Þjóðviljinn - 16.03.1962, Page 7
þlÖÐVILJINN
(hmtanðl: Bamdntimrflokktir •IHSa — BísIaHataflokknrlnn. — Rltatlðzmri
Itmsnða EJartansson (&b.), Maenús Torfl Ólalsson, SlgurBur OuBmundsson. —
Vréttarltstlðrar: ívar B. Jðnsson, Jðn Bjarnason. — Auglýslngastjórl: OuSaalr
M&enússon. — Rltstjóm, afgrelBsla, auglýslngar, prentsmlBJa: SkólavðrBust. 19.
Blml 17-500 (5 Unur). AskrlftarverS kr. 55.00 & m&n. — LausasöluverS kr. 3.00.
FrsntsmlBJa PJóBvlUans hX. I
Að deila og drottna
C*jálfstæðisflokkurinn hefur minnihluta atkvæða í
^ Reykjavík, og um land allt hefur hann ekki tvö
atkvæði af hverjum fimm. Engu að síður veður þessi
flokkur nú uppi eins og hann hafi meirihluta þjóðar-
innar að baki sér. Yfirgangur hans hefur aldrei ver-
ið slíkur sem síðustu árin; hann hefur skert stórlega
kjör alls verkafólks en aukið gróða atvinnurekenda
og auðkýfinga. Hann hefur í raun tekið samningsrétt-
inn af verklýðsfélögunum með því að rifta hverjum
nýjum samningi með valdboði. Hann veður nú beint
að togarasjómönnum og krefst bess að þeir lengi
vinnutíma sinn um þriðjung og býr sig undir að til-
kynna síldveiðisjómönnum að ekkert verði gert út
á síld nema þeir sætti sig við stórskert kjör. Jafnframt
stefnir Sjálfstæðisfl. opinskátt að því að innlima ís-
land í nýtt vesturevrópskt stórveldi, til þess að auð-
mannastétt íslands fái alþjóðlegt vald að bakhjarli í
átökum sínum við alþýðu manna.
TTvað kemur til að flokkur sem hefur mikinn meiri-
hluta þjóðarinnar á móti sér getur vaðið þannig
uppi og látið eins og hann ráði einn öllu? Ástæðan
er sú að honum hefur tekizt að sundra andstæðingum
sínum og hræða þá til skiptis hvem með öðrum. Hon-
um hefur tekizt að villa svo um fyrir ráðamönnum
Alþýðuflokksins að þeir breyta þvert gegn þeirri stefnu
sem kjósendur fólu þeim að framkvæmá í síðustu kosn-
ingum. Ráðamenn Framsóknarflokksins reyna í sífellu
að hafa tvær skoðanir á öllum málum, og önnur er
ævinlega í samræmi við kröfur Morgunblaðsins. Meira
að segja leiðtogar Þjóðvarnar eru að basla við að
setja fram skilyrði fyrir vinstri samvinnu þar sem
bergmálaðar eru fráleitustu staðhæfinigar íhaldsins. Á
þennan hátt tekst íhaldinu í sífellu að sundra and-
stæðingum sínum, fá þá til að eyða orku sinni í inn-
byrðis erjur, þótt öllu máli skipti að vinstri menn
standi saman gegn þeirri afturhaldsstefnu sem nú
magnast stöðugt á landinu. Árangurinn af þessari iðju
birtist hvarvetna; m.a. í þeirri fráleitu staðreynd að
íhaldið skuli hafa 10 menn af 15 í borgarstjórn Reykja-
ví'kur þótt það sé í minnihluta meðal bæjarbúa; sundr-
ung íhaldsandstæðinga hefur valdið því að þúsundir
lakvæða fara forgörðum og orðið þannig stuðningur við
íhaldið sjálft.
Ijað er ekkert undarlegt þótt vinstrimenn deili inn-
* byrðis um mismunandi stefnur og sjónarmið, en
þá er dómgreindin farin forgörðum ef menn átta sig
ekki á því af deilugirni einni saman að verið er að
hnekkja sameiginlegum hugsjónum allra vinstrimanna.
