Þjóðviljinn - 19.06.1962, Síða 10
Yfirlýsing frá Guðbirni
Jónssyni knattspyrnudómara
Vegna þrengsla í blaðinu
undanfarið, hefur betta að-
scnda bréf rfrðið aö bíða birt-
ingar þar til nú:
Herra ritstjóri. Það er ekki á
hverjum degi, sem knatt-
spyrnudómari óskar eftir að fá
að birta athugasemd . við skrif
og framkcmu íbróttafréttaritara,
svo að ég vona, að þér sjáið
yður fært að taka þessar fáu
línur til birtingar,
Ég undirritaður er dæmdi
leikinn Tékkar—Akureyri verð
' að láta í ljós undru.n á fram-
komu Frímanns Helgasonar í-
þróttafréttaritara Þjóðviljans. í
fyrri hálfleik dæmdi ég tvær
vítaspyrnur, aðra á Tékka og
hina á Akureyri og með því
var ég aðeins að framkvæma
mín skyldustörf. Vítaspyrnan
á austantjaldsmenn hefu.r kom-
ið mjög við fínu taugarnar á
fréttaritara Þjóðviljans.
Þegar leikhlé var kom Frí-
mann með tárin í augunum og
þrútinn í framan af reiði inn
i dómaraherbergi. Hjá mér
voru mættir nokkrir blaðamenn
. og gaf ég þeim skýringar við
því, sem þeir óskuðu eftir.
Þeir voru viðmótsþýðir aö und-
anskyldum Frímanni. sem vart
var viðmælandi. fyi'ir bræði.
Hver var ástæðan fyrir bræði
Érímanns! hún var sú, að ég
hafði du.g til að fara að lögum
og dæma á stórveldið víta-
spyrnu.
Frímann hélt því fram, að
vítaspyrnan væri röng og því
lil sönnunar sagði hann, að
tékkar hefðu mótmælt henni
(það var þá mælikvarði). Ég
lét Frímann vita, að bæði ég
og annar línuvörðu.rinn hefð-
u.m séð Tékkann slá knöttinn
viljandi með hendi.
Þarna hélt Frímann því fram
að ckkur ^efði skjátlast, því að
spu.rningin væri hvort að hann
hefði grætt á því, að slá knött-
inn, en þar sem svo hafi ekki
I
Ganqan
Framhald á 3. síðu.
ár en undanfarið og fólk fjar-
vistum úr bænum. Eins og menn
vita skipa samtökin fólk úr
ýmsum stjórnmálaflokkum og
störfuðu samtökin af þeim sök-
um ekki um bæjarstjórnarkosing-
arnar. Þegar gangan var é.kveðin
reyndist um hana full samstaða.
— Hvað um útbúnað þátttak-
enda?
— Fólk verður að klæða sig
vel og hefui' reynzt vel að hafa
tvenna skó. Þess má geta, að
göngugarpurinn Sigurður Guðna-
son gengur ætíð á gúmmístíg-
vélum. er hann fer slíka göngu.
Ei.nnig verður fólk að hafa með
sér svefnpoka og vistir til eins
dags, en svefnpokum verður kom-
ið áleiðis í bíl og bíll mun
fylgja göngunni. Þá er æskilegt,
að þeir er geta láni tjöld, en
annars sjá samtökin fyrir slíku.
— Og vandamálið . eilífa fjár-
málahli.ðin?
— Göngunni fylgir mikill
kostnaður. Það er miki.lsvert, að
allir leggi eitthvað af mörkum,
segja þeír Ragnar og Kjartan
um leið og þei.r herja hunrað-
kall út úr biaðamanninum.
— önnur framkvæmdaatriði?
Það er fyri.r miklu, að þeir,
(>m ætla að vera með upp eftir
)0g hefia gönguna Iáti skrá sig
strax til að auðvelda alla skipu-
lagningu. Skrifstofa samtakanna
er opi.n alla daga frá kl. 9 til
ki. 22 um kvöldið og símanúm-
erin eru 24701 og 23647.
verið, hafi átt að láta brotið
falla niður.
í knattspyrnulögunum stend-
u.r, að það sé lögbrot, að slá
eða snerta knöttinn viljandi
með hendi og því beri. að refsa.
Það væri gott. ef að leik-
maðu.r mætti koma að mótherja
og sparka í hann viljandi og
svo væri ekki b.ægt, að koma
yfir hann lögum, vegna þess,
að hann hafi ekki grætt neitt
á því, að sparka í mótherjann.
