Þjóðviljinn - 30.10.1960, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 30.10.1960, Blaðsíða 7
Sunnudagur 30. október 1960 — ÍÞJÓÐVILJINN — (7 Kristóbert Kristóberlsson og kona lians Jónina Magnásdótt- ir í garði sínum í Súðavík, en hann hefur auðsjáanlega veriíS ræktaður af alúð. og þar vex mikill fjöldi jurta. I Súða- víl« eru blóm eða tré við flest Iiús. ísafirði keypti Langeyrina og gerði þaðan út togara, Jarl- inn, er veiddi síld; þá var bæði saltað og brætt á Lang- eyri. 'Svo var síldarstöð sett upp á Dvergasteini, það var Norð- maður sem kom henni upp, og Duus setti upp síldarstöð á Hattareyri. (Hér inni við fjarðarbotninn er Hattardalur sá er Gröndal gerði frægan á sínum tíma). — Það er naumast að lögð hefur verið áherzla á síld- veiðar. — Já, þá vildu allir verða fljótt ríkir á síld. Þá var mik- ið um síld, þá var hægt að snurpa síld hér í firðinum, og öllu Djúpi. Þetta var á ár- unum 1916-1920. — En eftir það? — Já, svo fór síldin að hverfa frá Vestfjörðum. Þeir spenntu líka verðið upp, vildu ekki selja þegar eftirspurnin var mest — og fóru svo á hausinn með allt saman þeg- ar verðið féll skyndilega. þannig lauk síldárævintýrinu. Að því loknu ke>-pti Þor- varður Sigurðsson Langeyr- ina og gerði út 4-5 vélbáta, þeir voru Snarfari, Sæfari, Bifröst, Kári og Leifur. Það var mikil vinna á vorin með- an það stóð, fiskurinn var saltaður, vaskaður og þurrk- aður. Fyrri hluta vertíðar voru bátarnir í verstöðvum sunnanlands, en síðari liluta hennar fiskuðu þeir umlir Jökli (Snæfellsjökli) og lögðu aflann upp hér. Grímur Jónsson kom hér upp frystihúsi með vélum —■ áður notuöu frystihúsin snjó og lagís —• og frystu síld til beitu. Héðan, úr Súðavík, var róið á árabátum og því byggðist hér, og hér fengru menn smálóðir til að byggja á. Á Langeyrinni byggðist ekki, því þar var engin vinna á vetrum. Samhliða þessu komu fleiri upp bátum hér og nokkurri útgerð. Við fráfall Þorvarðar Sig- urðssonar lagðist útgerðin á Langeyri niður skömmu fyrir 1930. Útvegsbankinn eignað- ist Langeyrina — og þá lagð- ki't hún í auðn á tímabili. Norðmenn höfðu byggt stórt og vandað íbúðarhús í sam- bandi við hvalstöðina á Langeyri. Nú var það rifið og flutt inn í Reykjanes í sambandi við skólabj’ggingu þar. — Var þetta ekki slæmt fyrir atvinnu manna? — Jú, vitanlega. En marg- ir aðkomumenn höfðu verið á bátunum svo þstta var þó ekki eins tilfinnanlegt fyrir sjómennina eins og landverka- fólkið. Grímur Jónsson gerði oftast út 3 báta hér í Súða- vík og Jón Jónsson kaupmað- ur hér gerði einnig út 2 báta. En þetta voru allt litlir vél- bátar, frá 6 til 15 tonn. — Hvað var Langeyrin lengi í eyði ? — Kaupfélag Isfirðinga keypti rústirnar á Langeyri af Útvegsbankanum um 1941 —’42. Um svipað leyti stofna sjóm. og verkamenn í Súða- vík h.f. Andvara, er gerði héðan út 2 báta á tímabili. Grímur Jónsson gerði þá áfram út 3 báta. Þannig gekk nokkuð þar til Andvarafélag- ið fór á hausinn, Grímur flutti burtu og Kaupfélag ís- firðinga hætti að starfrækja frystihúsið á Langeyri. — Það hefur ekki verið björgulegt útlitið fyrir íbú- ana. — Nei, Langeyrin var ekki starfrækt neitt að ráði, þar var sama og engin fiskmót- táka í 2 ár og lagðist svo niður. Hér í Súðavík var Frosti (frystihúss-félagið) 'í niðumíðslu, þar til hreppur- inn gekk inn í hlutafélagið, keypti meirihl. hlutabréfanna af Grími Jónssyni, ásamt nokkrum einstaklingum er einnig keyptu hluti. Vorið 1859 keypti svo Björgvin Bjarnas. Langeyrina setti þar upp rækjuvinnsiu, hefur tvo báta og var unn- ið í sumar að frekari fram- kvæmdum þar í sambandi við niðursuðu á sjávarafla. —■ Og nú er lífvænleg at- vinna ? — Síðustu 2 árin hefur at- vinna verið sæmileg hér. Margir hafa hér skepnur, smábú óg nokkrir fara burtu á síldveiðar á sumrin, en fyr- ir það er líka andstæðara að sinna hráefni í frystihúsinu á sumrin. — Hvað er byggðin hér fjölmenn? — Tibúar hér í Súðavík eru eitthvað á þriðja hundraðinu, í Súðavíkurhreppi