Þjóðviljinn - 18.10.1961, Blaðsíða 9
bbaðumjúdó
Fréttamaður blaðsins hefur
náð tali af Sigurði Jóhanns-
syni, sem nýkominn er heim
frá sumarnámi í skólanum
BUDOKWAI í Loncion. Þetta
undariega nafn er heitið á
kunnasta júdó-skólanum í Evr-
ópu. Þar kenna aðeins garpar,
sem hafa próf frá loðurlandi
júdó-íþróttarinnar, Japan. Á
sumrin kenna þar ætíð jap-
anskir meistarar, og því
streyma júdó-menn frá ýms-
um löndum þangað í sumar-
skólann tíi að afla sér aukinn-
ar þekkingar og taka próf.
Sigurður cr einn af frumkvöðl-
um júdó-íþróttarinnar hér á
landi og hefur frá upphafi
vcrið okkar snjallasti íþrótta-
maður í þeirri grein. í Lond-
on lauk hann prófstiginu 1.
kyu, en það er iokastig í nem-
endagreinum, og nú getur
hann farið að feta sig upp
gráðustigann í meistaratign-
Inni.
— Þetta er ósköp venjuleg
íþrótt og ekkert dularfullt við
hana, eins og ýmsir halda,
segir Sigurður þegar spurt er
hvað júdó sé. Og hann heldur
áfram:
— Áhorfendur, sem sjá leik-
inn júdómeistara að verki.
halda oft að kynngikraftur
hans og snarræði byggist á
einhverjum leyndardómsfull-
um göldrum. En þetta er að-
eins árangur gífurlegrar þjálf-
1 unnar og engin töfrabrögð.
Þrotlaus þjálfun og sjálfsagi
er það sem gildir í júdó jafnt
og í öðrum íþróttum. Annars
ná menn aldrei verulegum ár-
1 angri.
— Og íþróttin er upprunnin
í Japan?
— Já. Júdó sameinar það
bezta og drengilegasta úr hin-
um ým-su greinum Jú-jitsú,
sem er ævaforn japönsk hern-
aðaríþrótt. Það var ungur Jú-
jitsu-kappi, Jigoro Kano, að
nafni, sem samdi júdó-kerfið
skömmu fyrir aldamót. Það
sýndi mikla yfirburði yfir all-
ar greinar ju-jitsu. Judó bygg-
ist fyrst og fremst á fullkomnu
jafnvægi og miklu snarræði.
Settar eru reglur til að fyrir-
byggja slys, og öll fantabrögð,
sem tíðkast í Ju-jitsu, eru
toönnuð.
vígalegur þar sem hann situr
f hefðbundinni júdó-stellingu,
og víst er að fáir eiga erindi
í hendurnar á honum cf í odda
skærist. En hann er enginn
óeirðamaður heldur áhuga-
samur íþróttamaður, sein rutt
hefur judó íþróttinni braut
hér á landi,
NÝ BÓK
BLAÐAGREIN AR
Jóns Sigurðssonar
Eins og alkunnugt er flutti Jón Sigurðsson á hinu fyrsta al-
þingi eftir endurre'sn þess tillögu um þjóðslcóla. Fyrir honum
vakti, að hér yrði komið upp vísi að háskóla, er lagaður væri
eftir þörfum þjóðsrinnar og aukinn smám sama, svo sem
nauðsyn bæri til og föng væru á. Sú hugsjón varð að veruleika
á aldarafmæli Jóns. Því he’.dur nú Háskóli íslands hálfrar ald-
ar afmæli sitt þegar 150 ár eru liðin frá fæðingu foringjans
mikla.
Það er og alkunnugt, að Jón Sigurðsson barðist af frábærri
elju og atorku fyrir hverju því máli, er hann taldi til hagsbóta
og þjóðþrifa horfa. Umbætui í skóla- og menningarmálum sátu
þar sízt á hakanum Á alþingi, í veigamiklum ritgerðum í Nýj-
um félagsritum og sæg einkabréfa kvaddi hann hljóðs fyrir
hugmyndir sínar cg skoðanir og ruddi þeim braut. Hitt hefur
legið meira í láginni, að eftir hann birtist fjöldi greina í ís-
lenzkum og erlendum blöðúm, þar sem hann rökræðir hin
margvíslegustu jnál af íimni og þekkingu. Birti hann þær
1 ýmist’ 1 iúífií*’'fi'áfi\t’'öðá líóm ffam í dulargervi, eftir því sem
honum þótti bezt 'nenta
Nú hefur blaðagreinum Jóns Sigurðssonar í fyrsta sinni verið
safnað á einn stað og efnt til útgáfu þeirra. Verður sú útgáfa
í þrem vænum bin.ium. Ef’ hið fyrsta þeirra komið í bókaverzl-
anir. Hefur Sverri-* Kristjánsson sagnfræðingur búið ritið til
prentunar og skrifað langa og stórfróðlega inngangsritgerð um
blaðamennsku Jóns.
