Þjóðviljinn - 09.12.1961, Blaðsíða 4
úfvarpsa n n á 11
Vikan 26. nóvember til 2. desember
Hin fyrstu kynni er ég
hafði af útvarpi þessarar viku,
,var vikugömul messugerð frá
'Útskálakirkju, er flutt hafði
verið til útvörpunar í Reykja-
vík, sökum þess að nefnd
kirkjá var hundrað ára göm-
ul.
í>að er löng leið í tíma og
rúmi frá upphafi kristindóms
til Útskála-kirkju. Þegar
■presturinn á Útskálum hafði
olnbogað sig fram gegnum
alla kirkjusöguna og var
kcrninn í nánd við sjálft af-
mælisbarnið, kirkju sína, var
því nær komið að ræðulok-
um. Varð hann því að vera
íáorður um sögu þessarar
hundrað ára gömlu kirkju og
var því ókunnugur hlustandi
engu nær um hvað á daga
.hennar hafði drifið. Hið sama
•varð uppi á tengingnum hjá
biskupi, er kom í ræðustól að
sóknarpresti frágengnum. —
Hann var eitthvað að bolla-
leggja í sambandi við guð-
spjall dagsins, svo bað hann
ósköp vel fyrir hinu aldna
húsi, en um sögu þess gat
hann ekki neitt frætt hlust-
endur, og hefði þó mátt ætla
að einhverjir þeir atburðir
hefðu verið því tegndir er
vert hefði verið að rifja upp.
Um kvöldið flutti Elsa Guð-
jónsson erindi um gamalt ís-
lenzkt altarisklæði í hollenzku
safni. Elsa segir liðlega frá
-og flytur vel.
Keflavikur-
sjónvarpiS
I þættinum Spurt og spjall-
að yar um það dejlt, iivor-t
það væri gott og blessað að
"hafa sjónvarp á Keijavíkijr-
ílugvelli. Tveim ræðumönnum
fannst það gott og blessað, en
tveir töldu að það væri ekki
gott og blessað. En annar
þeirra Sigurður A. Magnús-
son tók það jafnframt, fram
að hann væri fylgjandi vest-
rænni samvinnu. Korni það
fyrir að áhangendur vesturs-
ins taki afstöðu með íslenzk-
um málstað bregzt það ekki,
að þeir lýsi jafnframt yfir
að vestrið eigi þá. Gera þeir
þetta eflaust til þess að bjarga
mannorði sínu og koma í veg
fyrir að þeinit verði refsað í
misgriþum fyrir ótínda komm-
únista, Eru þeir þá vpnjulega
’latnir sleppa með þá refsingu
eina að vera kallaðir nytsam-
ir sakleysingjay.
Á rtl&'nudagskvöldið talaði
Jón Árnason fyrrum banka-
stjóri um daginn og veginn
og var svartsýnn sem fyrr.
Virtist sem gamla mannin-
um haíi íundizt sem viðreisn-
arstjómin væri enn foýsna
langt frá því marki að kippa
fjármálum landsins í lag. Las
hann upp margar tölur, sem
sýndu að ástandið var ekki
nándar nærri eins gott og það
átti að vera, og var það frek-
ar leiðinlegur lestur. En inn
á mijii talnanna glytti allt af
annað veifið í setningar, sem
voru svo skemmtilega vel orð-
aðar að sem heild var þessi
pistill ekki eins leiðinlegur og
ætla mátti í fljótu bragði.
Þorvarður Helgason talaði
þetta kvöld um tilraunaleik-
hús, en það var frekar leiðin-
legur lestur og lítið á honum
að græða.
Þriðjudagskvöldið var and-
legt að framhaldsleiknum frá-
töldum. Séra Öskar Þorláks-
son talaði um Alkirkjuráðið
og söngmálastjóri flutti söng-
málaþátt.
AllsstaSar ^
r *
er am
Séra Öskar segir fremur ó-
skipulega frá og hættir við
að endurtaka. Hið skemmti-
legasta í frásögn prestsins var
þó það, að sumir hinna vísu
feðra í þessu ráöi eru sagðir
smeykir við að taka rússnesku
kirkjuna inn í samtökin og
óttast að henni kunni að fylgja
hin albjóðlega spenna, eins
og ræðumaður komst að orði,
og mátti lesa það á milli lín-
anna, að hinir kristnu bræður
austur í Rússíá væru nokkurs-
konar laumukommúnistar, og
fttyndu kánnski gera ein- í
hvern usla í hinni vestrænu
kristnu hjörð. Allstaðar er á-
in, sagði telpan, þegar hún
korrt að ' bæjarlæk nágrann-
ans. Hún var nefnilega hrædc'
við árta heima. j
Af söngmálabættinum er
það helzt að segja, að Róber'-
Ottósson, söng nokkra gamlai'
sálmastefnmUr fyrir séra Sig-
urð í Hraungerði.
