Þjóðviljinn - 27.11.1960, Blaðsíða 3
Á að snúa- sér írekar að málverkmu
en qraflistinni, sagði kennari Braga, því
þar koma fram persónulegri einkenni
— Sunnudagur 27. nóvember 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Bragi stentlur liér við stærsta málverkið á sýningunni „Htig-
mynd að leiklmsdyrum (innri hlið)“. (Ljcsm. Þjóðviljinn.
í Listamannaskálanum stend-
ur yfir málverkasýning. sem er
á margan hátt mjög athyglis-
verð. B.ragi Ásgeirsson. sem að
undanförnu hefur dvalið i
Þýzkalandi og víðar við fram-
haldsnám, sýnir nú 90 mál-
■verk og að auki steinþrykk,
litógrai'íur, radéringar og'
aquaint, sáldþrykk, gouache,
tempera o.fi.
Myndirnar eru allar frá ár-
inu 1954 þar til í ár. Áhorf-
'andanum dylst ekki að Bragi
er vandaður og dugmikili lista-
maður, myndir hans virðast
þrautunnar og ó þessari sjm-
ingu kemur skýrt í ijós hvern-
ig Bragi -hefur leitað fyrir sér
með liti og form, ætíð á pers-
ónulegan hátt.
Síðustu myndir Braga bera
með sér að hann er hættur til-
raunum — nú er hann kominn
á ákveðna braut, íormin eru
sterkari og einíaldari, litirnir
fléttast saman. en stangast
ekki á. Það er engin ærsl
leng'ur — nú virðist Bragi
stefna að persónulegri og ag-
aðri listsköpun.
Það verður enginn lista-
maður nema að ieggja á sig
mikla og stöðuga vinnu, sagði
Bragi. og það er mjög nau.ð-
synlegt að sjá verk'f'annarra
iistamanna og fylgjast vel með.
Mér virðist sem margir málar-
ar hér heima telji sig eiga ein-
hvern persónuiegan leyndar-
dóm í sambandi við málverkið,
en þegar peir halda svo sýn-
ingar, þá kemur á daginn. að
allir eru að vinna að því sama
og leita að því sama. Kennari
minn í Múnchen dró ekki dul
á neitt.. hann gagnrýndi verk
okkar. en sagði að við .skiidum
ekki £áka sig of hátiðlega, um-
ira'rri ai!t að vinna.: sém mest
eftir éfgiri höfSi.
Það eru margir sem halda
að abstraktlistin sé komin í
strand — þ.e.a.s. stöðnuð. Bragi
er á öðru máli. Hann sagði
að margar tilraunir hefðu ver-
ið gerðar, en upn úr þeim
hefðu vaxið margir mjög pers-
ónulegir listamenn.
Bragi sagði einnig að kenn-
ari sinn í Múnchen hefði 'sagt
að hann ætti að leggja meiri
áherziu á máiverkin heldur en
grafJistina. því þar gæti hann
náð betri árangri — þar kæmu
fram persónuieg einkenni
hans.
Eragi hefur selt 44 myndir
og er bað mjög góð sala. Hann
er ekki ánægðastur yíir þv.',
heldur þeim viðtökum sem sýn-
ing hans heíur hlotið — hann
sagði að margir listamenn
hefðu komið og skoðað sýning-
una og margir þeirra komið
aftur, Sýningunni lýkur í dag,
en ef aðsókn verður góð hefur
Bragi jafnvel í hyggju að
framlengja sýninguna í nokkra
daga.
{■■■■■HHBHBaHHBHBHaiaHaHHa ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
iviÝí&x-:;;
Sfofnendur Tollvarðafélcsgs íslands voru
13 érlð 1935, nú eru félegsmenn um 70
N.k. laugardag minnast
toilverðir með hófi í Tjarnar-
café aJdarfjórðungsafmælis
stéttarfélags síns, Toilvarðafé-
Jags íslands.
Félagið var stofnað . í
Tteykjavík 8. desember 1935
og voru stofnendur 13 að töiu.
Fyrstu íélagsstjórnina skip-
uðu þeir Felix Jónsson for-
maður, Grímur Bjarnason
ritari og Haraldur S. Norð-
dahl féhirðir. Félagsmenn eru
nú um 70, en stjórn félagsins
skipa: Karl Halldórsson for-
maður, Guðjón H. Guðnason
ritari og Jónas Hallgrímsson
léhirðir. Varaformaður er Jón
Mýrdal.
Meginverkefni Tollvarðafé-
lags íslands hafa írá upphafi
verið á sviði kjaramála. Þeg-
ar íélagið var stofnað var
vinnutimi tollvarða 12
klukkustundir á sólarhring
------------------------«—-—-4
Lýsing og ljós-
tækni á heimilum
Lýsing og ljóstækni í heimil-
um verður umræðueíni fundar
Ljóstæknifélags íslands sem
haldinn verður í húsakynnum
Húsmæðrakennaraskólans, Háu-
lilíð 9 n.k. þriðjudagskvöld.
Fulltrúum írá Ilúsmæðrakenn-
araskólanum og nemendasam-
bandi hans hefur verið sérstak-
lega boðið á fundinn, en tilhög-
un hans verður sú, að fulltrúar
húsmæðra leggja spurningar fyr-
ir þrjá sérfræðinga, þá Skúla
Norðdahl arkitekt, Gísla Jóns-
son vgrkfræðing og Gísla Sig-
urðsson rafvirkjameistara.
og mánaðarlaun kr. 297,50.
Félaginu tókst b'rátt að fá
launin hækkuð í það sem þau
höfðu áður verið, 350 kr. á
mánuði, en þá var yfirvinnu-
kaupið lækkað úr 2 kr. á
klukkustund í kr. 1,60.