Rit þetta varpar um margt nýrri birtu á Jón Sigurðsson og
skýrir mynd hins einstæða þjóðarleiðtoga. Það er mikilvæg
heimild öllum þeim, sem kunna vilja góð skil á endurreisnar-
tímabilinu ög íslenzkri þjpðarsögu allt frá 1840 og fram til
vorra daga.
Þetta bragð mun ckki koma íslenzkum glímumönnum ókunnug-
lega fyrir sjónir. Það ber talsverðan keim af sniðglímu, en
heitir haraigoshi á júdó-máli. Höfuðmunurinn er sá, að lianda-
tökin eru bundin við mjöðm og læri í glíinu og ekki leyfilegt
að taka herðataki eins og í júdó. Sá sem tekur bragðið á
myndinni er Bretinn Leggert, en hann hefur náð hæstu gráðu
allra júdómanna utan Japans.
— Er mikill áhugi fyrir
júdó hér?
— Já, áhugi er góður og fer
vaxandi. I Glímufélaginu Ár-
manni eru æfðir tveir júdó-
flokkar. Það er höfuðatriði að
menn séu úthaldsgóðir við æf-
ingar og skilji að æfingin ein
skapar meistarann. Þátttak-
endur fá vissa viðurkenningu
eftir því sem kunnátta þeirra
vex. Menn fá að þreyta próf-
keppni og það örvar þá til
dáða.
— Aðstaðan til þjálfunar
hér?
— Ekki verri en t. d. í Dan-
mörku eða á öðrum Norður-
löndum. Erfiðast hefur verið
að fá hæfa kennara.
— Fara íslenzkir júdógarpar
bráðlega til keppni erlendis?
— Við æfum hér tvisvar til
Framhald á 10. síðu.
Það cr mik'll áhugi í þeim
Keflvíkingum að halda uppi
þróttmik’u íþröttastarfi í vet-
uv. Þeir hafa nú fyrir stuttu
ráðið til sín hinn snjaila sund-
mann Guímund Gíslason, til
að kenna sund. og þjá'fa sund-
fólk þeirra í vetur.
Verður gaman 'að fylgjast
með því hvort Guðmundur
nær þeim tökum á sundfólk'nu
í Keflavík og hann hefur náð
á sundíþróttinni. Hinn alkunni
áhugi hans ætti að hrífa fólk
með sér, og sjálfur hefur hann
verið gott fordæmi um það
hvernig menn ná árangri í
íþróttum. Það er gaman að því
að Guðmundur, svo ungur ,sem
hann er að árum. og enn í
fullri þjálfun sjálfur skuli
taka þetta að sér. Hér kem-
ur dugnaður hans auðvitað til
v ðbótar við áhugann, og þetta
gerir hann á kvöldin. eftir að
hann hefur unnið dagsverk sitt
hér í Reykjavík. Er þetta gott
fordæmi fyrir aðra sundmenn.
já, og aðra íþróttamenn. hvaða
íþróttagrein sem þeir stunda.
að koma með og léggja hönd á
plóginn og byggja upp. leið-
beina og kenna. Allsstaðar bíð-
ur æskufólk eft.r þeim, nærri
hvert sem litið er.
Sjfcærð ritsins er 64 + 461 bls.
Verð: kr. 200.00 ób. 255.00 í skinn-
líki — 290.09 í skinnbandi.
Bókaúfgófa
Menningarsjóðs
Sundfólk Keflavíkur hefur
oft látið að sér kveða. og vafa-
laust heldur því áfram : vax-
andi mæli undir handleiðslu
Guðmundar.
Þá hafa þeir Keflvíkinear
ráð ð til sín Karl Benedik’s-
son, til_-kennslu í handknaH-
leik. Er það annað árið í röð
sem hann annast jíjálfun og
kennslu í handknattieik i
Keflavík. Hefur Karl reynzt
góður þjálfari og kennari og
sýndu flokkar Keflávíkur það
greinilega í fyrra. Með sama
áfr.amhaldi ættu Keflvíkinaar
að geta komið fram með veru-
lega góða flokka í vetur.
Muníð 1
happdrœtti 1
Þioovilians
Miðvikúdagur 18. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (9