Þjóðviljinn - 12.01.1962, Qupperneq 5
heitir kviikmynd sem
9|L6f8g$al ÖC^yriiin ““ Bandaríkjamenn hafa í
smíðúm og fjallar hún um daginn þegar innrásin var gerð í
Evrópu árið 1944. Einn af Jeikurunum í myndinni er Peter Lawford
scm sést hér á myndinni, brezkur maður að ætt, en nú kunnastur
fyiir það að hann er mágur Kenncdys Bandaríkjaforscta.
Kjarnorkuskip í
tilraunaskyni
MÁLMEY — Sérfræðingar þeir
sem ýmsir útgerðarmenn á Norð-
urlöndum hafa ráðið til að segja
fyrir um smíði kjarnorkuknúins
kaupfars í tilraunaskyni sitja nú
á fundi í skipasmíðastöð Kock-
ums hér í bæ. Ætlunin er að
skip þetta verði 15.000 lestir. Það
voru norskir og sænskir skipa-
eigendur sem áttu írumkvæðið að
smíði skipsins, en nú hafa bætzt
við útgerðarmenn frá Danmörku,
Bretlandi. Hollandi, Belgíu,
Frakklandi og Vestur-Þýzkalandi.
áttræður flug-
stjéri níuðlenti
NEW YORK — Áttræður fast-
eignasali að nafni William S.
j Read sem fékk flugstjóraréttindi
j þegar hann var 75 ára gamall,
nauðlenti á götu einni hér um
daginn. Read sem hafði boðið
nokkrum kunningjum sínum með
sér i skemmtireisu uppgötvaði
allt í einu að hann var kominn
nokkug lágt og sá að hann
stefndi á háspennutaugar. Tók
hann þá heldur þann kost að
lenda á næstu götu. Engan mann
sakaði og var karl hinn hress-
asti þegar að var komið.
Hlýrri og lengri
sumur í
CAMBRIDGE — Það má búast
við að sumrin í Evrópu verði
bæði hlýrri og Iengri nú.
Þetta er niðurstaða fimmtíu
vísindamanna sem setið hafa
á ráðstefnu í Cambridge á veg-
um háskólans þai’, en þeir
skiptust á skýrslum um rann-
sóknir á skriðjöklum á jörðinni
allri.
Þegar þeir höfðu borið saman
plögg sín varð niðurstaðan sú,
að búast mætti við meira sól-
skini og hlýindum í Evrópu, en
hins vegar myndi kólna á megin-
landi Norður-Ameríku. Þeir ráða
þetta m.a. af því að á undan-
förnum árum hafa skriðjöklar í
Evrópu minnkað, en hins vegar
hafa jöklar í norðvesturhluta
Ameríku vaxið.
Á ráðstefnunni sem haldin var
í tilefni af 25 ára afmæli brezka
jöklafræðifélagsins var lagt til
að miklu betur yrði fylgzt með
jöklum og ísmyndunum á heim-
skautssvæðunum. Það skiptir
miklu máli að vitað sé hve mik-
ið ísmagn bráðnar á þessum
slóðum, þar eð ísinn sem þar
er myndi hækka yfirborð úthaf-
anna um 45 metra ,ef hann
bráðnaði allur.
Samskipti Þjéð-
verja og Isrzals-
maiiEia
JERÚSALEM 10/1 — Þjóðþing-
ið í ísrael felldi í dag með 37
atkv. gegn 25 tillögu frá stjórn-
arandstöðunni um að slitið skyldi
öllum menningartengslum við
Þýzkaland.
Umræður um menningarsam-
skipti við Þýzkaland hafa staðið
í heila viku í þinginu. Mennta-
málaráðherrann, Abba Eben,
sagði að menningarsamskiptin
við Þýzkaland myndi að vísu
lengi framvegis fara fram í
skugga glæpa nazistatímabilsins.
-Gyðingaþjóðin gæti ekki gleymt
því helvíti sem hún varð að
ganga ,í gegnum vegna ofsókna
nazista. Framvegis verður gyð-
í.ngum frá Israel heimilt að taka
þátt i ráðstefnum og fundum I
Þýzkalandi, og Þjóðverjar fá
heimild til hins sama í fsrael.
Útbreiddasta blað Norðurlanda,
Expressen í Svíþjóð, hefur birt
greinar eftir einn af blaðamönn-
um sínum sem sendur var til að-
alstöðva Siðvæðingarhreyfingar-
innar í Caux í Svisslandi og
kann hann frá ýmsu að segja
þaðan.
