Þjóðviljinn - 16.11.1961, Blaðsíða 12
íslenzkur atvinnuvegur
'A' Framleiðsla íslenzks koins. sem
var um 3000 tunnuz áriS 1880, muu
vera um 6000 iurmur á þessu ári.
* Komrækt sem íslenzkur aSvinmi-
vegur er a§ verða staðreynd og fcef-
ur fleygt fram síðustu árin.
★ Fjórir alþing'smenn af Suður- og
Austurlandi flytfa þingsályktunartil-
lögu á Mþingi um að fela ríkisstjórn-
nnni að greiða verðbætur á kom sem
ræktað er fcér á landi til jafns vlð
niðurgresðslu á innfluttu korni, esi
kernræktin er enn algjört olnboga-
barn meðal greina íslenzks land-
búnaðar.
Þingsályktunartillagan, sem er
ílutt af Karli Guðjónssyni, Hall.
<dóri Ásgrímssyni, Birni Fr.
Björnssyni og Ágústi Þorvalds-
syni, var til umræðu á fundi
sameinaðs þings í gær. Flutti
fyrsti flutningsmaður, Karl Guð-
jónsson, framsöguræðu um nauð-
syn íslenzkrar kornræktar og
kjör þau sem þessari ungu at-
vinnugrein eru búin hér á landi.
Um mörg undanfarin ár hefur
J^ornrækt verið framkvæmd á
j vegum hins opinbera sem nokk-
urs konar tilraunastarfsemi,
sagði Karl. Þetta er nú að breyt-
ast, einkum síðustu tvö árin.
Bændur eru nú óðum að taka
kornrækt upp sem búgrein og
Sandrækt ríkisins hefur tekið
upp þá aðferð við ræktun sand-
anna að sá þar korni í stórum
stíl. Þessi framkvæmd hefur
gefig svo góða raun, að ástæða
er til að ætla áð kornrækt yrði
hér árviss atvinnugrein viða um
land, ef sæmilega væri að henni
búið.
En aðstöðumunur við inn-
flutning erlends korns hamlar
mjög kornræktinni. Ríkissjóður
greiðir nú niður um 18,61% af
fob-verði alls korns sem flutt er
til landsins, en innlenda korn-
framleiðslan nýtur engrar sl’krar
fyrirgreiðslu. Ræktun kornakra
nýtur heldur einskis jarðabóta-
styrks enda þótt ríkið verji ár-
lega nokkrum milljónum til
ræktunarframkvæmda. Með
Framhald á 11. síðu.
Fimmtudagur 16. nóvember 1961 — 26. árgangur — 264. tölublað
!*5íÍSS
i kvöld
I kvöid efiuir Ragnar Björnsson til orgeltónleika í Dóm-
kirkjunni og hefjast tónleikarnir kl. 8.30. Ragnar leikur
síðrómantísk verk eftir Pál Isólfsson, Max Reger, Franz
Eiszt og H. Mulet. Tónleikarnir hef jast kl. 9 og eru mið-
ar seldir í bókabúð Lárusar Blöndal, Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar og við innganginn. Myndiin er tek-
in í gær er Ragnar var við æfingu í Dómkirkjunni.
Koðnaði loks niður þegar hann
hafði hellt í sig brennivíni
ÍSAFIRÐI í gærkvöld.
Frá fréttaritara.
Réttarhöld fóru fram í <jag og
kvöld í máli skipstjórans á
■Grimsby Town, sem varðskipið
Albert stóð að ólöglegum veið-
um tvær núJur innan við iand-
helgislínu út af Straumnesi.
I réttarhöldunum kom það
ffram að brezki skipstjórinn hefði
hagað sér mjög dólgslega. Hann
reyndi að strjúka til hafs þeg-
ar Albert "kom að honum, tók
ekkert mark á ljósmerkjum eða
iausum skotum og stanzaði ekki
fyrr en skotið var kúlu að hon-
um. Þá var munnsöfnuður
brezka skipstjórans, sem heitir
Donald Lister og er 32 ára gam-
all, hinn tryllingslegasti við Guð-
mund Kjærnested, skipstjóra á
Albert; voru dæmi um það flutt
af segulbandi fyrir réttinum.
Áður en lauk hótaði skipstjórinn
að sigla Albert í kaf og gerði
tilraun til að fylgja þeirri hótun
sinni eftir í verki.
Einnig eftir að menn af Al-
bert voru komnir um borð í
brezka togarann hélt tryllingur
skipstjórans áfram, þar til hann
hellti í sig brennivíni og koðn-
aði þá loksins niður.
