Þjóðviljinn - 16.04.1961, Blaðsíða 4
fc) _ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 16. apríl 1961
Islenzkir stúdentar í
Tveir íslenzkir stúdentar-
sem stunda nám í Bretlandi
tóku þátt í páskagöngu and-
stæðinga kjarnorkuvígbúnað-
• ar frá kjarnorkuvopiiastöðinni
Aldermaston til London.
Sumeráætlon Fí í
innanlandsflugi
hefst 1. maí
fjögurra daga ganga
og hefur verið farin þrjú ár
í röð. Þátttakendum hefur
fjölgað ár frá ári, og nú um
páskana tók þátt í göngunni
fólk af tugum þjóðerna auk
Breta. Til dæmis voru 500
Þjóðverjar frá báðum þýzku
ríkjunum; í sveit Norðurlanda-
búa voru Svíar fjölmennastir,
yfir 50 talsins, þarna voru
Japanir, Indverjar og sveitir
frá fjölda Afríkulanda. Göng-
unni lauk með 150.000 manna
útifundi á Trafalgar-torgi.
Martina Arroyo
Óslifin sigur-
Samkvæmt sumaráætlun inn-
anlándsflugs Flugfélags ís-
lands, sem gengur í gildi 1.
maj n.k. verður flogið *frá R-
vík til Ákureyrar á hverjum
degi og fiesta dagana þrisvar.
Til Eyja verða tvær ferðir alla
virka daga og ein á sunnudög-
um. Til Isafjarðar verður
flogið alla daga og alla virka.
daga til Egilsstaða. Flogið
verður til Hornaf jarðar 'á mið-
viku-, föstu- og sunnudögum,
1il Kópaskers og Þórshafnar á
mánu- og fimmludögum, til
Sauðárkróks á briðjudögum og
laugardögum, Húsavíkur á mið-
vikudögum og laugardögum og
Fagurhólsmýrar á fösiudögum
og sunnudögum. Til KirkjU-
bæjarkiausturs verður fiogið á
föstudögum.
Milli Veslmannaeyja og
Hellu verða flugferðir á mið-
vikudögum og milli Eyja og
Skógasands á laugardögum.
Frá Akureyri verður flogið til
Þórshafnar og Kópaskers á
mánudögum og fimmtudögum,
til Egi'sstaða á þrið 'dögum og
föstudögum og til Ilúsavikur á
miðvikudögum og laugardög-
um.
Báru borða
íslenzku þálltakendurnir í
göngunni voru tve’r, stúdent-
arnir Gisli Gunnarsson og Þor-
steinn Þorsteinsson. Þeir höfðu
gert sér borða og báru hann
í göngunni. Áletrunin á borð-
anum var: „Icelandic Youth
Says No to American Bases“
(Islenzk æska hafnar banda-
rískum herstöðvum).
Gísli stundar sögunám við
Edinborgarháskóla en Þorsteinn
leggur stund á nýrri málin við
háskólann í Leeds.
Arinbjörn teflir
fjöltefli á morg-
un í Hdnarfirði
Arinbjöfn Guðmundsson
skákmeistari teflir fjöltefli á
mánudagskvöld á vegum Tafl-
félags Hafnarfjarðar. Fjölteflið
hefst klukkan 8 í Alþýðuhús-
inu í Hafnarfirði. Menn eru
hvattir til þess að fjölmenna
og hafa með sér töfl.
gsnga á tónlist-
arbrautinni
Eins og" skýrt var frá hér í
bladriu i gær, syngur hin kunna
bandaríska sópransöngkona
Martina Arroyo á söngskemmtun
Tóntistarfélagsins fyrir styrktar-
félaga í Austurbæjarbíói n.k.
þriðjudags- og miðvikudagskvöld.
Sjmgur hún söngva eftir
Stradella. Gluck, Hándel,
Brahms, Richard Strauss, Rod-
rigo og Obradors.
Martina Arroyo er 25 ára
gömul, fædd , New York þar
sem hún hlaut menntun sína.