Ég kalla þennan hugsunarhátt
hjá blaðamanni og knattspyrnu-
dómara stórfu.rðulegan!
Er blaöamaður Þjóðviljans
var búinn að eyðileggja leik-
hléið, sem er ætlað okkur til
hvíldar, með þrasi sínu, ósk-
aði. ég eftir að leggja fyrir hann
eina spurningu.. — Hugsaðu. þér
Frímann, að þú sért dómari og
leikmaður slær knöttinn vilj-
andi, en hefur ekki hagnað af
því, að hafa slegið knöttinn,
hvað gerii' þú, sem dómari?
Frímann hu.gsaði s.ig um, og
þagði. Er ég inrrf hann eftir
svari, leit hann flóttalega
í kri.ngum sig og yfirgaf dóm-
araherbergið.
Ég held að þarna hafi Frí-
mann valið einu leiðina sér til
bjargar, semsé að hlaupa af
hólminum.
E£ að hann hefði fengist til
að svara spurningunni, hefði
hann ekki komist hjá því, að
gefa sjálfum sér utanundir.
Blaðamaður Þjóðviljans Frí-
mann Helgascn hafði enga
samúð með Akureyringum,
þrátt fyrir það, að þeir hefðu
líka fengið dæmda á sig víta-
spyrnu., enda segir hann í Þjóð-
vi.ljanum, að þá hafi hann
hlegið.
Ég skrifa þessar línur, vegna
þess, að mér finnst vanta hinn
sanna og rétta íþróttaanda
í skrifum og framkomu Frí-
manns Helgasonar.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Guðbjörn Jónsson
knattspyrnudómari.
ATH.:
Mér þykir vinur minn Guð-
björn vera með „grimmara'1
móti í dag!
Ekki verður honum ráðlagt
að gera mikið að því að hafa
viðtöl við menn til birtingar,
ef dæma skal eftir „viðtalinu“
ihér að framan, það er ekki
síður „vafasamt“ en vítaspyrn-
an. Ekki væri þó óhu.gsandi að
hann ætti að leggja fyrir sig
skáldskap!
Það kunna að vera mér
„igriimmi.leg“ örlög, ef það heyr-
ir undir 'lélega íþróttamennsku
að vera ekki á sama máli og
Guðbjörn, en einhvernveginn
verð ég að skrimta það af.
Frímann.
Hernámsrðar
Framhald af 12. síðu.
hneykslið ber þar hæst sem kom-
ið- er, - -err' sú-á-kvörðun-að stefna
nú hernámsliðum til Reykjavík-
ur í fyrsta skipti á þjóðhátíðar-
daginn er af sama toga.
Heildarvelta
KEA 407 millj.
kr. á s.l. íiri
Akureyri — Aðalfundur Kaup-
lélags Eyfirdinga á Akuireyri var
haldinn nýlega. Heildarvelía fé-
lagsins á s.l. ári nam rúml. 407
millj. kr. og hafði aukizt um
15° i) frá næsta ári á undan.
Tekjuafgangur nam rúmlega
2.5 rnllj. króna. Samþykkt var að
úthluta í stofnsjóð félagsmanna
4° V. arði af heildarvöruúttekt
þeirra.
Sú breyting varð á stjórn fé-
lagsins að Bernharð Stefánsson.
fyrrverandi alþingismaður, baðst
u.ndan endu.i'kosningu. en í hans
stað var kjörinn Kri.sti.rm Sig-
mundsson bóndi að Arnr.rhóli.
Varsjá
Framhjid af 3, R'ðu.
um endurreisn höfuðborgarinnar,
og ætti sýningin að bregða svo-
litlu Ijósi á það gífurlega verk-
efni. Síðan eru liðin nokkur ár,
sagði sendiiherrann. og nú er
uppbyggingu borgarinnar senn
lokið. Borgin er nú fegurri en
nokkru sinni fyrr.
Framhald af 5. síðu.
unnar eru enn til staðar.
Andstæðingar ofsóknar’.aganna
hafa snúið sér bréfle^a til Ro-
berts Kennedys og segja að að-
j gerðirnar gegn hinum tíu séu
fasist'.skar og að undirbún’ngur
dómsmálaráðuneytisins undir
málshöfðun gegn beim eiiikenn-
ist af eftirtektarverðum hraða.
einku.m begar haft er í huga að
málatilbún'ngurinn gegn Gus
Hal’ og Benjamín J- Davis hef-
ur nú legíð niðri um skeið.