En einmitt þetta er nú að gerast; fái íhaldið enn að
fara sínu fram bitnar það á þjóðfélagshugmyndum
Framsóknq,rmanna ekki síður en Alþýðubandalags-
manna, Þjóðvarnarmanna ekki síður en þeirra sem enn
kunna að halda tryggð við stefnu Alþýðuflokksins. Og
þegar svo er ástatt skiptir það sáralitlu máli hvort
einum vinstriflokknum tekst um stundarsakir að sarga
einhver atkvæði frá öðrum vinstriflokki; á meðan
vinstrimenn deila innbyrðis og látast ekki taka eftir
hættum þeim sem grúfa yfir fer íhaldið sínu fram af
dagvaxandi frekju.
A lmenningur skilur þessar einföldu staðreyndir mæta-
vel, en ýmsir forustumenn Framsóknar og Þjóð-
varnar hjakka í sama farinu eins og ekkert hafi gerzt
í íslenzkum þjóðmálum og engin ný viðhorf séu fram-
undan. Þeir ríghalda í úrelt viðhorf annað hvort af
skammsýni eða þá að annarleg persónuleg sjónarmið
vjlla þeim sýn. Ekkert er nú brýnna í íslenzkum þjóð-
málum en að almenningur hafi vit fyrir þessum leið-
togum eða skilji þá að öðrum kosti eftir í villu sinni.
— m.
Eft ir / ÍRNA
m a |ki|
RAÐ
Það er borgarráðið sem
stjórnar Moskvu. í £>ví eru
942 fulltrúar, sem kjósa sér
25 manna framkvæmdanefnd
og fela 16 fastanefndum sér-
stök mál — húsnæðísmál,
heilbrigðismál o.s.frv. Það leys-
ir þau mál sem varða borgina
alla, þau mál sem ekki tekst
að leysa í einhverju hinna 17
hverfaráða borgarinnar.
Það mætti nefna margar töl-
ur um starf borgarráðsins og
þær framkvæmdir sem það
hefur umsjón með (í fyrra
voru reistar um 120 þúsund
íbúðir í bænum). En leikurinn
var ekki til þess gerður.
í nýrri stefnuskrá Kommún.
istaflokksins er tekið fram að
á næsta tímabili skuli lögð
mikil áherzla á það að efla á
allan hátt virka þátttöku al-
mennings í hverskonar sjórn-
ar- og skipulagsstörfum, enda
sé slík þátttaka höfuðforsenda
sósíalistísks lýðræðis.
Þegar þe:r í bo.rgarráðinu
kölluðu fréttamenn til fundar
við sig var einmitf mikið rætt
um þetta atriði.
Þegar er komin til fram-
kvæmda sú regla, að menn
megj ekki sitja í ráði nema
tvö tímabil (með örfáum und-
antekningum) og aíltaf skuli
a.m.k. einn þriðji fulítrúa víkja
fyrir nýjum mönnum í hvert
skipti sem kosið er. Síðan í
fyrra er helmingur fulltrúa í
borgarráði nýr af nálinni. Til-
gangur þessa ákvæðis er sá að
sem ílestir borgarar hafi eitt-
hvert ákveðið tímabil stjórnar-
störf með höndum, og það er
ætlazt til að þessi reglulega
endurnýjun ráðanna verði til
þess að draga úr skrifinnsku,
draga úr því að menn frjósi
fastir í ákveðnu sæti við lang-
borð þjóðlífsins.
í svo stórrj borg er það vit-
anlega sjálft Moskvuráðið sem
ber á herðum sér dagiega um-
gengnj við aimenning, þó svo
það cg ýmsar nefndir þess fái
mikinn fjölda fyrirspurna og
umkvartana og bé'ðna (mest
varðandi húsnæð'smál). Borg-
inni er skipt í 17 hverfi og í
hverju hverfaráði eru um 250
manns. Þessi ráð hafa sína
fundi o.g ráðstefnur, sem þau
eru skyld til að auglýsa og
kynna almenningi áður og eft-
ir að þær eru haldnar. Nýleg
dæmi: í Frunzehverfi var ráð-
stefna um uppeldismál, í Tím-
írjazehverfi var rætt um
bætta þjónustu við almenning.
