Þjóðviljinn - 02.02.1962, Blaðsíða 1
Bsrgþér Finn-
bogas&n tekur
sæti á AEþingi
Bergþór Finnbogason,
kennari á Selfossi, tók í
gær sæti á Alþingi, en
hann er 1. varaþingmaður
Alþýðubandalagsins á Suð-
urlandi.
Tekur hann sæti Karls
Guðjónssonar, 6. þingmanns
Suðurlands, sem boðaði
veikindaforföll.
Kjörbréfanefnd athugaði
kjörbréf Bergþórs og lagði
einróma til að kosningin
yrði tekin gild log kjör-
bréfið samþykkt. Var það
gert með samhljóða at-
kvæðum fundarmanna.
Tveir aðrir varaþingmenn
tóku sæti í Alþingi í gær:
Jón Pálmason fyrir Einar
Ingimundarson, og Einar
Ágústsson fyrir Þórarin
Þórarinsson, en kjörbréf
þeirra beggja hafði óður
verið athugað og samþykkt.
Stuttur fundur var í sam-
eihuðu þingi í gær.
15-1957
• Á tímabilinu 1945 — 1957 jókst þj íðarauður íslendinga úr 7.609 milljón-
um króna í 13.465 milljónir, og er þá í bæði skiptin miðað við verðlag árs-
ins 1954. Þjóðarauðurinn jókst þannij um þrjá fjórðu á þessu tímabili og
er það bein afleiðing af þeirri aukni igu þjóðarframleiðslunnar sem áður
hefur verið skýrt frá hér í blaðinu.
• Kaupmáttur tímakaupsins hefur hinsvegar hvorki haldizt í hendur við
vaxandi framleiðslu né vaxandi fjár nunamyndun. Kaupmáttur tímakaups
Dagsbrúarverkamanna er nú meira e i 17% lægri en hann var 1945.
Ábending til Benjamíns
Eins og áður er sagt birtast
upplýsingarnar um þjóðarauð Is-
lendinga í tímaritinu „Úr þjóð-
arbúskapnum“. Áður en Benja-
mín Eiríksson gerir athugasemd
við þessa frétt skal honum bent
á það að útgefandi tímaritsins
er Framkvæmdabankinn og hann
er sjálfur talinn stjórnandi hans.
Tölurnar um þjóðarauð íslend-
inga og aukningu hans er að
finna í ritgerð eftir Valdimar
Hergeirsson viðskiptafræðing í
síðasta hefti tímaritsins ,.Úr
þjóðarbúskapnum“. í rannsókn
sinni skiptir hann þjóðarauðnum
í þrjá meginflokka:
1. Einkafjármunir, en í. þeim
flokki eru talin íbúðarhús og
fólksbifreiðir 6 manna og minni.
Verðmæti þessara eigna hefur
1 aukizt úr 3.133 milljónum króna
árið 1945 í 5.257 milljónir króna
árið 1957. Nemur sú aukning
68%.
2. Framleiðsiufjármunir, og
eru þar talin atvinnutæki og
aðrar eignir sem notaðar eru til
atvinnureksturs. Verðmæti þeirra
eigna - hefur aukizt úr 2.761
milljón króna árið 1945 í 5.852
milljónir króna árið 1957. Sú
aukning nemur 112%
HÆGT HEFÐI VERIÐ AÐ
ÁKVEÐA HÆRRA FISKVERÐ
Sl. mánudag felldi yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins úr-
skurð um verð á þorski og ýsu,
eins og frá hefur verið skýrt
í fréttum. f fyrrakvöld felldi
nefndin svo úrskurð um verð á
öðrum fisktegundum og á fundi
nefndarinnar í gær var gengið
endanlega frá útreikningum á
hinum ýmsu verðflokkum. Er
hin nýja fiskverðsskrá birt í
heild á 10. síðu blaðsins í dag.
