Þjóðviljinn - 05.05.1961, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 05.05.1961, Blaðsíða 7
€) — ^ÓÐVILJINN — Föstudagur 5. maí 1961 tf’östudagur 5. mk'x:i Í96i hiúoviLi inn I Nokkur orð &tgelandi: Bamelnlngarnokkur alpýBu — Súslallstaílokkurlnn. - Bltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfl Ólaísson. SÍB- arBus QuSmundsson. - Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jðn Biarnason. - Auglýsln^astjóri: QuSgelr Magnússon. - Rltstjórn, ifgrelOsla, auglýsingar. prentsmlSJa: Skólavörðustig 19. - Slmi t?~50C (5 linur). - Askriftarverð kr. 45 & món, - Lausasöluv. kr. 3.00. PrentsmiðJa ÞjóðvllJans :í--i!|íúill!ill!!li!!S!í!lll!iílll!!!lij!!!!!!lll Sig ur er vis j dag eíU tíu ár liðin síðan ríkisstjórn íslands framdi stjórn- arskrárbrot og undirritaði samning við Bandaríkin um herstöðvar á íslandi, án þess að Alþingi væri kvatt til fund- • ar og meira að segja án þess að málið væri lagt fyrir utan- r.kismálanefnd. Þingmönnum stjórnarflokkanna og Aiþýðu- flokksins var hóað saman á klíkufund og þeim sögð bandarísk lygásaga um að heimsstyrjöld væri í þann veginn að brjót- ast út. En að sjálfsögðu var samþykki þingmanna á fundum - utan Alþingis með öllu marklaust til þess að heimila ríkis- stjórninni að gera þennan örlagaríka miiliríkjasamning. Mun vart um það deilt lengur að með undirritun herstöðvasamn- ingsins við Bandarikin 5. maí 1951 framdi ríkisstjórn íslands stjórnarskrárbrot, og mun. sú smán seint þvegin af ráðherr- •"unum sem til hennar unnu, en það voru: Bjarni Benedikts- son, Ólafur Thors, Björn Ólafsson, Steingrímur Steinþórsson, Eysteinn Jónsson og Hermann Jónasson. , Jjaginn sem samningurinn var gerður, 5. maí, birti Þjóð- viljinn einn frétt, yfir þvera forsíðu: ,,Landráðafundunum lokið. ísland ofurselt árásarher“. Þar er lýst aðalefni samn- ingsins og farið hinum hörðustu orðum um framferði rikis- isstjórnarinnar, stjórnarskrárbrotið, og þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokksins, sem látið höfðu hafa sig til að leggja blessun sína yfir samninginn, á um- boðslausum klíkufundum. Skýrt er Lrá, að formaður Sósíal- istaflokksins hafi 4. maí gengið á fund handhafa forsetavalds og tilkynnt honum að Sósíalistaflokkurinn myndi krefjast ■ þess að ríkisstjórnin kallaði saman Alþingi til að fjalla um ■ þessa alvarlegu atburði. Hinn 5. maí gekk Einar Oigeirsson á fund Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra og bar . fram kröfuna um að Alþingi væri kvatt til fundar. En for- Æætisráðherra svaraði að ríkisstjórnln hefði ákveðið að kalla Alþingi ekki til fundar, og þingmenn stjórnarflokkann voru sendir heim af klíkufundum sínum, á kostnað ríkisins, rétt eins og um þinghald hefði verið að ræða! J býti 7. maí, á mánudagsmorgni, birti ríkisstjórnin svo til- kynningu um komu hersins. Mun ekki laust við að sumir þingmenn þríflokkanna hafi orðið hvumsa við er þeir fréttu um herinn sem sendur var, — en öllum þótti auðsætt að langt var frá því að Bandaríkjastjórn tryði sjálf lygasögunni um yfirvofandi heimsstyrjöld, sem Bjarni Benediktsson, Ey- steinn Jónsson og Stefán Jóh. Stefánsson voru látnir tyggja í þingmenn á klíkufundunum og duga átti til að hræða þá. j^ósíalistaflokkurinn, einn íslenzkra stjórnmálaflokka, mót- mælti hernáminu og stjórnarskrárbrotinu í maí 1951 og hóf hátt merki baráttunnar gegn