Þjóðviljinn - 25.01.1961, Side 4

Þjóðviljinn - 25.01.1961, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 25. jánúar 1961 „Mundu nú að vera ekki með neinar vitleysissagnir.“ sagði Benni byrjandi við Gulla gullfisk, er þeir drógu sig saman á móti óheppna sérfræðingnum og Lárusi lengrakomna. „Skiptu þér ekki af því, Benni minn,“ sagði Gulli glaðlega. „Ef þú segir rétt frá þírrjm spilum og reynir að láta mig spila spilin, þá er okkur borgið.“ Litlu seinna gaf Benni eft' irfarandi spil: J Sérfræðingur S: 10-8-4 H: D-G-9-5-3 T: 8-2 ! L: 6-3-2 Benni S: G-5 H: A-KTO-7 6-4 T: A-K 6-3 L: 5 Lárus S: K-9-6 H: 8 T: D-10-9-7 5 L: G-10-8-4 N V A vS Gulli S: A-D-7-3-2 H: 2 T: G-4 L: A-K D-9-7 r ' Sagnirnar voru þaraig: N: ' 1H — A:P — S :1S — V:P — N :3H — A:P — S:4T — ' V :P — N:6T — A:P — ' S :6G. Þegar Gulli sagði fjóra tígla, grunaði Benni hann um græsku en ákvað að hegna honum og þess vegna sagði hann sex tigla. Gulli var ekkert mjög óá- nregður með sjálfan sig þegar sérfræðingurinn spilaði út la.ufi. „Það var ef til vill ekki_ svo vitlaust að . nefna >-------‘—;-------------—- aldrei laufið,“ hugsaði hann ánægður. Þegar blindur kom upp, sá ham að lítið var að græða á útspilinu. Allt benti til þess að hjartað yrði að falla, ef spilið ætti að vinn- ast. Lárus setti laufatíu og Gulli drap með kóng. Nú kom tvisvar hjarta, og er Lárus lét.tígultíuna og horfði fast á sérfræðinginn uin leið, leizt Gulla ekki á blikuna. PIan->/ gaf af sér spaða og spilaði s’iðan spaðagosa úr borði, Lárus lagði kónginn á og fékk að halda slagnum. Staðan var núna: S: 10-8 H: D-G-9 T: 8-2 L: 3-2 S: 5 H: 10-7-6 4 T: A-K-6-3 L: ekkert S: 9-6 H: ekkert T: D-9-7-5 L: G-8-4 S: A-D-7 H: ekkert T: G-4 L: AD-9-7 J Þó að það væri augljóst að réttast væri að spila út spaða, spilaði Lárus laufa- fjarka. Gulli íhugaði málið af athygli. Hafði sérfræðingur- inra spilað út frá laufagosan- um þriðja, eða var Lárus að gefa honum tækifæri til þess að vinna spilið ? Honum fannst það ekki ósennilegt og svínaði laufaníu. Þegar suað- inm féll að auki stóð spilið. „Þetta var meira útspilið hjá þér maður“, sagði Lárus við sérfræðinginn. „Auðvitað var tígulsögnin fölsk hjá Gulla. Vissirðu það ekki?“ „Fyrirgefðu, Lárus“, sagði sérfræðingurinn auðmjúkur. Ég sé að laufaútspilið var mjcg vitlaust. „Hvernig þótti þér þetta hjá mér, ,,Benni,“ skaut nú Gulli inní, og brosti gleitt. Leikfélag Selfoss: Galdra - Lof tiir eftir JÓHANN SIGURJÓNSSON Leikstjóri: Haraldur Björnsson Leikfélag Selfoss hefur ver- ið all starfsamt á undan- gengnum árum. Það hefur tekið eitt eða tvö leikrit til sýningar á vetri hverjum. Leikir þess hafa hlotið góða dóma og átt vaxardi vinsæld- um að fagna. Félagið hefur heldur ekki verið smátækt í verkefnavali sínu, þar sem það hefur meðal annars sýnt Gullna hliðið við góðan orð- stír. Þá hefur félagið átt því láni að fagria að njóta leið- scgu reynda Björnssorar. Leikfélagsins Galdra-Loftur Sigurjónsson, Leikritið var frumsýnt í Selfossbíó 17. þ.m. fyrir fullu húsi. Leiknum var mjög vel tekið af leikhúsgsstum. Leik- stjóra og leikendum klaopað lof ‘í lófa og færð blóm að leikslokum. Gai^ra.-Loftur er ekki neitt frumsmíði og höfunduri'nn' liefur ek'ki kastað til hans. höndunum. Efnið í Galdra Loft er sótt í æfaforna þjóðsögu frá biskupsstólnum í H.jaltadal. Jafnvel þar, undir handar- jaðri biskupsins og í musteri drottins, fæðast og þroskast hvatir og girndir til ásta og metnaðar. Myrkvahöfðinginn er þar á sveimi eftir sálum ■manna. Aðalpersóna leiksins, Loft- ur, kemur okkur að ýmsu leyti kurauglega fyrir -sjón- ir. Grúskari viðandi að sér þekkingu úr gömlum bókum. Talinn vita lengra nefi sínu, og .iafnvel ramgöldróttur. Sl'íkar persónur eru ekki sjaldgæfar í sögum okkar. En flestir þeirra, sem eitthvað kunnu fyrir sér, notuðu þá kunnáttu í eiginþarfir og þá oftar til ills. En Loftur hyggst hvít' þvo sálu sína af ódæðisverk- um sínum á efsta degi með því, að ná valdi yfir hinu illa og beita því í þjónustu þess góða. Þatta vald getur hann ekki öðlazt nema með því að