Þjóðviljinn - 16.11.1961, Side 10
Skýrsla Togliattis um 22 þingið
JTramhald af 5. síðu.
var árið 1934, þegar Sovétríkin
stóðu sigrihrósandi frammi
fyrir heiminum eftir árangurs-
I ríka framkvaemd fyrstu fimm
ára áætlunarinnar og samyrkj-
u.nnar, enda þótt þau ættu enn
I við erfiðleika að stríða í efna-
hagsmálum. Hvérnig máttí það
i verða, að einmitt þá skyldu
hinar æðstu stofnanir flokks-
ins' taka að brjóta, afneita og
eyðileggja hið sósíalistíska rétt-
• ariar? Það verður að viður-
kennast að einmitt á þessum
tíma, og einmitt á grundvelli
þeirra framfara sem orðið
höfðu, gerðu nýjar félagslegar
andstæður vart við sig, erfið-
leikar af nýjum toga, sem
stjórn Stalíns tókst ekki að
gera sér grein fyrir og hélt að
hún gæti sigrazt á með því
að koma á stjórnarfari tor-
tryggni og ranglátra refsiað-
gerða. Það verður að viður-
kenna að Lenín hafði á réttu
að standa, þegar hann sagði að
einmitt sigurvinningarnir gætu
leitt til þess að hlaðið væri
undir skriffinnskuvaldið. Það
verður einnig að hafa forsög-
una í huga, hin löngu ár borg-
arastríðsins, hinnar erlendu
íhlutunar og ógnarverka, sem
höfðu leitt af sér sérstaka
starfshætti og vinnubrögð og
geta skýrt hvernig á því stóö
að í forystuhópnum voru til
menn, undir forystu Stalíns,
sem vildu leysa öll vandamál
með valdbeitingu. Þetta eru að
sjálfsögðu aðeins almennar at-
hugasemdir, sem verður að
reyna í ljósi staðreyndanna,
svo að sérhver gagnrýni og
sérhver fordæming öölis.t sitt
rétta gildi, en jafnframt verð-
ur stöðugt aö hafa í huga hið
stórkostlega jákvæða starf
hins vinnandi • fjölda að upp-
byggingu atvinnulífsins undir
stjórn flokks og ríkisstjórnar
Sovétríkjanna, að u.ppbyggingu
hins nýja þjóðfélags, og þá
um leið friöarstefnu þeirra á
alþjóðavettvangi sem á sér
hljómgrunn í brjcstum allra
þjcða.
Það versta sem hreyíingu
pkkar væri gert væri að við
létum skfptast á lofsöngva og
fordæmingar, en allt annað
liggja milli hluta. Við verð-
um einnig aö gera okkur með
athugunum og rckræðum betri
grein fyrir því sem okkur og
hinum kínvei'sku félögum ber
á milli.
Vandamálið hvernig tryggja
beri að það sem gerðist á tím-
um Stalíns endurtaki sig ekki
var hins vegar rætt ýtarlega
og sannfærandi á flokksþing-
inu. Til þess voru allar þær
ráðstafanir sem þingið sam-
þykkti í því skyni að efla lýð-
ræðið í ötium samtökum og
þjóðfélagsstofnunum, hinar
mikilvægu breytingar á ílokks-
lögunum, ákvörðunin um aukið
starf sovétanna, verkalýðsfélag-
áhna o.s.frvc, gagnrýnin á hina
Öfugsnúnu túlkun á refsilög-
gjöfinni og tillagan um ákveðn-
ari lagareglur ,til verndar per-
sónufrelsinu. Loforðið sem allir
tóku undir á þinginu um að
ekki yrði snúxð aftur var
þannig treyst ákveðnum að-
gerðum, flokkslegum, réttar-
fahslegum og féiagslegum.
(Millifyrirsagnir Þjóðviljans).
Oddgeir Krisfjánssðii ténskáfd
Framh. af 1 síðu
löngu sun.ríð sig inn í þjóðina,
annað er enn á fárra manna
vitund en á vafalaust eftir að
verða lengi sungið eftir að við
öil erum undir grænni torfu,
sem nú leiðum hugann að af-
mælisbarni dagsins.
í félagi við ljóðasmiðina
Árna úr Eyjum og Ása í Bæ
Mikil óánægjð
vegna lélegra
kjara kennara
Aðalfúhdur félags barnakenn-
ara í Kefiavík var haldinn 3.
