Þjóðviljinn - 11.03.1962, Side 6

Þjóðviljinn - 11.03.1962, Side 6
þlÓÐVlLJINN 6lc«fanðl: Bam«)nlns&rflokknr alþýBa — Sðsiallstaflokknrlnn. — Rltatlórars liasnús KJartansson (áb.). Magnús Torfl Ólafsson. Slgurður Quðmundsson. — FréttarltstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýslngastjórl: Quðgslr Magnússon. — Rltstjórn. afgreíðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. ■lml 17-500 (5 línur). Askrlftarverð kr. 55.00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. PrantsmlðJa Þjóðvlljans bi. Hernámssiðgæði ^lltaf er íslenzku þjóðfélagi að fara fram. Sú tíð er liðin að þjófnaður þætti eitt af undrum veraldar á Islandi, að þeir menn virtust sjúklega þjófhræddir sem læstu húsum sínum og hirzlum, að svik væri eitt- hyað sem gerðist í hinum stóru og spilltu útlöndum. Okkur hefur sannarlega farið fram og aldrei eins ört og síðustu áratugina, og nú er svo komið að við erum orðnir jafnokar þeira sem fremstir standa; jafn- vel upphæðir þær sem hér er stolið og rænt myndu sóma sér hjá hvaða stórþjóð sem er. Og það eru eng- ir útigangsmenn í þjóðfélaginu sem stunda þessa iðju, heldur þeir æðstu og voldugustu, menn sem hlotið' hafa sérstaka háskólamenntun til þess að vernda lög- in, eintómir framkvæmdastjórar og fomstumenn í samvinnurekstri og einkarekstri, og aðalleiðtoginn er æðsti ráðamaður þjóðarinnar í efnahagsmálum, sjálf- ur seðiabankastjóri landsins, maðurinn sem hefur nú jafnvel fengið vald til þess íað ákveða gengi ís- lenzkrar krónu. Með þvílíku afreki höfum við raun- ar skotizt langt fram úr öllum nálægum þjóðum; að- eins í Suður-Ameríku og sumstaðar í Bandaríkjunum myndi unnt að finna hliðstæður ef vel væri leitað. övernig stendur á þessari öru framþróun í þjófnaði og svikum, hvað kemur til að kunnir fyrirmenn í þjóðfélaginu sitja á sakabekk, og það er talað um að einn hafi stolið níu milljónum króna, aðrir hafi svik- ið undan gjaldeyri sem nam rúmum sex milljónum króna, að þeir hafi stimdað smygl í stórum stíl, bók- haldsfalsanir, svik og pretti. Skýringin er augljós, öll jþessi iðja er stunduð í skjóli hemámsins og er bein afleiðing þess. Olíufélagið h.f., þar sem blandað er sam- an fjármagni samvinnuhreyfingarinnar og einkaauð- valdsins, hafði um langt skeið einkarétt á viðskiptum við hernámsliðið á Keflavíkurflugvelli og í Hvalfirði. Það fékk tekjur sínar greiddar í dollurum — og eftir- litið með dollurunum var í höndum Vilhjálms Þórs. Svikin voru framkvæmd með virkri og vel borgaðri aðstoð yfirmannanna á Keflavíkurflugvelli, þeir föls- uðu skýrslur þegar þurfti að smygla vamingi til landsins; í aðalstöðvum Standard Oil í Bandaríkjun- um var einnig aðstoðað dyggilega við svikin, pening- arnir voru færðir af einum leynireikningnum á ann- an, þar til þeir voru komnir í kauphallirnar í Wall Street og alla leið til Sviss. Þetta stærsta svika- mál í sögu íslands var skipulagt sameiginlega af hernámsliði og hermöngurum, og í því birtist hernáms- siðgæðið eins og í brennigleri. Fínir menn í hópi her- námssinna segja stundum að þeir vilji ekki láta ameríkaníséra okkur; en það er verið að ameríkaní- séra okkur dag hvern, kasta fyrir borð gömlum og úr- eltum hugmyndum um heiðarleik og siðgæði og sóma- samlega hegðun, þar til hinir æðstu borgarar birtast iallt í einu sem útfarnir afreksmenn. Það er hernámið sjálft sem situr á sakabekk í olíumálinu. Pnnþá hrekkur