Skáldskapur
Framhald af 7. síðu.
vín, að hægt er að dæma mann
sem ekki er sannur að sök,
heldu.r aðeins grunaður.
Til stuðnings þessari kenn-
ingu vitnaði Visjínskí gjarna í
marxíska heimspekinga, orð
þeirra um það hve erfitt er að
komast að hinum absolút sann-
leika. Með þessu. móti, segir
Bovín, er verið að rugla sam-
an tveim hlu.tum: absolút sann-
leika í heimspekilegri merk-
ingu og absolút nákvæmri
þekkingu á ákveðnum atburði;
dómstóll þarf fyrst og fremst
að ganga úr skugga um það
sem hefur í raun og veru slceð.
Og Visjínskí setti fram þá
háskslegu niðu.rstöðu að dóm-
stólar væru ófærir um að
komast að „öllum sannleika" og
yrðu að láta sér nægja tíkur.
Bovín segir, að þrátt fyrir
það sem unnizt hefur í þessum
málum, séu ýmsir lögfræðingai'
enn u.ndir áhrifum þessara
kenninga. Nefnir hann dæmi;
eitt þeirra er fyrirlestur lög-
fræðiprófessars sem mælti á
móti þelm sem óttuðust að
„dómstólar móðgi glæpamann-
inn“ og sagði að hjal um trygg-
ingu sakbornings í rekstri saka-
mála væri aðeins til trafala
í baráttu við glæpi.
Bovín leggur áherzlu á það
að slíkar hugsanir brjóti þvert
í bága við þá meginreglu að
það megi aldrei kcma fyrir að
maður sé dæmdur saklaus.
Dómsúrskurðir „eftir líkum“
sku.li vera úr sögunni fyrir
fullt og allt og þá Tíka allar
kenningar sem hafa verið
fundnar upp til að réttlæta þá.
Árni.
Pólsk-íslenzkt
skemmtikvöld
Islenzk-pólska menningarfé-
lagið efnir til skemmtifundar í
Þjóðle;khússkjallaranum í kvöld.
kl. 8.30. Á fu.ndinum flytur
Kazimierz Dorosz, sendiheirra
Pólverja á íslandi, ræðu, Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari
syngur með u.ndirleik Fr. Weiss-
happel. sýnd verður stutt pólsk
j £ræðslumynd, og að loku.m verð-
u.r stiginn dans. Aðgangur er
öllum heimill meðan húsrúm
I leyfir.
vií bröarsBHÍði
S’.. laugardag varð það slys,
að Gunnar Þorsteinsson bóndi
á Hnappavöllum í Öræfum
drukknaði í Fjalléá á Breiða-
merkursandi.
Ver.ið er brúa ána og vann
I Gunnar heitinn við brúarsmíð-
I 'na. Fé’.l hann í ána, sem er
S vatnsmikil eg straumþung, og
| náðist hann ekki upp fyrr en eft-
j ,'r hálftima. Læknir var kvadd-
ur á vettvang og lífgunartilraun-
ir gerðar en þær báru engan
árangur. Gunnar var kvæntur
og'átti þrjú börn.
Bilaðar ýtur loka
Siglufjarðar-
skarði
SIGLUFIRBI 18 6 — Vegurinn
yfir Siglufjarðarskarð er búinn
að vera tepptur síðan á föstudag,
en vonir standa til að hann opn-
ist á morgun.
Tvær ýtur sem ryðja áttu
skarðið fyrir helgi sitja fastar
vegan bilana og loka veginum.
Snjór er ekki mikill í skarðinu.
30 milljónir
Framhald af 1. síðu.
nerr.i’ar hundruðum milljóna
króna.
Uppbótarkerfið í fiillum
gangi
Stjórnarb’.öðin hafa ekki skýrt
frá bví bjargráði að grejða tog-
araútgerðarmönnum 30 milljón-
ir króna í verksbannsstyrk. þótt
'þau fari annars ekki dult með
j,,'afrek“ stjórnar sinnar. Þau
munu vera feimin við að skýra
frá þ.ví að úteerðarmenn heyja
stríð sitt á kostnað ríkis.’ns, en
einnig er þeim óliúft að vekia
athygli á því að uppbótarkerfið
lifir enn góðu lífi, þrátt fyrir
allar fullyrð.'ngar Um hið ga-gn-
stæða. Auk ‘bessara brjátíu
mCljóna eru tryggingar flotans
greiddar með upþbótafyrirkomu.
lagi, og bar er einnig um að
ræða ýmsar aðrar fúigur meira
og minna dulbúnar. Uppbóta-
kerfið befur þannig ekki verið
lagt niður; hinsveaar befur orð-
ið sú breyting, að áður var það
notað tii þess að tryggja það
að hvert skip væri gert út al’.an
ársins hring —• nú er Ogang-ur
þess að tryggja stöðvun flotans.
JÓN ÁRMANN HALLGRlMSSON
Hjarðarhaga 24,
sem andaðist 11. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 20. júní kl. 13.30.
Margrét Árnadóttir, Hallgrímur J. Jakobsson,
Tuula Lyyjynen Hallgrímsson, Hrafn Haligrímsson,
Guðrún Hallgrímsdóttir, Jakob Hallgrímsson,
Valgcrður Hallgrímsdóttir.
j]Q) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 19. júní 1962
Tal iagður í
sjúkrchús með >
jýrnasjúkdóm
í 22. umferð áskorendamóts-
ins í Curacao gerði Geller jafn-
tefli við Kort-snoj í 30 leikjum.
Fórnaði Gellei' tveim peðum í
miðtaflinu en vann þau aftur
vegna ónákvæmrar taflmennsku
Kortsnojs. Fi.scher vann Benkö í
31. leik. Fórnaði Benkö riddara
!.og náði vinningsstöðu en fann
ekki bezta framhaldið og tap-
aði skákinni. Fili.p og Keres
gerðu jafntefli í jafnri skák.
Skák þeirra Petrosjans og Tals
var frestað söku.m veikinda Tals
en hann hefur verið fluttur á
s.iúkrahús og er haldið að hann
■sé með nýrnasjúkdóm. Tal hef-
ur áður verið veikur í nýrum
og var fyrir nokkru skori.nn upp
! við því og mun ekki hafa ver-
ið búinn að ná sér eftir þá að-
gerð. er áskorendamótið hófst.
Staðan eftir 22 umferðir er
þessi: 1. Geller 14l/2 vinning. 2.
Keres 14 og óteflda skák við
Fisoher úr 21. umferð, 3. Pet-
rosian 13 og óteflda skák við
Tal og biðskák ge.gn Fili.p úr
21. u.mferð, ,þar sem hann á
vi.nningslíkur. 4. Kortsnoj 11 'T,
5. Fiseher 11 og óteflda skák
við Keres, 6. Benkö 9, 7. Tal 7
og óteflda skák vi.ð Petrosian,
8. Filí.p 5 og biðskák við Pet-
rosjan.
Serkir og 0AS
Framhald af 1. síðu.
að samkomulaginu eða ekki.
Hann sagði að allir foringjar
OAS nema Yves Godard ofursti
hefðu lýst sig samþykka sam-
komulaginu. Þetta ætti einnig við
u.m yfirforingja OAS Paul
i Gardy.
Loft enn lævi bandið
Þrátt fyrir þetta samkomulag
er loft enn lævi bandið í Alsír.
Að vísu voru ekki unnin nein
ódæðisverk í Algeirsborg í dag
og því augljóst að liðsmenn OAS
þar höfðu fallizt á sættina, en
ftótti Evrópumanna frá landinu
hélt áfram og greinlegt að þeir
gera sér ekki miklar vonir um
að staðið verði við samkomu-
lagið.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Forysta OAS í Oran hefur
hafnað samkomulaginu. Leyni-
stöð hennar hefur hvatt alla
Evrópumenn til að vera vel á
verði, halda vopnum sínum og
berjast áfram. Samkomulagið
væri aðeins bindandi fyrir sveit-
it- OAS í Algeirsborg. Þá skýrði
leynistöðin frá því að liðsmenn
OAS í Oran hefðu komizt yfir
150 skotvopn frá frönsku örygg-
issveitunum.
iForingjar OAS í Bone hafa
einnig hafnað samkomulaginu.
Þeir segja að þeir muni því að-
eins ganga að samningum við
Serki að Paul Gardy ofursti hafi
gert þá.
------------------------—)
Barnaleikvöllar
í Ólafsvsk
ÓLAFSVlK 18/6 — Kvenfélag
Ólafsvíkur -hefur að undanförnu
unnið að því að koma upp barna-
leikvelli hér í þorpinu.
Völlurinn var formlega
afhentur Ólafsvíkurhreppi í gær,
17. júní. Við það tækifæri töl-
uðu Elínborg Ágústsdóttir, Guð-
brandur Vigfússon og séra Magn-
ús Guðmundsson. Um daginn
var kaffisala á vegum kvenfé-
lagsins til ágóða fyrir leikvallar-
sjóð.