Þjóðviljinn - 30.12.1961, Page 12

Þjóðviljinn - 30.12.1961, Page 12
Laugardagur 30. desember 1961 — 26. árgangur — 300. tölublað f?_. “ nftivn Rétt fyrir jól var cfnt í París til funda og kröfugangna “ J “ ® * IS BwSy \JrS%W ~~— sem beint var gegn leyniher hægrimanna, OAS, sem veöur uppi í Frakklandi og Alsír, og þess krafizt að þegar yrði teknar upp viðræður við Serki um Irið í Alsír. Um 160.000 manns tóku þátt í þessum fundum og göngum í París. Lögreglunni var sigað á fólkið og beitti það engum veítlingatökum, eiins og sjá má á myndinni. Samkvæmt upp'ýsingum Erl- ings Pálssonar yfirlögreguþjóns hcfur liigreglan veitt Ieyfi fyrir rúmlega 0!) áramótabrennum eða heldur fleiri en í fyrra, Brennur þessar eru dreifðar um a’lan bæinn og eru margar þeirr.a smáar en auk þeirra verða nokkrar stórar brennur. Eftirlitsmenn frá lögreglu og s’ökkviliði hafa skoðað alla þá staði. bar sem brennur verða leyfðar og haft hönd í bagga um staðarval. Stærsta brennan verður brenna sem Reykjavíkurbær sér Seðlabankinn borgar hluta aí eyðsluláninu Þjóðviljanum barst í gær svo- hljóðandi fréttatilkynning frá Seðlabankanum: „Seðlabankinn hefur í dag i eamráði við ríkisstjórnina greitt Evrópusjóði 2 millj. dollara eða 86 millj. kr. af 7 millj. dollara yfirdrætti, sem tekinn var hjá sjóðnum á árinu 1960. Er þetta fyrsta niðurgreiðsla þeirra bráða- birgðalána, sem tekin voru á ár- U Thznt skipar cðstoðarmenn NEW YORK 29/12 — U Thant, lramkvæmdastjóri SÞ, skipaði í dag fimm menn sér til aðstoðar. Þeir eru: Philippe de Seynes frá Frakklandi, Towares Desa frá Brasilíu, Omar Loufti frá Sam- bandsiýðveldi Araba, Jiri Nosek irá Tékkóslóvakíu og Godfrey Amachree frá Nígeríu. Fyrir voru þrír aðstoðarframkvæmda- etjórar, Bunche frá Bandaríkjun- um, Arkadeiéff frá Sovétríkjun- um og Rasasimhan frá Indlandi. inu 1960 í því skyni að styrkja' gjaldeyrisstöðu bankanna og auka viðskiptafrelsi. Á árinu 1960 batnaði gjaldeyr-' isstaðan mjög verulega eða um 239 millj. kr. á þágildandi gengi. eða um 270 millj. kr. á núgild-| andi gengi. Á árinu 1961 hefur gjaldeyrisstaðan haldið áfram að batna, en frá ársbyrjun til nóv- emberloka batnaði hún úr 126 millj. kr. í 393 millj. kr. eða um 267 millj. kr. Hefur þá verið tek- ið tillit til yfirdráttarskulda við Evrópusjóðinn og Alþjóðagjald- eyrissjóðinn, sem námu í nóvem- berlok 596 millj. kr. Jafnframt hafa útflutningsvörubirgðir auk- izt um tæpar 250 milljón krón- ur fyrstu ellefu mánuði ársins, en stutt vörukaupalán erlendis hækkuðu á sama tíma um 35 millj. kr. Þessi hagstæða þróun gjaldeyr- isstöðunnar gerir það kleift að áliti Seðlabankans að hefja nú endurgreiðslu fyrrnefndra bráða- birgðalána, en þau eiga að greið- ast að fuilu á næstu 2—3 árum. Er því nauðsynlegt að hægt verði að styrkja gjaldeyrisstöðuna enn verulega á næstu árum til þess að unnt verði að greiða þessar skuldbindingar á tilsettum tíma Harður árekstur í gærkvöldi Klukkan 22.40 í gærkvöldi, varð allharður árekstur á mótum Laug- arnesvegar og Sundlaugavegar. Skemmdir urðu talsverðar á báð- um bílunum, en engin slys á fólki. Samkvæmt upplýsingum Lög- reglunnar, sem ekki taldi sér fært að gefa upp númer og gerð- ir bílanna, var hér ekki áfeng- isnéyzlu um að kenna. fagnaður Æ. F. FYLKINGARFÉLAGAR! Æskulýðsfylkingin í Reykja-1 I vík heldur áramótafagnað á | I nýársnótt. Upplýsingar eru gefnar i | I skrifstofu ÆFR í Tjarnar-1 götu 20, símar 17513 og 22399.. um. Er hún á auðu svæði á