íslenzkur almenningur við þegar hon- ^ um berast slrkar fregnir. En þeir menn sem stjórna þjóðfélaginu kippa sér ekki upp við smámuni. Það hefur verið vitað í meira en tvö ár að Vilhjálmur Þór befði á nýjan leik gerzt sekur um hin herfilegustu lögbrot og svik, en engu að síður heldur hann enn sínu tigna embætti og hefur meiri völd en nokkru sinni áður. Trúlega hafa stjórnarvöldin áhyggjur af iþví einu hvaða orðu eigi að sæma hann daginn sem hann verður dæmdur, því hann er nú þegar búinn að fá þær allar. Málsóknin í olíumálinu er leifar frá liðinni tíð; nútíðin birtist í því að hinir seku munu allir halda aðstöðu sinni og völdum í landinu, ef her- námssiðgæðið á enn að fá að halda áfram að sýkja ís- lenzkt þjóðfélag. — m. HVAÐ GERA ÞEIR í FISKIDEILDINNI? Ingimar Óskarsson við smá- sjána þar sem hann „les“ kvarn- ir og skráir æviskeið þorsksins. Það er sagt að maðurinn fari með leyndarmál sín í gröfina. Má vera að rétt sé. Megi treysta þeirri fuilyrðingu stendur vesa- lings þorskurinn manninum ver að vígi. Leyndarmál þorsksins koma í Ijós þegar hann er dauð- ur. í áratugi hefur maður setið hér meðal vor Reykvíkinga við að lesa og skrá leyndarmál þorska sem fyrir töngu voru seldir og étnir. Jafnvel hin mestu Ieyndarmál, eins og t.d. hvað þ«(rskamamma hafi oft átt vingott við karlinn sinn liggja opin fyrir þessum manni. Án er ógaafu nema heiman hafi. Og vesalings 'þorskurinn geymir í sjálfum sér þann grip sem kjaftar frá þegar hann er dauður. Hvað er það í þorskinum sem kjaftar frá? Það eru kvarn- irnar. Það er stundum sagt um terggáfaða menn að þeir séu dæmalausir þorskhausar og kvarnirnar hringli í hausum þeirra. En haldi einhver því fram að kvamirnar hringli í höfði þorsksins, iþá er það ó- makleg aðdróttun og bein lygi. 1 spjallinu undanfarið hafa fiskifræðingarnir stöku sinnum minnzt á „kvarnalestur", og þeg ar Jón Jónsson sagði okkur frá þórskinum benti hann á að fróðlegt myndi reynast að líta inn til aðstoðarmannsins Ingi- mars . Óskarssonar og kynnast ,,lestrarlagi“ hans. Og nú erum við komnir inn til Ingimarsi. þar sem hann situr við smá- sjána með hvítan smámola. — Hvað fremur þú hér, Ingi- mar? — Ég geri hér ekkert annað en ákvarða aldur á þorski og ýsu ... Já, ég byrjaði á þessu hjá Árna Friðrikssyni og hef unnið við það síðan. — Hvernig „ákvarðið“ þið aldur þorsksins? — Við lesum hann af kvörn- unum, —•. Hvemig er hægt að lesa aldurinn af kvörnunum? — Fyrst þegar ég byrjaði var notuð sú aðferð að slípa kvörn- ina. Eftir að ég kom hingað var því hætt. Lesturinn er auð- veldastur með því að taka kvörnina í sundur þar sem hún- er breiðust, þar er miðja henn- ar, og lesa hana óslípaða. Kvarnimar myndast í vökva í höfði þorsksins. Það sezt lag á þær bæði vetur og sumar, það myndast hringir eins og t.d. í tré. Á vetrum er fæða þorsksins blönduð kalki, en á sumrin er í henni meira af lífrænum efnum. Litur laganna í kvörnunum er því ljósari á vetrum, dekkri á sumrum. A því byggist að hægt er að lesa aldur fisksins af kvörnunum. — Er ekki vandasamt og seinlegt að lesa kvarnir? — Jú, hver hringur getur ver- ið tættur sundur af mörgum smáþráðum og þess vegna þarf mikla æfingu til þess að verða INGIMAR ÓSKARSSON LJÓSTRAR UPP LEYNDARMÁLUM UM UPPELDI, ÁSTIR OG ÆVISKEIÐ ÞORSKSINS ÆVISKRÁR ÞORSKSINS leikinn í að lesa þessa hringi örugglega; það tekur a.m.k. ár að verða leikinn í þessu. Því norðlægari sem fiskurinn er því auðveldara er að Iesa aldur hans. rt Nú ertu að skopast að. mér? — Nei. Þegar lífsskilyrði fisksins eru lík allt árið verður minni ski'lsmunur milli sumar- og vetrarhringanna. Það er vafasamt að hægt væri að lesa kvarnir þorsks sem væri alinn upp í vatnsbúri. Við tölum því um norrænar gerðir kvarná; hringimir í þeim eru mjórri og skarpari. Verður vöxtur fisksins minni þegar hringirnir em mjóir. — Eitthvað hef ég heyrt um að þið notið hreistrið til að sjá aldurinn, — hvers vegna lesið þið ekki aldurinn af. hreistri iþorsksins? — Það er vegna þess að varla er hægt að ákvarða aldur íþorsks af hreistrinu nema fram- an af ævi hans, en þegar ald- urinn færist yfir verður hreistr- ið óglöggt. Þess vegna -er ald- ur þorska lesinn af kvörnunum, annaðhvort vetrar- eða sumar- hringum. Sumarhringirnir byrja mis- munandi snemma að myndast, eftir því hvar þorskurinn elst upp. Um mánaðamótin júní- júlf sést örugglega, að sumar- belti er byrjað að myndast, að- alvaxtartími fyrir sumarhringi eru júlí- og ágústmánuðir. Vetr- arhringirnir byrja oftast í sept- ember og geta. vaxið fram í apríl-maí, og fer það eftir fæðu og hi.tastigi. Hrygning byrjar í marz-apríl og þá eru vetrar- hringirnir myndaðir, en þó get- ur því skeikað nokkuð eftir því hvar þorskurinn hefur alizt upp. — Hvenær teljið þið fiskinn þá hafa fyllt árið? — Aldurinn er miðaður við áramót, þótt fiskurinn fæðist ekki fyrr en í marz, og þó að kominn sé vetrarbaugur í des- ember telst það ekki með fyrr en eftir áramót. Nú eru nokkur ár síðan farið var að lesa meira út úr kvörn- unum en aldurinn einan. Það er líka hægt að sjá á kvörnunum við hvaða skilyrði þorskurinn hefur aiizt upp. Það er hægt vegna þess að sumarbaugarnir verða miklu stærri en vertar- báugarnir, vegna nægrar fæðu á .sumrin — og sá þroski kem- ur fram á vexti fisksins sjálfs jafnframt hringunum í kvörn- inni. Vöxtur hringanna í kvörn- inni og fisksins sjáifs eru því hlutfallslega jafnir. í öðru lagi má sjá hvort hann er alinn upp í heitum eða köldum ’sjó — vöxturinn er miklu hægari í köldum sjó. Loks er svo farið að lesa af kvörnunum. hve oft fiskurinn hefur hrygnt. Baugamir í kvörnunum verða þá mjórri og við köllum þá gotbauga til að- greiningar frá vaxtarbaugunum. Gotbaugarnir eru reglulegir og Kvarnarhlutir úr 10 ára gömlum þorski, veiddum við Suðvestuij- iand. Dökku hringirnir myndast á sumrin og kallast sumarhring- ir, ljósu hringirnir kallast vetrarWringir. Tveir yztu dökku hring- frnir eru það sem nefndir eru gotbaugar og sýna að þorskurinn sem kvðrnin er úr hefur hrygnt þrisvar. EVRÓPSKIR HÖFUNDAR HALDA MNG í FLÓRENS FLÓRENS — Dagana II.—15. marz verður haldið hér í Flórens þing evrópskra {rithöfunda og munu sitja það um 300 rithöf- undar frá flestum löndum Evrópu þ.á.m. sjö nóbelsverðlaunahafar: Halldór Kiljan Laxness, Ivo Andric, Francois Mauriac, Salva- tore Quasimodo, Hermann Hesse, T. S. Eliot og Bertrand Russel. Auk Kiljans sækir Thox Vil- hjálmsson þ;ngið frá íslandi. Til ráðstefnunnar er boðað af Evrópska rithöfundasambandinu (Comunitá eurapea degli scrittori) sem stofnað var fyrir tveimur árum fyrir frumkvæði ítalska rithöfundarins G. B. Angioletti. Sambandið 'hefur haft aðalstöðv- ar sínar í Napoli, en þær hafa nú verið flutt til Flórens. iHelzta mál á dagskrá þingsins verður „samband rithöfunda við kviikmyndir og sjónvarp“ og liggur