Þjóðviljinn - 21.06.1962, Page 5
Spónskir verkamenn
þekkja nú mdtt sinn
BARCELONA. Það er langt gengið þegar fasistastjórn- „útsendarar kommúnísta" og
in á spáru neyöist til að láta hætta aö útvarpa guðs- „andstæðingar föðuriandsins“.
þjónustu í miðjum klíöum af ótta viö að presturinn
muni segja eitthvað óþægilegt um stjórnarvöldin.
Þetía gerðist nú nýlega er út-. og árangur af baráttu verka-
varpið í Bar|«elona var neytt manna er sífellt að koma í ljós.
til að hætta að útvarpa messu Hafa ýmsir verkamenn knúið
cr fram fór l>ar í borginni. Á-1 fram verulegar kjarabætur með
stæðan var sú að presturinn, verkföllunum. I plastverksmiðju
jesúiti nokkur, leyfði sér að for- einni í Barcelona fengu verka-
dæma þjóðfélagsranglætið í land- ' menn 100 prósent kauphækkun
inu. Síðan hefi^r aðeins verið og sums staðar fengu verkamenn
leyft að útvarpa bænum án pré- allt að 40 prósent hækkun.
dikunar. | Á sama tíma lætur einræðis-
i stjórnin hina pólitísku lögreglu
| „starfa" af fullum krafti. Meðal
þeirra, er dregnir eru fyrir rétt-
Verkfallshreyfingin hefur enn eru fjórtán námamenn frá Ástríu
ekki fjarað til. fulls út á Spáni og. eru þeir .kæi'ðir fyrir að vera
Aukin sjálfsvitund
Ennfremur á að draga marga
Verkamenn fyrir rétt vegna þess
að þeir halda verkföllunum á-
fram.
Fjölda manna hefur verið varp-
að í fangelsi fyrir „neðanjarð-
arstarfsemi og verkfallsáróður“.
Ekki er meira en vika síðan
dreift var í Barcelona flugriti
sem hvatti til verkfalls.
Forystumenn verkamanna telja
þó að það dýrmætasta sem á-
unnizt hefur með verkföllunum
sé hve mjög sjálfsvitund verka-
manna hafi styrkzt. Þeir hafa
komizt að raun um hve mikinn
kraft þeir hafa til að bera er
þeir vinna saman og af einurð.
Slíkt mun hafa mikið að segja
í lokaátökunum við Franco-fas-
ismann.
Eldflaugarskot
misheppnast
KANAVERALHÖFÐA — Síðast-
liðinn fimmtudag eyðilögðu
Bandaríkjamenn Pershingeld-
flaug á lofti. Áttu þeir í erfið-
leikum með annað þrep flaugar-
innar eftir að henni hafði verið
skotið á loft. Eldflauginni átti að
skjóta um 240 km út í Atlanz-
haf.
Dwight Beach, hershöfðingi,
tlikynnti samdægurs, að fyrsta
Pershing-eldflaugastöðin í Vest-
ur-Evrópu verði byggð í byrjun
næsta árs en ekki í lok þessa
eins og búizt hafði verið við.
Verföllum ekki lokið
NEW YORK. — Mikill styrr
stendur nú í Bandaríkjunum um
frumvarp til laga um sjúkra-
tryggingar. 1 frumvarpinu er
kveðið á um það að ríkið sjái
fólki yfir 65 ára aldri fyrir
ókeypis læknishjálp.
Kennedy forseti er þessu
frumvarpi fylgjandi, sömuleiðis
verkalýðshreyfingin og raunar
allur almenningur. Auðfyrirtæk-
in og læknasamband Bandaríkj-
anna beita sér hinsvegar með
,miklii offox-si gegn þeSsum ný-
Borga sektina
með blóði sínu
Bílstjórar í Moorefield í V-
Virginíu í Bandarikjunum
geta borgað sektir fyrir um-
ferðabrot með blóði! Borgar-
stjórnin hefur ákveðið, að
þeir sem leggja bílum sín-
um á ólöglegum stöðum eða
brjóta umferðareglur á annan
hátt geti fengið að velja á
milli þess að greiða sektina
með peningum eða með blóði.
Blóðsektin er ákveðin til’. þess
að reyna að auka blóðbirgð-
irnar í blóðbanka borgarinn-
ar.
Brezka íhaldið
tapar enn
LINLITHGOW. Verkamanna-
flokkurinn brezki hélt þingsæti
sínu við aukakosningarnar í
Linlithgow í Skotlandi, en þær
lóru fram í síðustu viku. Fram-
bjóðandi Verkamannaflokksins
hlaut 11.516 atkvæðum meira en
næsti maður. í síðusfu kosning-
Um hlaut Verkamannaflokkurinn
2145 atkvæða meirihluta.
Ihaldsflokkurinn beið enn einu
Kinni herfilegan ósigur. Hlaut
hann nú 4784 atkvæði en fékk
18.083 við síðustu kosningar.
mælum. Raunar ráða ýmsir
auðhringar yíir’ læknásamband-
inu.
