Þjóðviljinn - 25.03.1962, Qupperneq 5
Iburðarmiklar
fyrir hundruð milljóna kr.
Kvikmyndaframleið'endur
mæta kreppunni á kvik-
myndamarkaöinum aöallega
meö þrem tegundum af
kvikmyndum: 1) Kvikmynd-
ir, sem kappkostaö er aö
gera vandaðar á listrænan
hátt. Slíkar myndir njóta
nú vaxandi vinsælda í stór-
borgum. 2) Skemmtimynd-
ir, spennandi. og aöallega
foyggöar á samtali tvegR'ja.
3) Stórmyndir með miklum
íburði og mikilfenglegum
sýningaratriöum. Árið 1962
virðist ætla aö vera ár
slíkra kvikmynda.
Við gerð hinna íburðarmiklu
stórmynda virðist enn giida
hið gamla, rómaritíska lögmál
kvikmyndagerðarinnar: Kastaðu
fénu út um gluggann, og meira
að segja eins miklu og hægt
er — til þess að það komi aft-
ur margfaldað innum dyrnar.
Dýrt gaman.
Fyrir skömmu var frumsýnd í
Róm kvikmyndin „Barabas“.
Þetta er ítölsk mynd og hefur
ekkert verið til hennar sparað.
Viðfangsefni og söguhetja mynd-
arinnar er ránmorðinginn Bara-
bas, sem kunnur er úr Bibh'unni.
Hann skyldi krossfestast í félags-
skap Jesú Krists, en Jerúsalems-
búar settu hanri á til lífs en
völdu Jesúm hlutskipti dauðans,
er þeim var veitt heimild til
að kjósa öðrum þeirra líf. í
ftölsku kvikmyndinni eru 70.000
i,statistar“. Auk þess eru um 100
leikarar sem þurfa að tala í hlut-
Verkum sínum. Fimm þeirra eru
s,dýrar stjörnur“.
Þar sem ekki var leyft að
kvikmynda í söguborginni Jerú-
salem, varð að reisa heljarmikla
pappírsborg. Kostnaður við það
var 380.000 dollarar. Þá kostaði
100.000 dollara að útbúa vígvöll
Tæknin orsök
nýrra sjúkdóma
FRANKFURT — Háls- nef- og
eyrnasjúkdómalæknar eru nú
farnir að glíma við nýjan, áður
óþekktan eyrnasjúkdóm. Þessi
cjúkdómur hrjáir aðallega þá sem
ferðast mikið með farþegaþotum,
og hefur hlotið nafnið Aero-Otit-
is Media (Flug-miðeyrnabólga).
Einkenni sjúkdómsins eru deyfð
heyrn og tilfinning í eyranu
stingur inni í eyranu, jafnvægis-
truflanir og dálftill sljóleiki.
Lækning á þessum sjúkdómi tek-
ur nokkrar vikur.
Sjúkdómurinn orsakast fyrst og
fremst af því að mannseyrað þol-
ir ekki lofiþrýstingsmismuninn
þegar farþegaþota lendir eftir
flug í miikilli hæð. Hljóðhimnan
þrýstist inn á við, og rifnar í
einstaka tUfellum: Bezta ráðið til
að fyrirbyggja þetta er gamla
ráðið: Þiggja tyggigúmí eða
brjóstsykur hjá flugfreyjunum.
Eitt af atriðum kvikmyndarinnar „Ben Húr“, kappaksturinn.
< l
fyrir skylmingaþrælana. Því þurfti
að láta gera 15000 búninga fyrir.
kvikmyndina, 5000 hárkollur,
1500 gerviskegg, 75 flutningabíla
til þess að flytja „statistana" og
13 ijón. Það tók 157 daga að
fullgera kvikmyndina. Kostnaður:
10 milljónir dollara — um 430
milljónir ísl. króna.
Um svipað leyti var gerð á
Italíu og í Marokkó kvikmyndin
„Síðustu dagar Sódómu og
Gómerru". Sú mynd kostaði ekki
minna en um 520 milljónir kr.
Þriðja myndin af svipuðu tagi er
„Kleopatra", sem nú er að verða
fullgerð í Róm. Kostnaður við
hana er svipaður.
Milljónir Kleópötru.
Um þrjú ár eru liðin síðan
byrjað var á kvikmyndinni.
