Þjóðviljinn - 24.09.1961, Page 4
r
j Hérna scst hluti af vcrkalýðsheimilinu í Heiligendamm. Áður var þetta miðstöð arðránsins í hér-
aðinu. Nú er þar hressingarhæli og skóji Verkaiýðssambands Austur-Þýzkalands.
Verkalýðsráðstefna er haldin
, á hverju. ári í tengslum við
; Eystrasaltsvikuna, sem fram fer
• á Eystrasaltsströnd Austur-
■ Þýzkalands. Þátttakendur eru
frá öllum löndunum sem liggja
. að Eystrasalti og einnig frá
Noregi og íslandi.
Fréttamaður blaðsins kom
- nýlega í hóp íslenzku þátttak-
endanna frá því í sumar, en
þeir höfðu komið saman til að
ræða viðfangsefni ráðstefnunn-
ar í ljósi þeirra atburða sem nú
eru að gerast í Þýzkalandi.
Einnig voru í hópnum þátttak-
endur á kvenrfáráðstefnu, sem
einníg er haldin í tengslum við
Eystrasáltsvikuna. Tvær íslenzk-
ar konur, Margrét Ottósdóttir
og Hallgerður Pálsdóttir, tóku
þátt í ráðstefnunni í sumar.
— Hvernig var þátttöku í
verkalýðsráðstefnunni háttað?
— Þátttakendur voru um 800.
Flestir voru frá báðum hlutum
Þýzkalands. Finnar voru um
100, Svíar 90, Danir 85, Norð-
menn 65, en mun færri frá
Sovétríkjunum, Póllandi og ís-
landi.
— Og helztu viðfangsefnin?
— Ráðstefnan fjallaði um
hagsmunamál vinnandi fólks
almennt. Sérstaklega var þó
fjallað um friðarmálin, sem
mótuðu mjög umræður þingsins
vegna uppgangs hernaðar- og
landvinningastefnunnar í V-
Þýzkalandi. Það er mjög eðli-
legt að friðannálin séu efst í
huga Austurþjóðverja og ann-
arra þjóða sem búa í nábýli
við vígbúnaðar- og landvinn-
ingastefnu V-Þýzkalands. Verka
lýðurinn á mest undir því kom-
ið að friður haldist, og því eru
friðarmálin þau hagsmunaat-
riði sem brýnust eru á slíkri
ráðstefnu.
— Hvaða boðskap flytur ráð-
stefnan almenningi í Norður-
Evrópu?
— Ráðstefnán er, eins og
Eystrasaltsvikan öll, háð undir
kjörorðinu „Eystrasalt-friðar.-
haf“, og tilgangur hennar er
að vinna að því að útrýma öll-
um vígbúnáði og hermennsku
við Eystrasalt og treysta frið-
VÖLUNDARSMlÐ!
á hinum íræga Parker
Líkt og íistasmiðir löngu liðinna tíma, vinna Parker-smið-
irnir nú með óvenjulegri umhyggju við að framleiða eftir-
sóttasta penna heims Parker „51“. Þessir samvizkusömu lista-
smiðir ásarnt nákvæmum vélum og slitsterkara efni, ei það
sem skapar Parker „51“ penna ... viðurkenndur um heim
allan fyrir heztu. skrifhæfni.
íyrir yður eða sem.gjöi
Parker "51”
HPRODUCT OF
t
THE PAKKER PEN COMPANY
— ÞJÓÐVILJ-INN •— Sunnudagur 24. september 1961
samlega sambúá landanna í N-
Evrópu. Það er samróma álit
ráðstefnunnar, að Norðurlönd-
um beri að viðurkehna Aust-
ur-Þýzkaland, og að stuðla beri
að því að gerðir verði friðar-
samnir.gar við Þýzkaland, þar
sem hvórtveggja vrði til þess
að minnka til mikilla muna ó-
friðarhættuna í Norður-Evropu,
sem stafar af deilum um Þýzka
landsmálin. I ályktun ráðstefn-
unnar eru miðstjórnir norrænu
verkalýðssam.bandanna minntar
á þá hátíðlegu heitstrengingu,
sem gerð var á fyrstu alheims-
ráðstefnu verkalýðsfélaganna í
Dondon 1945, að það yrði aldrei
framav þolað að þýzka hernað-
arstefnan ógnaði þjóðum heims
með styrjöld.
