Þjóðviljinn - 17.06.1962, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.06.1962, Blaðsíða 4
GARÐARSHÓLMI Keflavík Eins manns sveínsóíi sem gegnir þrem hlutverkum. 1. Þægilegt svefnrúm 2. Sófi með sængurfatageymslu 3. Sófaborð TAKIÐ EFTIR: Kassinn er heill. Ekki áklæði í gaflinum. Athugið kassinn hvílir á gólfinu. Húsgagnaverzlunin GARÐARSHÓLMI Keflavík Sími 2009 Höfn í Hornafirði: Kristján Imsland. Vélbátaútgerð Togaraútgerð Vélsmiðja Skipaaígreiðsla Fiskherzla Saltfiskverkun Hraðfrysting Kaupum allar fiskafurðir og önnumst hverskonar fyrirgreiðslu skipa. Bæjsrúfgerð Hafnarfjarðar. H ti S G Ö G N Fjölbreytt úrval. Póstsendum. Axel Eyjólfsson, Skipholti 7. Sími 10117. Trúlofanarhringir, stelnhring I ir, hálsmen, 14 u 18 karata 300 bœkur ö 25 drum í dag eru liðin 25 ár siðan bókmenntafélagið Mál og menn- ing var formlega stofnað, en fyrstu útgáfubækur þess komu á markað haustið 1937. E:ns og getið hefur verið hér í blað- inu minnist félagið þessa af- mæiis með mjög myndarlegri afmælisútgáfu, 12 bókum eftir þjóðkunna r;thöfunda og skáld auk sérstaks hátíðaheftis af Tímariti Máls 02 menningar. Einnig mun félagið minnast afmælisins með sýningum og hátíðahöldum í haust; mun þá e'nnig verða fjallað hér i blað- inu um hin stórfelldu áhrif sem starfsemi Máls og menn- ingar hefur haft. / • Stofnendur Stofnendur Máls og menn- ingar voru fimm menn: Krist- inn E. Andrésso.n, Sigurður Thorlací-us, Halldór Kiljan Kaxness, I-Ialldór Stefánsson og Eirikur Magnússon. Tveir hin- ir fyrsttöldu komú frá bóka- útgáfunni Heimskringlu, sem þá hafði starfað um nokkurt skeið, en hinir þrír voru kjörnir af félagi byltingarsinn- aðra ritihöfunda, en þessi tvö félög höfðu bundizt samtökum um að hrinda hinu nýja út- gáfufélagi af stað. Á fundin- um var félaginu gef.ð nafn og ákveðið að senda út boðsbréf. • Tilgangur Tilgangur félagsins var frá upphafi sá að gefa allri al- /þýðu manna kost á góðum bókum fyrir eins lítið verð og auðið væri. Þessu markj hugð- ust stofnendur félagsíns ná rheð síváxandi meðlimafjölda sem lækkaði kostnaðarverð hverrar einstakrar bókar að sama skapi. Bókaútgáfa átti þá mjög erfitt uppdráttar, upplög- in voru mjög lítil og bókaverð þess vegna tiltölulega hátt, svo að almenningí var o.fvaxið að ' kaupa nokkuð að ráði af bók- um. Útgáfa góðra bóka var ihins vegar mesta glæfrafyrir- tæki af því að ekki var hægt að gera ráð fyrir nema tak- mörkuðum hópi lesenda. Mark- mið félagsins var að vinna gegn þessum tveimur höfuð- fjendum menningarstarfsemi í landinu: kaupgetuleysi almenn- ings og áhættunni af útgáfu foóka sem hefðu menningar- g’ldi. Stofnendurnir hófu starf sitt með tvær hendur tómar. Allur höfuðstóll þeirra var á- huginn og trúin á málefnið. Ailt valt þess vegna á undir- tektum almennings. r • Undirtektir í boðsbréfinu gerðu stofnend- ur félagsins sér vonir um að 1000 meðiimír fengjust í félag- ið á fyrsta ári og 2000 næsta ár. En undirtektirnar fóru langt fram úr bessum vonum, sem mörgum þóttu þó stórhuga í fyrstu. Þegar í árslok 1937 voru félagsmenn orðnir 2000 og 4000 í árslok 1938. Hefur sá fjöidi síðan haldizt með nokkr- um gveiflum. KRISTINN E. ANDRÉSSON • Andstaða ■Hinar góðu undirtektir al- mennings stöfuðu þó ekki af Iþví að allir fögnuðu þessu myndarlega frumkvæði i menningarmálum. Afturhalds- mönnum blæddi i augum að róttækir islenzkir menntamenn skyldu þannig taka. algera for- ustu í íslenzkum menningar- málum. Hafa margar tilraunir verið gerðar til þess að to.r- velda félaginu störfin. forustu- menn þess ihafa aftur og aftur mátt sdeta ofsóknum, sem. stundum hafa verið með ólík- indum. En þrautalendingin hef-; ur þó orðið sú að feta í fót- spor Máls og menningar og reyna að keppa á þeim velli sem félagið haslaði sér. Bóka- útgáfa Menningarsjóðs var á sínum tíma stofnuð með veru- legum fjárframlögum í því skyni að standa yfir höfuð-j svörðum Máls os menningar.í Menningar- og fræðslusamband alþýðu reyndi einnig að taka upp samkeppni um skeið. Og nú síðásj Befur Sjálfstæðis- flokkurinn ausið stórfé í Al- menna foókafélagið í sama skyni. Helur Mál og menning sízt af öllu ástæðu til að am- ast v;ð þessari samkeppni; sú þarflega iðja sem þessi keppi- nautafélög hafa sinnt', er ein- mitt einn árangurinn af starfi Máls og menningar. • 300 bækur Á þei n Lioaif’ó'.'c ungi -r. liðinn er frá <■ r.'/ls ng menningar hefur bókmenr-tafé- lagið ása'-’.t Hei;nsl:nr>g:u gcfiO út um 300 foækur, er ro.rv".t cr að greina starfsemi þeirra tveggja félaga sundur. Yfir- gnæfandi meirihluti þessara bóka — eða sem næst tvær af hverjum þremur er eftir ís- lenzka höfunda. Hafa ýms merkustu bókmenntarit þessa . aldarfjórðungs komið út á veg- i um Máls og menningar, og einnig hefur félagið orðið fyrst j til þess að kynna marga unga j höfunda og talið það sérstaka 1 skyldu sína að rækja samband- ið við þá. Rauði þráðurinn I starfsemi félagsins hefur verið Tímarit Máls og menningar* lang-fremsta menningartímarit Islendinga, en af því koma nú út fimm hefti á ári. Hér eru ekki tök á að rifja upp helztu verk sem Mál. og menning hefur gefið út eða ræða um áhrif þeirra og gildij sú starfsemi er samslungin menningar- og stjórnmálasögu þessa aldarfjórðungs. En einnig hefur Mál og menning haft forustu um hverskyns nýmæli í útgáfustarfsemi; félagið hóf t.d. 1952 útgáfu á bókaflokkum sem félagsmenn gátu valið úr( og önnur félög fetuðu síðan í slóðina eins og fyrr. i • Stórframkvæmdir Til þess að festa starfsemi sína í sessi hefur Mál og menning beitt sér fyrir fjöl- þættum framkvæmdum öðrum. Félagið stofnaði til að mynda prentsmiðjuna Hóla, sem á tuttugu ára afmæli í haust. Hafa bækur félagsins verið unnar þar, og hefur prentsmiðj- an haft mikil áhrif til aukinnar smekkvfsi í bókagerð. Nú síð- ast hafði Mál og menning for- ustu um stórbyggingu Vega- móta við La".gaveg, en þar hef- ur félagið nú kornið sér upp glæsilegustu bókabúð á íslandi iOg fengið stórbætta aðstöðu til starfa. Hafa þær stórfram- kvæmdir að sjálfsögðu torveld- að útgáfustörfin um skeið, en þær eiga að auðvelda þau að sama skapi á ókomnum árum. • Stjórnin Enn eru í stjórn Máls og menningar þrír þeirra sem stóðu að stofnun félagsins fyr- ir aldarfjórðungi, þeir Kristinn E. Andrésscn, Halldór Kiljan Laxness og Halldór Stefánsson. Aðrir stjórnarmenn eru þeir Ragnar Ólafsson lögfræðingur og Jakob Benediktsson ritstjóri orðabókar Háskólans, en í vara- stjórn eru skáldin Snorri Hjart- arson og Sigfús Daðason. Var stjórnin endurkjörin á aðal- fundi félagsins sl. fimmtudags- kvöld og þar var endanlegá gengið frá afmælisútgáfu fé- lagsins og hátíðahöldum á þess- um tímamótum. Margir hafa lagt hönd að verki á vegum Máls og menn- ingar, en Kristinn E. Andrés- son hefur verið lífið og sálin í framkvæmdunum öllum af þeim brennandi áhuga og stór- mennsku sem hcnum er gefin. • Tækifæri Með afmælisútgáfu sinni minnist Mál og menning aldar- fjórðungs starfs af myndarskap, og sú útgáfá gefur einnig stuðn- ingsmönnum félagsins tækifæri til þess að efla félag sitt til mikilla muna. Er ekki að efa að það tækifæri verður vel notað og að afmælisútgáfan seljist upp á skömmum tíma. Verða þessi tímamót , þá fyrir- boði þess að áfram verði siglt næsta áratug af jafn óbilandi trú á þroska og sjálfstæðisvilja íslenzkrar alþýðu. 4 ) — ÞJÓÐVILJINN . — Sunnudagur. 17. júní 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.