Þjóðviljinn - 06.09.1960, Qupperneq 3
Þriðjudagur 6. september 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (S
Frá niðursuðuverksmiðjiinni á Akureyri.
Afkastogeta niðursuðuverk -
smiðju á Akureyri margfölduð
Akureyri Frá fréttaritara Þjóðviljans.
1 síðasta mánuöi hófst vinnsla í hinni nýjii verk-
smiöjubyÆCgingu, sem Niöursuöuverksmiöja K. Jónsson
& €o. reisti á Akureyri í sumar, fullgeröi aö mestu á
þrem mánuðum og bjó nýtízku vélum til starfseminnar.
FýTÍrtæki þetta tók fyrst til
starfa 1947 og hóf þá niður-
suðu smásíldar í litlu leigu-
húsnæði á Oddeyrartanga.
Fy^stu árin nam framteiðslan
1500^2000 kössum árlega, og
fullnsegði innanlandsmarkaði.
Síðan hefur árlega verið hald-
ið áfram og framleiðslan auk-
in eftir því sem eftirspum
hefur leyft. Sum árin hefur
verið unnið að niðursuðu og
vinnslu annarra sjávarafurða,
en öll hefur starfsemin verið
smá í sniðum .
Líkaði vel erlendis.
Vegna þess hve verksmiðjan
hefur verið ófullkomin og illa
búin vélakosti hefur ekki ver-
ið unnt að framleiða með út-
flutning fyrir augum. Á árinu
1958 voru þó. 400 kassar af
síldarsardínum seldir til
Tékkóslóvakíu til reynslu. Lík-
aði vara þessi mjög vel og
voru 2000 kassar sendir á
sama markað árið eftir.
Nefnd sem skipuð var á
grundvelli þingsályktunar eftir
tillögu Bjöms Jónssonar o.fl.
t'r aðalvinnslusal niðursuðuyerksmiðjunnar.
til að kanna hagnýtingu smá-
síldarinnar í Eyjafirði mælti
með því að niðursuðuverk-
smiðjan yrði stækkuð talsvert
og skömmu síðar var hafinn
undirbúningur að stækkun-
inni.
Byggt á þremur mánuðum.
Byggingaframkvæmdir hóf-
ust 6. maí í vor. Aðalbygging-
in, stálgrindarhús á steyptum
gmnni með hlöðnum veggjum
er 480 fermetrar að flatarmáli,
ketilhús 20 ferm., millibygg-
ing 55 ferm., og reykhús og
móttökusalur 270 ferm. Auk
þess hefur verið steypt pian
og gerð lítil trébryggja þar
sem smásíldinni er landað.
Þak aðalbyggingarinnar er
úr timbri og einangrað með
wellit, klætt bárujámi að utan
og asbest að innan. Byggingin
jer að öðru leyti einangruð með
plasti og korki. Veggir múr-j
húðaðir og málaðir utan og
innan.
35.000 dósir á dag.
Hér verður ekki gerð nein
tilraun til að lýsa gangi vinn-
unnar í verksmiðjunni, en öllu
virðist þar mjög vel og hagan-
lega fyrir komið og vélakost-
ur mjög fulikominn. Hráefnið
er fengið innan til á Eyjafirði
og er síldin gejund í ,,lásum“
og landað við verksmiðjudyrn-
ar einu sinni til tvisvar á dag.
Þann tíma, sem liðinn er frá
því að verksmiðjan tók til
starfa nú, hafa engar tafir
orðið vegna skorts á hráefni
en við sliku má þó alltaf bú-
ast.
Með fullum afköstum er gert
ráð fyrir, að verksmiðjan vinni
úr ca. 70 tunnum síldar á dag
og úr því síldarmagni fáist
sem næst 35 þús. dósir. Starfs-
fólk er um 70 manns, að mikl-
um meirihluta kvenfólk.
Eigendur verksmiðjunnar
reikna með að hægt sé að
sinna vinnslu smásiidar sem
næst hálft árið, en hugmynd
þeirra er að sinna vinnslu ann-
arra sjávarafurða þann tíma
ársins, sem ekki er unnið við
smásíl dina, þannig að hægt
verði að starfrækja verksmiðj-
Framhald á 4. siðu.
Félagið skilaði bönkunum 12,5 miiij. kr.
í gjaldeyri á síðasía ári
Á aöalfundi Loftleiða sl. fösludag lýsti Kristján Guö-
llaugsson. formaður félagsstjórnar, ýfir því aö bráða-
birgðalögin um bann við verkfalli íslenzkra atvinnuflug-
manna heföu ekki verið sett að ósk stjórnenda félagsins,
enda fælist ekki í þeim nokkur lausn á þeirri kaup- og
kjaradeilu sem yfir stæöi
Taldi Krist ján að flugliðar' ur á sólarhring en 1958 og
og stjórnendur flugfélaganna
yrðu að leysa sín mál sjálfir
enda myndi stjórn Lofleiða
leggja fullt kapp á að svo
yrði gert,.
