Þjóðviljinn - 02.10.1960, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 02.10.1960, Blaðsíða 5
Sunnudagur 2. október 1960 — ÞJÓÐVTLJINN — (5 fannst r mm Himmler fyrirskipaSi oð myrca 80.000 fanga i Sachsenhausen-fangabúSunum Yfirvöld nazista í Þýzkalandi á Hitlerstímanum höfðu í hyg'gju að sprengja, allar Sachsenhausen-fangabúöirn- ar í loft upp og myrða þar meö alla þá 80.000 sem voru í fjöldafangabúðunum. Þetta átti að gerast í lok lok heimsstyrjaldarinnar. Þetta hefur komið fram í réttarhöldunum í Diisseldorf ,yfir nazistaböðlunum Höln, Böhm og Hempel, sem tóku þátt í morðum 10.800 manna í Sachsenhausen. ’Sakborningarnir hafa skýrt frá því að Himler, yfirforingi SS-liðsins, hafi fyrirskipað að enginn fangi mætti komast lif- andi úr fangabúðum þessum. Einnig íhuguðu nazistar að gera gjöreyðandi loftárás á fangabúðirnar, eða skjóta alia fangana, 80 þúsund að tölu. Það varð samt að ráði að flytja alla fangana, sem ferða- færir voru, burt austur á bóg- inn, þegar hersveitir Breta nálguðust fangabúðirnar. Gefin var fyrirskipun um að skjóta umsvifalaust alla1 þá fanga, sem voru sjúkir eða of veik- burða til að leggja í langa gönguferð. Skyldu lík þeirra grafin á minnst tveggja metra dýpi. Greftrunina var þó ekki hægt að fram- kvæma þar sem ekki fannst nógu stórt svæði í nágrenninu til að grafa allar þær þúsundir, sem myrtar voru. Lík þeirra voru því brennd. Fluttur burt Hinn 21. apríl 1945 var skip- að að rýma fangábúðimar. Fangarnir voru reknir af SS- imönnum eins og fé í 1500 manna hópum. Þeir voru ör- magna af langvarandi hungri og pyntingum og höfðu enga skó á fótunum. Stormsveitar- mennimir börðu þá áfram og ídrápu þá sem drógust aftur úr. Ætlunin var að reka fang- ana til Ravensbriick, en áður en þangað var komið, höfðu Bretar sótt svo hratt fram, að þeir náðu liópnum á leiðinni. Fangaverðirnir Höhn og Hampel voru teknir til fanga, voru dregnir fyrir sovézkan herrétt og lentu síðan í hegn- ingarvinnu. Böhm tókst hins vegar að leynast. Hann lét sér vaxa alskegg og lifði undir fölsku nafni, þar til hafðist upp á honum fvrir skömmu. Vitnaleið.slur Nú í vikunni hófust vitna- leiðslur í málinu. Mættir eru sem vitni fjölmargir fyrrver- andi fangar úr Sachsenhausen- fangabúðunum frá Þýzkalandi, Póllandi, Hollandi, Noregi og víðar. Fjölmargir fyrrverandi fangar hafa fylgzt með réttar- höidunum frá upþhafi og ó- spart iátið í ljós andúð sína og viðbjóð á böðlunum, sem þeir sáu forðum myrða félaga sína og pynta til dauða. Erích Liibbe, fyrrveramdi ríkisþingmaður Sósialdemó- krataflokksins, sagði að Höhn hefði verið einskonar andlegur léiðtogi fangavarðanna, sem misþyrmdu föngunum og myrtu þá. Liibbe var sex ár í fangabúðunum og var marg- sinnis áhorfandi að því að Höhn og kumpánar hans pynt- uðu og hengdu fangana. Reinke, fyrrverandi borgar- stjórnarfulltrúi kommúnista í Göttingen, hefur vitnað um það hvernig Hempel rak 10 þús. sovézka sti’íðsfanga til af- tökustaðarins, sparkaði í þá og misþyrmdi á margan annan hátt. Reinke horfði -einnig á Höhn hengja fanga með eigin hendi eftir að fanginn hafði gert mishepppnaða flóttatil- raun. Þannig hafa vitnin hvert af öðru, skýrt frá hinum ó- hugnanlegustu pintingum og villimannlegum morðum þýzku nazistanna. Nixon og Kennedy hnakkrífast vegna nærveru Krústjoffs Mikill óróleiki stjórnarvalda í USA vcgnc. þess að athyglin beinist að Krústjofí Stjórnarvöld í Bandaríkjunum halda stööugt áfram aö kvarta yfir því að dvöl Krústjoffs og Fidels Castro í New York hafi alvarleg áhrif á undirbúning forscta- kosninganna í Bandaríkjunum, þar sem athygli biaöa, 'útvai’ps og sjónvarps og' áhugi almennings beinist fyrst og fremst aö þessum erlendu ríkisleiötogum. Þessi 13 hæða bygging er í smíðum í Peking. Þar verður að- setur stjórnar flugmála í Kína. Blaðamenn hafa hinsvegar ekki látið yfirvöldin segja sér fyrir verkum, og skrifa og birta þær fréttir, sem iþeim þykja merkilegastar og atliygli fólksins beinist að. Órólegir frambjóðendur Nærvera Krústjoffs virðist