Þjóðviljinn - 05.05.1962, Page 7
ÐVHJINN
fiftntuim: BaatislnnrtlokiniT a!»5« - W*!all»t»!iokkiirtnn. - BlUtlOrmTi
■fasnús KlartansBan (ib.l, MaintU Tortl Ol&ísson, SllurBar QaSmanduon. —
Brittarltstlórar: ívar H. Jónsson, Jón Blsrnaaon. — AuKlýslnsastjórl: OuScslr
Maenússon. - Rltstlóra. alsrelSsla, auulTslngar, orontsmlBla: SkðlaTðrSast. 1».
BUal 17-500 (9 llnur). AskrlítarverS kr. SS.OO & min. — LsusasöluverS kr. 3.00.
FrsntsaslBla bjóSTUlans bX
Ofstæki Kjartans Thórs og
kumpána þjóðinni clýrt
Með, þeiirí afturhaldsforystiu sem sífellt hreiðrar
fastar um sig í svonefndu „Vinnuveitendasam-
bandi íslands“, hafa þau samtök meir og meir feng-
ið á sig blæ þröngrar hagsmunaklíku, blæ svartasta
pólitísks ofstækis og blindrar hagsmunastreitu þess
hluta auðvalds á íslandi, sem einskis svífst í baráttu
sinni gegn alþýðusamtckunum, og lætur sig ensu varða
hag þjóðarheildarinnar. Þannig er það að verða áber-
andi, að klíkan sem raunverulegia ræður þessu „vinnu-
veitendasambandi", notar og misnotar samtökin út frá
aðilar lofast til að mæla með samningunum við félög
á Islandi, og jafnvel þess hluta hennar sem þegar hef-
ur rakað svo til sín auði eða arðránsaðstöðu, að hann
á sitt nokkurn veginn á þurru hvernig sem veltist í
framleiðslulífi og athafnalífi þjóðarinnar. Með ósvífni
og harðdrægni eru atvinnurekendur neyddir til að
greiða stórar fúlgur árlega í pólitískan herkostnað
þessarar þokkaklíku gegn verkalýðshreyfingunni og
frjálslyndi í landinu. Þarna er að verki sama auð-
klíkan og öllu' ræður í Sjálfstæðisflokknum, og hefur
blygðunarlaust mignotað sameiginlegan þingmeirihluta
íhaldsins- og Alþýðuflokksins og vald ríkisstjórnarinn-
ar til að þjóna lund sinni og hagsmunum afturhalds
og auðvalds á íslandi.
pólitísk misnotkun „Vinnuveitendasambandsins“ kom
einkar 'glöggt fram í vinnudeilunum í fyrra, þegar
staurblindu pólitísku ofstæki Kjartans Thórs og kump-
óna var teflt gegn sanngjörnum kröfum verkalýðs-
hreyfingarinnar, þangað til alþýðusamtökin höfðu sýnt
einbeitni sína og vald svo ekki varð um villzt. En
blekið var varla þornað á undirskrift vinnuveitenda
svonefndra undir nýja kjarasamninga en ofstækisklík-
an sem ,ræður bæði Vinnuveitendasambandinu og Sjálf-
stæðisflokknum lét ríkisstjórnina fremja augljóst
stjórnarskrárbrot, afhenda gengisskráningarvald Al-
þingis Seðlabankanum, sem tafarlaust var svo látinn
vinna það óhappaverk í umboði ríkisstjórnarinnar að
lækka gengið. Og ríkisstjórnin velti yfir þjóðina nýrri
dýrtíðaröldu sem beinlínis þýðir að afturhaldið stelur
aftur þeirri kiaratoót sem vannst í vinnudeilunum.
Þannig er farið heiðarleika og bardagaaðferðum þeirra
manna og samtaka sem verkalýðshreyfingin hefur að
viðsemjendum.
F’itt skýrasta dæmið um skemmdarverk og pólitískt
ofstæki afturhaldsklíkunnar sem ræður jafnt
„Vinnuveitendasambandinu" og Sjálfstæðisflokknum
er þó framferði hennar undanfarið gagnvart samning-
unum í járnsmiðadeilunni. Samningaumleitanir aðil-
anna hafa farið fram, samkomulag hefur náðst þar sem
báðir aðilar hafa slakað til á kröfum sínum, og báðir
aðilar lofast til að mæla með samning-num við félög
sín. Reynslan hefur sýnt, að því nær undantekningar-
laust er vinnudeilu þar með lokið, úrslitin verða þau
sem samninganefndirnar hafa komið sér saman um.