skýrsla fyrir því um það. Ritari sambandsins, Giancarlo Vigarelii, skýrði blaðamönnum hér frá þinginu og gerði jafn- framt grein fyrir starfsemi og markmiðum sambandsins. Hann sagði m.a.: „Ráðizt hefur verið á Evrópska rithöfundasamband- ið og það sakað um að vera pólitískur félagsskapur. Sé það pólitík að efna til samvinnu allra Evrópuþjóða um menningarmál, þá er ... ■ féiagsskapur okkar póli- tískur. Við játum einnig á okk- ur afskipti af stjórnmálum, ef það, er pólitík að vinna gegn stríði". Frá því sambandið var stofn- að hefur félögum þess fjölgað úr tveknur ihundruðum í eitt þúsund og það. hefur staðið fyrir verður kosinn á þinginu í Flór- margskonar samskiptum rithöf- ens og er búizt við að það verði unda og annarra menntarnanna í ítalski höfundurinn • Giuseppe Evrópu. Nýr forseti- sambandsins Ungaretti. ■ "■iiii '11mi , ' i'i i mjórri en vaxtarbaugarnir og minna í þeim um þræði sem o£t eru í vaxtarbaugunum. Þorskurinn byrjar örlítið að verða kynþroska 3ja ára( en að- eins mjög lítill hluti stofnsins. Meginhlutinn verður kynþroska á aldrinum 8—10 ára. Þó hef ég séð kvarnir úr 14 ára þorski sem þá hafði hrygnt í fyrsta skipti. — Hvernig fáið þið allt þetta kvarnasafn? — Kvarnimar fáum við frá mönnum í verstöðvunum, serh valdir hafa verið til þess að annast kvarnatöku fyrir okkur. Þeim hefur verið kennt að taka kvarnir, „kvama“, mæla stærð fisksins og greina kyn hans. Þeir senda okkur síðan kvarn- ir og tilgreina veiðitíma, ver- stöð, Iengd, kyn og kynþroska, — Fáið þið kvarnir víða að? — Aðallega frá Vestmanna- eyjum og Keflavík. Við fengum þær líka frá Akranesi áður, og erum aS reyna að fá þær þaðan aftur. Auk þess eru teknar kvarnir í leiðöngrum fiskideild- arinnar og þá alloft úr ung- fiski inni í fjörðum, þar sem aðrir mega ekki veiða. — Hvers vegna veiðið þið þar? — Það er ekki rétt að tala um veiði í þess orðs merk- ingu, því það er aðeins gert til þess að fá hugmynd um á hvaða aldri ungfiskurinn- er á 'hinum ýmsu stöðum. — Af hve gömlum fiski bú- izt þið v-ið að fá mest af í vet- ur? — Eins og Jón Jónsson hefur áður sagt þér eru árgangamir rnjög missterkir. Það var mikið af 6 ára þorski í fyrra og von- azt eftir miklu af honum núna; þess er vænzt að hann verði ráðandi í aflamagninu. Sá árgangur sem var ráðandi í aflanum í fyrra og hitteðfyrra er 12 ára nú, og hefur því hall-^ að undan fæti fyrir honum og' hann ekki til frambúðar, en sá árgangur var töluvert sterkur. Það er áætlað að það verði 6.6% af honum í vetraraflanum. En ef hann verður við Græn- land getur það ruglað rímið. — Getið þið þekkt græn- lenzkan þorsk frá íslenzkum? — Jú, það er hægt af því að vöxturinn er minni á þorski sem elzt upp við Grænland en ísland. Svo finnst mér að það sé annar blær á kvömunum úr þorski frá Grænlandi. Blær- inn á brotsárinu L kvörnum úr grænlenzkum þorski minnir á jökulblik. Það er samt ekki alltaf hægt að þekkja græn- lenzkan þorsk frá íslenzkum. En ef 10—12 ára fiskur hefur marga, t.d. 5, gotbauga þá er hann naumast íslenzkur. — Þið búizt við mestu af 7 ára þorski í vetur — en er ekki mikið af miklu eldri þorski í sjónum? — Hér veiðist nú yfirleitt ekki eldri þorskur en 12 ára, nema einn og einn á stangli. — Getur þorskurinn ekki orð- ið eldri? .