Síðar fékkst vinnutími toll-
varða styttur í 8 klukku-
stundir á sólarhring. En toll-
verðir bjuggu áfram við hið
furðulega lága yfirvinrtu-
kaup fram á styrjaldarár, er
það var hækkað upp í kr. 4
pr. klukkustund. Síðan breytt-
ist það svo aftur til mikillar
hækkunar með reglugerð út-
gefinni 11. marz 1946, en sú
reglugerð er enn í gildi. Þá
höíðu einnig verið sett ný
launalög, sem bættu hag toll-
varða að miklum mun.
Tollverðir fengu fyrst skip-
unarbréf fyrir rúmum tveim-
ur árum, enda þótt sumir
væru búnir að vera í stárfi
allt að 35 árum. Og nú hef-
ur verið stáðfest starfsreglu-
gerð fyrir tohverði.
Störf toþvarða eru mjög
margþætt og oft erfið, vinnu-
tíminn óreglulegur, því að
tollgæzluvakt verður að
standa allan sólarhringinn.
Allar vörur sem til landsins
koma eru tollflokkaðar af
tollvörðum. Öll skip og ílug-
vélar sem koma frá útlönd-
um eru undir þeirra eftirliti.
Starfsskilyrði tollvarða, hér
í Reykjavík a.m.k., hafa ekki
alltaf verið góð. Nú í dag má
segja að aðstaða til tollaf-
greiðslu á Reykjavíkurilug-
velli sé engin í raun og veru,
og við höfnina er svipaða
sögu að segja. Húsakynni þau
sem tollverðir eiga að haíast
við í eru þau sömu og fyrir
23 árum, er toliverðir voru
18 talsins — en þeir eru nú
46 hér í Reykjavík eins og'
áður var greint frá.
Formennsku í Tollvarðafé-
lagi íslands hafa þessir menn
gegnt auk Felix Jóns-
sonar fyrsta formanns félag's-
ins: Ilaraldur S. Norðdahl
í 9 ár, Karl Halldórsson 8 ár,
Ólafur Helgason 4 ár, og
Aðatsteinn Halldórsson í 4 ár.
Framangreindar upplýsing-
ar gaf stjórn Toílvarðafélags-
ins á fundi með fréttamönn-
um fyrir helgina. — Myndin
er af félagsstjórninni. Frá
vinstri; Jónas Hallgrímsson.
Karl Halldórsson og Guðjón
H. Guðnason.
Hagstæð vöru-
skipti í okt
í lok síðasfa mánaðar var
vöruí.Idptajöfruðurinn við út-
lönd óhagstæður um saintals
rúmlega 462 millj. króna.
Út höfðu verið fluttar ísl.
vörur fyrir 2027 millj. en inn
fyrir 2490 millj. kr. þar af
skip og flugvélar fyrir 277
millj. Á sama tímabili í fvrra
voru vöruskiptin \nð útlönd ó-
hagstæð um 520 millj. króna.
Vöruskiptajöfnuður.nn í okt-
óbermánuði sl. varð hagstæður
um 63,8 millj. króna. Útflutn-
ingurinn nam þá 295,4 millj.
en innflutningurinn 231,6 millj.
króna.
Kvæðasafn Magnúsar Ásgeirs-
sonar II komið út Iijá Helgafelli
MeGal nýjustu útgáfubóka Helgafells er kvæöasafn.
Magnúsar Ásgeirssonar, annaö bindi.
Fyrra bindi kvæðasai'nsins Bóki’j^ er nær 370 blaðsíður,
kom út fyrir nokkrum árum og prentuð í Víkingsprenti.
haí'ði að gevma frumsamin
kvæði Magnúsar og' nokkrar ai'
ljóðaþýðingum hans. í þessu
s.'ðara bindi eru eingöngu birt-
ar Ijóðaþýðingar, m.a. eru þar
þýðingar Magnúsar á Rubaiyót,
Ijóðaflokkinum eftir Omar Khay-
yam. Kvæðið um fangann, Með-
an sprengjurnar falla og Kaflar
úr Fást. Viðræður Mefistofeles-
ar, sem er upphaf 2. þáttar úr
síðara hluta Fásts, mun vera ein
af allra siðustu þýðingunum,
scm Magnús Ásgeirsson vann að,
og k't hann hana 'eftir sig í
handriti.
Tómas skáld Guðmundsson
hefur séð um útgáfu kvæða-
safnsins. Ritar hann framan við
safnið fáein formálsorð og í bók-
arlok Nokkur minningarorð um
mann og ská’d, grein sem er að
mestu samhljóða stuttri minn-
ingargrein. sem Tómas skrifaði
um Magnús Ásgeirsson látinn- í
tímaritið Helgafell.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■
B
| Síðasii dagur
| sýningarinnar
■
Aðsókn að sýningu Páú
■ Steingrímssonar í Bogasal
■ Þjóðminjasaínsins hefur
B verið góð og nokkrar mynd-
■ ir hafa selzt. en-sýningunni .
jj[ lýkur í kvöld, sunnudag,
S og verður ekki iramlengd.
Q
■ Eins og áður hefur verið
M
0 skyrt fra her í blaðinu,'
J| er þetta fyrsta listsýning
j Páls. hér í Reykjayik, ,en
ö listamaðurinn er Vest-
■ mannaeyingur. Á sýning-
■ unni eru eingöngu myndir,
H sem unnar eru úr litsaridi '
0 og muldu grjoi. llafa
jj myndirnar vakið talsverða
■ athygli og umtal.
* Á myndinni hér fj'rir-
* neðan sést listamaðurinn,'
■ Páll Steingrímsson, við
H eina af myndunum á sýn-
B
0 ingunni í Bogasalnum.