En nú gerist það furðulega að hin staurblinda ofstæk-
isklíka Sjálfstæðisflokksins í Vinnuveitendasambandi
íslands grípur inn í og hindrar þær leiðréttingar -á
samningum, sem launþegar og atvinnurekendur járn-
iðnaðarins höfðu orðið ásáttir um án verkfalls. At-
vinnurekendur eru beinlínis látnir taka orð sín aftur,
samkomulagið er að engu gert, nema af hálfu jám-
iðnaðarmanna sem samþykkt hafa einróma á félags-
fundi að samkomulagið skyldi gilda af þeirr hálfu
þar til á miðnætti í nótt er leið. í stað lagfæringar á
samningi og vinnufriðar heimtar ofstækisklíka Vinnu-
veitendasambandsins verkfall í járniðnaðinum í maí-
byrjun. 'Mun þó fullljóst að járnsmiðirnir hljóta að
vinná þáð verkfall, og eins hitt að óUklegt sé að
þeir láti sér lynda samkomulagið, sem gert var,
verði þeir neyddir til að sækja leiðréttingar á samn-
ingum sínum eftir verkfallsleiðinni. — s.
Hér er „Pravda'* til húsa. Blaöhásið var reist raeðan funkisstíllinn mátti sín nokkurs í Sovétríkjunum
FIMMTU
PROVDU
MOSKVU — 5. maí 1912 hóf
nýtt dagblað göngu sína í
Sankt-Pétursbúrg. Það hét
Pravda og undir hausnum stóð:
dagblað verkamanna. Á fyrs‘<u
síðu voru tilkynningar frá
verkalýðsfélögum: fulltrúaráð
félags verkamanna í brauðgerð-
um ætlaði að halda fund þenn-
an dag, en í félagi vagnasmiða
ótti að vera fyrirlestur um
söguleg efni. Þar vár einnig
kvæði: bikar þjáninga okkar er
fullur, en samt er afl okkar
ekki þrotið. Þar var og ávarp
frá ritstjórninni: |,Er það satt
að verkamönnum sé af forsjón-
inni ætlað að lúta undirokun
og þrælkun alla tíð? Nei.
Verkamannastéttin er skapari
allra auðæfa, og hún mun fá
að njóta allra ávaxta af starfi
sínu“. Tónn blaðsins var her-
skár, enda var það málgagn
vinstra arms rússneskra sósíal-
demókrata — bolsévika.
Bolsévikar höfðu áður gefið
út ýmis vikublöð og tímarit,
sum lögleg, önnur ólögleg. En
þetta var í fyrsta skipti að
tþeir réðust í útgáfu dagblaðs.
Pravda var lítið blað, fjórar
síður í smáu broti, og upplagið
Var 60 iþúsund. En það varð
fljótt vinsælt meðal verka-
manna: þeir skrifuðu mikið í
Iblaðið, söfnuðu fé því til stuðn-
ings, dreifðu í>ví á hugvitsam-
legan hátt. Fróðir menn telja,
að þau tvö ár sem blaðið kom
út ’ fyrir byltingu hafi einkum
tvennt sett svip á það: grein-
ar verkamannafréttaritara á
vinnustöðum og 280 greinar
sem Lenín sendi blaðinu, en
hann var þá í útleað í aust-
urríska hluta Póllands. ,
Pravda varð oft fyrir hnjaski
á árunum /1912—14, var oft
gerð uj-þtæk eða bönnuð og
starfsmenn hennar fangelsaðir.
Það lýsir vel kringumstæðun-
um að þá hafði Pravda
sérstaka ábyrgðarmenn sem
höfðu það verkefni að . sitja í
tugthúsum fyrir hina. .ráunveru-
legu ritstjóra. Og á þessum ár-
um hlaut blaðið að skipta átta
sinnum um nafn.
Þegar heimsstyrjöldin fvrri
ihófst tók fyrir löglega blaða-
útgáfu bolsévika, og kom
Pravda ekki út fyrr en eftir
febrúarbyltinguna . 191.7., Eftir
októberbyltínguna breyttist
mjög hagur blaðsins. það yerð-
ur málgagn ráðandi flokks í
víðlendasta ríki hnattarins. Það
blað sem áður reif niður
stjórnarfar keisaraveldisins fær
nú forvstuhlutverk í uppbygg-
ingu sósíalismans í laridinú.