ná bók máttarins Rauðskinnu af Gottskálki biskup hinfum grimma, en þá bók tók hann með sér í gröfina. Inn í þessa metnaðar- girnd og valdasýki Lofts, fléttar svo höfnndur ást- um hans og Steinunnar og I Upphafi leiks- sýnir hö'fundur okk- ur það sem koma skal. Ekkert fær stöðvað valda- sýki Lofts ekki einu sinni ástir Steinunnar og Disu. Loftur virðist þó í upphafi fálmandi og óráðinn í því, til hvers hann ætli að nota það vaid, sem hann sækist svo mjög eftir. Það virðist held- ur ekki vaka fyrir höfundi að skýra frá því, heldur hinu. að sanna það, að það er ekki hægt að nota það illa í þágu þess góða og þessvegna hlýt- ur Loftur- að falla að leiks- lokum. Galdramenn og galdratrú er ekkert séreinkenni fyrir okku-r Islendinga, þar sem allur miðaldaheimurinn logaði af slíkri trú. Þc að sú trú væri að sumu leyti ar.nars eðlis er hér kemur fram. þá hefur Galdra Loftur þó farið sigurför nm heiminn; allt frá Selfossi og suður til Kína. Óli Þ. Guðb.iartsson, ung- ur maður og litt sviðvanur, leikur Loft a.f þv’ílíkri snilld, að maður getur ekki varizt þeirri hugsun livort hanr sé leikari af guðsnáð, eða hvort leikstjóra hafi tekizt að Galdra Loftur (Óli Guðbjartsson) og Steinunn (Erla Jakobs- dóttir). Ljósm. Studio. hins ágæta og þaul- Dísu. leikstjóra Haraldar ins Fyrsta leíkrit í vetur er eftir Jóhann Gamall draugur bærir á sér. Viðtal við menntaskóla- stúlku í Vikunni síðustu hef- ur vakið bæði umtal og skrif. Bæjarpóstinum hefur borizt eftirfarandi um þetta efni frá stúlku sem er lengra komin á menntabrautinni en sú sem fær að láta ljós sitt skína í Vikunni: Póstur góður. Hefur þú séð viðtalið við ungu menntaskclastúlkuna í Vikunni? Hún talar um stéttaskiptingu meðal yngri kynslóðarinnar og í þjóðfé- laginu yfirleitt. — Það virðist algerlega lokuð bók fyrir henni hve nauðsynlegt er að þessar „æðri stéttir" sem hún talar um (sem sé þeir menntuðu) þekki og skilji aðstæður og afstöðu þeirra sem vinna erfiðis- vinnu. Hvernig eiga annars þessir menntuðu, sem oft komast í æðstu stöður þjóð- félagsins, að geta stjórnað svo vel sé, ef þeir hafa aldrei unnið ærlegt handtak, bara verið fínt fól'k? Einnig vil ég benda þess- ari ungu stúlku á, að oft bera börn þessarar „óæðri stéttar" sem henni finnst vera, af börnum fína fólks- ins í námi. Einnig væri gaman að spyrja þessa stúlku og þá sem á sama máli eru, hvort þeir vilji meina öllum nema böimurn fíns fólks aðgang að æðri skólum, og hver þau halda að afleiðingin yrði. Og hvar ætli fína fólkið væri, ef ekki væru sjómenn, verkamenn og bændur í þjcð- félaginu ?, Ung stúd'ína. Stéttaskiptingardraugu r- inn sem menntaskólastúlkan í Vikunni er haldinn af var eitt sinn magnaður, en síð- ustu öldina -hefur jafnt og þétt dregið úr honum mátt, Munurimi á lærðum og ó- lærðum fer sífellt minn'kandi, tækniþróunin hefur það í för með sér að ákveðinn lær- drm þarf til fleiri og fleiri starfa.. I þjóðfélagi fram- tíðarinnar á munurinn á menntamönnum og erfiðis- mönnum eítir að þurrkast út, allir munu fá alhliða, almenna menntun við sitt hæ.fi og að auki sérmenntun í sinni starfsgrein. Svo er f.yrir að þakka að á íslandi hefur aldrei verið það d.júp milli menntafólks og óskólagenginnar alþýðu sem skapazt hefur í öðrum löndum. Það er grátbroslegt að sjá menntaskólastúlku rísa upp árið 1961 Og burð- ast við að gera úlfalda úr dguðri. mýfluga. móta svo efnivið þann á ör- skömmum tíma að undrum. sættir, mema hvorttvéggja sé. Það má kanni3ki segja, að 'hann hafi verið helzt til ör í fyrsta þætti og sýnt á sér nokkuð mikið særingasnið, sem hann þurfti .svo mjög á, að lialda í síðari þáttum leiks- ins. Það kom þó ekki að sök, af þvi ham óx stöðugt í hlutverkinu og á hátindi sær- inganna í þriðja þætti gneist aði af orðum hans fram í salinn, svo ég er ekki grun- laus um, að liír/um veikgeðj- ari hafi þótt nóg um. Stein- unni, frændkonu Ólafs og unnustu Lofts, leikur Erla Jakobsdóttir. Það er ekki skemmt'legt hlutverkið henr.r ar, það er vandmeðfaríð. Það Framh. ó, 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.