Þjóðviljinn - 06.01.1962, Side 9
4) — ÓSKASTUNDIN
Laugardagur 6. janúar 1962 — 8. árgangnr. — 1. tiilublað.
Litla kisa og
Rebbi gamli
Síðastur gekk Rebbi
gam'li íram, og leiddi Litlu
kisu.
— Þetta er yngsta
dóttir mín, yðar hátign,
sagði hann og hneigði sig
djúpt fyrir Uglunni.
— Heilsaðu fallega,
barnið mitt, sagði hann
við kisu. ■— Mjá, sagði
Litla kisa.
sagði Uglan.
—• Neb hún er lík móð-
ur sinni, svaraði Rebbi,
og brosti svo að skein í
allar beittu tennurnar
hans.
Uglan fægði gleraugun
sín vandlega. Svo horfði
hún á kanínubörnin fimm,
fallegu börnin hennar
Dádýrið og Oturnn litla,
iádýrið og Oturinn litla,
sem var svo grafalvar-
legur. Síðan leit hún. aft-
ur á Litlu kisu og ákvað
að hún skyldi fá verð-
launin.
Hreykinn á svipinn
gekk Rebbi gamli fram
til að taka við kökunni,
en í sama bili heyrðist
voðalegur hávaði, og all-
ir fóru að gá hvað nm
væri að vera.
(Framhald).
Gullna skipið
Framhald af 2. síðu.
mín verður að rogast
með þessi horn á höfð-
inu.
— En herra konungur,
ég er eini maðurinn sem
þekki rétta lyfið, sagði
Toivo. Ég er alveg viss
um að lækningamáttur
þess hjálpar dóttur þinni.
— Reyndu þá, og ef
þér tekst skal ég strax
gera þig að yfirhershöfð-
ingja.
— Láttu læknana og
spekingana fara héðan,
sagði Toivo, og segðu
úrðmönnum þínum að
efna til veizlu. því ég
mun ekki aðeins losa
hana við hornin, heldur
skal ég líka gera hana
fegurstu konu í öllu
ríkinu.
Konungurinn skipaði
læknunum og speking-
unum ag hafa sig á
brott, og hann bauð hirð-
mönnunum að efna til
veizlu.
Þessi stafaþraut er eftir
Úlfar K. Jónsson, Eyri,
Fáskrúðsfirði, li ára.
Sagan um Wang Li
Eftir Elizabetli Coatsworth
Þessi saga gerðist fyr-
ir langa löngu austur í
Kína.
Ungur piltur, að nafni
Wang Li, bjó með móð-
ur sinni á litlum bónda-
fær um að kalla á fugla
himinsins, og láta þá
fljúga með okkur hvert
sem við óskuðum, og þú
hefðir getað breytt
krónublöðum blómanna i
peninga svo við gætunr
keypt allt sem hugur okk-
ar girntist. Vanþakkláti
sonur, snúðu þér aftur að
námi þínu.
En Wang Li hristi höf-
uðið. — Ég hef lært það
sem ég þarf að vita, sagði
hann. — Gott hjarta er
meira virði en stórt hús.
(Framhald). .
bæ, rétt fyrir neðan hæð-
ina stóru, sem kennd er
við stjörnurnar Sjöstjörn-
una. Þegar hann var lít-
ill drengur, lærði hann
ýms töfrabrögð hjá fræg-
um töframanni, sem bjó
einn sér uppi í fjöllun-
um. En þegar hann hafði
lært hjá töframanninum
í nokkur ár, lýsti hann
því yfir að nú færi hann
ekki fleiri ferðir upp
grýttan stíginn til þess
að nema töfra. Móðir
hans brást reið við þegar
hún heyrði þetta.
— Hérna hef ég þræl-
að við búskapinn án
þinnar hjálpar, í öll þessi
ár, svo þú gætir stund-
að nám þitt, og nú ætlar
þú að hætta við allt
saman. Að fáum árum
liðnum hefðir þú verið
Franskir skíðamenn ha'fa
að undanförnu vakið mikla
athygli fyrir prýðilega
frammistöðu á alþjóðlegum
skíðamótum. Fyrir skömmu
sáum
við grein um þjálfara frönsku skíðamannanna og
þær aðferðir sem hann notar við þjálfunina, en þær
þykja bæði erfiðar og furðulegar. Hér á ef tir fer aðal-
inntak þess sem franski þjálfarinn, Honoré Bonnet,
sem er 43ja ára, hafði að segja fréttamanninum sem
leitaði á hans fund.
Það var eiginlega fyrir tilvilj-
un að Horaoré Bonnet tók að
sér að þjálfa franska landsliðið.
Hann var flugmaður, þekktur
fjallgöngumaður og dvaldist
lengi éftfr stríðið í Austurríki
sem skíðaþjálfari og fjallgöngu-
maður, 1956 réðst hann sem
kennari við skíðaskóla í Cham-
onix. Þá skeði það að þjálfari
franska liðsins sem þá var lenti
í handalögmálum og var vikið
úr stöðu sinni fyrir bragðið. Þá
var Honoré Bonnet ráðinn í
hans stað.
„Egg-stíllinn“
— 1960 komum við fyrst fram
með nýjungar okkar, segir
Bonnet, sérstök málmskíði í
brunið og nýjan stíl, svonefnd-
an „egg-stíl“, sem vakti mikla
athygli. Á síðasta keppnistíma-
bili varð enn meiri framför og
okkur var betur ljóst hvaða
kosti þessar nýjungar höfðu í
för með sér. Hvort við erum á
undan öðrum — einkanlega
Austurríkismönnum — kemur
svo í Ijós í heimsmeistara-
keppninni í Chamonix.
Uppfinning Frakkatma: „Egg-
stíllinn“ í bruni.
Á árinu sem var að líða
lagði Bonnet höfuðáherzlu á
þrekþjálfun. í septemberlok og
nóvemberbyrjun safnaði hann
saman 15 skíðamönnum og 14
skíðastúlkum til æfinga í í-
þróttaskólanum í Aix-en Pro-
vence.
• • •
Franski skíðamaðurinn Guy Perillat var á síðasta ári talinn bezti
sldðamaður heims. Hann kvcðst þess fullviss, að hann muni sigra
sjálfan Toni Sailer í bruni ef hann væri í fullri þjálfun. Fles 'ljji
kunnáttumenn telja að heimsmeistaramótið í Chamonix í vetur
verði nokkurskonar „Guy-PeriIlat-hátíð“.
Erfiðar æfingar
Þar sem „egg-stíllinn“ byggist
á því að skíðamaðurinn hefur
handleggina þétt við líkamann
í bruninu, urðu þau að fram-
kvæma hinar erfiðustu æfingar
Framhald á 10. síðu.
Laugardagur 6. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN —