Þjóðviljinn - 28.03.1962, Page 9
15ÁRA AFMÆLIKSÍ
Knattspyrnusamband íslands
varð 15 ára á mánudaginn
var, og af því tilefni hafði
stjórn sambandsins „opið hús“
í veitingahúsinu Glaumbæ.
Komu þangað margir áhuga-
menn og velunnarar knatt-
spyrnunnar.
Formaður Knattspyrnusam-
bandsins, Björgvin Schram, á-
varpaði gesti og bauð þá vel-
komna. Björgvin kvaðst ekki
ætla að rekja sögu Knatt-
spyrnusambandsins í þessi 15
ár, það yrði gert síðar, en
hann kvaðst vilja þakka öll-
um þeim mörgu sem veitt
hafa sambandinu stuðning á
liðnum unglingsárum þess.
Sérstaklega kvaðst hann
vilja þakka Knattspyrnuráði
Reykjavikur sem stæði undir
megin-þunga knattspyrnumót-
anna í landinu, og væri það
mikið verk. Hefði ráðið tekið
þetta hlutverk sitt mjög al-
varlega og þó oft átt við
erfiðleika að etja. Hann þakk-
aði dómurum, knattspyrnufé-
lögum, vallastarfsfólki og í-
þrc/.tafréttamörnn'um. Við þá
síðastnefndu sagði Björgvin,
að samstarfið hefði ef til vill
getað verið betra, og mætti
þar sjálfsagt báðum um
kenna, en víst væri það að
sambandsstjórnin hefði fullan
hug og vilja að hafa sem bezta
samvinnu við þá.
Þá gat Björgvin þess, að
starf Knattspyrnusambandsins
væri í tveim aðalþáttum: starf-
ið innanlands og samskiptin
við útlönd. Síðan Knattspyrnu-
sambandið var stofnað 1947
hafa farið fram 29 landsleik-
ir; sá fyrsti sem íslendingar
þreyttu fór fram 1946, en um
þann landsleik sá ÍSÍ og
Knattspyrnuráð Reykjavíkur.
Var sá leikur við Dani. Sam-
tals hafa því verið háðir 30
Framhald á 10. síðu.
Háværat kgöiur tim að banna atviimuhneiaíeika
NEW YORK 27/3 — Háværar kröfur um að banna
atvinnuhnefaleika með lögum eru komnar upp í
Bandaríkjunum eftir að ,Emile Griffith gekk af
keppinaut sínum um heimsmeistaratignina í velt-
ervikt, Benny Kid Paret, hálfdauðum í viðureign
á sunnudaginn.
Grifith fékk æði í 12. lotu
og barði Paret hálfmeðvitund-
arlausan fimmtán til tuttugu
bylmingshögg í höfuðið. Paret
var áður svo illa leikinn, að
hann gat ekki borið hönd fyr-
ir höfuð sér. Dómarinn reyndi
að stöðva barsmíðina, en réði
ekkert við trylltan hnefaleik-
arann.
Hatursmenn
Paret liggur milli heims og
helju í Roosevelt sjúkrahús-
inu í New York með brotna
höfuðkúpu, heilablæðingar og
heilahristing. Læknar telja lík-
urnar á að hann lifi af ekki
nema emn á móti þúsund. Par-
et er Kúbumaður, 25 ára gam-
all.
Griffith og Paret hafa átzt
við tvisvar áður. Fyrst sigraði
Griffith með rothöggi en í
annað sinn náði Paret-heims-
meistaratigninni eftir að hon-
um var dæmdur s;gur á stig-
um með litlum mun. Síðan
hefur Griffith hatað keppinaut
sinn.
Þegar verið var að vigta
hnefaieikarana fyrir keppnina
á sunnudaginn munaði engif
að Griffith réðist á Paret. Þeg-
ar Paret var orðinn svo sljór
eftir tó'lf lotu barsmíð, að
hann fékk ekki lengur vafið
sig, fékk hatur Griffiths út-
rás í einhverjum hroðalegustu
misþyrmingum sem sézt hafa
á bandarískum hnefaleikapalli.
Konan liorfði á
Milljónir Bandaríkjamanna
fylgdust í sjónvarpi með því
hvernig Griffith barði Paret
íi höfuðið þangað til það var
orðið eins og ólöguleg kjöt-
þjósa. Meðal áhorfenda var
kona Parets. Þau eiga þriggja
ára gamlán. son.
Konan hefur ekki vikið frá
rúmstokk Parets þar sem
hann liggur meðvitundarlaus
í sjúkrahúsinu. Læknar telja
að í dag komi í ljós hvort
hann lifir af, én jafnvel þó svo
verði búast þeir við að hann
geti legið meðvitundarlaus allt
að ár vegna heilaskemmdanna
sem högg Griffiths ollu.
