
austur af Vattarnesi. I morg-
un lóðuðum við á mjög strjál-
um og góðum torfum 'í sunn-
anverðum Reyðarfjarðarál, á
60 faðma dýpi. Siðan höfum
við lóðað á mjög mörgum smá-
um torfum og einstaka sæmileg-
um, á 8—20 faðma dýpi, 65—
75 sjómílur austur af Vattar-
nesi. Á þessu svæði er nokkurt
magn rauðátu. Þangað eru
komnir nokkuð margir bátar.
Bræðslu lýkur hép í kvöld,
í dag var saltað hjá Norður-
síld, Óskarsstöð, Skor og Haf-
silfri.
að dragnótaveiði
eftirtöldum stöð-
tillögur um
skuli leyfð á
um:
1. Reykjanes — Öndverðanes
um 8 vikna skeið með ýmsum
takmörkunum.
2. Látrabjarg — Horn (8 vik-
ur með takmörkunum.
.3. Papey — Ingólfshöíði. (Til-
laga Austfirðinga).
Bæjarráð Reykjavíkur féllst á
ályktun útgerðarráðs Reykjavík-
ur að leyfa dragnótaveiðar hér
í Faxaflóa
dag'.
á fundi s.l. þriðju-
Valbjörn Þorláksson flýgur yfir slána
Islendingum gekk betur
seinni daginn i Osló
Urðu íjórðu á undan c-liði Norðmanna og
Dönum, Valbjörn og Vilhjálmur íyrstir
íslendingar stóðu sig betur síöari daginn. í millilanda-
keppninni í frjálsum íþróttum í Osló og ráku af sér
þaö slyöruorö sem virtist ætla aö festast viö þá fyrri
daginn, aö þeir væru minni kappar en Danir.
hringurinn hófst. Þegar 300
metrar voru eftir hljóp Svav-
Fyrir þessu hafði reyndar
mátt gera ráð, þar sem í gær
fór fram keppni í þeim grein-
um sem íslendingar stóðu bezt
að vígi í, þ.e. stangarstökki og
þrístökki, og þeir Vilhjálmur
Einarsson og Valbjörn Þor-
láksson brugðust ekki vonum
manna, sigruðu báðir.
Frammistaða Svavars Mark-
ússonar í 1500 m hlaupinu var
^innig með ágætum, hann varð
þriðji á sama tíma og ís-
landsmet hans sjálfs, 34.7,8.
1500 metrarnir voru fyrsta
greinin sem keppt var í. Svav-
ar var lengi vel aftastur, þótt
aldrei væri breitt bil á milli,
en þegar leið á hlaupið sótti
hann í sig veðrið og á næst
síðasta hringnum hljóp hann
af sér tvo sem voru næstir á
undan honum og var þannig
fjórði í röðinni þegar síðasti
ar af sér einn til og herti
enn hlaupið, en þeir tveir,
Norðmaður og Belgi sem á
undan fóru, greikkuðu einnig
sporið. Belginn sigraði á 3.46,
5. Norðmaðurinn varð annar
á 3.46,7 og Svavar þriðji eins
og áður var sagt á 3.47,8.
Meðan á 1500 m hlaupinu
stóð var verið að keppa í
sleggjukasti. Það unnu Norð-
menn með miklum yfirburðum,
fengu þrjá fyrstu menn, 62,76,
61,41 og 57,64, en Þórður B.
Sigurðsson krækti í 4. sætið
með 52,32 m kasti.
Það óhapp vifdi til í sleggju-
kastinu að einn keppenda
missti stjórn á sleggjunni og
kastaði henni út á áhorfenda-
Framhald á 2. síðu.
Þingeyingar „þéra" ekki
Myndin hér fyrir ofan er
af tilkynningu, sem fest
hefur veri á hurð verzlun-
ar einnar hér í bæ, en þar
stendur skrifað: „Þeir sem
vilja láta „þéra“ sig eru
ekki afgreiddir hér.“ Þessi
tilkynning stendur á hurð
Fornbókaverzlunar Kristjáns
Kristjá.nssonar en eigandi
hennar er Benjamín Sig-
valdason fræðimaður.
Fréttamaður frá Þjóðvilj-
anum hitti Benjamin nýlega
að máli í búðinni og spurði
hann um tilefni þessarar
sérkennilegu tilkynningar.
— Eg er Þingeyingur,
sagði Benjamín, og í Þing-
eyjarsýslum þekkist það
ekki, að fólk þérist. Ungir
embættismenn, sem koma
iþangað og ætla að þéra
eru fljótt vandir af þvi.
Það er bara hlegið að þeim.
Annars gerði ég þetta líka
fyrir fínu frúnnar og til þess
að stríða Helga mínum
Hjörvar. Eg hef stundum
gert þetta áður. Frúnnar
vilja margar láta þéra sig.
I gær kom ein og spurði
hvort hér fengist bckin
Mannasiðir. Nei, sagði ég.
Þá ættuð þér að fá yður
hana, sagði hún, yður veit-
ir ékki af að lesa hana. Það
þyrftu nú kannske fleiri að
lesa hana, sagði ég. Annars
eru þéringarnar að leggjast
niður, sagði Benjamín. Og
ég hef alltaf þúað alla, eins
og ég kvað einu sinni: „Eg
þúa alla, það ég kann,/
þjóninn jafnt sem ráðherr-
ann.“ Eg þúa alltaf alla
ráðherrana.
Á neðri myndinni sést
Benjamín troða í pípuna
sína á meðan hann spjallar
við gestina.