Þjóðviljinn - 22.07.1960, Síða 9
•r*
Föstudagur 22. júli 1960 — ÞJÓÐVILJINN
(«
t*
tii!
ag
="2
Pl
1
tíra
|»esá mynd er búin að vera nokkuð len,gi I fórum okkar, en hún er af ungum Vals-
drengjum sem hafa leyst eina eða fleiri af knattspyrnuþrautum KSt. í ár hafa 4 drengir
hlotið gull, 14 drengir silfur og 46 brons, þar af á Valur 3 gull-, 6 silfur- og 19 bronsdrengi.
Víkingur 6 silfur- og bronsdrengi. Fram 1 gull-, 2 silfur- og 8 bronsdrengi og Týr, VE, 1 brons-
dre ng.
Helmut Rahn erfiður
Þýzki knattspyrnumaðurirm
Helmut Rahn, sem vakti á sér
mikla athygli i heimsmeistara-
keppninni i Svíþjóð í hitttifvra,
hefur enn vakið á sér athygli, en
ekki fyrir góðan leik, heldur fyr-
ir að fara sínar eigin leiðir.
Hann leikur sem kunnugt er í
stöðu útherja, og hefur sýnt
mjög góða leiki. Hann er sagður
vera gjarn á að fara eftir sínu
höfði, og þræða eigin götur, þótt
tiltektir hans séu ekki alltaf
heppilegar. Þptta hefur haft það
í för með sér að hann hefur ver-
ið útilokaður frá keppni við og
við. og vfrðist sem það hafi dug-
að. Nú hefur það komið á dag-
inn, að hann er í þingum við
holienzkt atvinnumannalið, og
vill gerast þar atvinnumaður, en
hann er atvinnumaður í Þýzka-
landi, og félagið, sem hann er
hjá, hefur ekki hugsað sér að
sleppa honum fyrr en samnings-
tíminn er útrunninn. Þýzkir
knattspyrnu-sérfræðingar hafa
bent Jíerberger á það að hana
eigi að leita að nýjum útherja
í stað Rahns, í landsliðið.
Varð að borga 125 mörk í sckt!
Það virðist sem knattspyrnu-
yfirvöldin ætli að láta hann finna
fyrir hegðun s'inni, því núna hef-
ur hann nýlega verið daemdur
til þess að greiða um 125 mörk
eða nær 1200 krónur íslenzkar í
sekt fyrir að koma ekki til æf-
inga sem hann var boðaður til,
og heldur ekki til boðs, sem bæj-
arstjórn Kölnar efndi til og hann
átti að vera viðstaddur.
Heimsmet í 1008 m
Austurþýzki lilauparinn Sieg-
fried Valentin setti í fyrrakvöld
nýtt heimsmet i 1000 m hlaupi á
timanum 1,16,7.
Fyrra metið átti Svíinn I)au
Waern 2,17,8.
Póllandsgreinin
Handknattleiksmót íslands úti
hefst í Reykjavík í kvöld
Sjö kvennaflokkar í meistara-
flokki taka þátt í Handknattleiks-
mói íslands í kvöld, og sex karlg-
flokkar. Annar flokkur kvenna
keppir í fyrsta sinn í móti þessu.
Hið árlega Meistaramót íslands
í handknattleik úti fer að þessu
sinni fram í Reykjavík og sér
Handknattleiksdeild Ármanns um
mótið. Mótið hefst í kvöld kl.
átta og fer fram á grasvelli Ár-
manns við Nóatún. Þar sem
svona margir flokkar taka þátt í
mótinu fara tveir leikir fram
samtímis ó svæðinu, annars yrði
það of langdregið, en það stend-
ur til 5. ágúst, og fara þá fram
úrslitaleikirnir.
í meistaraflokki kvenna verður
leikið í tveim riðlum og efstu
lið riðlanna keppa svo saman.
Það mun vera nýmaéli á móti
þessu, að annar flokkur kvenna
keppi og bendir það til þess að
aukin áhugi sé fyrir handknatt-
leik úti meðal kvenna og er það
vel farið, þar sem þær virðast
ekki hafa völ á fjölbreyttum
íþróttum á sumrum. Auk þess er
þjálfun úti mun hollari en æfing-
ar í húsum.
Spurningin er svo: Hvenær
koma yngri mennirnir í karla-
flokkum til þátttöku í handknatt-
leiksmótum. Það er mál stjórnar
Handknattleikssambandsins að
velta fyrir sér.
Að þessu sinni eru það fsa-
fjörður, Hafnarfjörður og Kefla-
vík sem taka þátt í mótinu af
Engin Ermarsundskeppni í ár?
f fréttaskeyti frá London segir
að aflýst hafi verið sundi yfir
Ermasund, en það hefur verið
fastur liður á hverju ári nú um
undanfarin ár, og þykir það held-
ur skarð fyrir skildi.
Maður sá sem hefur haft á
Þetta er ítalinn Livio Berruti,
sem ítalir binda mildar vonir
við í 100 og 200 m hlaupi á OL
í R6m. Hann liefur hlaupið 100
m á 10,2 og 200 m á 21.3.
hendi undirbúning sundanna,
Billy Butlin heitir hann, hefur
tilkynnt formlega að hann geti
ekki tekið að sér framkvæmd
sundsins að þessu sinni. Ástæðan
er sú að hann hafi svo mikið að
gera í sambandi við sumarleyfi
og ferðamenn. Hann hafði verið
búinn að fá um 30 tilkynningar
um menn sem ætluðu að þreyta
sund yfir Ermasund í sumar, og
voru þar á meðal Argentínumað-
urinn Alfredo Camero og Her-
man Willemse frá Hollandi, en
þeir munu einna þekktastir lang-
simdsgarpar. Butlin hefur séð um
undinrbúning undir sundin yfir
Ermarsund síðan 1953, og hann
tekur fram að hann muni halda
því áfram næsta ár.