Árið 1958 vann hún verðlaun
Metrópólitan-óperunnar og
skömmu síðar var hún fengin
til að syngja aðalhlutverkið í
óperunni ,,Morðið í dómkirkj-
unni“ eftir Pizetti við frumflutn-
ing óperunnar í Carnegie Hall.
Hlaut hún einróma lof gagnrýn-
enda fyrir söng sinn í þessu
erfiða hlutverki og síðan hefur
tónlistarferill hennar verið sam-
felld sigurganga.
Tónlistarfélagið hefur beðið
blaðið að ieta þess að mistök
í dag verður torfkirkgan að
Árbœ vígð af biskupi :
I dag verður torfkirkjan að
Árbæ vígð til guðþjónustu-
gerða fyrir íbúa Seláss, sem
eiga nú kirkjusókn að Lága-
fellssókn. Sigurbjörn Einarsson
biskup framkvæmir vígsluna en
vígsluvottar verða séra Jón
Auðuns, séra Garðar Þorsteins-
son, séi’a Sigurbjörn Á. Gísla-
son og sóknarpresturinn séra
Bjarni Sigurðsson. Einnig
munu séra S'gurður Pálsson og
séra Bragi Friðriksson aðstoða
við vígsluna.
Árbæjarkirkja var fyrst og
fremst reist sem safnhús en
hún er fimmta torfkirkjan frá
fyrri tíð, sem varðveitzt hef-
ur. Er hún byggð úr viðum
Silfrastaðakirkju í Skagafirði,
er var reist 1842 en breytt ‘í
bæjarhús 1896. Árið 1950 var
hætt að nota hana sem bæjar-
hús en fyrir milligöngu þjóð-
minjavarðar gaf Jóhann Lárus
Jóhannesson bóndi á Silfra-
stöðum Árbæjarsafni kirkjuna.
Innan kórþils er kirkjan öll
úr vi'ðum Silfrastaðakirkju en
gólf, stafnar og spjaldþil úr
gömlum húsum í Reykjavík
eða úr nýjum viði. Skúli Helga-
son safnvörður á Selfossi hefur
séð um kirkjusmíðina, lileðslu,
tré-, járn- og koparsmíði. Alt-
arisbútiað hefur frú Unnur Ól-
hafi átt sér stað við útsendingu
aðgöngumiða til styrktarfélaga.
Þeir sem venjulega fá miða að
fyrri tónleikunum fengu nú
senda miða að þeim síðari og
öfugt. Biður Tónlistarfélagið
meðlimi sína veivirðingar á
mistökum þessum, en væntir
þess jafnframt að miðarnir verði
notaðir eins og þeir segja til
um.
afsdó'ttir gert en Sigrún Ragn-
arsdóttir annazt skíringu lita
og málun. Þjóðminjasafnið hef-
ur léð ljósahjálm en orgelið er
úr eigu Jónasar Helgasonar
tónskálds. Altarisdúk, rikkilín
og hökul liefur klrkjan lilotið'
að gjöf.
Kirkjan rúmar 80 manns í
sæti fullsetin. Næstkomandi
sunnudag verða fermd í kirkj-
unni 10 börn.
Ný verzSun —
Teddybúðin !
í gær opnaði ný verzlun)
Teddybúðin, að Aðalstræti 9 þar
sem Teppi h.f. var áður til liúsa.
Nafn hinnar nýju verzlunar
er dregið aí vörumerki Barna-
fatagerðarinnar s.f. en í verzl-
uninni verða fyrst og fremst
seldar framleiðsluvörur þess fyr-
irtækis, þótt einnig verði þar
að sjálfsögðu á boðstólum margs
konar annar barna- og unglinga-
fatnaður bæði innlendur og er-
lendur.
Barnafatagerðin, sem heíur að-
setur að Hverfisgötu 32, var
stofnuð árið 1957 og framleið-
ir hún alls konar barna- og
unglingafatnað og einnig á full-
orðna. Hefur fyrirtækið einkum
lagt áherzlu á framleiðslu vatt-
eraðra nælongalla á börn.