„Kleópötru". Verkið hefur tafizt
vegna tíðra veikindatilfella Elisa-
beth Taylor, sem leikur aðal-
hlutverkið.
Elisabeth fær eina milljón
dollara í laun fyrir hlutverkið. —
Það eru hæstu laun, sem leik-
konu hafa verið greidd fyrir eitt
kvikmyndahlutverk. Þetta eru
samt ekki hæstu tekjur, sem leik-
ari hefur fengið fyrir kvikmynda-
leik. Það.er William Holden, sem
með kænsku sinni tókst að
krækja . í mestan ávinning af
einni kvikmynd. Fyrir myndina
„Brúin yfir Kwai“ samdi Hold-
en ekki aðeins um föst laun,
heldur áskildi sér ágóðahlut af
því sem inn kæmi fyrir sýningar
á myndinni. Kvikmyndin náði
miklum vinsældum, og' Holden
9Mt». ►
160 þós. farast
í unferðarslysam
NEW YORK — Samkvæmt
skýrslum alþjóða heiilbrigðismála-
stofnuninnar (WHO) farast að
jafnaði um 100.000 manns á
hverju ári í umferðarslysum í
heiminum.
Langflest umferðarslys verða í
Bandaríkjunum. Þar farast fleiri
í bifreiðaslysum heldur en vegna
sjúkdóma.
hefur til þessa krækt sér í 5
milljónir dollara fyrir myndina.
Peningamir halda áfram að
að streyma í vasa hans, því
myndin er enn sýnd víða um
heim.
Fleiri -stórmyndir eru á döf-
inni, enda þótt þær séu ekki önn-
ur eins risafyrirtæki og áður-
nefndar myndir. 1 Múnchen era
þýzk og bandarísk félög að géra
kvikmyndina „Sindbað sæfari".
Fyrir þá mynd hefur m.a. ver-
ið smíðað sjóræningjaskip fyrir
rúmar tvær milljónir króna.
30.000 statistar verða í myndinni.
í Moskvu er unnið að kvik-
myndinni „Stríð og friður" eftir
hinni frægu skáldsögu Tolstojs.
200 leikarar koma fram og auk
þess 15.000 statistar. Þetta verður
breiðtjaldsmynd. Nú er verið að
leita að stúlku til að leika Nat-
asja. 1 bandarísku kvikmyndinni
„Stríð og friður“ lék Audrey
Hepburn þetta hlutverk, en sov-
ézkum kvikmyndamönnum þótti
hún ekki hæfa vel í það hlut-
verk.
I Frakklandi er kvikmyndastjór
inn Christian-Jaque að undirbúa
dýrustu kvikmynd sem sögur
fara af í því landi. Það er „Marco
Polo“ um heimsfla varann fræga.
Kostnaður er áætlaður um 140
milljónir króna. Alain Delon
mun leika aðalhlutverkið. Mynd-
in verður frumsýnd í lok þessa
árs.
Það má því búast við, að á
þessu ári verði meira sýnt af í-'
burðarmiklum stórmyndum held-
ur en nokkru sinni áður. Auk
þeirra sem áður hafa verið nefnd-
ar, er þegar byrjað að sýna
bandarísku biblíumyndina „Kon-
ungur konunganna“, sem Samuel
Bronston framleiðir. Þá hafa
bandarískir framleiðendur á
prjónunum kvikmynd um Múha-
með spámann. Sú hugmynd hef-
ur mætt mikilli andúð meðal
múhameðstrúarþjóða, því sam-
kvæmt kenningum þeirra má
ekki sýna spámanninn á mynd.
Múhameðstrúarmenn gera mikið
gys að biblíukvikmyndum Banda-
ríkjamanna, sem þykja glysgjarn-
ar og reyfarakenndar.
Bronston hefur gert aðra rán-
dýra kvikmynd „E1 Cid“ með
Soffíu Loren ög Charlton Heston
í aðalhluitverkum. Soffía fór í
mál við Bronston, þar sem nafn
hennar var með smærra letri en
nafn Hestons á auglýsingaspjöld-
unum. Bronston lætur skammt
stórra högga á milli. Næsta við-
fangsefni hans er „Hrun Róma-
veldis“.
Þá er bandaríski kvikmynda-
stjórinn George Stevens kominn
til Rómar til að stjórna biblíu-
kvikmyndinni „Stærsta saga, sem
nokki'u sinni hefur verið sögð“.