bandarísku ásælninni og spillingu hersetunnar. Sósíalistaflokkurinn mótmælti nauð- pngarsamningnum við Bandaríkin - sumarið 1941, Sósíalista- flokknum tókst að hindra haustið 1945 að Bandaríkjunum væru fengnar þrjár herstöðvar á fslandi í heila öld. Sósíal- J istaflokkurinn hafði forystu fyrir hinni hörðu baráttu gegn • Keflavíkursamningnum og inngöngu ísiands í hernaðarbanda- lag bandarískra heimsvaldasinna og nýlendukúgaranna í Evrópu og hefur öll þessi ár átt drýgstan þátt í því að stæla hug þjóðarinnar til andófs og mótspyrnu gegn erlendri hersetu á íslandi. Sú barátta hefur borið mikinn árangur, enda þótt , lengst af hafi flokkurinn átt við að etja skipulagðan áróður : málgagna allra þeirra flokka sem kölluðu herinn inn í landið. Nú er svo komið að skilningurinn á hættunni af hinum er- lendu herstöðvum er orðinn almennari í landinu en áður og ný samtök, Samtök hernámsandstæðinga, með þátttöku manna úr ollum stjórnmálaflokkum og utan flokka hafa skorið upp her- ör gegn hersetunni. Nú þegar tiu ár eru liðin frá stjórnar- , skrárbrotinu og landráðasamningnum um bandarískar her- stöðvar á íslandi mætti minna á síðustu orðin í leiðara Þjóð- viijans frá 7. maí 1951: „Hvern dag sem líður frá þessum dimma sólskinsdegi mun þyngjast straumur nýrrar sjálfstæð- ' isbaráttu íslendinga, undir forystu alþýðunnar. Sú barátta getur orðið langvarandi, hún verður áreiðanlega erfið, en engu að síður — verði íslendingum ekki tortímt í eldi nýrr- tar heimsstyrjaldar, er sigur vís.“ — s, Oft. hefi ég undrazt, þá er eg hefi hugleitt þau rök, sem formælendur herstöðva á ís- landi hafa fært fyrir sínum málstað. Þeir hafa haldið því fram af óbilandi sannfæring- arkrafti, að því er virzt hef- ur að herstöðvarnar væru örugg og sjálfsögð vernd lífi og velferð landsins barna, menningu þeirra og siðgæði. Harinn mundi vernda hið „vestræna“ frelsi, siðgæði og menningu gegn hinni „aust- rænu“ kúgun, siðleysi og ó- menningu. Og þessi há- stemmdi lofsöngur er enn fiuttur af miklum ákafa, þótt sumir þeir sem hæst kyrja, gerist. ærið rámir. Þeim, sem íhuga þsssi mál rólega, dylst þó ekki, að her- inn getur alls enga vernd veitt lífi íslenzku þjóðarinn- ar, ef til styrjaldar kemur, en, í þess stað veldur hanri henni hinni skelfilegustu lífrs- hættu, jafnvel þeirri, að þjóðinni verði með öllu út- rýmit. Það er líka viðurkennt, bæði af vísindamönnum og herfræðingum, að gegn lang- drægum flugskeytum, sem bera vetnissprengjur, sé alis engin vörn til, og lidar eða alls engar líkur til að nein slík vörn finnist, og fyrstu flugskeytunum mundi fyrst og fremst verða beint að slíkum framvarðarherstöðv- um, sem óvinunum siafaði mest. hætta af. Kenningin um „vernd“ hernámsins er því álíka mikið öfugmæli cg þess- ar ljóðlínur í gömlu öfug- mælavísunni: „Það er ho't fyrir þyrstan mann a<$ þamba kopar heit- an.“ Ekki þarf lengi að brjóta heilann um þá ,,vernd“, sem ,,varnar!iðið“ veitir mann- ingu og siðgæði þjóðarinnar, til þess að komast að raun um, að sú „vernd“ er engu minna öfugmæli. Alls kyns ómenning, lestir og siðspill- ing festa rætur og þjóta upp eins og gorkúlur í kringum herstöðvarnar, og málfar, smekkvísi og háttvísi, bæði í tóniist, samkvæmislífi o.s.frv. fer hnignandi, hvar sem á- hrifa hersins gætir. Svipuð öfugmæli hafa ver- ið borin fram af sama sann- færingarkrafti í sainbandi við önnur