Þjóðviljinn - 08.07.1961, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 08.07.1961, Blaðsíða 10
Jgl — ÓSKASTÚNDIN ÓSKASTUNÐIN — (3 Framhald aí 1. síðu. yfir heiminn. Og það leið «kki á löngu þangað til hann sá einhvern koma -niður stíginn. j.Hver getur þetta ver- ið?“ hugsaði skjói „Hann er heldur ekki mjög stórvaxinn“. Það var skúnkurinn Jitli. ,,Halló, skúnki litli“, kallaði skjói niður til hans. ..Hvað ert-þú eig- ínlega að gera hérna á stígnum mínum svona seint?‘‘ ,.Ég er að strjúka að heiman“, sagði skúnki „Það er nú ekki annað!“ Skjói varð svo undr- andi. að minnstu munaði að hann dytti ofanaf greininni. ,,Þu líka“, hugsaði hann. „Að hugsa sér!“ sagði hann upphátt. „Þú ert þó líklega ekki að leita þér að nýrri fjölskyldu?“ „Það er ég einmitt að gera!“, sagði skúnki litli aestur. „Það er einmitt það sem ég er að gera!“ „Ég skil“, sagði skjói og þóttist klókur. ,,Þú ert auðvitað að leita að fjölskyldu þar sem þú getur verið elztur. Er það ekki?“ „Elztur!!1 — hrópaði skúnki litli og varð enn æstari. „Það er nú eitt- hvað annað! Ég er ein ■ mitt elztur minna syst- kina. Ég er að leita að heimili þar sem ég verð yngstur og allir snúast í kringum mig. Mamma heíur engan tíma handa mér!“' VeSalings skjói "var ^al- veg ruglaður. Hann sagði skúnka frá náttstaðnum góða. Svo sat hann í trénu og reyndi að átta sig á þessu öllu sam- an. En honum gafst ekki mikill timi til að átta sig á einu eða neinu því áð- ur en langt um Jeið sá hann hvar einhver kom niður stíginn! Þetla var þvottabjössi litli. „Halló. þvottabjössi“, kallaði skjói. „Á hvaða leið ert þú á þessum tíma dags?“ „Ég veit það ekki“, sagði þvottabjörninn litli og virtist ósköp vansæll. ,,Ég veit bara hvaðan ég er að koma, ég er ,að koma að heiman“. Skjói hristi hausinn. „Þetta er nú sá verkleg- asti strokdagur sem ég hef lifað“, sagði hann. „En segðu mér, hvort ertu að leita að heimili þar sem þú getur verið elztur eða heimili þar sem þú verður yngstur?“ „Mér er rétt sarna hvort verður, ég vil bara ekki vera miðbarnið!“ Vesajings skjói! Nú var hann alveg ruglað- ur og vissi ekki hvað hann átti að halda. Kannski kæmist hann til botns í þessu ef hann fyndi alla strokugeml- ingana saman. ,,Komdu hérna með mér, þvottabjössi lilli“, sagði skjói. „Ég skal benda þér á góðan nátt- stað!“ Þvottabjörninn fylgdi skjóa útí rjóðrið við lækinn. Þar fundu þeir greifingjann og skúnka. „Hérna kem ég með nýjan vin handa ykkur“, sagði skjói. „Hann er líka að strjúka“. Skjói hoppaði uppí tré nálægt greifingjanum. „Segðu mér, greifingi litli“, sagði hann. „Sagðistu ekki vera að strjúka vegna þess að þú værir yngst- ur?“ „Það er alveg rétt“, sagði greifinginn. Skúnki litli glápti undrandi á greifingjann. ,,Vitleysa!“ sagði hann. „Þvílíkt og annað eins — hlaupa að heiman og Framhald á 3. síðu. Framhald af 2. síðu. vera þó yngstur, sem einmitt er bezt að veraí“ „Allsekki!“, hrópaði greifingi litli. „Þeir eldri hafa alla skemmtunina og ég má aldrei leika mér við þá vegna þess hvað ég er lítill. Pabbi tekur þá með sér þegar hann fer að veiða en ég verð að sit.ja heima vegna þess hvað ég er lítill. Æ, nei. Allt það sem gamati er að er bara fyrir eldri börnin!“ „Ég er nú einmitt elzt- ur!“ hrópaði skúnki litli æfareiður, „svo ég veit að bað er sá yngsti sem hefur það bezt. Alla skapaða hluti verð ég að gera á heimilinu veena þess að és er elztur. Yngsta krílið gerir ekki annað en sitia á hnján- um á mömmu“. ,,Fn“. hrópaði greifins- inn litli, „færðu ekki að fara á veiðar fyrst þú ert, e]ztur?“ „Jú-ú“, sagði skúnki. ,.En er ekki mamma þin alltaf að snúast kring- um þig fyrst þú ert yngstur?