Auk þess sem fulltrúar í ráð-
unum eiga að gera grein fyrir
atburðum sem slíkum á op'n-
berum fundum, eru þeir skyld-
ir til að hafa ákveðinn við-
talstíma þar sem fólk getur
borið upp vandamál sín við þá.
En hverfin eru stór; í hverju
um sig búa um 400 þúsund
manns. Hverfaráðin eiga erf-
itt með að vinna allt sem
vinna þarf á svo stóru svæði.
Því hafa á síðustu tímum,
sögðu þeir í Moskvuráð'nu,
verið stigin nokkur ný skref í
þá átt að gera allt félagsmála-
starf öflugra og víðtækara en
verið hefur — og er þá fyrst
og fremst stuðzt við almenning
sjálfan en ekki opinbera starfs-
menn. Hér koma til skjalanna
húsanefndir sem starfandi eru
í hverrj stórri biokk eða húsa-
þyrpingu; þær kjósa íbúamir
til að fara með mál e:'ns og
viðhald og viðgerðir, sambúð
íbúanna, hreinlæti, gróðursetn-
Borgaj-ráðið I Moskvu er til húsa í rauðri höll við Gorkístræti. Þar sat áðvtr iandstjóri keisarans
yfir Moskvu. Myndin af landstjórahöllinnnni, sem nú er ráðhús, var teiknuð á 19. öld
ingu í húsagörðum q.s.frv. SHk
nefnd eða nokkrar slíkar hafa
fast samband við ákveðna
meðlimi hverfaráðsins sem eru
nú ábyrgjr fyrir slíku míkró-
hverfi gagnvart hverfinu. Auk
þess hafa að undanförnu
sprottið upp firnin öll af
nefndum, skipuðum sjálfboða-
liðum, og starfa þær í sam-
vinnu við ráð og verkaiýðsfé-
lög. Hér má nefna nefndir sem
ganga í verzlanir til að hafa
eftirlit með þjónustu og berj-
ast við svindl (þeirra bíður
m;kið og erfitt verk), foreldra-
nefndir sem starfa auðvitað að
uppeldismálum, löggæzluflokka
sem taka fyllirafta og óspekt-
armenn til bæna. Það var lika
minnzt á aðra hlið þessa félags.
málastarfs: nú eru í Moskvu
466 bókasöfn þar sem enginn
launaður starfsmaður vinnur,
það eru og til slíkir klúbbar,
það eru tjl kvikmyndahús þar
sem enginn stendur við inn-
ganginn heldur rífa menn
sjálfjr af miðunum og setja í
kassa. í öðrum tilv'kum eru
-<$>
Byrjað d að reisa
sautjdn hœða
COVENTRY — Borgarstjórnin
í Coventry í Englandi liefur
samþykkt tillögur um bygg-
ingu nýs ráðhúss sem verður
sautján hæða skýjakljúfur.
Byggingunnii verður hagað
með nýstárlegum hætti, þar
sem byrjað verður á því að
reisa þakið, síðan byggð efsta
hæðin og þannig koll af kolli.
Tilgangurinn með þessu ný- "
stárlega byggingarlagi, sem
emhvern tíma hefði talizt til
öfugmæla, er sá að spgra bæði
fé og tíma.
Þegar þakið hefur verið reist
og efsta hæðin byggð, verður
þeim lyft með vökvalyftum
nokkra metra, nægilega hátt
til þess að hægt verði að hefja
smíði sextándu hæðarinnar.
Smíðj hverrar hæðar um sig
mun taka hálfan mánuð. Fjöru-
tíu vökvalyítur íýfta henni síð-
an 2Vz sentimetra á hverjum
þremur mínútum. Haldið verð-
ur áfram að vinna að innrétt-
ingum í hæðinni eftir að.
henni • hefur verið lyft af
grunninum og verður lokið víð
hverja hæð þegar hún er kom-
in jafnhátt þvi sem fimmta
hæð:'n verður að húsinu full-
byggðu.
í Bretlandi hafa áður verið
reist hús með svípuðum hætti,
þannig að gólf og skilrúm hafa
verið sett saman 4 jörðu niðri
og þeim síðan iyft, en þetta
er í fyrsta sinn sem útv.eggir
og burðarveggir vérðá byggð-
ir nieð þe'sum hætti.