mál, og má þar til dæmis nefna fyrst og fremst allar ,,viðreisnar“-aðgerðirn- ar og samninginn við Breta um landhelgina. Það virðist t.d. aigert öfugmæli, að betra sé að festa fé í innfluttum lúxusvarningi en í innlendum framleiðslutækjum, eða að betra sé að taka lán gegn háum vöxtum og með skömm- um gjaldfresti og verja því til að kaupa neyzluvörur, að nokkru leyti þær, sem við getum sjáifir framleitt, held- ur en að taka lán gegn iág- um vöxtum og með löngum gjaidfresti og verja því til að koma upp stórvirkum fram- leiðslutækjum, bæði til að framleiða vörur til innan- Iandsneyzlu og til sölu er- lendis. Það sýnist líka öf- ugrnæli, engu minna, að ok- urvextir, —■ svo háir, að vegna þeirra þurfti að breyta refsilöggjöfinni, þar eð slík- ir vextir voru áður taldir glæpsamlegir, — séu bezta ráðið til að „reisa við“ þá atvinnuvegi, sem einkum þurfa á lánsfé að halda. Og þann veg mæiti lengi telja öfugmælin. Þá sýnast það ekki minnstu öfugmælin, að kalla það „stórsigur“ í landhelgismál- inu, þegar ríkisstjóm íslands opnar ekM aðeins landhelg- ina fyrir veiðiflota Breta (og auðvitað annarra ríkja, sem ganga á lagið), heldur afsal- ar í hendur Breta mn aldur og ævi rétti til frekari út- færslu landhelginnar en þiggur í staðinn sem greiðslu frá Bretum lítinn hluta af þeirri eign, sem íslendingar áttu sjálfir að eigin dómi og samkvæmt alþjóða samþykkt (lítilsháttar lagfæringu á grunnlínum). Það er ekki ó- svipað því, að húseigandi seldi öðrum húsið sitt allt en fengi í staðinn íbúð í kjall- aranum í því sama húsi. — Stórsigur!! Það er vert að gefa því gaum, að sömu aðilar, sömu flokkarnir, sömu menn bera fram öll þessi öfugmæli, allir af sama ákafa, hita og sann- færingarkrafti. Ekki er þó hægt að ímynda sér, að heimska eða fáfræði valcíi afstöðu þeirra í þess- um málum, því að vitað er og alkunnugt. að ýmsir þeirra manna, sem ákafast halda fram hernámi Tslands, „við- reisnar“-aðgerðunum og land- helgissamningnum við Breta, eru prýðilega greindir menn og vel uppfræddir. Það er því ekki ófróðlegt að reyna. að skilja, hvað það er, sem knýr þá — nauðuga viljuga, liggur mér við að segja — t :1 að bera fram hin fárán- legustu öfugmæli með slíkum sannfæringarkrafti, eins og ] e;r væru að flytja fagnaðar- boðskap og háleit sannindi. 1 því sambandi koma mér í hug ummæli, sem vitur mað- ur skrifaði fyrir mair en þrem aldarfjórðungum. Mig minnir, að það væri amer- íski sósíalistinn og mannvin- urinn Henry George. 'Eh um- mælin voru á þá leið, að engin sannindi væru svo augljós, af þeim væri ékki mótmælt og afneitað, ef við- urkenning á þeim væri að eirliverju leyti andstæð hags- mununi þeirra, sem hefðu auðmagnið í sínum höndum. Og þaó væri fullvíst, að ef svo skyidi hera undir, að þyngdarlögmálið rækist á hagsmuni þeirra, þá mundu þeir neita tilveru þess af sama sannfæringarkrafti og ]ieir flytja hagfræðikcnningar s.’nar. Annar miklu eldri og fræg- ari spekingur sagði: „Safn- ið yður ekki fjársjóðum á jörðu.------*--------Því að þar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.“ Skáldið Þorsteinn Erlings- son orðaði þessi sömu sann- indi á þessa leið: „Því buddunnar lífæð í brjóstinu slær.