Kringlumýrarbletti austan við kirkju óháða safnaðarins. Einnig aengst ÍBR fyrir stórri brennu i Laugardal norðan íþrótta’eik- vangsins. Á Kiambratúni hefur jafnan verið stór brenna, en nú verða har hrjár smábrennur, bar sem aðstæður leyfa ekki stóra brennu. í Sörlaskjóli og við Ægissíðu verða tvær eða þr.jár stórar brennur, sem eru í umsiá eínstaklinga. Fyrir jólin var kveikt í allmiklum báikesti, er strákár voru búnir að draga saman í nánd við Sundlaugarn- ar. Hafa beir nú aftur komið sér upp talsverðum bálkesti. Víðar um bæinn verða allstórar brennur, en þetta munu vera hinar helztu. Rcfstöðvsrbnini á Þórshöfn Uafstöðvarhú&ið á Þórshöfn á Langanesi brann í gær og eyði- Iagðist með öllu. Stöðin var lítil en ekki um aðra raforkuframleiðslu að ræða á staðnum, svo tjónið er tilfinn- anlegt fyrir kauptúnið. Bardagar hafnir að nýju í Katangafylki í Kongó? LEOPOLDVILLE og ELISA--»>Bandaríkjaforseta, Home, utan- BETHVILLE 29 12 — Tshombe, „iorseti" Katanga, hélt því fram í dag að sveitir úr her sam- bandsstjórnarinnar í Leopold- ville hefðu ráðizt á stöðvar Katangahers í norðurhluta fylk- isiins og notið til þess aðstoðar flugvéla SÞ. Hann skýrði einnig frú því að hann hefði sent skeyti með um- kvörtunum til U Thant, fram- kvæmdastjóra SÞ, Kennedys ríkisráðherra Breta, og Adúla, forsætisráðherra í Leopoldville. 1 skeytinu til Kennedys kvartar hann undan „undirróðursstarf- semi“ sérstaks sendimanns for- setans í Kongó, Edward Gullion. Stjórnin í Leopoldville hefur svipt Albert Kalondji, „forseta“ og áður „konung“ í Suður- Kasai, þinghelgi og fyrirskipað handtöku hans. Hann er sakaður um að hafa látið misþyrma pólitískum andstæðingum sínum. Berlínarviðræður - efffr áremot BIOSKVU 29/12 — Bandaríski eendiherrann í Moskvu, Llewcll- yn Thompson, sem falið hefur verið það verkefni að athuga möguleika á samningaviðræðum íim Berlínarmálið milli Sovét- ríkjanna og vesturveldanna, mun hitta sovézka ráðamenn að máli etrax eftir áramótin. Adenauer, forsætisráðherra V- Þýzkaiands, sagði í blaðaviðtali i dag, að búast mætti við því að samningaviðræður um Berlín Jiæíust upp úr áramótunum. BráSahirgSasamkomuIag hefur náSsf i ,Jceknadeilunni" Læknaþjönustan mun verða nær öbreytt til 1. apríl í vor Gert hefur verið bráða- birgöasamkomulag í ,,lækna 3eilunni“ svonefndu og er gert ráð fyrir því að það standi til 1. apríl, að því er Arinbjörn Kolbeinsson, for- maður Læknafélags Reykja- víkur, skýrði Þjóðviljanum frá í gærkvöldi. Felur þetta samkomulag í sér aðeins ó- verulegar breytingar frá fjrrri samningum, bæði fyrir lækna og sjúklinga. Stjórn Læknafélags Reykjavík- ur hélt fund í gærkvöld og var þar failizt á tillögu Sjúkrasam- lags Reykjavíkur um þráða- þirgðasamkomulag, sem ætlazt er til að standi þrjá fyrstu mán- uði ársins. Arinbjörn lét svo ummælt að samkomulagið fæli ekki í sér lausn sjálfrar deilunnar. En ver- ið hefði farið að hilla undir sam- komulag í ýmsum atriðum og verður umræðum um varanlega lausn haldið áfram. Tillögur Sjúkrasamlagsins varð- andi varanlega lausn gera ráð fyrir breytingum á tryggingalög- gjöfinni, en þeim mun óhægt að koma við fyrr en í febrúar, þeg- ar Alþingi kemur saman, sagði Arinbjörn enníremur. Bráðabirgðasamkomulagið væri byggt á gamla samningnum, og veldur einungis óverulegum bi'eytingum í aðstöðu lækna og sjúklinga. Má því segja að iæknaþjónustan haldi áfram ó- breytt eftir áramótin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.