Þjóðviljinn - 30.03.1962, Page 2

Þjóðviljinn - 30.03.1962, Page 2
!■■■! !■■■■! 1 dag' er föátudagurinn 30. maiz. Quirinus. Tungl í hásuðri kl. 7.42... Árdegisháflaiði kl. 12.30. Næturvarzia vikuna 24.—30. marz er í Tyfjabúðinni Iðunn, sínii 17911. flugið Loftleiðir í diag er Leifur Eiríksson vænt- anlegúr frá N.Y. kl. 5.30. Fer til Luxemborgar kl. 7.00. Kemur til baka frá Luxemborg kl. 23.00. Fer til N.Y. kl. 0.30. Snorri Sturluson er væntanlegur frá Hamborg, Kaupmannahöfn, Gautaborg og Oslo kl. 22.00. Fer til N.Y. kl. 23.30. Flugfélag 141ands Millilandaflug: Gullfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 8.30 í dag. Væntanleg aftur til R- víkur kl. 16.10 á morgun. Innanlandsflug: I dag er áætiað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Fagunhólsmýrar, Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða,- Húsavikur, Isafjarðar, Sauðárkróks og Vest- mannaeyja. skipin Eimskipafélag lslands Brúarfoss fór frá Dublin 22. þ.m. til N.Y. Dettifolas fer frá N.Y. í dag til Reykjavikur. Fjallfoss fór frá Norðfirði 26. þ.m. til Rotter- dam, Hamborgar, Amsterdam, Antwerpen og Hull. Goðafoss fór frá N.Y. 23. þ.m. til Reykjiavíkur. Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn 3. n:m. til Leith og Reykjavíkur. Lagarfoss er í Ventspils, fer þaðan til Kleipeda, Hangö og R- vikur. Reykjafoss kom til Rost- ock 28. þ.m. fer þaðan til Gauta- bor.gár. Selfoss fór frá Hamborg i gær til Reyikjavikur. Tröflafosla fór frá Reykjavik í gærkvöld til Sigluf járðar og Akureyrar og þaða,n til N.Y. Tung.ufoss fór frá Gdynia 27. þ.m. til Gautaborgar, Kristiansand og Reykjavíkur. Zeehaan fór frá Hull 27. þ.m. til Reykjavíkur. Skiþaútgerð ríkbins Hekla fór frá Akureyri á mið- nætti í nótt á vesturleið. Esja er ,í Reykjiavík. Herjólfur fer frá Hornafirði i dag áleiðis til Vest- miannaeyja og Reykjavíkur. Þyrill er i Reykjavík. Skjaidbreið er á Norðurlandshöfnum á leið til Ak- ureyrar. Herðubreið fer frá Rvík á hádegi i dag vestur ufm land í hringferð. Jöklar Drangajökull lestar á Vestfjarða- höfnum. Langjökull fer frá Mur- mansk í dag áleiðis til íslands. Vatnajökull er í Reykjavik. Skipáðeild SIS Hvassafell er í Reykjavik. Arnar- f.ell er. í Gufunesi.. Jökulfell er á Hornafirði. Dísarfell fór 28. þ.m. áleiðis til Rieme. Litlafell er í R- vík. Helgafell fór 28. þ.m. frá Vopnafirði til Odda í Noregi. Hamnafell er i Reykjavik. Hend- rik Ma.yer losar á Austfjörðum. félagslíf ’ioimilil- Munið SGT-félagsvist.ina í kvöid kl. 9. Góð verðlaun. Frá Guðspekifélaginu Stúkan Dögun heldur fund í kvöld kl. 8.30 í Guðsþekifélagshúá- init. Erlendur Haraldsson flytur erindi: „Hnötturinn okkar." Kaffi- í fundarlok. Minningarsjóður Landspítalans. Minningarspjöld sjóðsins fást á “ftirtöldum stöðum: Verzl. öcúlus, áusturstræti 7. Verzl. Vík, Lauga- vegi 52 og hjá Sigriði Bachmann ’orstöðukonu, Landakotsspítalan- um. Minningarspjöld styrktarfélags lamaðra og fatlaðra fást á eftirtöldum stöðum: Bóka- verzlun Braga Brynjólfssonar, verzluninni Roða, Laugávegl 74, verzluninni Réttarholt, Réttar- holtsvegi 1 og á skrifstofu félags- ins að Sjafnarg. 