Úr áíögum
■ Þess er oft getið í þjóðsög-
um. að illar kindur lögðu það
á mennska menn að íara í
vmsra kvikinda líki og vinnít
þá ýms; þau verk er> þeim
voru þvért þm geð og um-
hendis.
Slíkum' mönnum vai’ð það
oft huggun í raun, að sjöundu
hverja nött var þeim leyft að
verða mennskir og lifa eins
og þeim var eðlilegt.
Úivarpinu okkar eru í raun-
inni búin svipuð örlög.
Vqstræn samvinna hefur
lagt yfir það álagaham áróð-
ursins og í honum lifir það
og hrærist sex daga vikunn-
ar með nokkrum undantekn-
ingum þó.
En sjöunda hverja nótt, eða
öllu heldur sjöunda hveri
kveld, er álögunu.m af því
létt og það verður mennski;
og þjóðlegt. Slíkt kallast
kvöldvaka og er á miðviku-
dögum.
Og kvöldvaka þessarar viku
var engu síðri en hinar fyrri.
Benedikt Gíslason frá Hof-
teigi flutti erindi um hinu
glötu.ðu Jökuldælu, einkar-
írcðlegt og gætt sama seið-
magni og önnur erindi um
þjóðleg fræði, er hann hefur
flutt í útvarp áður. Benedikt
ber ótt á, þegar hann flytur
sitt mál, og raunar um of.
En samt er engu líkara en að
hinn hraði frásagnarháttur
hans beinlínis knýi heyrand-
ann til þess að leggja fraro
athygli sína alla og óskipta
Baldur Pálmason las upp
stökur eftir Halldói' Ölafssor
frá Fögrubrekku vel gerðar
en flestar þeirra með nokkuð1
þunglyndislegum blæ. Vic'
gamlir góðkunningjar Hall-
dórs myndum gjarna hafc
viljað fá meira að heyra a'
hinu léttara tagi. Þótt skeyti
hans væru ekki stór, hittu
þau ævinlega í mark.
Siggi hunda-
kóngur
Gaman þótti mér að heyra
stemmurnar af Ströndum sem
hann d.oktor Símon kvað. Þær
minna nrig su.mar hverjar á
stemmumar hans Sigga hunda
kóngs, og er mér ekki grun-
laust um að doktor Símon
hafi í æsku sinni norður í
TÍrékyllisvík eitthvað af Sigga
lært. Siggi hundakóngur
hreinsaði neínilega hunda
Sirandama.hnaí marga ára-
t.ugi á fyrri hluta þessarar
aldar, en kvað söng á síð-
kvöldum að lolcnu dagsverki,
eöa nánar tiltekið þegar hann
halði hleypt út húndunum,
og þótti hvai'vetna aufúsu-
gestu.r. því hann hafði geysi-
mikla rödd. Hefði hann fajðst
um það leyti sem hann dó,
myndi hann ekki hafa þúrí't
að ganga um Strandir, tötrum
klæddur, hreinsa hund.a og
kveða stemmur heldur stað-
ið kjólklæddur á sviðum ó-
peru'húsanna og sungið aríur.
Fi.mmtudagskvöldið bauð
upp á kennslustund í erfða-
fræði, erindi um jólagleði, og
er það upphaf erindaflokks og
því nokkuð langdregið og enn
þáttur að vestan frá þeim
Stefáni Jónssyni og Jóni Sig-
bjömssyni,. pgúií þetta sjnn
frá Súgandafirði. Verður ekki
annað. sagt en að þeir félag-
ar hafi fiskað vel vestur þar
í sumar og vonandi ekki séð
fyrir endann á því enn. Allt
voru þetta indælir karlar sem
stóðu vel fyrir sínu og svo
var klykkt út með því að
sjálfur presturinn þeirra Súg-
firðinga lét Ijós si.tt skína.
Ekki var það þó stólræða sem
þeir félagar hljóðrituðu eftir
prestínum heldur gamanvísur,
ekki neitt sérleg hagleiksmíði
að vísu, en ágætar svona til
heimanotkunar og er það
sannfæring mín að kristin-
d.ómslííið í landinu stæði með
miklu meiri blóma en raun
er á ef prestarnir gerðu það
jöínum höndum að semja
stólræður og yrkja gamanvís-
ur og hverjum stendur nær
en einmitt sálusorgaranum að
koma sóknarbömunum í gott
skap?
Fösfudagur-
inn langi
Föstudagurinn 1. desember,
festudagurinn langi mætti
hann heita sökum þess hve
dagskráin var löng og frá-
munalega leiðinleg. Sá háttur
hefur verið á haíður hin síð-
ari ár, að gera þennan dag að
áróðursdegi fyrir þau mál er
stjómai*völdunum. voru efst í
huga og jafnframt óvinsælust
með þjóðinni. Að þessu sinni
var áróðursefnið það sem
stjórnarvöldin nefna vestræna
samvinnu eiginlega algerlega
óþekkt hugtak meðal alls al-
mennings, og þarf áreiðanlega
langan og strangan áróður til
þess að menn almennt átti sig
á hvað það eiginlega eigi að
tákna. En mikils ér víst talið
við þurfa svó fast var róður-
inn scttur ó föstúdaginn.