337 ferðir yfir hafið
1 skýrslu sinni sagði Alfreð
Elíasson forstjóri Loftleiða.
m.a.:
„Vorið 1959 voru flognar 4
ferðir í viku milli meginlands
Evrópu og Ameriku með við-
komu á íslandi. Sú áætlun var
í gildi þar til 30. apríl. Sum-
aráætlunin tók við þann 1. maí
og stóð til 31. okt. Voru þá
flognar 9 ferðir vikulega á
milli iheimsálfanna með við-
komu hér í Rey-kjavSk og var
það þrem ferðum meira á viku
en 1958. Síðan tók vetraráætl-
un aftur við frá 1. nóv. Þá
voru flognar 5 vikulegar ferð-
ir fram og til baka yfir Atlanz-
hafið eða einni ferð fleira en
árið áður.
Samtals voru þannig flognar
337 ferðir fram. og til baka á
milli Evrópu og Norður-Am-
eríku á móti 254 árið 1958.
Fjórar ferðir af ofangreindum
ferðaf jölda voru aukaferðir,
sem flognar voru til að anna
mikilli eftirspurn.
70% sætanýting •
Árið 1959 voru fluttir 35.498
farþegar, en 26.702 farþegar
árið áður og varð aukningin
32.9%. Vöruflutningar urðu
nokkuð meiri nú en árið áður,
eða 315 tonn á móti 250 tomi-
um árið áður. Hafa því vöru-
flutningar aukizt um 26%.
Póstflutningar urðu nú 32
tonn á móti 24 tonnum 1958
og hafa því aukizt um 33.3%.
Flugvélar þær, sem félagið
hafði í förum flugu samtals
14.243 klst. og voru að meðal-
tali rúmar 10 klst. á lofti á
sólarhring eða einni klst leng
Skákmenn í hóp-
ferð til Akureyrar
Flokkur skákmanna úr Tafl-
félagi Reykjavíkur fór til Ak-
ureyrar um síðustu helgi og
þreytti kapptefli við lið frá
Noi’ðurlandi. Teflt var á 27
borðum og sigruðu Reykvík-
ingar með 15 Vfe vinningi gegn
llj/2. Á hraðskákmóti sl.
laugardag sigraði sveit Guð-
mundar Lárussonar sveit Jóns
Ingimarssonar með 237 vinn-
ingum gegn 124. Stighæstu
einstaklingar í keppninni voru
Arinbjörn Guðmundsson með
18 '/2 v. af 19 mögulegum, Lár-
us Johnsen 18, Guðmuntíur S.
Guðmundsson 17, Jcnas Þor-
vaidsson og Jóhann Sigurjóns-
son 16 hvor.
Á sunnudag bauð bæjarráð
Akureyrar skákmönnum til
kaffidrykkju.
má það teljast mjög góð nýt-
ing flugvélanna. Framboðnir
sætakílómetrar voru 262 millj-
ónir, en notaðir sætak'xlómetrar
voru 184 milljónir, en það ger-
ir um 70% sætanýtingu, sem
er svipað og sætanýtingin varð
1958.
263 starfsmenn
1 árslok 1959 voru starfs-
menn félagsins alls 263. sem
skiptust þannig á hinar ýmsu
stöðvar: Reykjavík 128, New
York 41, Hamborg 11, Kaup-
mannahöfn 8, Luxemburg 3,
London 6, Glasgow 4 Osló/Svg
2 Got/Sto 9. Samtals 212, en
auk þess um 50 manns sem
störfuðu beint eða óbeint við
skrifstofu og flugstörf á veg-
um félagsins.
22% aukning í ár
Þetta hefur nú verið það
ihelzta varðandi árið 1959, en
þar sem nú er svo áliðið 1960
þykir mér rétt að skýra nokk-
uð frá hvemig gengið liefur
fyrstu 7 mánuði þessa árs,
Fluttir hafa verið 23.228 far-
Framhald á 4. síðu.
Egill rakari í
nýju húsnæði
Egill Valgeirsson, einn af
kunnustu rökurum bæjarins,
! hefur undanfarin tiu ár rekið
litla rakarastofu að Vestur-
götu 14. Hann hefur nú stækk-
að rakarastofuna að mun í
öðru húsnæði en í sama húsi,
breytt henni og búið nýtízku
húsgögnum, vinnuborðum og
speglum með sérstöku sniði.
Fyrir innan rakarastofuna er
| vegleg biðstofa með ágætum
| húsgögnum, teppalögð. Eru
| bæði rakarastofan og biðstof-
an málaðar í ljósum litum og
eru stofurnar hinar viðkunn-
anlegustu.
De Gaulle Frakklandsforseti
sagði á íundi með blaðamönn-
um í París í gær að SÞ hefðu
engan rétt til að skipta sér af
Alsírmálinu og Frakkar myndu
virða að vettugi allar samþykkt-
ir þeirra um það mál. Hann
gagnrýndi einnig afskipti SÞ af
Kongómálinu og sagði að vest-
urveldin þrjú hefðu átt að sjá
um að engir aðrir hlutuðust til
um það.
Hafið er á eynni Mön árs-
þing' brezka alþýðusambands-
ins. Helzta deilumál þingsins
verður afstaðan til kjarnavopna
og verða atkvæði greidd um
það mál á morgun. Niðurstaða
er talin mjög' tvísýn.
Veðurhorfurnar
Suðaustan stinningskaldi og
skúrir í dag.