14. í Hafnarfirði hjá Bókabúð Olivers Steins. Stærsti bókamarkaður á hp*1 AáuHMlöat í dag Opnar Bóksalafélag fslands bókamarkað í Lista- mannaskálanum. Verður það stærsti bókamarkaður sem haldinn hefur vcrið hér á Iandi og yfir 1500 bækur (bókatitlar) á boðstólum. Er mjög mikill afsláttur veittur af bókunum og geta þeir, sem búsettir eru úti á landi. pant- að bækur af markaðnum hjá næsta bóksala. I viðtali við fréttamenn í gaer sagði Gunnar Einarsson formaður Bóksalafélagsins, að óstæðan til þess að slíkur bókamarkaður er haldinn væri fyrst og fremst sú að bækur kæmu aðallega út hér á landi. 2—3 mánuði fyrir jól- in. Vegna rúmleysis verða bókabúðirnar þá að leggjá -eldri þækurnar til hliðar og vilja þær þá falla í gleymsku þótt sölumöguleikar séu ann- ars fyrir hendi. Þá gat Gunnar þess, að sölufyrirkomulag á bókum hér á landi væri orðið mjög úr- elt. Þegar Bóksalafélagið var stofnað árið 1889 voru hér engar bókaverzlanir og urðu útgefendur því að fá sér sölu- menn úti um land. Þar sem litlir peningar voru þá í veltu var eina ráðið að hafa það fyrifbcmulag, að aðeins væri gert upp einu sinni á ári fyrir bækurnar og hefur það hald- izt síðan. Þetta er nú orðið bókaútgefendum mikill þyrnir 1 augum og liggja fyrir næsta fundi Bóksalafélagsíns tillögur um gagngerar breytingar á þessu. Kvaðst Gunnar búast við því, að yrðu þær sam- þykktar myndi það hafa þær afleiðingar, að upplög bóka minnkuðu en verð bókanna hækkaði jafnframt nokkuð. ís- lenzkar bækur eru nú aðeins um þriðji hluti af umsetningu bókabúða hér og ætti það því ekki að skipta miklu máli fyr- ir. bókabúðirnar, þótt þær yrðu að kaupa þær gegn stað- greiðslu, eins og aðrar vörur. sem þær verzla með í stað .þess að hafa árs gjaldfrest eins og nú er. Á undanfömum árum hefur Bóksalafélagið haldið árleg- an bókamarkað hér í Reykja- vík og hefur stundum verið farið með hann út á land á síærstu staðina á eftir. Nú verður hins vegar haft það fyrirkomulag. að bóksalar úti um land munu taka á möti pöntunum á bókum, sem á markaðinum eru og annast út- vegun þeirra. Hafa þeir feng- ið senda skrá yfir bækurnar á markaðnu.m en sa galli er þó á skránni, að ekki er í henni nema helmingur bók- annej sem á markaðnum eru. þar sem svo margir útgef- endur urðu síðbúnir að til- kynna um þátttöku sína. Þessi markaður er sá lang- stærsti, sem Bóksalafélagið hefur haldið. Eru um 1500 bókatitiar eða ca. 20—30 þús- und bóka þegar á markaðn- um og stöðugt verður bætt við meðan á honum stendur. Markaðurinn verður ODinn 10 daga kl. 9—18 virka daga. Á laugardag og sunnudag vei'ður markaðurinn opinn kl. 9—22 báða dagana. Umsiónarmenn markaðsins fyrir hönd ’ Bók- salafélagsins eru. Lárus Blön- dal og Jónas Eggei'tsson. Ötter og Einar gefa skýrsln • I fyrramorgun komu heim fró New York, þeir Óttar Möller og Einar B. Guðmunds- - son og héldu þeir fund með stjórn Eimskipafélagsins í gær og gáfu henni skýi-slu um smyglmálið, sem kennt er við Goðafoss. Goðafoss er svoi væntanleg- ur heim um helgina. Ritgerða- samkeppni Skólastjórar um land allt eru hvattir til að láta sem flesta nemendur sína taka þátt í ritgerðasamkeppni um efnið: „Hvemig get ég vei'nd- að tennumar?'1 og senda þr-jár beztu ritgei'ðirnar til Tann- læknafélags íslands fyrir 10. apríl n.k. Mörg verðlaun verða veitt. Réttur, tímarit um þjóðfé- lagsmál, 1. hefti 45. árgangs, er nýkomið út. I ávarpi ritstjóra til lesenda segir að með þessum. árgangi vei’ði reynt að gera stórt átak um stækkun og útbreiðslu Réttar, reynt verði að koma út 10 heftum, 3—4 örkum hverju, (48—64 síður), ,þ.e. koma Rétti út svo að segja mánaðarlega. Verður nú sett sérstök ritnefnd, sem í eru Ásgeir Bl. Magnússon, Björn Jónsson, Gísli Ásmundsson, Magnús Kjai’tansson og Þór Vigfússon, en ritstjóri verður áfram Einar Olgeirsson. Jafn- framt þessaiú stækku.n verður vei'ð árgangsins hækkað í 100 kr. og mun það ekki teljast dýi't miðað við síðufjölda sem ætti að verða 500—600 síður. „Höfuðatriðið í Rctti“, segir ennfremur í ávarpi ritstjóra til lesanda „verður sem hing- að til gi'einar. er varða fslenzk þjóðfélagsmál, en jafnframt verður nú reynt í ríkara mæli en hingað til að flytja fræð- andi greinar og þætti um það, sem er að gerast erlendis . . . Jafnframt þessurn bi’eytingum vei'öur svo kappkostað að öðru leyti að gera Rétt fjölbreyttari, — **■ ** '" " m. a KSMHk. iyt ftWek 3:^jp Nú datt Þórði allt í einu ráð í hug. „Nú hef ég einmitt þörf fyrir þig og lyktnæmi þitt,“ sagði hann við kokk- inn. „Klifraðu upp í útsýniskörfuna og vittu hvort þú finnur ekki reykjarlykt.“ Þórður beitti Braunfisch upp í vindinn. Samkvæmt öllum útreikningum átti hið brenn- andi skip einmitt að vera í þeirri átt. Skipið gat varla verið sokkið enn. Nú var ekkert að gera nema bfða á- tekta og vita hvort kokkurinn finndi ekki reykjarlykt. Frá bókamarkaðinum í Listamannaskálanum. Sigurður Róberts- son rithöfundur við eitt borðið með bókahlöðunum. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Réttur stœkkar - unnið að aukinni útbreiðslu ritsins flytja styttri greinar en áður, En syoh’a mikil stækkun getur því aðeins orðið til langframa að lesendur Réttar bregði nú vel við og bæti nú mikilli atcrku við þá miklu tryggð, sem þeir setíð hafa auðsýnt Rétti. Höfuðatriðið er að állir lesendur Réttar reyni að' útvegá nýja áskrifendúr. Ef hvér áskrifandi Réttar út- vegar a.m.k. einn núna þá er útgáfunni borgið. Jafnframt er það auðvitað nauðsynlegt að menn greiði skilvíslega á- skriftarverðið . . .“ í nýútkomnu hefti Réttar skrifar ritstjórinn gi’einarnar „1262—1662—1962“ og. |,Reisn álþýðunnar eða lágkúra aft- urhaldsins“, erlenda víðsjá og bókafregnir. Hallarekstur sem nemur 7000 millj. króna neínist gi’ein eftir Inga R. Helgason, Eggert Þö'rbjarnar- son segir frá 22. jringi Kotnm- únistaflokks RáðStjórnarríkj- anna. grein er eftir brézka eölisfræðinginn 'J.D. Bernal um vísindaframfarlr ög þjóð- félagsréttlæti, kvæðið ..Yfirlit (1907)“ sem Fornólfur orti þegar barizt, var um það hvort ísland skyldi verða óaöskilj- anlegur hluti Danaveldis eða ekki, og fleira er í heftinu. 2) ■— ÞJÓÐVILJIfíN Föstudagur 30. marz 1962

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.