Saga Pröv.du er viðburðarík
eins Og saga Sovétríkjanna.
Flestir hélztu fórystumenn í
stjórnmálum, atvinnumálum og
menningarlífi hafa látið til sín
heyra á síðum blaðsins. Þó hef-
ur blaðið líklega aldi'ei haft
jafn mörgum góðum pennum á
að skipa og á stríðsái’unum: þá
skrifuðu bókstaflega allir
helztu rithöfundar ’ ’ lándsins
reglulega fyrir það: Alexei Tol-
stoj, Erenbúrg, Símonofj Fedín
og margir fleiri. En af blaða-
mönnum Prövdu hefur Mikhaíl
Kcltsof orðið ástsælastur. Hann
var þekktur fyrir frábær-
lega hnyttnar og hugkvæmar
„kja}lara“greinar um það 'sem
mi.ður fór í þjóðfélaginu. Hann
var og framúrskarandi vígfim-
ur. í baráttu við pólitíska and-
.stæðinga: einhverju sinni sendi
hahn rússnesku útlagablaði í
París bréf um hungrið og
eymdina í Sovét, biaðið gleypti
við þessu. en varaði sig ekki á
því að fyrstu bókstaíir fimmta
hvers orðs í agreininni mynd-
uðu setningu þar sem stóð að
þettá væri allt saman hauga-
lýgi eins og ánnað í þessu
hvítliðablaði. Síðan voru reikn-
ingar gerðir upp með miklum
fögnuðu í Prövdu. IColtsoff var
og •frétfaritari Prövdu í Spánar-
stvrjöldinni cg .er dagbók ha-ns
um þá viðburði hiri mei’kásta
heimild.
Pravda, er nú' dáglega fjórar
eða sex síður í allstóru broti
(tvöfalt stærra en t-d, ísl. þlöð)
auglýsingar eru engar og
myndir fremur fáar þannig að
lesmál er allmikið. Sem mál-
gagn Kommúnistaflpkksins
gegnir Pravda eðlilega 'forystu-
hlu.tverki í pólitísku lífi lands-
ins, og’ er því eitt þeirra bláða
sem oftast er vitnað til í út-
varpi pg pressu heimsins. Þetta
pólitíska hiutverk sitt tekur
blaðið mjög alvarlega: það er
erfitt að finna í Prövdu „létta“
blaðamennsku, meinlaus
skemmtilegheit og þaðan af
síður æsifregnir, Hinsvegar
birtir Pravda mikið af 'ræðum
stjórnmálamanna, orðsendingar
milli ríkisstjórna og annað
þessháttar og gjarnan þá ó-
styttan texta. Blaðið leggur og
mikla áherzlu á að birta grein-
ar eftir helztu frömuði í ólík-
um sviðum þjóðlífs og menn-
ingarlífs: Olanova skrifar um
ballett, Gerasímof um kvik-
myndir, Keldisj um þróun vís-
inda, svo nokkur hin síðustu
dæmi séu nefnd. Slíkar greinar
hafa að undanförnu sézt cftar
á síðum blaðsins en áður hef-
ur verið.
Afmælis Prövdu er minnzt
með ýmiskonár bókaútgáfú 'um
sögu þess og svo með vegleg-
úm hátíðahöldum; 5, mal hefur
reyndar alllengi: verið hátíðis-
dagur sovézkrar pressu. Pravda
er nú elnhvert útbreiddasta
dagblað heimsins. kemur út í
6,3 milljónum einta,ka. Arní.
BbtXOA 9 MA.H i32
AnPE/lfli IWI3r -OAKPWTHE >»ÍHHtOnK1fl3r.
PABOMAfl
flPABUA
CtBePMA* r./T.
—-s tn -«*•»
DPiW
BblAOA 36 (J3)'MJO.Ifl 19*3 f. •3AKPöiTH5
14. 01 ABryCTA 1913 r.
ÐbiXOA'4 ABriíCTA I9rtr 3AK°blfHC
' 20 (7/ CEHTP6PB i9>3 r
DPllY:
Bb1AOA34 P') CÉHTB6PB 1913 r. - 3AKf\blTHS
• 23 (9) OKTP6PK 19*3 C.»
nponETWPCHflfl
BoíA0A 14 «') 0KTP6PP 1913 r. • 3AKPWTHE , •..