þ.m. Mikil óánægja ríkir meðal
félagsmanna. vegna lélegra
Jaunakjör stéttarinnar.
Var samþykkt að skora á stjórn
S.Í.B. að vinna af alefli að því
að eftirtaldar úrbætur fáist hið
bráðasta;
1. Að barnakennarar fái auka-
greiðslu fyrir allar stundir, sem
þeir kenna fram vfir 36 á viku,
í(og þurfi ekki að bæta upp sept-
emberkennslu eða annað).
2. Að yfirvinna kennara greið-
ist með sama álagi og yfirvinna
annarra starfsmanna ríkisins.
3. Að óhéTmíTf se' áð ráða rétt-
indalausa menn í kennarastöður.
4. Að kennaralaun hækki nú
þegar um minnst þriðjung.
5. Að kennarar fái full laun
þegar á fyrsta kennsluári sinu.
Stjórnarkjör fór svo, að for-
maður var endurkosinn Eyjólf-
ur Þór Jónsson, Ingvar Guð-
mundsson ritari og Þorsteinn
Kristinsson gjaldkeri.
hefur Oddgeir lagt Vestrpanna-
eyjUm til fjölmarga söngva,
sem tvímælalaust má um segja,
að bá verði menningararfi lítill
gaumur gefinn í Eyjum, þegar
þeir heyrast þar ekki lengur.
Auk alls annars er Oddgeir
ásamt hinni ágætu kónu sinni
Svövu Guðjónsdóttur, braut-
ryðjandi í skrúðgarðarækt í
hjón hafa’ náð á bví sviði hef-
ur hvatt margan mann til að
heíjast handa á húslóð sinni,
enda verður ekki annað sagt,
en að skrúðgarðurinn í Staf-
nesi (en svo heitir hús þeirra
hjóna) er glæsilegur í sumar-
skrúða og á sér ekki marga
líka í Eyjum.
Á síðustu árum hefur Odd-
geir sannað það svo ekki get-
ur neinum dulizt er séð hefur
ljósmyndasafn hans, að fáii
hafa næmari tilfinningu fyrii
fegurð Eyjanna en hann. Hann
hefur tekið ógrynni litmynda í
átthögum sínum og fegurð
þeirra og breytileiki er siíkur,
að öllum er ókunnir eru Vest-
mannaeyjum þykir með ólík-
indum að slík'a fjölbreytni sé
að finna á svo litlu landi og
því er heldur ékki að neita að'
stundum kemur hann einnig
heimamönnum á óvart.
★
Og að iokum, Oddgeir, hlýt
ég .að láta fylgja afmælis-
heillaóskinni til þín, baráttu-
kveðju sem félagi þinn í bar-
áttu íslenzkrar alþýðu fyrii
bættum Hfskjörum, fegurra
mannlífi og óskoruðu sjálf-
stæði þjóðarinnar.
Karl Guðjónsson.
BO) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 16; nóvember 1961
k
Seyðisfjörður býr sig undir sílíd
Framhald af 12. síðu.
vandamáli, sem er aukning
vinnslu á bræðslusíld. Hér á
staðnum er ein síldarverksmiðja
er mun vinna að jafnaði úr
2.200 málum síidar á sólarhi'ing
og vann úr í'úmum 80 þúsund
málum s.l. sumai’. S. 1. sumar
voru saltaðar nær 40 þúsund
tunnur á þremur starfandi sölt-
unarstöðvum, og er því engin
goðgá að mcguleiki verði á sölt-
un 100 þúsund tunna næsta sum-
ar. Með því scltunarmagrii mun
tilfalla úrgangur óg úrkast sem
nemur nær 40 þúsund síldar-
málum, en það er nær helming-
urinn af vinnslu síldarverksmiðj-
unnar s.l. sumar. Tveir tækni-
frarðingar, þeir Bragi Ólafsson
verkfræðingur og Hallgrímur
Bjöi'nsson efnaverkfræðingur,
hafa verið hér á vegum síldai’-
bræðslunnar til athugunar á
hu.gsanlegri stækkun eða vinnslu-
au.kningu, hjá vei’ksmiðjunni, en
■ v
niðurstöður þeirrar athugunar
eru ókunnar.