Þetta verður líka dýrasta saga,
sem nokkru sinni hefur verið
sögð — og dýrasta kvikmynd í
heimi.
Áætlað kostnaðarverð um 1300
milljónir króna.
Auglýsinga-
tækni notuð
Ngo Dinh Diem, einræðis-
herra í Suður-Vietnam, var
áður reglubróðir í Benedikta-
klaustri, en býr við stöðugt
vaxandi óv.'nsældir í núver-
andi starfi. Nú hefur hann
lagt inn stórar fjárfúlgur hjá
bandarísku auglýsingafýrir-
tækí, sem í staðinn kemur
nafni hans á framfæri sem
Dftast og sem víðast í USA.
Með þessu móti telur einræð-
isherrann að lánsmöguleikar
3Ínir auk:st í Bandaríkjun-
Fólksfjðlgun Egypta
mikið vandamól
KAIRO — Xnnan skamms hefst
alþjóðleg læknaráðstefna, sem á
að fjalla um takmörkun barn-
eigna í Egyptalandi. Verður þá í
fyrsta sinn þar í landi fjallað op-
inberlega og í fullri hreinskílni
um stærsta vandamál Egypta:
Um stöðugt vaxandi fólksfjölgun
í landinu.
Þéttbýlasta landsvæði jarðar
Egyptaland er ekki annað en
Nílardalurinn auk óbyggilegra
eyðimarka. íbúar eru nimar 27
milljónir. Þetta er þéttbýlasta
land jarðarinnar, og ásamt Kína
og Indlandi er það fremst allra
landa varðandi hlutfallslega
fólksfjölgun. Á hvert þúsund íbúa
fæðast á ári hverju 40 börn. Þess
ber að geta, að ungbarnadauði
er mikill í landinu. En vanda-
málið er stórt: íbúunum fjölgar
um hálfa aðra milljón á ári.
Þær tilramir sem til þessa
hafa verið gerðar í því skyni að
stemma stigu við þessari miklu
fólksfjölgun hafa ekki verið nógu
afgerandi. Auk þess hafa þær
strandað á fáfræði fólksins, því
menntunarskortur er enn al-
mennur þótt mikið hafi áunnizt
í þeim efnum á síðari árum.
Erfðavenjur og hjátrú hamla
einnig nauðsynlegri takmörkun
barneigna. Trúarhöfðingjar og
prestar telja tákmörkun barn-
eigna ósamrýmanlega Kóranin-
um. Alþýða manna er bláfátæk,
einu auðæfin sem þetta fólk get-
ur eignazt eru stór barnahópur.
Þetta gerir tilraunir yfirvald-
anna til að bæta úr hreinlætis-
ástandinu og auka lieilsugæzlu
mun erfiðari.
Baráttan við hindurvitni
Ríkisstjórnin er byrjuð að
koma upp heilbrigðismiðstöðvum
víða um landið. Þar eru ungir
læknar staðsettir ásamt húkrun-
arliði. Sovétríkin hafá lagt til öll
lækningatæki og áhöld og annan
tækniútbúnað í þessar stöðvar.
Hlutverk þeirra er að auka íiJ-
menna heilsugæzlu og að auka
hreinlæti, og síðast en ekki sízt
að útrýma skottulækningum) sem
eru landlægar í mörgum þorpum.
Þá hafa þessar heilbrigðisstöðvar
einnig það hlutverk að sýna
fólki fram á að sjálfsagt og nauð-
synlegt sé að hafa hemil á
barnafjölguninni.
Oti um landið hefur það kost-
að mikla baráttu að fá fólk til
að nota ný vatnsból með hreins-
uðu neyzluvatni í staðinn fiyrir
fúlt og heilsuspillandi Nílarvatn-
ið. Konurnar óttast að hreina
vatnið geri þær ófrjóar.
Opinberir embættismenn og
hagskýrslufræðingar telja að ekki
dugi annað en að grípa til mjög
róttækra aðgerða, ef telja á al-
menning á nauðsyn þess að tak-
marka barneignir. Enginn hefur
hinsvegar bent á færa leið. Þess-
vegna binda egypzk yfirvöld;
miklar vonir við ráðstefnuna.
Sunnudagur 25. marz 1962 — ÞJÖÐVlLJINN
cs