“ Þvottabjössi litli greip nú framí fyrir þeim. „Mér finnst þið báðir vera vitleysingiar“. sagði hann önugur. „Það er á- gætt að vera elztur eða þá yngstur, en ef maður er í miðið þá má maður ekkert gera! Maður er of stór til að mamma sitii með mann og of lítill til að fara á veiðar“. hrópaði skúnki. „Næst- elzti bróðir minn fær að gera miklu meira en ég og hann þarf ckki að vinna en það geri ég vegna þess að ég er svo stór". „Og systir mín sem er næstyngst fær að gera miklu meira en ég“, sagði greifinginn. „Hún verður ekki alltaf að hanga inni eins og ég verð að gera vegna .bess hvað ég. er líti’J. Þetta er svindl!“ Skiói hnnpaði fram oe til baka til að hcyra allt sem bezt. Loks settist hann kvrr og horfði niður á litlu dýrin. Svo saaði hanr> hægt: „Það er einsop allir burfi að vera ein- hversstaðar í röðinni“. Dýrin litu hvort á annað en sögðu ekkert. „Jæja bá, góða nótt!“ sagði sk.jói. Og hann hoppaði aftur á uppá haldsgreinina sina i uppáhaldstrénu sínu o.? stakk rua'uðu höfðinu undir vænginn. Samt fór hann ekki að sofa. Ann- að perluaugað fylgdist með stígnum fyrir neðan. Þá sá skjói að einhver kom og, læddist á tánum út úr rjóðrinu við læk- inn. Það var greifingi Jitli með prikið og klútinn. En hvert var hann áð fara? Ekki niður stiginn. Ekki aldeilis! „Ég sé ekki betur“. sagði skiói við sjálfan sig, „en greifingi litli sé á leiðinni beint heim aftur. Beint heim til að halda áf.ram að vera yngstur!“ Það var farið að dinmia en samt sá skjói hvar einhver kom út úr rjóðrinu við lækinn. Það var skúnki litlí. Hann leit i kringum sig til að ganga úr skugga um að enginn sæi til ferða hans. Svo hljóp hann eins og fætur tog- uðu upp allan stíginn. og heim. „Beint heim til að halda áfram að vera elztur!“ tísti skjói. Framhald á 4. s ðu. 10) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 8. júlí 1961 ■ M.s. Gullfoss fer frá Reykjavík kl. 5 síödegis í dag til Leitíh. og Kaupmannahafnar. Farþegar eru beönir aö koma til skips kl. 3.30. HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. Forstöðukonustaða í Hlíðaborg (leikskólinn, við Eskihlíð) er laus til umsóknar. Umsóknir sendist skrifstofu Sumargja,far fyrir 20. júlí n. k. Staðan veitist frá 25. ágúst að telja. Stjórn Sumargjafar. Hafið szmband við Mjóstræti Áríðandi er að allir sem hafa undir höndum undir- skriftalista í söfnun Samtaka hernámsandstæðinga hafi sam- band við skrifstofuna, Mjó- stræti 3, annarri hæð. Skrif- stofan er opin daglega kl. 9 til 19, símar 2-36-47 og 2-47-01. Ú T B 0 Ð Tilboö óskast um rafmagnslagnir o. þ. h. 1 eftirtaldax þyggingar Reykjavíkurbæjar: 1. Fjölbýlishúsin nr. 14—28 við Álftamýri. (64 íbúðir). 2. Gnoðarvogsskólinn, III. áfangi. Útboðslýsinga og uppdrátta má vitja í skrifstofu vora, Tjarnargötu 12 III. hæð gegn 1000 króna skilastryggingu. Smurt brauð snittur MIÐGARÐUK ÞÖRSGÖTU L SKIPAÚTGCRÐ L RIKISINS Herðubreið austur um land hinn 13. þ. m. Tekið á móti flutningi á mánu- dag til Hornafjarðar, Djúpa- vogs, Breiðdalsvikur, Stöðvar- fjarðar, Borgarfjarðar, Vopra- fjarðar, Bakkaf jarðar, Þórs- hafnar og Kópaskers. Farseðlar seldir á miðviku- dag. TRlAPLðNTUR TÚNÞÖKUR BLÖMPLÖNTUR — vélskornar. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBÆJAR. — gróðrastöðin við Miklatorg. Símar 22822 og 19775. álaíossvezksmiðjan sýnir nýjusiu mynsiur og liti í gólfteppum í verzlunarhúsnæði Teppi h.f., Aust- urstræti 22. Sýningin verður opiit í dag til kl. 22.00 og á morgun frá kl. 1.00 til 22.00. Komið og sjáið þær nýjungar, sem verða á fcoð- stólum til áramóta. A L A F 0 S S H.F.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.