— Jú, jú. Fyrstu árin efti-r 1950 var ekkert sjaldgæft að fá örlítið af kvörnu.m úr 14—16 ára gömlum þorski. — En hversvegna ekki nú? — Fiskurinn hafði meiri frið í sjónum þá og gat hrygnt oft- ar. Þetta ér mjög eðlilegt þegar athu.gað er hve veiðisóknin er mikíl nú. — Hve gamall getur þorskur- inn orðið? — Elzti þorskur sem ég veit til að veiðzt hafi í norðurhöf- um veiddist við Noreg, 26 ára gamatl. Elzti þorskur sem ég hef fengið kvarnir úr var 24ra ára, veiddur við Homafjörð. Lengsti þorskurinn sem þér hefur veiðzt veiddist líka út af Hornafirði. Hann var 154 cm og mun hafa verið eitthvað yfir 20 ára gamall. • ,,ElliheimiH“ þorskanna kvað vera út af Hornafirði; því ér haldið fram að þeir safnist þangað þegar þeir eru orðnir gamlir. — Lest þú ekiki kvarnir ■nema úr þorski? — Síðari árin hef ég einnig lesið ýsukvarnir, aldurshring- ina en ekki gotbaugana; það er afar örðugt að lésa þá á ýsu- kvörnum, því ýsukvamirnar vilja kristallast. Nú orðið er hinsvegar hverfandi lítið af þorskkvörnum sem ekki er hægt að lesa. — iHve mikið er árlega lesið af þorskkvömum? — Fyrst framan af voru að- eins þorskkvarnir lesnar og þá komst ég upp í 16.000 á ári. I fyrra var dálítið með af ýsu- kvörnum og þá las ég 12.000. Auk þess hafa svo verið endur- ákvarðaðar allar kvarnir frá því farið var að safna þeim hér, — safn frá dögum Bjarna Sæm- undssonar, en í þá daga hafði hann aðeins slæm tæki til að ákvarða aldurinn. — En þú ert nú ekki við eina fjölina felldur, Ingimar, hvað gerirðu fleira? — Nú orðlð hef ég ekkert annað starf hér en kvarnalestur, nema lítilsháttar að fást við skeldýr. Við skulum geyma þar til síðar að fræðast af Ingimar um skeldýrin. Athuganir á þeim eru ekki nerna lítið brot af því sem þessi fágæti maður hefur fengizt við um dagana og því skulum við næst reyna að fregna eitthvað fleira hjá hon- um en um skeljamar einar. J. B. Sýning Helgu Weisshcppel Helga hefur ekki sýnt áður, nema í Mokkakaffi fyrir tæpu ári. Nú sýnir hún vatnslita- myndir og eru það að mestu leyti hugmyndir. Frá því hún sýndi síðast í Mokkakaffi hefur henni fleytt fram. Vatnslitamyndirnar eru flest- ar litlar og gerðar frá litrænu sjónarmiði og með djörfum lit- um. Þessar litlu myndir minna oft á blóm eða sjávargróður og geri ég ráð fyrir að höfundur þeirra hafi hugsað sér eitthvað slíkt við gerð þeirra. Því vil ég geta þessarar fyrstu sýning- ar Helgu að mér finnst hún hafa sýnt þann dugnað og þreytuleysi í starfsemi sinni, sem óvenjulegt er. Á skömmum tíma er hún búin að fá sinn persónlega litaskala og sitt tjáningarform: Tilraunir hennar og vinna hefur borið árangur. Hún hefur hugarflug í ríkum mæli. Ég hefði kosið að hún hefði skilið nokkrar mvndir sem standast ekki frá þessari sýningu. Hún á þó eflaust margt eftir ólært og þarf að láta sig meiru varða byggingu á fletinum; og mun þá útkoma litanna sem hún vill leggja aðaláherzlu. á verða önr.ur og sterkari. Af því þetta er hennar fyrsta sýning getur verið hyggilegast að gefa henni heilræði en þau eru ekki nema það sem ætlazt er til af henni í framtíðinni, að hún haldi áfram að vera ströng við sjálfa sig, jafnvel ennþá strang- ari nú eftir að hún kemur frá merkum kennara í Vínarborg, Kokoscka, heldur en áður. Ég óska henni góðs gengis á þelrri erfiðu braut sem hún hefur vá'l- ið sér.. ' 'T-T?rrrr • ■—» D. £) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 11. marz 1962 Sunnudagur 11. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN — m

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.