“ Nú er það „opinbert leynd- armál“, sem mikið hefur ver- ið á orði haft í ræðu og riti, að íslenzkir fésýslumenn hafa lagt á það allmikla stund á undanförnum árum og jafn- vel áratugum að eafna sér drjúgum fjársjóðum, og þó ekki beinlínis á himnum, heldur á jörðu, en að nokkru leyti í „Guðs eigin landi“ og í öðrum löndum, sem hafa efnahagslega og hemaðar- lega samvinnu við „Guðs eigið land“. Og til þess að geta safnað þessum fjársjóð- um hafa þeir notið bæði út- flutningsverzlunar (fiskur) og innflutningsverzlunar (faktúrur) og fleiri öflunar- leiða. Þarf ekki að rekja það hér, en sumir álíta, að þessir fjársjóðir, sem hinir dug- miklu og framtakssömu fjár- aflamenn hafa safnað sér er- lendis, nemi býsna mörgum milljónum króna, einstaka maður hefur gizkað á svo sem 1000 milljónir, og er ær- ið fé, þótl "minna væri. Nú er vert að hugfesta það, að í „Guðs eigin landi“, svo og í þeim löndum öðr- um, sem hafa við það hern- aðarsamvinnu, er stétt fjár- áflamanna, sem er ekki síður framtakssöm en hin íslenzka, en býr yfir langtum meiri reynslu í þeim efnum og hef- ur bæði skaplyndi og kunn- áttu til að beita hverjum þeim meðulum, sem henni þykir að gagni koma við gæzlu fenginna fjársjóða og öflun nýrra. Og einriig er gott að vera þess vel minn- ugur, að það er þessi dug- mikla og ókvalráða fjármála- mannastétt, sem ræður rík- isstjómum hinna „frjálsu" lýðræðisríkja hins vestræna heims, svo sem Bretlands, Belgíu, Hollands, Frakklands, Vestur-Þýzkalands og Banda- ríkja Norður-Ameríku. Og ].að stendur aldrei á ríkis- stjórnum þessara landa að gera viðeigandi ráðstafanir, þegar hagsmunir hinna fram- takssömu fjármálamanna eru í hættu, eða ef ný „fjár- aflap!ön“ krefjast róttækra aðgerða. Það stóð ekki á að- gerðum brezka hersins í Kína tvívegis um miðbik 19. aldar, þegar hagsmunir brezku eit- urlyfjasalanna voru j hættu, né í Suður-Afríku undir alda- mótin (Búastríðið), þegar gæta þurfti hagsmuna brezku demanla- og gullnámukóng- anna. Og þjóðirnar í Ind- landi, Egyptalandi, Súdan, Austur-Afríku, Alsír, Kongó, Guatemala og fjöldamörgum öðrum löndum þekkja býsna vel þær aðferðir, sem hin „frjáslu", vestrænu lýðræðis- ríki beita, þegar þau eru að vernda hagsmuni sinna ágætu fjáraflamanna. Framhald á 10. síðu. Jén Víddín Hinriksson kvaddur Að morgni fyrsta sumar- ilags andaðist Jón V. Hin- riksson. Sem drengur man ég hann, stóran, fríðan sýnum með rauðjafpt hár, góðmann- legan en einbeittan á svip. Hann var þá keppandi og sigurvegari í Víðavangs- hlaupi okkar Hafnfirðinga og eignaðist þá innilega að- dáun okkar yngri drengj- anna. Næst man ég hann á atvinnuleysisárunum, þá í forustusveit verkamannafé- lagsins Hlífar. Mikil og tví- sýn átök sem traust forusta leiddi til sigurs. Siðastliðin tuttugu ár urðu kynni okkar mjög náin í samstarfi innan Sósíalistafélags Hafnarfjarð- ar. í stjórn þess félags var hann um langt árabil og alla tíð einn traustasti og áhuga- mesti félaginn, ákveðinn í skoðunum en tillitssamur og víðsýnn í hverju máli. Jón var verkamaður allt llplhlíiÍdbfr vfir firíwft ' * Kákasus verða menn langlifari en á nokkrum öðrum stað á jörðinni, og ná ekki CUðl í! 1 ílya jlSi llídíll aðeins háum aldri lieldur halda fjöri og kröftum furðulega vel. Það sannar þessi söngkór öldunga, en meðalaldur kórfélaga er yíir 100 ár. Lágmarksaldur til inngön.gu í kórinn er 75 ár, og elzti kórfélag- 1,1 n kveðst geta sannað að liann sé 155 ára gamall. Læknar í Sovétríkjunum leggja kapp á að finna orsakir óvenjulegs lang- lífis Kákasusbúa, en hafa ekki