Þótt mönnum kunni að virð-
ast þetta byggingarlag hæpið,
má ætla að það sé bæði fram-
kvæmanlegt og hafi þá kosti
sem hö-fundar þéss lofa, þ.e. ,að
spara bæði t'ím'a o,g fé. Tillögur
þeirra hafa verið kannaðar
gaumgæfilega og borgarstjóm-
in í Coventry hefur, sem áður
segir," fallizp á þæri Og þar
sem hún verður sjálf til húsa
í h.'nni nýiu byggingu má telja
víst að hún hafj gengið úr
skugga um að hún verði
traust.
það nefndir sjáiboðaliða sem
vinna þau störf sem þarf eða
lítá eftir röð og reglu.
En hvaðan koma þá aliir
þessir sjálfboðaliðar? í fyrsta
lagi; vinnutíminn er stuttur og
ekki mikið álag að taka ein-
hvern þátt í félagsmálum eða
eftirlitsstörfum — þó ekki
værj nema einu sinni til
tvisvar í mánuði. í öðru lagi:
höfuðstyrkur þessa starfs er
fólk 4 ellilaunum. Það er oft
enn á góðum aidri, 55—65 ára,
og margt af því vill eðlilega
hafa eitthvað áreynslulítið
starf að stytta sér stundir við
— ekki sízt af því iað um veru-
lega gagnlegt starf er að ræða.
Ég vil bæta því við að «111-
launafólk er allra manna á-
kiósanlegast til að fást við t.d.
eftirlitsstörf — því það er
sjáifstæðara öðru fólki, hefur
lokið sínu lífsstarfi og er síð-
ur hætt við tilhneigingum til
að kom-a sér í mjúkinn hjá
e'nhverju staðaryfirvaldi sem
gæti síðan haft áhrif á starfs-
frama og þessháttar.
Ég hef sagt frá því helzta
sem Moskvuráðsmenn sögðu
um þróun ráðanna og þeirra
samtaka almennings sem
starfa í nokkurri samvinnu vð
þau. Ýmislegt er hér þoku-
kennt, enda á byrjunarstigi.
Það hefur t.d. ekki verið á-
kveðið með nauðsynlegri ná-
kvæmni hver skuli vera rétt-
indi hinna ýmsu nefnda al-
mennings, hvort og hvernig á-
kvarðanir þeirra skuli vera
bindandi fvrjr ráðin. En alla-
vega er hér um athyglisverða
og jákvæða þróun að ræða.
II
Kosningar til Æðsta ráðsins
st,and.a fyrir dyrum. í því til-
efni hafa áróðursmenn sjg í
frammi, halda fyrirlestra um
stjórnmál og efnahagsmál með
tilheyrandi kvikmyndasýning-
um. Flokkurinn gefur út á-
várp til þjóðarinnar þar sem
skýrt er frá því sem gert hef-
ur verið í landinu á undan-
förnum fjórum árum: 50 millj-
ónir manna hafa flutt í nýtt
húsnæði og 4000 stór iðnfyrir-
tækí hafa verið reist.
Eins og kunnugt er fara
kosningar í Sovétríkjunum
fram þannig, að það er aðeins
um einn frambjóðanda að
ræða 4 hverjum stað. Og það
sem lakara er: það er yfirleitt
aðeins stungið upp á einum
frambjóðanda. Eðlilega finnst
mörgum lítið púður í slíkum
kosningum.
Sovézkir halda. mjög stíft
fram þessu fyrirkomulagi. Þeir
í Moskvuráði sögðu aðspurðir,
að þetta byggðist allt á póli-
tiskri og siðferðilegri e'ningu
þjóðarinnar. Og, sögðu þeir, ef
einhver voldug verksmiðja
stillir upp þekktum og heið-
virðum starfsmanni sínum, þá
hefur það enga þýðingu að ná-
grannafyrirtækið st: 11 i upp
öðrum mikilsvirtum manni og
síðan skuli deilt um það hvor
sé betri.
Svo. mörg eru þau orð. Við
skulum athuga þetta nánar.s
Pólitísk eining þjóðarinnar —
jú: þjóðin er vissulega með
sósíaHsma og kommúnisma. En
við þurfum ekki annað on að
líta fljótlega yfir sögu Sovét-
ríkjanna til að sjá að. sósíal-
istísku þjóðfélagi má stjórna
á ýmsan hátt. Og þetta kosn-
infjafyrirkomulag (sem tekið
var upp 1937) hefur haft sorg-
iega Htil áhrif á bað hvort vel
hafi tekizt eða iha. Með öðr-
um orðum: þetta fyrirkomulag
er í sjálfu sér ekk: fallið til
að „efla þátttöku almennings í
stjórnar- ok skipulagsstörfum“.
Það er rætt um að stjórnar-
skrárbreytingar séu í nánd
eða jafnvel ný stjórnarskrá.
Ekki er mér kunnugt um það í
hverju væntanlegar breytingar
muni helzt vera fólgnar. En
mér sýnist að ákvæði um
kosningar séu eitt af því sem
þarfnast rækilegrar endurskoð-
unar. Svo er annað atriði í
þessu sambandi: reynslan sýn-
5r að það er ekki nóg að gefa
út stjórnarskrá; það þarf líka
að tryggja framkvæmd henn-
ar. X sömu stjórnarskránni er
t.d. ákvæði um það að kjós-
endur geti tekið aftur um-boð
íulltrúa síns áður en kjörtíma-
bili hans lýkur ef hann stend-
ur sig ekki. Þeir í Moskvaráð-
inu sögðu aðspurðir að þessa
réttar hefði aldrei veríð neytt
í Moskvu. Það er slæmt, því
varla eru þeir allir svo full-
komnir sem setið hafa í því
góða ráði. Og það verður Ht-
ið úr réttindum sem ekki er
neytt. Þess skal samt getið
hér, að í fyrrgreindu ávarpi
flokksins er talað um nauðsyn
þess að þessum rétti til aftur-
köllunar umboðs þeirra full-
trúa „sem ekki hafa reynzt
traustsins verðug:r“ sé fram-
fyigt.
Það eru mörg skilyrði sem
ákveða á hvaða stigi raun-
verulegt' lýðræði er í hverju
landi.
Það er t.d. einsætt að ekki
má gleyma Hfskjörum og þró-
un þeirra þegar r-ætt er um
lýðræði. Ég geri ráð fyrir því
að samkvæmt stjórnarskrá og
löggjöf séu Jtalía og Svíþjóð
á ósköp svipuðu stigj lýðræð-
is. Hinsvegar gera hærri lífs-
kjör almennings í Sviþjóð það
að verkum að raunverulegt
lýðræði er þar miklu öflugra:
betri lífskjör gefa almenningi
aukna raunverulega möguleika
a að njóta þeirra lífsgæða —
lífsgæða í breiðum skilningi —
sem löggjöf getur aðe.ns gert
ráð fyrir.
Sama gildir auðvitað um
Sovétríkin. Efnahagslegar fram-
farir létta störf manna, létta
daglegt líf þeirra og þar með
skapast auknir möguleikar til
að gera það sem menn vilja
sér til þroska og ánægju. l>eg-
ar í ár tekst að uppfylla þarf-
ir fólksins betur en í fyrra, þá
eru menn um leið orðnir ögn
óháðari bölvun skr:ffinnskunn-
ar, karríerismans, þess lifs-
kjaramisréttis sem ólík staða
manna í þjóðfélaginu skapar
enn þann dag í dag.
Stjórnarskrá, löggjöf, túlkun
löggjafar, starf ráða og verka-
lýðsfélaga — allt hefur þetta
sín áhrif á þróunarstig lýðræð-
is í Sovétríkjunum. En þetta
allt er í rauninni ekki annað
en yfirbygging yfir grundvöll-
inn — efnahagslíf þjóðarinnar.
Þessvegna oru framleiðslu-
skýrslur landsins með öðrum
þræði tíðindj af sögu lýðrétt-
inda.
Hemingway Eéf eftir sig 4
skáldsögur, tugi smásagna
NEAV York — Ekkja Eraest
Hemingways hefur fært for-
leggjara manns síns hér í borg
handrit að fjórum skáldsögum
og tugum smásagna, sem hann
lét eftir sig.