18 (3) A£KA6PH >913 f. .' v
= nytb
CT .nMW jf «
flPAHAA
npsBiu
ÐblXOA20(?) AEKA6PK 1913 r-3AKPblTH£
' *• 3 ttEBPAíTK 13' PHBAPR) 1914 r.
'mm
BblXOA 4 OEBPAAB (23 RKBÁPfl) Í9H f.í- OAKPblTHS
* v . " • . 3 (itOHB (21 MAB) «14 cv *^ • .
T*yjfO»A3l ‘ - : - 1 ■ •
HFABflA
-——- j ■ I4« . ;
wmmn™.,
i i-'susoASHiOHSiajjssMWr.-^lHS.'
20(7)HX)Hfl«.!4r.;.; 21^9)HK3..H «.4 C
... á tveim árum hlaut blaðið að skipta átta sinnum um nafn.
Varman
Hér á eftir fara nokkrir mol-
ar úr erindi Gunnars Böðvars-
sonar og Sveins S. Einarssonar
um jarðvarma til húsahitunar
og iðnaðar, er flutt var á ný-
lokinni verkfræðingaráðstefnu.
Fyrst skal birt tafla um á-
ætlaða nýtanlega orku helztu
háhitasvæða á Islandi. Er ork-
an mæld í gigaiítrum (1 gltr. =
1 millj. ltr.) af olíu:
Krýsuvík
Hengiil
Torfajökull
Néimafjaii
5 Gltr. olíu
50 Gltr. olíu
100 Gltr. olíu
5 Gltr. olíu
„Þessi jarðhitasvæði eru
varínanámur með . miklu magni
lághitavarma og hlutfallslega
lágum vinnslukostnaði. En
flutningskostnaður varmans er
mikill, og notkun verður að
fara fram á sjálfum svæðunum
eða í næsta nágrenni þeirra,"
segja höfundar.
Til samanburðar á vinnslu-
vérði- jarðvarma og nokkurra
annarra tegunda eldsneytis
birta þeir eftirfarandi töflu.
(Gíga.kalon'a er milljón hita-
einingar):
kr Gcal
10— 20
10— 40
10— 15
70
50— 60
. -Jarövarmi á íslandi
Jarðgas í Bandar. ..
Jarðgas í Sahara ..
Ketilolía í Bandar.
Ketilolía í Arabíu ..
Steinkol í V-Þýzkal 105—125
Bnínkol í V-Þýzkal 70
Ketilolía í Bvík .... 110
Síðan benda höfun.dar erind-
i-sins á erfiðleikana við flutn-
ing gufu og háhitavatns frá
orkusvæðunum. Segja þeir að
flutningur hreinnar gufu komi
vart til mála við lengri fjar-
lægðir en 5 km, en háhita-
vatn má flytja allt að 50—75
km vegalengd. Jarðgas má hins ,
vegar flytja 50 til 100 falda
þá vegalengd.
Um notkun jarðvarma hér á
landi til iðnaðar segja þeir því
næst:
„Ýmis meiri hát.tar iðnaður
notar lágjliitavarma í ríku-m
mæli og virðast þvi fræðilega
séð möguleikar á iðnaði við
járðhita hér á landi. Þetta mál
hefur nú verið til athugunar
um árabil, einkum á vegum
raforkumálaskrifstofunnar. Meg
inmarkmið hefur verið að leita
að iðnaði, sem í senn notaði
mikinn lághitavarma og fram-
leiddi hentugar afurðir til út-
flutnings.
Segja má, að niðurstöður hafi'
enn sem komið er valdið
nakkrum vonbrigðum. Enn hef-
ur ekki tekizt að benda á neina
iðngrein, sem telja má rekstr- .
ar- cg afkomuöru.gga. Þessu
veldur einkum tvennt. Annars
vegar er ísland hráefnasnautt,
og innflutningur erlends hrá-
efnis til vinnslu hér kemur
vart til mála. Hins vegar hafa
viðsikiptaaðstæður verið óhag-
stæðar. Loks ber að gera sér
ljóst, að yfirlettt verður ein
grein efnaiðnaðar að hafa sam-
skipti við aðrar og er því
hvergi auðvelt að byggja eina
grein á afskekktum stað.
Ef um er að ræða vinnslu af-
urða til neyzlu innanlands eru
aðstæður að sjálfsögðu aðrar.