• Afvopnun í stað
hervæðingar
í ályktun ráðstefnunnar seg-
ir ennfremur: „Við erum and-
vígir því, að púðurtunnan Vest-
ur-Berlín ógni hamingju þjóða
okkar og landa ..... Friðsam-
leg lausn Þýzkalandsvandamáls- <
lega og einnig kjörum hvers
annars, óg er slíkt mjög fræð-
andi og skilingsaukandi. Starfi
og kjörum verkafólks í Austur-
Þýzkalandi kynntumst við auð-
vitað sérstaklega. Við skoðuð-
um mörg mannvirki í Rpstocký
þar sem ráðstefnan var haldin.
Stórkostlegast þeirra er hin
nýja höín í Rostock, sem er
geysilegt mannvirki og mun
hafa mikla þýðingu ekki að-
eins fyrir Austur-Þýzkaland
heldur alla Austur- og Mið-
Evrópu. Fram til þessa hafa
flest sósíalísku ríkin í Evrópu
orðið að nota Hamborg sem út-
flutningshöfn í Norður-Evrópu.
Nú breytist þetta, því að höfn-
in í Rostock hefur geysilega af-
kastagetu. Hún er mjög ný-
tízkuleg og búin fullkomnustir
tækjum og mörgum tækninýj-
ungurn. Þá skoðuðum við War-
now-skipasmíðastöðina, sem
byggð hefur verið frá grunni
eftir striðið og smíðar skip allt
að 11000 lestir að stærð; Að-
búnaður verkafólks á þessum
ISlillllÍ
IIíÍmÍI
WiMi
íslendingarnir á verkalýðsráðsíefnwnni í suinar. Frá vinsfri: Franz
Gíslason túlkur, Magnús Guðmundsson, Ilafsteinn Guömundsson,
Halldór Stefánsson og Trausti Finnbogason. Á myndina vantar
Sturlu Sæmundsson.
ins og Berlínarvandamálsins
varðar okkur öll, því að friður
og hamingja heimila okkar og
þjóða er háð því að Þýzkaland
verði í framtíðinni vopnlaust,
hlutlaust ríki ..... Við, vinn-
andi fólk pg verkalýður,
krefjumst þéss, að í stað vald-
stefnu komi stefna friðsamlegr-
ar samþúTar og samvinnu, —
nýrra múgmcrðstækja, herbúða,
væöingar, — að friðsamleg
verzlu.n allra þjóða í milli komi
í stað pólitískra efnahagsbanda-
laga og haftapólitíkur, því að
við verðum að bei’a byrðar.nar
sem af þessu leiða ....... Ekki
einn eyri framar tíl íramleiðslu
nýrra múgmorðstækja, herbúða-
her- og flugstöðva, — heldur til
byggingar nýs, ódýrs íbúðar-
húsnæðis, til nýrra barnaheim-
ila, skóla, sjúkrahúsa og elli-
heimila, til bvggingar orlofs- S
heimila og hressingarhæla og j
til að hrinda í framkvæmd j
kröfum. verkalýðsins til þjóðfé- j
lagsumbóta".
— Hvaða kynni hafið þið af
kjörum verkalýðsins í A.ustur-J
Þýzkalandi og starfi hans? R
—. Á ráðstefnunni kynntustj
verkalýðsfulltrúar ailra,- þátt-1
tökulandanna bæði persónu-J
stöðum er mjög til fyrirmynd-
ar. M.a. er sérstök heilsuvernd-
arstöð fyrir skipasmíðastöðina
þar sem sex læknar starfa. ÖIl
læknishjálp er ckeypis, þar á
meðal tannviðgerðir. Einnig er
barnaheimili fyrir starfsfólk
stöðvarinnar, og öll stærri fyr-
irtæki hafa slík barnaheimili
út aí fyrir sig. Þjóðfélagsleg
réttindi verkafólks eru mikil.
M.a. fær það þriggja vikna or-
lofsdvöl á góðum hressingar-
hælum fyrir aðeins 30 mörk og
er þá allt innifalið. Alþýðu-
tryggingar eru mjög fúllkomnar.
Verkalýðssambandið austur-
þýzka (FDGB) hefur eigin skóla
í Heiligenddamm, skammt frá
Rostock. Á þeim stað eru hress-
ingarhæli á sumrin, og þarna
bjuggum við m.eðan ráð-stefnan
stóð yfir. 1 Heiligendamm eru
margar myndarlegar hallir og
stórhýsi, og voru þar áður að-
setur greifans af Mecklenburg,
sem kúgaði snauða leiguliða í
héraðinu, og hafa því orðið
rækileg húsbóndaskipti á staðn-
um.
— Hvað viljjð þið $egja um
þróun Þý'zkálandsmálanna nú?
Framhald af 10. síðu.