Eigendur og stoínendur Teddy-
búðarinnar og Barnafatagerðarr
innar eru Ásbjörn Björnsson og
Þórhallur Arason og stýra þeir
fyrirtækjunum sjálfir. Verzlun-
arstjóri verður frú Soffía Jó-
hannesdóttir. Verzlunin er hin
smekklegasta að allri innrétt-
ingu en Sveinn Kjarval arkitekt
annaðist umsjón með henni.
immiiiiiiimmiimmiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiimmiiiiimiimiiiiiiimimiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmiiiiiiiiimmiiiiiii
Frá Skákþingi Islands
Sem kunnugt er voru ýr-
slitin á nýafstöðnu Skákþingi
íslands allmikið áfall fyrir
meistarann frá fyrra, ári Frey-
stein Þorbergsson, sem varð
að láta sér nægja 4—6 sæti.
Vafalaust er hér aðeins um
öldudal að ræða, og má vænta
þess að Freysteini skoli aftur
upp á toppinn innan tíðar.
Sem kunnugt er, er Frey-
steinn yfirleitt rólegur skák-
maður, sem er lagnastur að
þreyta hæga stöðbaráttu, en
er yfirleiil lítill ævintýra-
rnaður í ská!k. Því meiri feng-
ur er eð þeim skákum hans,
þar sem þessu er öfugt farið.
Svo er um skák þá sem
hér fer á eftir og tefld var
í 7. umferð á Skákþingi ís-
lands. Unp úr rólegri stöðu,
þar sem Freysteinn hafði þeg-
ar vfirhönd’na, fórnar hann
skvndilega tveimur peðum.
skákin vakti mikla athvgli á-
horfenda. Hitium unge and-
stæðingi Freysteins fötuðust
tökin. á skákinni og valdi ekki
beztu vörn:na.
Eftir nokkra leiki stóð því
allt í Ijósum logum í herbúð-
um hans.
■Hinsvegar fór Frevsteinn
með þann leyndardóm með sér
norður á Siglufjörð. hvernig
! hana ætlar að vinna gegn
I ibeztu vörn andstæðingsins.
Hér kemur skákin.
Hvítt: Freysteinn Þorbergs-
son.
Svart: Ölafur Magnússon.
Búdapestarbragð.
1. d4, Rf6, 2. c4, e5.
(Þetta er hið svonefnda
Búdapestarbragð það er lítið
notað á alvarlegum skákmót-
um, og sýnir Ólafur mikla
dirfsku með því að beita því
gegn jafnhörðum og gætnum
skákmanni og Freysteini.
Skákfræðin hefur heldur van-
trú á þessari byrjun fyrir
svartan og telur hvítan ná
betra tafli, ef hann fer að-
eins ekki of geist í sakimar.
3. dxc5, Rg4.
(Einnig er til 3. — — —
Re4, en þá leið telja fræði-
rnenn lakari. Hvítur verður
þó einnig að tefla nákvæmt
í því falli.)
4. e4.
(Hér er 4. Rf3 öllu algeng-
ari leið og á hún einnig að
leiða til betri stöðu fyrir
hvitan: T.d.: 4, Rf3, Bc5, 5.
e3, Rc6, 6. ÍBe2, Rgxe5, 7.
Rc3, d6, 8. 0 — 0, 0 — 0,
9, b3, Bf5, 10. Bb2, He8 11.
Ra4 og hvítur nær biskupa-
parinu og stendur betur að
vígi með hliðsjón af homa-
línunni al — h8. (Pachmann).
Leikur Frevsteins er einnig
góður og miðar að því að ná
sterku peðamiðborði.)
4---------d6.
(Ólafur 'Vill skerpa átökin
sem mest og býður í þVÍ
augnamiði uppá peð, en 4 '—
-----Rxe5 er þó betri leikur.