En innanlandsmarkaður er lít-
ill og veldur þetta örðugleik-
um: Varmanotkun íslenzkra
iðnfyrirtækja er einnig hlut-
fallslega lítil, og verð varm-
ans er ekki þýðingarmikið
atriði.
Ylrækt.
Segjamá, að fram að þessu hafi
jarðvarmi aðeins náð öruggri
fó'festu í einni grein, iþ.e. í yl-
ræktinnl. Þessi grein er að
vísu talin til landbúnaðar, en
líklega verður þegar fram í
sækir að telja hana sé.rstaka
iðngrein. Vafalaust eru alkni'kl-
ir möguleikar á þessu sviði,
enda þótt þeim sé ekki haid-
ið mikið á lofti.
Heil-darvarmanotkun til yl-
ræktar á íslandi mun nú vera
tæple.ga 100 Tcal/ár. Þetta eru
um 5°/>; af notorku þjóðarinnar.
Erm er ylræktin því hlutfalls-
lega lítill varmanotandi.
Þungt vatn.
Af stóriðnaði, sem til athug-
unar hefur komið, er ein grein
sérstæð, þ.e. vinnsla þungs
vatns (D20). Enginn stóriðnað-
ur virðist jafnvel fallinn til
reksturs á Islandi. Hráefni er
vatn, sem nóg er til af. Varma-
notkun er um 4 Gcal kg D20
og er þetta óvenjulega há tala.
Verðmæti er um 2.000 til
3.000 kr/kg D20 og er það
elnnig óverijulega hátt verð.
Flutningskostnaður er því
hverfandi. Byggingarkostnaður
100 lestir af D20 á ári mun
nú vera talinn um 700 Mkr.
Gufunotkun er tæplega 100
lestir klst við um 6 ata þrýst-
ing.
Athugun á möguleikum D20
vinnslu á íslandi hefur farið
fram á vegum raforkumála-
skrifstofunnar, kjarnfræða-
nefndar og nefndar á vegum
OEEC landa. Allmargar skýrsl-
ur hafa verið gerðar um fram-
vindu mál&ins. Niðurstöðum
ber saman um, a.ð stórvlnnsla
D20 við jarðvanna á Islandi
muni hagkvæm, en markaður
fyrir D20 sé enn mjög óviss,
og því ekki gerlegt að taka
"éndanlega afstöðu til málsins.
í skýrslu OEEC nefndar frá
marz 1962 er talið, að markaðs-
málin muni óviss fram að
1965, en þá megi gera ráð fyr-
ir, að málin taki að skýrast.
Árið 1958 gerðu brezki.r verk-
fræðingar samanburð á
vinnsluskostnaði D20 við elds-
neyti á Bretlándi annars veg-
ar, og við jarðvarma á íslandi
hins vegar. Þeir töldu vinnslu-
kostnað á Bretlaridi um 4.000
kr/kg ef miðað er við 10 ára
fyrningu tækja, en það1 rná
telja eðlilegan tíma. Með Sama
fyrningartíma var éætlað verð
á íslandi 3.500 kr/kg.
Enda þótt þessar niðurstöður
séu þegar úreltar er- at.hyglis-
vert, að virmslukóstnaður á
Bret.landi er taiinn aðeins l,5n'v
hærri en á ís’andi brátt fyrir,
að varm; hér á landi er reikn-
aður á verði, sem er aðeins um
1/5 af verði varma á Bretlandi.
Þessi niðurstaða sýnir greini-
■lega örðueleikana við stórefna-
iðnað á Islandi. Vinnsla D20
er vafaiaust sú grein, sem bezt
mun henta aðstæðum hér á
landi. Þrátt fvrir bað er verð-
Framhald á 10. síðu.
Öflugt og- blómlegt atvinnu-
líf er undirstaða góðrar af-
komu og almennrar velmeg-
unar Reykvíkinga. Þótt at-
vinna hafi verið næg undan-
farin ár, er ljóst að atvinnu-
grimdvcllurinn er ekki nógu
traustur. Alltof margir borg-
arbúar eiga afkomu sína
undir ótryggum, tímabundn-
um framkvæmdum og hlut-
ur Reykvíkinga í sjálfum
f ramleiðslustörfunum er
íangt frá því að vera eðlileg-
ur eða viðunandi, einkum
begar hafður er í huga vöxt-
ur borgarinnar og fyrirsjá-
anleg fjölgun íbúa hennar.