Þjóðviljinn hitti Tryggva
Helgason, fulltrúa sjómannasam-
takanna í yfirnefndinni, að máli
í gærkvöld og spurði hann um
áiit hans á úrskurði nefndarinn-
ar.
Tryggvi kvaðst ekki hafa getað
samþykkt»hann og greitt atkvæði
á móti honum í nefndinni. Var
úrskurðurinn samþykktur með
atkvæðum fulltrúa fiskkaupenda,
fulltrúa LÍÚ og oddamanns
I nefndarinnar.
Tryggvi sagðist vilja gera þá
grein fyrir þessari afstöðu sinni
í nefndinni, að þrátt fyrir það að
nú hafi legið fyrir mjög ófull-
nægjandi gögn um rekstur frysti-
húsanna til þess að gera sér
grein fyrir reksturskostnaði
þeirra í ýmsum greinum og nýt-
ingu fisksins, þá teldi hann þær
upplýsingar sem fyrir lágu hafi
gefið tilefni til verulega hærra
fisksverðs en þess sem ákveðið
Framhald á 10. síðu.
3. Opinberir neyzlufjármunir,
og eru þar taldar framkvæmdir
vegna hópþarfa þjóðfélagsheild-
arinnar, samgangna og slíks.
Þær eignir hafa aukizt úr 1.715
milljónum króna árið 1945 í
2.356 milljónir árið 1957 eða um
37%.
Samtals eykst þjóðarauðurinn
eins og áður er sagt úr 7.609
milljónum króna árið 1945 í
13.465 milijónir króna árið 1957
eða um 77%.
Allt er þetta verðlag umreikn-
að eftir verðlagi ársins 1954, en
á verðlagi ársins 1957 nam þjóð-
arauðurinn þá 17.662 milljónum
króna.
Ekki fylgzt að
Þessi mikla fjármunamyndun
eftir stríð er mjög athyglisverð
þegar þess er gætt að allan þenn-
an tíma hefur verkafólk orðið
,að heyja harðvítuga baráttu til
þess að halda óskertu raunveru-
legu kaupi og ekki tekizt það.
Kaupmáttur tímakaupsins er nú
tæplega 83 stig miðað við hundr
að árið 1945, þótt þjóðarauður-
inn hafi nú eflaust tvöfaldazt.
Verkafólk hefur þannig ekki
hlotið eðlilega hlutdeild í vexti
framleiðslu og fjármuna og að-
eins tryggt sér aukinn hlut
rneð ósæmilegum og linnulausum
þrældómi.
Havana 1/2. — Mörg þúsunð
glaðir og reifir Castro-sinnar fóru
í hópgöngu um götur höfuöborg-
arinnar í gærkvöldi og hylltu
stjórn Castrós. Sem tákn un»
heimsvaldastefnu Bandaríkj-
anna, báru þeir líkistu sveipaða.
svörtu klæði. Þeir sungu alþjóða-
söng verkamanna og nýjan vin-
sæla söng, sem heitir: „Við cruiu
sósíalistar“.
Verkalýðssamband Kúbu ga£
samtímis út yfirlýsingu, þar seru
sagt er að ráðherrafundurinn í
Punta del Este sé skrípaleikur
og hneyksli.
Kúbanska ríkisútvarpið bg
sjónvarpsstöðvar eyjarinnar
höfðu áður um daginn skorað á
hlustendur og áhorfendur að efná
til mótmælafunda sem stefnfe
væri gegn samtökum Ameríku-
ríkjanna.
Braggaíbúðir
í Reykjavík búa enn fjölmargar fjölskyldur í skálum, scm byggðir
voru til bráðabirgða fyrir um og yfir 20 árum handa erlendum
hermönnum. Einna flestir íbúðabragganna eru í Knox-hvcrfi í
vesturbænum — og er myndin þaðan, tekin í gær í tilefni af um-
ræðum um húsnæðismál í borgarstjórn.
SIÐA