Þjóðviljinn - 10.08.1961, Side 1

Þjóðviljinn - 10.08.1961, Side 1
í 7. umferð á skákmótiiiu í Tékkóslóvakíu tefldi Friðrik Ólafsson vift Niemela frá Finnlandi. Skákin fór í bið og þykir jafnteflisleg. Moskvu 9/8 — Geimfar- inn Hermann Titoff, sem fór 17 sinnum umhverfis jörðina í geimfari um síö- ustu helgi, kom til Moskvu í dag og var honum fagnaö innilega af hundruðum þús- unda Moskvubúa. Titoff hélt ræðu á útifundi á Rauða torginu, og sömu- leiðis hélt Krústjoff ræðu í tilefni hinna nýju vísinda- afreka Sovétríkjanna. Þúsundir manna tóku á móti Titoff á flugvellinum. Meðal þeirra voru Krústjoff forsætis- ráðherra. Tamara kona geimfar- ans, foreldrar Titoffs og Júrí Gagarín fyrsti geimfarinn. Mannfjöldinn fagnaði Titoff ákaft, margir báru myndir af geimfaranum og spjöld með á- letrunum þar sem sovézk v:s- indi voru hyllt. Miklir fagnað- arfundir voru þegar Titoff heilsaði konu sinni, og Krústjoff faðmaði geimfarann. Þúsundir manna stóðu með- fram veginum frá flugvellinum til Moskvu, um 20 km. vega- lengd, og hyiltu geimfarann. Vísindin fyrir friðinn Titoff hélt ræðu á Rauða torginu í Moskvu á útifundi, sem yi'ir hálf milljón Moskvu- búa sótti. Var geimfarinn ákaft hyjltur. Titoif sagði að afrek sov- ézkra visindamanna í geimvís- indum væru öll unnin í þágu íriðar og mannúðar. Hann sagði að tækni sovézkra vísindamanna væri orðin slík, að þeir gætu látið geimskip lenda hvar sem væri i heiminum. Hann -kvaðst vera mjög' þakklátur fyrir að hafa verið valinn til þessarar geimferðar og glaður yfir því að hún heppnaðist vel. Ef styrjaldarsinnar steypa þjóðum heims í ói'rið höfum við aflið til að sigra þá, sagði geim- farinn. Ég mun sem sovézkur t'luemaður ieggja fram alla krafta mína í baráttunni gegn striðsæsingamönnum. Krústjoff flutti einnig ávarp á f'undinum. Hann lagði áherziu á að Sovétríkin væru að vinna : þágu iriðarins með sigrum sin- um yfir himingeimnum. Vísinda- legur árangur geimrannsókna okkar verður birtur öllum sem áhuga haía á honum, sagði for- sætisráðherrann. Fyrr eða síðar munu aðrir sovézkir geimfarar Framh. á 10. síðu j I 1 i Fá 1,7 milljón krónur fyrir að flytja tíu þúsund mál! © Samið hefur verið um að norsk flutningaskip kaupi síld af íslenzkum bátum og ilytji hana til Noregs þar sem hún verður scld í verksmiðj ur til bræðslu. © Við verksmiðjuhlið í Noregi eru greiddar 35 norskar krónur fyrir hektólítrann aí bræðslusíld, eða sem næst 210 íslenzkar krónur. © Miðað við að í máli séu 1,35 hektólítrar, er verðið þá fyrir málið af bræðslusíld 284 íslenzkar krónur. © Samið hefur verið um að norsku flutningaskipin greiði 116 krónur fyrir málið, en það er sama verð og greitt hefur vefið fyrir síld sem ílutt helur verið milli hafna hér heima. © Norsku flutningaskipin fá þannig 168 íslenzkar krónur fyrir að flytja eitt mál af bræðslu- sílá tíl Noregs. © Fyrsta daginn eftir að samningarnir höfðu verið gerðir tóku fjögur norsk ílutningaskip 10.000 mál og fá þau 1,7 milljón krónur fyrir að flytja þann slatta! Myndirnar hér ad ofan og neðan eru teknar skömmu cftir að geimfarinn Hermann Titoff kom úr sinni fræki- legu ferð. Þá hringdi hann í Krústjoff forsætisráðherra. Yfir 20 togarar munu nú vera bundnir, þar af 15 í j Reykjavík og Hafnarfirði; sumir hafa veriö settir í slipp, ■ aðrir liggja í algeru reiðileysi. Þarna eru togarar á öllum ■ ■ aldri, allt frá göntlum togurum til Viðreisnar-Sigurðar, sem ■ kostaði 40 milljónir og er nú kominn upp í 45 milljónir ■ ■ ■ nteð síðustu gcngislækkuiiinni. Ríkisstjórnin kann cngin úrræði til þess að hagnýta þessi ■ míkilvirkustu framleiðslutæki þjóðarinnar; Hún mannar sig ; I S ekki einusinni upp í það að fá þá til síldarflutninga, heldur ■ leigir crlenda ryðkláfa fyrir gjaldeyri eða kastar síldinni : í Norðmenn fyrir hálfvirði. I þessu sambandi er vert að ; veltja scrstaka athygli á því að stjórn Sildarverksmiöja ; ríkisins á að starfrækja Siglufjarðartogarana báða, en hún : hefur þá bundna og sendir síldina óunna úr landi á sama ; tíma og verksmiðjurnar skortir verkefni. HVERS VEGNA ERU ÞEIR EKKI LÁTNIR FLYTJA SÍLD?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.