Ég vék mér að vísu undan
þeim kaleik, að hiusta á ræðu-
hold þau er fram fóru um
miðjan daginn, en begar ég
kom inn í kvöldfréttir var
verið að lesa geysi ýtarlegan
úrdrátt úr ræðum þeim y. er-.
íiuttar höfðu verið fyrr um
d.aginn, einkum var greint ná-
kvæmlega frá , ræðu forsætis-
ráðherrans, svo mikiis hefur
þótt við burfa að enginn færi
á mis við fagnaðarerindið.
Um kvöldið var biskupinn, ’
Sigurbjörn, dreginn inn í
þennan Hrunadans. Hefði
mareur eflaurf viliað hafa
cskaö honum betra hlutskiptis.
Og insruur mun hafa minnzt
þess að hann hefur áður flutt
ræðu 1. desember og þá verið
öllu rismeiri en nú.
Síðar um kvöldið var svn
útvarnað frá veiz:uíagnaði
þessara vestansamvinnumanna
og flutti Torfi Hjartarson toll-
stjóri einhverja furðulegustu
ræðu sem ég hefi heyrt.
Framan af var ræða hans
sundurlaust og meiningarlaust
hial og .maður gat búizt við
að hanri segði amen þá og
þegar. En allt í einu var eins
og einhver hefði hnippt í
hann og hann man þá eftir
því, að honum hafði verið
sagt að tala um vestræna
samvinnu. En svo var ræða
hans ruglingsleg, jafnvel eftir
að hann komst að hinu fyrir-
skipaða umtalsefni, að fullvíst
má telja að enginn mun hafa
sannfærzt um ágæti þessarar
samvinnu, fyrir hans orð. En
það verður bó að segia toll-
st.ióranum til hróss að hann
gekk ekki með öllu fram hjá
þeim hættum sem fylgdu vest-
rænni samvinnu í sambandi
við efrtahagsbandalagið.
Guðmundur Si.gurðsson gam-
anvísnasmiður, sem vanalega
hefur látið hvern og einn fá
sinn skammt, brá út af venj-
unni og lét skáldgáfu sína
þióna vestrænni samvinnu af
slíkri kostgæfni, að bví var
líkast sem honum hefði verið
borgað fyrir.
Andi
klukkunnar
Ræða sú er Thór Thórs
hafði flutt á Allsherjarþing-
inu um afvopnunarmáhn var
flutt í útvarnið að hinni svo-
nefndu hátiðadagskrá lokinni.
Það kann að hvkia ótrúlegt,
en ég held að þessi ræða hafi
verið hið bezta af töluðu orði
þessa dags. Hún var öfgalaus,
hnfsamJeg og að mestu laus
við áróðu.r. Hefði biskuoinn
haft gott af þvf að hlýða
henni áður en hann fJutti sína
ræðu. Thór dró enga dul á að
risamir væra tvei.r, hinn vést-
ræni' og austræni. En biskrip-
inn sá'aðeins einn, hinn aust-
ræna. Ri.sinn í æfintvrinu
gat ekki brotið anda klukk-
unnar. og andinn réði að lök-
um niðurlögum risans. Bisk-
unmn trúði æfint.vrinu og
taldi að andi klukkunnar, ís-
landsklu.kku.nnar senn.i.lega, —
myndi að lokum ráða niður-
lögum hins austræna risa. En
é.g held að við jnegum ekki
faká. ■æfintýri Andérsens allt
of bóksta'flega. Það 'er nefni-
lega hægt að drena anda
Hukkunnar, Isl.andsklukkun-
ar. að vísu ékki með hví að
br.iéta hana með sieggiu held-
u.r á fínan og I”~’>*:Iegan hátt.
B.isinn þarf ekki að nota
sleggiu við jafn litla k'ukku
og Islandsklukkuná. Þaö næg-
ir að vefja hana innan í hern-
áðttr- og ’ efnahagsbandalag,
herða svolitið að henni svo
hún molni og andinn slokkni.
Mér skúst að þáð sé þetta
sem þeir kalla vestræna sam-
vinnu fyrir sunnan og fu.Il-
veldishstfðin, var helguð að
þessu sirini.
SKULA GUÐJÓNSSON fró Liótunnarstöðum
NÝJAR VERZLANIR
- NÝJAR VÖRUR -
NÝTT VERÐ
Höfum opnað .vefnaðarvöruverzlanir að Nesvegi 39 og Grensásvegi 48.
Seljum alískonar vefnaðarvöru, snyrtivöru, leikföng, jólapappír, lím-
bönd, jólakort og fleira og fleira.
Skeiían, Nesvegi 39, Skeifan, Grensásvegi 48 eg Skeifan, Blönduhiíð 35.
Sími 18414. Sími 19177,
'i\ — ÞJÓÐVILJINN — Láugardagur f). desember 1961