Sl. haust mun ríkissjóður hafa
keypt fyrir Síldarverksmiðjur
i’íkisins af Lárusi Jchannessyni
hæstaréttardómara Vestdalseyr-
ina, hið forna setur Gránufélags-
ins. Er það mjög- stcrt athafna-
svæði með góðum skilyrðum
bæði hvað snertir landrými og
möguleika til biyggjugerðax-.
Eitthvað befur heyrzt um að
stjórn ríkisverksmiðjanna hafi í
hyggj.u að koma þarna upp síld-
argevmum fyi-ir verksmiöjur
jiorðanlands. En eitthvað mun
vera dauft yfir þessu enn sem
komið er. Ef tæknilegur mögu-
leiki er að flvtja ganila og
geymda síld, gæti þetta þó orð-
ið til hagræðis fyrir max’ga.
Margir útgerðarmenn og sjó-
menn leggja samt til að þarna
verði reist verksmiðja, annað-
hvort flutt annarstaðar frá eða
gerð ný og yrði vinnslugeta
hennar ekki minni en 10 þús-
und mál.
Reykjavíkursaga Steíáns Jóns-
sonar er nú þegar orðin mjög
vinsæl barnabók.
liuga
<jðsfæ<Öurnar
. I
HELSINKI 15/11 — Stjórnmála- |
sérfræðingar í Helsinki álíta að
ekkert sérstakt muni gerast í
finnskum stjórnmálum næstu
dagana. Stjórnmálaflokkarnir
fjalla nú hver í sínu lagi um á-
standið eftir þingrofið. Ríkis-
stjórnin kom saman til hins
venjubundna óformlega fundar,
sem haldinn er hvert miðviku-
dagskvöld.
Tilkynnt er að viðræður um
verzlunarsamskipti Finnlands og
Sovétríkjanna haldi áfr.am í
Moskvu n.k. þriðjudag, en þær
hófust 27. október.
Kampmann, forsætisráðherra
Danmerkur, lætur í liós ánægju
með viðbrögð Finna við sovézku
orðsendingunni. Við vonum að
hin nána og vaxandi samvinna
Norðurlandanna geti óhindrað
haldið áfram, sagði Kampmann
í dag.
Ilvað verður gert
við Hans Kroll?
BONN — Ambassador Vestur-
Þýzkalands í Moskvu, Hans
Kroll, hefur verið kallaður til
Bonn vegna þess að hann hafði
lýst fylgi við vissar tillögur um
lausn Berlínardeilunnar. Aden-
auer ræddi við Kroll í dag.
Ekkert er vitað hvort Kroll
verður sviptur embætti, en viss-
ir stjórnaraðilar í Bonn hafa
krafizt þess.
Dag skal að kveldi lofa nefn-
isf nýjasta skáldsaga Elínborg-
ar Lárusdóttur og gefur Norðri
bókina út á sjötugsafmæli henn-
ar, sem var 12. nóvember.
Dag skal að kveldi lofa er
framhald sögunnar Sól í hádeg-
isstað, sem kom út í fyrra. Sög-
ur þessar eiea að gerast á 17.
öld. Þessi: síðari bók er 290 bls.
Þetta er 23. bók Elínborgar Lár-
usdóttur, fyrstá bók hennar, Sög-
ur^ kom út 1935. *
Aldrei síðan Hvalfjarðarsíldin
kom um ái'ið hefur aflamótt-aka
i landi staðið eins berskjölduð
gagnvart síldveiðiflotanum og síð-
astliðið sumar. Meginið af síld-
araflanum fékkst þá fyrir sunn-
an Langanes, og stunduðu þar
veiðar nær 250 síldveiðibátar.
Vinnsluafköst síldarverksmiðja á
Austfjörðum eru liðlega 12 þús-
und mál á sólarhring, svo að
hátar urðu að bíða í höfnum
drekkhlaðnir dögum saman eft-
ir löndun og síuðu síldai'lýsið í
sjóinn meðan síldin dormaði í
stórum torfum rétt utan við land-
steina. Þá reyndi oft á skap
hinna stilltustu sjcmanna. Þar
sem nú er mikið rifizt og rætt
um iþað hverj.um beri að stan.da
undir hinum aukna veiðitajkja-
kostnaði væri ekki úr vegi að
athuga mcguleika á betri lönd-
iúnarskilyrðum síldveiðiflotans,
þar sem sólarhrings bið getur
kostað bátsútháldið mil.li 100 og
200 búsgnd k.rónur. Hin aukna
síldargengd undanfarin ár á mið-
in fyrir austan ætti að vera bú-
in að opna augu hinna ráðandi
fnanna fyrir nauðsyn bættrar
síldarmóttöku. Það hlýtur að
Vera lágmarkskrafa þeirra sem
að síldveiðum standa að hið op-
inbera stuðli af fremsta mæt.ti að
úrbótum, enda eru öll yfirráð
*síldariðnaðarins í höndum ríkis-
ins. — Gísli.