EFLING ATVINNULÍFSINS — AFKOMUÖRYGGI
Alþýðubandalagið vill beita sér fyrir eftirfarandi ráðstöfun-
■um f atvinnumálum Reykvíkinga, í þv*í skyni að treysta grund-
völl atvinnulífs borgarinnar og tryggja íbúum hennar ör-
ugga atvinnu og afkomu:
1 Borgarstjórnin láti gera áætlun um nauðsynlega eflingu
• atvinnuvega borgarbúa og sé með öllum ráðum stuðlað að
framkvæmd hennar, bæði á vegum bæjarfélagslns, ein-staklinga
og íélagasarntaka.
Borgarstjórniri sjá um að bæjarfélagið sé jafnan við því
“* búið að auka framkvæmdir slnar ef um samdrátt er að
ræða á vegum einkaframtaksins eða félagasamtaka. Þannig
sé borgarbúum jafnan tryggð full abvinna.
9 Stuðlað sé að aukningu og viðhaldi fiskisklpaflota Reyk-
^* víkinga. Athugað sé hvort ekki er.itírriabært að hefja smíði
a.m.k. eins verksmiðjuskuttogara, er stundað geti veiðar á
fjarlægum miðum um lengri tíma en nú tíðkast og unnið allan
aflann ferskan um borð.
4 Borgarstjórnin beiti sér fyrir því, að sem mestur hluti
■“* iþéss aflá, sem berst á land í Reykjavík, sé fullunninn hér
heima. • Bæjarútgerð Reykjavíkur taki forustu í rannsóknum
og tilraynum með riýjar verkunaraðferðir sjávarafurða, sem
líklegar eru til góðs árangurs. Áherzla sé lögð á að nýta sem
stærstan hluta Faxaflóasíldarinnar til manneldis. Bæjarútgerð-
in láti rannsaka möguleika á byggingu fullkominnar niður-
suðuverksniiðju og niðurlagníngarverksmiðju fyrir sjávarafurð-
ir.
Hraðað verði. undirbúningi og áætlunum um framtíðar-
stækkun Reykjavíkurhafnar og það mál vandlega undirbú-
ið. Lögð verði rík áherzla á að nýta til fulinustu núverandi
hafnarsyæði og hafnarskilyrði stórbætt, og afgreiðsluskilyrði
hverskonar og aðbúnaður fyrir stór- og' smáútgerð fiskiskipa
svo og siglingar. Komið verði upp nýjum báta- og togara-
bryggjum í höfninni, eftir því sem skilyrði leyfa, Bætt sé úr
óyiðunandi, aðbúnaði smáþátaútgerðarinnar. Höfnin eigi sjálf
og reki þau vörugeymsluhús, sem reist verða eftirleiðis á at-
hafnasvæði hennar. Byggingu nýrra venbúða sé hagað í sam-
ræmi við þörfina.
/ Borgarstjórnin beiti sér fyrir því að komið verði upp stórri
dráttarbraut og þurrkví, er tekið geti hin stærri millilanda-
skip til viðgerða. Við staðaval sé haft í huga að þar verði einn-
ig skipasmíðastöð og gott athafnasvæði fyrir vélsmiðjur o.fl.
er tilheyrir sh'kum framkvæmdum og rekstri.
H Iðnaðurinn, stærsta atvinnugrein Revkvíkinga, sé efldur og
* * hlynnt að honum af hálfu bæjarfélagsins, m.a. með því að
sjá honum fyrir nægri raforku og með skipulagningu og und-
irbúningi nýrra athafnasvæða á heppilegum stöðum. Það sleif-
arlag verði gert útlægt *að iðnaðarfyrirtæki verði að flýja
Reykjavík vegna lóðaskorts. Komið sé upp iðnaðarhúsi, skipu-
lagðri sambyggingu fyrir smærri iðnað.
O Hafizt verði þegar handa um nýjar vinkjunarframkvæmdir
"* til þess að tryggja almenningi í borginni og atvinnuveg-
inum næga raforkú til frambúðar og skapa möguleika til
byggingar nýi-ra iðjufyrirtækja í iandi Reykjavíkur. Skal um
þetta haft samstarf við ríkisstjórnina, en áherzla lögð á að
Reykjavíkurborg hafi möguleika til iþátttöku í sh'kum atvinnu-
rekstri við hlið ríkisins og einkaaðila.
g) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. maí 1962
Laugardagur 5. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (7,