Það er haft eftir henni að
maður hennar hafj haft mjk-
ið dálæti 4
þessum ó-
birtu verk-
um sínum.
Þó hefur enn
ekki verið
tekin endán-
leg ákvörð-
un um að
gefa þau út
á prenti, hún
vill láta
,,dóm-bæra“
menn skera úr um það.
Sagt er að . einni þessara
Hemingway
síðustu sögu skáldsins sem
birt var að honum lifandi,
„Gamli maðurinn og hafið“,
og sennilegt að þar sé um að
ræða framhald þeirrar sögu.
Önnur er sögð gerast í París
á árunum upp úr fyrri heims-
styrjöldinni. Sú þriðja mun
hafa síðari heimsstyrjöldina að
sögusviði, en sú fjórða Afríku.
fjögurra skáldsagna svipi til
Skriðuföil í
Perú bana 23
LÍMA 15/3 — 1 gærkvöld féll
skriða yfir vinnubúðir ska-mmt
frá Líma í Perú. 1 -búðunum
voru 22 börn, tíu konur og
einn íullorðinn karlmaður. Allt
iþetta fólk varð skriðunni að
bráð.
Búa sig undir að taka við
boðskap utan úr geimnum
NEW YORK — Hér hefur ver-
ið haldin ráðstefna á vegum
vísindaakademiunnar, National
Academy of Science, um mögu-
leika á því að veita viðtöku
boðum frá vitsmunaverum á
öðrum hnöttum.
Ekki hefur verið skýrt frá
einstökum atriðum í starf; ráð-
stefnunnar, en þessar voru
jiiðurstöðurnar: 1) Miklar lík-
ur eru á því að um geiminn
berist boð frá vitsmunaverum
á öðrum hnöttum í öðrum sól-
kerfum en okkar. 2) Vandinn
er að vita hvar og hvemig
þeirra skuli leitað. 3) Tækni-
þróunin bendir eindregið til
þess að þar muni koma að
óyggjandi sannanir fáist fyrir
tilvist vitsmunavera á öðrum
himinhnöttum. 4) Fyrsta skref-
ið í þá átt verður að fá stað-
festingu á beirri tilgátu, sem
nú er aðeins hægt að leiða
líkur að, þeirri, að til séu önn-
ur sólkerfi svipuð okkar.
Einn af þátttakendunum í
ráðstefnunni, prófessor Philip
Morrison við Comell-háskóla,
segir að séu annars staðar í
geimnum fyr;r hendj skilyrði
fyrir þróun Hfs, eins og all-ar
líkur bendi til, þá hljóti líf að
hafa kviknað þar og framþró-
un þess orðið að ýmsu leyti
með svipuðum hætti og þróun
mannsins á jörðinni. Hann
bendjr á að vitsmunaverur
hafi . þróazt á jörðinni óháðar
hverjar öðrum, ef skilyrði-
voru fyrir hendi. Menningar-
þróunin eigi sér stað sam-
kvæmt eigin lögmálum, segir
hann og bendír á þá staðreynd,
að bæði í löndunum fyrir
X>otni Miðjarðarahfs og í Am-
eríku fyrir daga Kólumbusar
hafi menn komizt á lagið með
að skrifa niður hugsanir sín-
ar, enda þótt ekkert samband
væri milli manna á þessum
landsvæðum. Af því m-á ráða,
segjr hann, að þróun menning-
arinnar hafi í stórum dráttum
orðið með svipuðum hætti
alls staðar þar sem á annað
borð eru skilyrði fyrir þróun
lífsins.
Fjölskylda Glenn geimfara tók þátt með honum í sigurförinni um götur höfudborgarinnar Washing-
ton. Þau Glenn og Annie kona hans standa uppi í bílnum, en í fremra sætinu sitja. börn þeirra,
Lyn 14 ára og David 16 ára. Við hlið hjónanna situr Lyndon Jobnson varalorseti Bandaríkjanna og
formaður geimrannsóknaráðsins.
Jj) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 16. marz 1962
Föstudagur 16. marz 1962
ÞJÓÐVILJINN
(X