Ritari Ermarsunds-Sundsam-
bandsins, John Wood, hefur um
skeið verið að athuga hvort ekki
sé um aðra að ræða til að standa
íyrir sundi þessu, en hingað til
hefur það ekki tekizt og er út.
litið því ekki gott.
utanbæjarfélögum. ísfirðingar í
meistaraflokki kvenna og FH
einnig, en Keflavík með annan
flokk kvenna.
Það vekur athybgli að Knatt-
spyrnufélagið Valur sendir ekki
lið í meistaraflokki karla í
keppni þessa, en aðeins í meist-
araflokki kvenna.
Dagskrá mótsins fram á
þridjudagskvöld:
Föstudagur 22. júlí kl. 8, mótið
formlega sett:
2. fl. kvenna: Ármann—Fra.
Meistarafl. kv. A-riðill, Á—Þrótt.
Meistarafl. karla, Fram—ÍR.
Meistarafl. karla, Árman—KR.
Mánudagur 25. júlí kl. 8:
2. fl. kvenna, Á—Keflavík.
Meistarafl. kv, A-riðill, FH—Val.
Meistarafl. karla, Keflavík—FH.
Meistarafl. karla, Á—Fram.
Þriðjudagur 26. júlí kl. 8:
2. fl. kvenna, Víkingur—KR.
M-fl. kv. B-riðill, ísaf.—Víkingur.
Meistarafl. karla Ármann—ÍR.
Meistarafl. karla, KR—Fram.
Rússi setur
Evrépumst
í stangarstökki
Á úrtökumóti í Moskva fyrir
OL í Róm setti Janis Kzasovski
nýtt Evrópumet á sunnudaginn
var og stökk hann 4,65, og var
það eins sm. betra en E.-me
landa hans Vladimir Bulatov, en
hann varð annar á 4,50.
Alls tóku 600 manns þátt í
úrtökumótinu og aðeins þrír
beztu fara til Rómár, Mótið stóð
í fjóra daga og lauk því á mánu-
daginn. Náðist góður árangur í
ýmsum greinum, sérstaklega
kvennagreinunum.
Framhald af 7. síðu.
lands þar sem flest börn eiga
heima.
Ræktun þesara héraða
koetaði geysilegar fjárhæðir.
Á árunum 1950—’57 nam
fjárfestingin þar 84 milljörð-
um zlótýja, en það væri nærri
fjórðungur af allri fjárfest-
ingu Pólverja. Á því tímahili
voru mörg hundruð meiri-
háttar iðnfyrirtækja sett á
laggirnar þar, þannig að nú
er iðnvæðingin á þessum
svæðum mun meiri en meðan
þau lutu yfirdrottnun Þýzka
ríkisins.
Hin flóknustu félagslegu
vandamál hafa verið leyst í
þessum héruðum jafnhliða
hinni örustu þróun í efna-
hagsmálum og gerbyltingu á
öllum sviðum. Nýtt samfélag
manna rann þar saman og
mótaðist, þótt þar væri um
hið ólíklegaeta fólk að ræða:
Pólverja sem áttu aldagamlar
rætur á þeim slóðum, heim-
flutt fólk frá Sovétríkjunum,
útflytjendur sem nú sneru
aftur heim frá V-Evrópu og
landnámsmenn frá mið- og
suður-hlutum Póllands.
Þessi risavöxnu vandamál
hafa nú verið leyst. Allir Pól-
verjar eru hreyknir af því
hversu vel hefur til tekizt, og
þessi nýskipan er óhaggan-
leg staðreynd sem allir raun-
sæir stjórnmálamenn á Vest-
urlöndum verða að taka til
greina.
Mannkynssagan hefur ekki
látið vel að pólsku þjóðinni
heldur oft leikið hana grátt.
Þess vegna meta Pólverjar
af raunsæi og gát öll innri
vandamál sín og aðstöðu sína
á alþjóðavettvangi. Reynsla
Pólverja sjálfra veldur þvi að
þeir eru tengdir málstað frið-
arins órjúfanlegum böndum.
Því liafa tillögur Sovétríkj-
anna um algera afvopnun
vakið mikinn fögnuð. Því eru
Pólverjar allir andvígir því
að V-Þjóðverjar fái kjarn-
orkuvopn og mjög andsnún-
ir skoðunum ýmissa aðila í
Atlanzhafsbandalaginu, eink-
anlega stjórnmálamannanna '
Bonn, sem beita sér gegn því
að dregið verði úr spennu í
alþjóðamálum. Óþarft ætti a*
vera að taka það fram að
Pólverjar fylgjast vökulum
augum með fvrirgangi hefnd-
arsinna í »VdÞýzkalandi og
eru albúin til gagnráðstaf-
ana ef á þarf að halda. Ó'T
nú er svo komið, andstætt því
sem var á. á-njmim milli st.vrj-
aldanna að sevintýrastefra
vissra stiórnmálamanna við
Rín vekur engan ótta í Pól-
lahdi. Póllaud er ekki einangr-
að. Það er sterkt ríki í örri
þróun. Bjartsvni sú sem h'H-
ið hefur næringu af sextán
ára revnslu eftir stríð velc1”’-
því að Pólveriar gera sér há-
ar hugmyndir um framtíðina.
Félagar
í SJÁLFSBJÖRG
Reykjavjk:
H Ó P F E R Ð
verður farin sunnudaginn 24. júlí. lagt verður af
stað frá Sjafnargötu 14 kl. 10.
Væntanlegir þátttakendur tilkynni þáttöku sína í
s'íma 1 65 38, þar sem veittar verða nánari upp-
lýsingar.
Skemmtinef ndin, I
/