Blaðamaðurinn, Gösta Ollén,
lýpir samkomu í fundarsalnum
í Caux og segir m.a.:
„Bandaríkjamaður skýrir frá
því á sviðinu, að hann sé skóla-
bróðir Kennedys forseta, að
Óv@niuleift frost
í Bgndaríkjunutn
NEW YORK 11/1 — Víðast hvar
í Bandaríkjunum eru nú meiri
frosthörkur en elztu menn muna,
og jafníramt iþví hefur kingt nið-
ur snjó, einnig í suður og suð-
vesturfylkjunum, iþar sem veð-
ur er venjulega milt á þessum
tíma árs, eins og t.d. í Flórida.
1 New Orleans þar sem venju-
lega er allt að því hitabeltislofts-
lag er nú svo mikið frost að
aflýsa hefur orðið hestaveðhlaup-
um sökum ísingar á skeiðvöllun-
um.
í Colorado hafa mælzt allt að
íimmtíu frpststig og einu betur
og í 22 fylkjum Bandaríkjanna
er meðalhitinn 15 stigum fyrir
ndðan frostmark. í norðuMjikj-
unum hefur sums staðar fallið
metradjúpur snjór síðasta sólar-
hring og þar er umferð um þjóð-
vegi víða algerlega í lama-sessi.
„Jack“ haldi fram hjá konunni
sinni („það vita allir í Holly-
wood“) og að „Jack“ hafi eina
nótt verið annars staðar en hjá
.,Jacki.e“, „og það meira að segja
alveg til klukkan hálf þrjú“.“
Ollén rak sig óþyrmilega á það
að siðvæðingarmenn virðast ekki
hugsa um anuað en kynferðis-
mál, ekki sízt kynvillu. Hann
lýsir því hvernig maður sá, ein-
hver mr. Blaier. sem var félagi
hans log leiðbeinandi meðan iiann
var í Caux. fór að lýsa fyrir
honum sínum eigi.n kynferðis-
málum. en reyndi um leið til að
fá ODén ti) að leysa frá skjóð-
unni. Á samkomum standa menn
upo og gefa skýrslur um slík
mál og bví „sóðalegri sem lýs-
ingarnar eru því betri eru und-
i.rtektirnar og barizt er gegn
.komúnismanum með hinum ýt-
arlegustu l.vsingum á raun-
verulegum eða ímynduðum synd-
um sjálfra vitnanna eða ann-
arra“.
Kaur'mannahafnarblaðið In-
formatinn sem endurprentar
kafla úr prein Olléns minnir á
að það hafi áður birt svioaðar
frásagnir af beim siðvæðingar-
mönnum. Þannig gat prestur
pinn sem verið hafði í Caux
sk.ýrt frá bví að honu.m hefði
vori.ð sagt í trúnaði að tiltekinn
v,ingmaður brezka Verkamanna-
f'okksins væri „hættulegur
immmúnisti". en auk bess hefði
honúm „verlð refsað tvívegis
fvrir kynvi)llu“. Fimrn öðrum
nrprtum ppm honum voru sam-
tfmis í Caux var sögð sama
sagan, einnig ,.í trúnaði".
Hefur §rœH 3 milljénir á
getruunum síðustu mánuði
TORINO — „Ilcppnasti maður á
llalíu", efnafræðingurinn Pier
Giovanni Vallauri frá Torino,
vann enn í knattspyrnugetraun-
unum um síðustu helgi. Ilann
hefur þá samtals unnið um
þrjár miiljónir króna í getraun-
um síðan hann byrjaði að taka
þátt í þeim snemma í vetur.
VIENTIANE 11/1 — Nosavan
hershöfðingi, helzti foringi hægri-
manna í Laos, sagði í dag að litl-
ar líkur væru á því að hægt
yrði að semja um myndun sam-
steypustjórnar í landinu. Takist
það ekki er samkomulagið sem
gert var á. ráðstefnunni í Genf
farið út um þúfur.
HÖFUM TEKIÐ FRAM MEIRA AF
ÚTSÖLUVÖRUM. KJÓLAR Á AFAR
LÁGU VERÐI FRÁ 100 KRÓNUM
Rauðarárstíg 1
Sendisveinn óskast
eftir hádegi. Þarf að hafa hjól.
Þjóðviijimt. — Sími 17-500.
Föstudagur 12. janúar 1962 ÞJÖÐVILJINN — (5
<,