Rannsókn hafin
Rockefeller, fylkisstjóri í
New York, hefur skipað hnefa-
leikanefnd fylkisins að rann-
saka viðureignina milli Griff-
iths og Parets nákvæmlega og
gefa sér síðan skýrslu. Lög-
reglan er einnig að rannsaka
málið, og búast má við að
Griffiths fái þunga dóma ef
Paret lætur lífið.
„Þvílíkt og annað eins á
ekki neitt skylt við íþróttir“,
segir blaðið New York Daily
Mirror. „Hnefaleika hefði átt
að strika út úr tölu íþrótta
fyrir löngu“. Fleiri blöð taka
svipað til orða.
Þegar Emile Griffith var
sagt hvernig hann hefði leikið
Paret, féll honum allur ketill
í eld.
— Eg vildi óska, að ég hefði
aldrei komið nálægt hnefaleik-
um, sagði hann.
Ein þeirra sem ekki vilja
banna hnefaleika er kona
Benny Parets. Hún sagði við
fréttamenn, að hún liti á þá
sem hvern annan háskalegan
atvinnuveg.
— Hefði maðurinn minn
ekki verið barinn niður núna,
hefði hann haldið áfram að
keppa. Þetta er atvinna hans
til að framfleyta mér og barn
inu okkar.
veronr i
Hið árlega handknattleiks-
mót skólanna fer fram í næstu
viku. Er mót þetta eitt fjöl-
mennasta sem fram fer á land-
inu. Á undan.förnum .árum hafa
lið frá Keflavík, Hafnarfirði
og Akranesi sótt mót þetta,
og er gert ráð fyrir að lið
frá þessum stöðum komi einn-
ig til þátttöku í þessu móti.
Vegna þess hvað mikil þátt-
taka er í rnótinu, er það fyrir-
komulag viðhaft, að það lið
er úr sem tapar leik, og kemur
þar og til húsnæðisleysi fyrir
leikina.
Keppt er í þrern aldurs-
flokkum karla: Fyrsta fl., öðr-
um fl. og þriðja fl. A og B.
Einnig er keppt í kvenna-
flokki.
Hér fara á eftir nöfn þeirra
skóla og bekkja sem mega
senda lið í keppni þessa:
Fyrsti fl.: Menntaskólinn í
Reykjavík, Háskólinn, Vélskól-
inn, Loftskeytaskólinn, Verzl-
unarskólinn .(úr 4.-6. bekk).'
<$>
Kennaraskólinn (úr 3.—4.
bekk), Iðnskólinn (3.—4. b.).
Annar fl: Menntaskólinn í
Reykjavík (3. bekkur), Verzl-
unarskólinn (úr 2.—3. bekk),
Iðnskólinn (úr 1.—2. bekk),
Kennaraskólinn (úr 1.—2.
bekk.).
Þriðji fl. A.: Gagnfræðaskól-
arnir (úr 3.—4. bekk), Verzl-
unarskólinn (úr 1.’ tíekk),
Þriðji fl. B.: Allir unglinga-
skólar (úr 1. og 2. bekk).
Tilkynningar um þátttöku í
mótinu þurfa að hafa borirt
til Einars Bollasonar 5. bekk
B. Menntaskólánum i Reykja-
vík fyrir hádegi 3. apríl. Þátt-
tökugjald fyrir hverja sveit er
75 krónur. Mótið fer fram að
Hálogalandi.
Þeir sem sigruðu í fyrra
voru: 1. fl. Iðnskólinn Hafnar-
firði, 2. fl. Menntaskólinn í
Reykjavík. 3 fl. A. Flenzborg,
3. fl. B. Réttarholtsskólinn, og
í kvennaflokki sigraði Flenz-
borg.
Svipmyndir úr knattspyrn'
unni á liðnum órum (
Framarar urðu Islandsmcistarar í knattspyrnu áríð sem Kmití j
spyrnusamband íslands var stcfnað 1947. Kér sjást íneistaraf.nir.
Sumarið 1953 háðu Islendingar og Danir landsleik á Melavcllin-
um. Myndin er frá ieiknum, Iielgi Daníelsson reyrrir árangursr1
laust að verja.
Og önnur mynd frá landsleik á Mclavellinum. Að þessu sinui?
va'ru andstæðingarnir Norðmenn og leikurinn iháður 1954.
Loks mynd frá síðasta landsleik Islcndinga í knattspyrnu, þeirn
sem háður var við cnska áhugamannalandsliðið í Lundúnum £
sl. haustá. Fyrirliðar á leikvelli takast í hendur fyrir lcikin<y
Helgi Jónsson er til hægri. ' . ■ j 1
Miðvikudagur 28. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN).—