Grimsby Town hefur áður
komið við sögu hér við land,
og var þá hegðun yfirmanna á-
móta ruddaleg og nú.
mikla sild nœsta sumar
Seyðisfirði í gær. Frá
fréttaritara.
Á fundi bæjarstjórnar Seyðis-
fjarðarkaupstaðar voru í gær-
kvöld teknar fyrir Ióðautnsóknir
sem borizt hafa undanfarið vegna
fyrirhugaðra söltunarstöðva. Var
úthlutað fjórum nýjum athafna-
svæðum auk tveggja viðbótar-
lóða. Þar sem undirlendi er lítið
og vegir liggja víðasthvar niður
undir fjöru er fyrirhuguð ný-
lagning vega á stórum köflum,
þannig að vegir færast öfar, eða
cfan við væntanleg athafna-1
svæöi. Auk þess verður lagður
nýr vegur frá Fjarðarbrú í boga
innan og ofan við öldu út á
Vestdalseyri. Má þá heita að öll
nýtileg strandlengja innan kaup-
staðartakmarkanna sé fuliskip-
uð og bærinn skipulagður sem
síldarbær að öllu ieyti.
Hugmynd aðila hinna nýju at-
hafnasvæða er að koma upp sölt-
unaraðstöðu fyrir næsta sumar.
Er vitað um níu fyrirhugaðar
söltunarstöðvar næsta sumar og
TÍZKUSÝNING
NÝJUNG í LÍDÓ
Sl. sunnudagskvöld var tízku-
sýning haldin í veitingahús-
inu Lidó; sýndur var vetr-
artízkufatnaður frá Evgló og
Feldi. Þar sem aðsókn var
það mikil þetta kvöld að
margir urðu frá að hverfa,
var ákveðið að endurtaka
tízkusýninguna daginn eftir
og á þriðjudag. Enn var að-
sókn mjög mikil og verður
tízkusýningin því enn haldin
annað kvöld, föstudag, í Lidó.
Hér er um nýjung að ræða,
því að^fram til þessa hafa
aðeins einstök fyrirtæki haft
smærri sýningar fyrir sína
viðskiptavini eða efnt til
meiriháttar tízkusýninga og
selt aðgangseyri. Aðgangur að
t:’zkusýningunni í Lidó er
hinsvegar ókeypis og öllum
heimill. Sýningarstúlkurnar,
sem vakið hafa athygli fyrir
fágaða framkomu, hafa allar
verið í Tízkuskólanum. Mvnd-
irnar eru af tveim sýningar-
stúlknanna, teknar nú í vik-
unni í Lidó.
búizt við þeirri tíundu. Þær
verða norðanmegin: Ingvar Vil-
hjálmsson útgerðarmaður Reykja
vík fyrir væntanlegt hlutafélag
innan við svonefndan Forna-
stekk; þar fyrir innan Sveinn
Benediktsson er saltaði hér síð-
S
astliðið sumar; og síðan Kaup-
félag Austfjarða sem sagt er að
muni verða eitthvað tengt Borg-
um h.f., á- Raufarhöfn. Er þá
komið inn að vélsmiðiunni Stál
sem stendur svo til við fjarðar-
botn. Að sunnan og út eftir
verða: Bæiarbryggjan, sem Val-
týr Þorsteinsson hefur haft
'eieða undanfarin tvö sumur,
hefur verið leigð Fiskiðjunni s.f.
Seyðisfirði, en bað sameignarfé-
lag hefur Fiskiðjuver ríkisins á
leigu; rétt utan við síldarbræðsl-
una er svrmefnd Nagelbryggia,
og hefer Ouðfinnur Einarsson út-
gerðarmaður Bolungarvík keynt
bá aðstö!'ii nú í haust; utan við
'shús f'l'iarhræðslunnar verður
Valtýr Þorsteinsson útgerðar-
maður Akurevri; þar fvrir utan
er Sfröndin h.f.. sem saltað hef-,
ur hér í áratug; og síðan Karl
Jónsson áður verkstjóri hiá
Sveini Benediktssyni og nær
hans athafnnsvæði út að Borg-
artanea, sem mun vera bæjar-
mörkin að sunnan.
Er þá pð hinn c+nna
Framhald á 10. síðu
kípnbrotnaði
Um hádegi í gær varð það slys
að Mánagötu 20, að Sigþór Lár-
usson kennari við Austurbæjar-
barnaskólann, sem býr þar f
húsinu, féll niður af vinnupalli
um 5 rnetra fall og kom niöur
á gangstétt við húsið. Sigþór
meiddist mikið, hlaut m.a. höf-
uðkúpubrot, og var fluttur í
Landakotsspítala.