enn komizt að neinni óyggjandi niðurstöðu. J_11111‘(11111111111111111111111111111!11111[11mIM1111111IIIIIIIIIM 111^11IIm;111[11111]11111111][11[111111[1111[[I[|II111111• II[]11]i[11III||1111111[111[111]11111111111111III[j 1||111,111111[11111111111,111E,11|111j[|!111 11,1[ 1111II111111111iI[1111[1111[111,111;11,,11g1111j,11,1;[11,11,111[111,!11 Tvenn si'ónarmid svara, sem fram hafa komið um Ameríku heldur en í Ráð- er það eitt að vernda þann arf, í málgögnum hersetuvina, gegn stjórnai*ríkjum Rússlands. Ég sem við tókum við þegar þetta þessum greinaflokki, hefur veit ekki betur en bandarískir land okkar varð sjálfstætt krystallast í einu aeðisgengnu sálfræðingar og uppeldisfræð- r:ki: hlutleysi þess í deilumál- Alþýðublaðið undrast það um reyndar enn fleiri blöð, hafa hrópi: þið eruð að undirbúa ingar slái höndum í ráðalausri um annarra þjóða um' alla tíð daginn og ég held því hafi einnig í fjölmörgum og ágætum landið undir innrás Rússa. — örvæntingu yfir geðsýkis- og' viljum þar af leiðandi enga gramizt það lfka, að nokkrir greinum, bæði fyrr og síðar, Vonin um áhrif þessa hróps kenndri og sívaxandi glæpa- hersetu hafa í landinu, hvorki einstaklingar, sem gjarnan tekið í sama streng, þó Tíminn er byggð á allri þeirri lyga- hneigð þjóðar sinnar og sí- einnar þjóðar eða annarrar. vilja ísland laust úr álögum styrjaldarundirbúnings, hafi Eítir þvælu, rógi og svívirðingu, sem fjölgandi afbrotum ungs fólks við vitum það en okkar sjón- ároðursvel Breta og Bandarikj- í landinu. Slíkar staðreyndir armið eru önnur en þeirra, sem látið þann vilja sinn í Ijós á Gllðmund BÖðvarSSOU anna hefur látið frá sér fara eru hryggilegar hvar sem þær græða auð fjár á því að út- a undangengnum arum um eiga ser stað í heiminum og lendur her situr hér og kostar þessa viðskiptaþjóð okkar, sem manni verður að leyfast að á- miklu til um hervirkjagerð. En undanförnum vikum hér í blað- inu. Er ekki laust við að gæti öfundar yfir því að þeim, sem hafi einnig, Morgunblaðinu til nokkurrar vonar, gefið rúm þeim sem óska ísland' útlendr vitanlega hefur aldrei líta að sú þjóð, sem á þessum við viðurkennum ekki að sín- sem þó ekki eru blaðamenn, ’ . „ 1 gýnt okkur annað en kurteisi vettvangi á um hvað sárast að gjörn sjónarmið þessara rriánna skuli þanmg vera hægt að , kjarnorkust --jg Þau b]-ð og vinsemd, aldrei steytt að binda, geti tæplega ein allra eigi að ráða örlögum lands og beita til fylgis ákveðnu máli. ^ undr . . * okknr manndrápstæki í ráns- verið bezt til þess fallin að þjóðar á válegum tímum, þess- Þessvegna er rétt að upplýsa . ~ ferð, aldrei neytt okkur til að hafa leiðsögn um siðgæði og ara manna sem ekki hafa séð 'Sírl leggjast flata fyrir fætur sér forustu í vandamálum heims- sér annan ..veg manndómslegri í forarsvaði og aldrei vélað af ins. En þetta'eru nú bara mín- til Alþýðublaðið strax um þann undarlega hlut, að ritstjórn Þjóðviljans hefur ekki gert þarna annað að, en það eitt að ljá þessum greinum rúm í blaði sínu. Það hefur hún góð- mgar sínar mál, gremar þessi undir fullu nafni og framfærslu en að þjóna af frjálsum vilja, ættu þó ekki ! okkur landsréii:-"di með lúmsk- ar eigin athugasemdir og s'ett- undir herinn á ýmsan hátt, um sammngi. að undrast, nem.a því aðeins að þau séu búin að tapa til- Ég- skal bæta því við frá fúslega gert og á þakkir okkar finninSnnm' fvrir