Atémvopnabann
Framhald af 1. síðu.
að sckkva nokkrum púðurtunn-
um í hafið.
Sorin kvað það myndi verða
nytsamlegt ef an-sherjai'þingið
kæmi saman til aukafundar fyrir
I. júní næsta árs til þess að
fjalla um samninga um afvopn-
u.n, en afvopnunarnefnd SÞ gerði
drög að slíkum samningum.
Stevenson, f.ulltrúi USA, lagði
til að þegar í stað yrði komið
á fót sérstakri afvopnunarstofn-
un, sem byrjaði strax að vinna
að uppkasti samnings um al-
menna afvopnun.
Stevenson i’éðst harkalega að
Sovétríkjunum fyrir 50 mega-
J. esta sprengíuna, sem hefði átt
að vera pclitísk ógnun. Einnig
kvaðst hann ósamþykkur þeirri
stefnu Sovétríkjanna að gera
bann við kjarnavopnatilraunum
háð algerri afvopnun. Hann
sagði Bandaríkin annars vera
hlynnt stefnunni um aJgera af-
vopnun. E.t.v. væri það sam-
komulag fyrsta skrefið í áttina
1 til heims ón VQpna. , ..... .
„Rauði kötturinn“ er hin
fyrsta stóra skáldsaga Gísla
Kolbeinssonar. Gísli stundaði
farmennsku um nokkurt ára-
bil og kom þá víða við, með-
al annars á Kúbu. „Rauði
köttui’inn“ dregur nafn af
kriæpu í Havana, höfuðborg
Kúbu. Sagan er lé.tin gerast
um það leyti, sem Castro var
að brjótast til valda. Á
„Rauða kettinum" hittast sjó-
menn hvaðanæva úr heimin-
um og gera sér dátt við fagr-
ar, íturvaxnar stúJkur með
eld í augum. Þar hittir ís-
lenzki sjómaðurinn, Gunnar,
kúbönsku stúlkuna Lénu og
þar hefst stutt ævintýri
þeirra. Samtímis berst Sig-
tryggui’, annar íslenzkur sjó-
maðui', við kúbönsk yfirvöld
og á lærdómsríka nótt með
pólitískum föngum á Havana.
Fjölmargar persónur koma við
sögu, íslenzkai’, norrænar og
engi.lsaxneskar.
Gísli Kolbeinsscn hóf ung-
ur sjómennsku. Hann tók far-
mannapröf í Sjómannaskólan-
um árið 1953 og og hóf þá
siglingar á erlendum skipum.
Gísli hefur skrifað smásögur,
sem birzt hafa í Víkingnum,
og er maður listhrieigður
mjög. Hann er 34 ára gamall.
Hann er nú búsettur í . Vest-
mannaeyjum og stundar það-
an sjómennsku og siglingar.
STÖR NORSK ÆTTARSÁGA
Silkislæðgn
EFTIR ANITRU
Silkislæðan er hrífandi skáld-
saga um ættarstolt. og heitar
ástir, um hryggð, en einnig
um háleita bjartsýni.
Sagan fjallar um örlög ætt-
anna á þremur stórum bú-
görðum á Heiðmörk í Noregi.
En aðrar persónur koma við
sögu, eins og t. d. Jóhann, ein-
stæðingurinn og íslenzka kon-
an Guddá." Eihn 'ritcíófhánnn
í Noregi hefur komizt svo að
orði: „Guddu er svo vel lýst
að hugurinn hvarflar að bók-
urri (Krjstmanns) Guðmunds-
•sonar og (Gunrarr) Gxmnars-
sonar. Hina sérkennilegu al-
iþýðulund í „Börnum jarðar“,
„Fjallinu helga“ og „Sögu
Borgarættarinnar“ hefur An-
itra einnig á valdi sínu.“
Bókaverzlun
ísafoldar