Framhaldið gæti orðið 5. f4,
Re — c6, 6. a3, a5, 7. Be3,
Ra6, 8. Bd3, Bc5, 9. Dd2, d6,
10. Rf3, 0 — 0, 11. Rc3,
Bxe3, 12. Dxe3, Rc5, 13. 0 —
0 — 0 og hvítur stendur
nokkru betur (Euwe).
(Þetta er miklu einfaldari
leið til að ná betra tafli en
að þiggja peðsfómina.)
5.--------Rxe5, 6. f4, Rg6.
(Denker lék 6. — — Rg4
gegn Reshevsky í Syracuse
1934. Framhaldið varð 7. Rf3.
(Enginn gróði er auðvitað að
7 Dxg4 vegna — — Dh4f
og síðan Dxg4.) 7 —-----------
Rc6 8. 0 — 0, Bd7, 9. Rc3,
Be7, 10. h3, Rf6, 11. e5! og
hvítur hefur yfiFburðastöðu.)
7. Rf3, Df6, 8. Rc3!
(Freysteinn heldur rólegur
áfram Iiðskipan s:nni. 8------
Rxf4 strandar auðvitað á 9.
Bxf4 og síðan Rd5 o.s.frv. það
má nú vera ljóst orðið, að
byr.iunarval svarts hefur ekki
verið sem heppilegast.)
8.-------------c6, 9. 0 — 0.
(Hér var 9. g3 meir í anda
hinnar rólegu stöðubyggingar.
En Freysteinn telur sig hafa
efni á að fóma, vegna þess
hve menn hans eru miklu
betur staðsettir en þeir
svörtu. E:ns og skákin tefl-
ist leiðir þetta líka til skjóts
sigurs og reynist hrókunin
þannig a.m.k. sálfræðilega öfl-
ugri leikur.)
9. -----------Rxf4, 10. e5.
(Síðari peðsfórnin fylgir í
hernaðaráætlun hvíts.)
10. --------dxe5, 11. Re4,
Dg6, 12. Bxf4, Dxe4?
(Betra var að taka bisk-
upinn, ,því nú nær hvíta liðið
samstilltri og öflugri sókn.
ihlftir 12.---------exf4, 13.
Bd3, Be7, nær hvítur a.m.k.
engum skjótum úrslitum. 14.
Re-g5 er hægt að svara með
14. ---------Bf5 og 14. Re5
með 14 — — — De6. Þá
yrði 14. c5 svarað með 0 — 0,
15. Rd6, Df6 o.s.frv. það væri
næsta fróðlegt að vita, hvern-
ig Freysteinn hefur hugsað
sér framhaldið í þessari leið,
sem var á allan hátt eðlilegri
en sú sem Ólafur valdi).
13. Rxeo, Bc5f 14. Khl,
Be6.
(14.------- — 0 — 0 strand-
aði á 15. Bd3, Dd4. 16. b4!
Bb6, 17. c5 og biskupinn
fellur vegna hótunarinnar
Bxh7+.)
15. Bd3, Dd4, 16. De2.
(Nú strandar 16.-----------
0 — 0 á 17. Ha-dl. Næsti
leikur svarts leiðir til skjóts
taps, en hins vegar á hann
engan sæmilegan leik lengur.)
16.---------Rd7.
Svart: Ólafur
ABCDEFGH
AieOIPOM
Hvítt: Freysteinn
17. Rxf7!
(Molar stöðu svarts. Næsti
leikur er nauðungarleikur, en
engin vöm er til.)
17. --------0 — 0.
Loks gat þá svartur hrók-
að!)
18. Dxe6, Hxf7.
18. --------Dxd3 strandar
á 19. Rh6+, Kh8, 20. Dg8+!,
Hxg8, 21. Rf7 mát.)
19. Bxh7+, Kxh7, 20. Dxf7,
Rf6, 21. Hf3.
Og Ólafur gafst upp.
Fjörug skák, en hvergl
nærri gallalaus.
Sveinn Kristinsson. y