hafa komið cþægilega við taug- ar frambjóðendanna tveggja, Nixons og Kennedys, en kosn- ingabaráfcta þeirra hefur kafn- að undir öllum þeim umsvifum, sem hið sérstæða -Allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna veldur. iFasisitastjóm Verwoerds í Suður-Afríku hefur í hyggju að flytja 40.000 blökkumenn af Zulu-ættflokknum nauðung- ar.flutningi frá ósum Pongola- fljóts til Natal-héraðs. Hér er um að ræða mestu þjóðflutn- inga sem um getur í Afríku. Nixon hefur nú ácai.a 3 Kennedy harðlega í ræðu fyrir það að ihafa leyft sér að minn- ast á það -í kosningaáróðri að varnir Bandaríkjanna væru í ó- lestri. og að efnahagsþróunin í landinu gangi mjög seint Þetta sé stórhæittulegt þegar Krústjofif, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sé í landinu. Kennedy hefur brugðizt hart við þessari árás Nixons. Kveðst hann hvergi muni hopa og halda áfram að gagnrýna Eis- enhowerstjórnina, þótt Krúst- joff sé í landinu. James Byrnes, sem á sínum tíma var utanríkisráðherra í stjórn Trumans, hefur nú lýst yfir því, að hann muni styðja Nixon sem forseta og Henry Cabot Lodge sem varaforseta við forsetakosningamar, en ekki Kennedy frambjóðanda demókrata Landbúnaði í Kína hefur fleygt mjög fram á undanförnum árum. M.a. hefur verið byggfc víðáttumikið áveitukerfi til þess að auka frjósemi jarðarinnar. Á myndinni sést einn slíkur áveituskurður, sem einnig er notaður sem samgöngu leið. Geislavirkl kolefni aukið nm þriðfimg Vísindamannanefnd sú sem Sameinuðu þjóöirnar hafa falið aö rannsaka áhrif geislaverkunar situr nú á rök- stólum í Genf. Helzta mál á dagskrá fundarins er aö athuga hvaöa skaðlegum áhrifum komandi kynslóöir geta orðið fyrir af völdum hins geislavirka kolefnis 14. Ógnanir Bandaríkjamanna og efnahagsstyrjöld gegn Itúbu hef- ur orðið til þess að treysta mjög einhug kúbönsku þjóðarinn- ar og sjálfstæðistilfinningu. Á myndinní sjást kúbansldr sjálf- boðaliðar, sem gefið hafa sig fram til lierþjónustu til að verja Það er nefnilega staðreynd að magnið af kolefni 14 í and- rúmsloftinu hefur aukizt um 30% af völdum tilraunanna með kjarnorkuvopn. Kolefni 14 er hættulegust allra geisla- virkra efna sem leysast úr Útifundurinn Framhald af 1. .síðu stækkuð Qg' Bretar hófu ofbeld- isárás sína, loforð allra stjórn- málaílokka um að aldrei yrði samið við Breta og aldrei hvik- að frá rétti íslendinga. Þeir menn sem nú sitja að samning- um eru ekki fulltrúar þjóðarinn- ar, sagði Gils Guðmundsson og fundarmenn tóku öfluglega und- ir. Sameinumst öll Þjóðviljinn mun síðar ' rekja ræður þeirra Karls Sigurbergs- sonar og Lúðvíks Jósepssonar, en Lúðv'k lauk ræðu~ sinni með þessum orðum: „Ég þekki marga 'Sjálfstæðis- menn og Alþýðuflokksmenn víðsvegar um landið, sem eru heilsteyfjtir í landhelgismálinu og sömu skoðunar og meirihluti landsmanna um að sérsamnirgar við Breta komi ekki til mála og úti'.oka eigi með óllu, að víkja um þumlung frá 12 mílna mörk- læðingi við kjarnaspreng’ngu, sökum þess að það endist svo lengi — hálfæfi þess er svo löng — og einnig vegna þess að svo mikið magn af því myndast við sprengingarnar, eða uppundir 7 kíló fyrir livert megatonn af sprengiafli. Bandaríski nóbelsverðlauna- maðurinn Linus Pauling segir í bók sinni „Aldrei framar stríð“ frá útreikningum sem gerðir voru árið 1958, en af þeim mátti leiða að ef lialdið væri áfram að sprengja kjarna- vopn í eitt ár af sama kappl og þá hafði verið gert um tíma myndi það hafa i fcr með sér að 230.000 börn fæddust alvarlega vansköpuð og að önnur 420.000 dæju þegar í móðurlífi eða þá nýfradd. unum allt umhverfis landið án undantckningar. Ég veit að í Reykjavík er fjöldi slíkra manna. Kg skora alveg sérstaklega á þá að sanioinast okkur hihtím um það að koma í veg f.yrir svik í landhelgismálinu og gera rík- isstjórninni það ljóst nú þegar í upphafi samningaviðræðnanna við Breta, að þjóðin muni aldrei þola neina sviksemi. Björgum landhelgismálinu með órofa sani- 'stöðu allra“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.