öllum eru um 300 manns. Tveir bæir í Seyðisfirði og 1 í Hestf;rði tilheyra einnig Súðavíkur- hreppi. — Hér og á Langeyri virð- ist ágætt bæjarstæði, og raun- ar miklu betra en víða þar eem fólkið er f jölmennara. Er miklu lengra hér á miðin en t.d. frá ísafirði? -— Nei, það munar litlu eða engu. Og kaupstaðarstæði er hér engu síðra en t.d. á Isa- firði. Það er ræktanlegt land frá Súðavik og inn í fjarðar- botn og skilyrði ágæt til lands og sjávar. Hér lýkur um sinn að segja frá þorpinu sem bvggðist ekki v'ð höfnina er landið lagði til, heldur þama í flæðarmál- inu, „utangarðs“ við tún. bændanna, sem neyddust til að leyfa byggingar þarna af því þá vantaði menn til að róa á bátum sínum. Þorpinn þar sem lífsafkoma fólksins hefur fremur en á flestum öðrum stöðum verið leiksopp- ur stundargróðasjónarmiða einstaklinga. J. B. © vestra Málefnasnauö kosfííngabarátta Að viku liðinni fara fram forsetakosningar í Banda- ríkjunum eftir einhverja daufustu og leiðinlegustu kosningabaráttu í manna minnum. Margir sem vel fylgjast með bandarískum stjórnmálum spá því að á kjördag komi í ljós að lang- stærsti flokkurinn verði þeir scm heima sitja vegna þess að þeim finnst ekki ómaksins vert að fara á kjörstað að velja milli Richards Nixons varaforseta og Johns Kenne- dy öldungadeildarmanns. Jafnvel er fullyrt að kosn- ingaþátttaka verði sú lægsta sem orðið hefur í bandarísk- um forsetakosningum í þrjá áratugi. Deyfð og áhugaleysi kjósenda eru þeim mun at- hyglisverðari sem frambjóð- endur hafa haft betra tæki- færi en nokkru sinni fyrr til að sýna sig þjóðinni. Auk fundahalda og ökuferða í opn- um bílum um götur stórborg- anna hafa Nixon og Kennedy leitt saman hesta sína í fjór- um sjónvarpseinvigjum, en ekkert sem þeir sögðu megn- aði að tendra hrifningareld í brjóstum bandariskra kjós- enda. Stjórnmálafréttaritarar óháðra blaða kvarta yfir að frambjóðendurnir hafi jagazt og pexað en ekki sett fram eina einustu nýstárlega eða snjalla hugmynd. A' hugaleysi um stjórnmál hefur jafnan verið miklu útbreiddara í Bandaríkjunum en Evrópu, í bandariskum kosningum þykir það ágæt þátttaka ef yfir 60% fólks á kosningaaldri greiðir at- kvæði og í suðurfylkjunum er kosningaþátttaka að jafnaði allt niður í 30 af hundraði. En nú bregður svo við að fjöldi Bandaríkjamanna sem hafa áhuga á stjórnmálum og láta sig þau miklu skipta koma hvergi nærri átökum Nixons og Kennedy. þetta á einkum v’ð um frjálslynt fóllt sem fylgt hefur demókrötum að málum, barðist tvisvar vonlausri baráttu fyrir Stev- enson í viðureignum hans við þjóðhetjuna Eisenhower en telur litlu máli skipta hvor þeirra sem nú eigast við hreppir forsetatignina. Það er líka mála sannast að enginn verulegur ágreiningur um grundvallaratriði kemur fram í málflutningi forsetaefnanna. Báðir aðhyllast þeir stefnu kalda stríðsins, en hvor þyk- ist færari um að heyja það en hinn. Mesta deilumálið í kosningabaráttunni hefur ver- ið hvort Bandaríkin hafi sett ofan eða ekki á átta ára stjórnarferli ■ Eisenhowers. Kennedy segir að áliti þeirrai og áhrifum hafi hrakað og brýnasta verkefni næstu stjórnar í Washington sé að ráða bót á því. Nixon stað- hæfir að veldi Bardaríkjanna hafi aldrei verið me;ra en nú, en hann sé rétti maðurinn til að efla það enn frekar. 17'rambjóðendurnir og ráðu- ■*■ nautar þeirra koma þann- g fram að ljóst er að þeim kemur ekki til hugar að mál- efni ráði úrslitum í kosning- unum. Keppinautarnir eru ekki kynntir kjósendum með tilvísun til stefnumála, heldur er milljón dollara á milljón ofan ausið í að skapa það sem auglýsingameistararnir sem hvor um sig hefur í þjónustu sinni kalla „ímynd“ forseía- efnanna. Fjölþætt og djúp- hugsað áróðursstarf fer til að koma inn hjá kjósendum þeim hugmyndum um eiginleika Nixons og Kennedy sem aug- lýsingastjórarnir telja likleg- Framhald á 10. síðv Nixon (t.v.) o,g Kennedy ræðast við eftir sjónvarpseinvígið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.