því hversu mér persónulega, að ég hef En sameiginlegt sjónarmið miklu er þekkilegra að Ijá nafn enga trú á og síður en svo okkar, sem viljum firra land sitt og liðsinni góðu máli held- nokkrar sannanir fyrir, að okkar þeirri áhættu, sem fylg- ur en ekki góðu. mannlíf sé á nokkurn hátt ir herstöðvum og þeirri sið- Meginefni allra þeirra and- betra og fegurra í Bandaríkj- spillingu sem fylgir hersetu, ar fram handa nokkrum vinum þraskað með laskaðar setuliðs- mínum til að japla á. eignir og staðið hálfir upp úr sorptunnum hersins, til aðhlát- urs fyrir hina útlendu dáta og hverjum ærlegum íslendingi til sárrar skapraunar. Þeir einstaklingar sem skrif- að hafa greinarflokkinn hér í blaðinu gegn falsrökum tals- manna hersetunnar, hafa skrif- að hann sem ákall til íslenzkrar þjóðar um að halda vöku sinni á hverju sem gengur, fullvissir þess, að jafnvel þó útlendur her sitji hér um aldir, þá er mótspyrnan gegn niðurlæging- unni, viðleitnin til frelsis og sjálfstæðis, sá lífsþáttur sem aldrei má slitna. Þegar hann er rofinn og við tökum niður- lútir og þegjandi við hverju utanaðkomandi boði og banni, hverri kröfu og álögu, þá, en ekki fyrr, má slá striki undir sögu íslenzkrar þjóðar á ís- landi og.flokka hana með sögu íslendinga á Grænlandi. fyrir. Vissulega mætti Alþýðu- blaðið og minnast þess að bæði Frjáls þjóð og Tíminn, og GEGNESEnna sitt líf og háði oft harða bar- áttu fyrir lífsafkomu sinrii og fjölskyldu sinnar, konm cg fimm drgngja, sem hannt unni mikið. Sú barátta var samofin starfi hans innan Sósíalistafélagsins — barátt- unni fyrir sósíalismanum. Jafn vel gefir.n og heill mað- ur og Jón var gat undan: hvorugu skorazt, brauðstriti hins daglega lff.3 né barátt- unni fyrir hugsjónum sínum. Honum auðnaðist að sjá á- angur baráitu sinnar í fimm. mannvænlegum uppkomnum, sonum, og í þeirri staðreynd að ekkert fær lengur hindr- að sigur sósíalismans í heim- inum. Við félagarnjj* í Sósíalista- flokknum ’þökkum Jóni starf hans. Konu hans og sonum sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Kristján Andrésson. Sólheiður dagur, sölt ang- an g’ampandi lognöldu. Of- an fjörunnar maður er leiðir litinn drerig. Hæglátur í fasi, hárið rauðjarpt og mikið. í athugulum augum kynieg blanda ólgandi gleði og djúps trega. • Þannig minnist ég fyrsta: viðræðufundar okkar. Raim- ar hafði ég oft séð hann áð- ur, sbg ævinlega leiðandj lít- inn dreng. Þetta varð upp- haf áralangrar vináttu. Jón Vídalín er genginn. Við kveðjum hann í dag. Hann: var fæddur í Reykjavík 8. des. 1904. Móðir hans var Ólöf Þórarinsdóttir frá; Kjaransstöðum í Biskups- tungum, faðir hans Hinrik Halldórsson frá Þúfukoti í Kjcs. Jón ólst fyrst upp í: Revkjavík en mun ungur hafa farið til Hafnarfjarðai'. í æsku stundaði hann íþrótt- ir: var talinn ósigrandi hlaupari, hafa sagt mér þeirrar t'ðar íþróttamenn. Enl svo einn dag kastaðist hanni i götuna aftan af vörubíh Hann lá lengi í óviti, — og íþróttamannsfsrli hans var lok;ð. Sennilega hefur hanrr aldrei orðið samur maður og áður. T Hafnarfirði vann Jón: alla algenga viimu. Um skeið fékkst. hann mikið við sm'ð- ar, en aflaði sér aldrei rétt- iijda í því starfi. Það var ekki ætlunin að> rekja hér ævisögu Jóns Vícla- líns. Til þess skortir raig þekkingu, nema um tiltölu- lega stuttan kaf'a. En ái Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.