Ein slóttugasta baráttuaðferð
læknasambandins hefur verið
sú að fyrirskiþa heimilislækn-
um öldungareildafmanna og
þingmanna að teija þessa valda-
miklu sjúklinga sína á að greiða
atkvæði gegn frumvarpinu.
1 Bandaríkjunum eru nú um
16'/2 milljón manna yfir 65 ára
aldri. Af þeim njóta um tólf
milljónir einhvers ellistyi'ks,
hann getur hásstur orðið um 1000
krónur á mánuði en er oft ekki
nema nokkrir tugir króna. Með-
altekjur Bandaríkjamanna 65
ára og eldri eru um 700 krón-
ur á viku.
Bandaríska rikisstjói'nin telur
að hjón yfir 65 ára aldur þurfi
um 2000 krónur á mánuði til
að geta lifað.
Stjói'nin telur að um 12%
þessara tekna fari til læknis-
hjálpar og lyfjakaupa, þar sem
gamalt fólk hefur' miklu meiri
þörf fyrir slíkt en þeir er ungir
eru.
Hin fyrirhugaða aðstoð við
gamalmennin er samkv. frum-
varpinu ekki sérlega rífleg og
aðeins 80 prósent þeirra er náð
hafa 65 ára aldri munu verða
hennar aðnjótandi. Verði frum-
varpið samþykkt munu hinir
tryggðu öðlast rétt til ókeypis
sjúkrahúsvistar 90 daga á ári,
allt að 180 daga dvalar á hress-
ingarhælum ásamt allt að 240
daga hjúkrunar í heimahúsum.
Ekki mega þó sjúklingarnir
dveljast allan þennan tíma á
sjúkrahúsunum vegna eins og
sama veikindatilfellisins heldur
verða þar fleiri að koma til.
Tekjum til trygginganna á að
aila með skatti á einstaklinga
I cg auðfyrirtæki og það er þess
! vegna sem síðarnefndi aðilinn
; beitir sér gegn frumvarpinu.
Gegn þessum hóflegu þjóðfé-
lagsbótum — flest lönd í Evrópu
eru komin miklu lengra áleiðis
í þessum efnum — er nú barizt
í gríð og ergi, líkt og þegar
Roosevelt forseti bar fram frum-
varp um ókeypis hjúkrun fyrir
mæöur og nýfædd börn þeirra
á fjórða tug aldarinnar.
Lv' ,-Á. . „a * . ..
Þetta er cinn af nýjum rannsóknarbátum bandaríska flotans. Honum er líkt við þyrlú neðan-
sjávar. Áliöfnin er aðeins tveir menn, og báturinn getur kafað niður á 2000 metra dýpi. Hann
getqr setzt á botninn og tekið upp hluti með gcrviarmi, sem áhöfnjn stjórnar. Stjórnklefai'»
j[ um er fest utan á bátinn, og er hægt að losa hann í neyðajrtiifellum. Varnarhringur er í k.ring- 'J
} um skrúfuna til þess að botnleðjan þyrlist ekki upp. (i
Kafbátor verzlunarskip
Sovézkir og bandarískir verkfræðingar kepp-
ast um að hraða sem mest þróuninni 1 skipa-
smíðum. Margskonar töfraskip eru á döfinni,
er gjörbreytt geta siglingum á höfunum. Það
eru t.d. vængjuð skip er ferðast neðansjávar,
og fara eins hratt og ofansjávarskip, og einn-
ig verða til skip sem svífa í loftinu fyrir of-
an sjávarflötinn. Stærri skip og hraðskreið-
ari, sem krefjast aðeins fámennrar áhafnar,
eru engir draumórar lengur.
Þegar á þessu ári fer 20
metra langur kafbátur í
reynsluförina frá skipasmíða-
stöð einni í Texas. Hann er
eingöngu smíðaður úr alúm-
íníum. Báturinn ,,Alumin«aut“
verður við rannsóknir djúpt
í úthöfunum, Hkt og kafbát-
urinn ,.Trieste“, sem sviss-
neski víslndamaðurinn Pioc-
ard hefur notað til rannsókna
í dýpstu hafdjúpum.
Nýi kafbátur.'nn setur kaf-
að allt að 5000 metra niður
i hafdjúpin. og kannað þar
dýra- og plöntulíf, rannsakað
strauma, seltu sjávar og ann-
að ástand.
Á hessu ári mun einnig
fyrsta verzlunarskipið sem
knúð er kjarnorku, hefja
reglulegar siglingar. Það er
bandarískt skip, ,.Savannah“.
Það getur siglt um höfin í
þrjú ár án þess að taka við-
bótareldsnevti.
Bæði „Aluminaut“ og ,,Sav-
annah“ eru þó aðeins fyrir-
boðar ennþá fullkomnari sjáv-
arfarartækja, sem eiga að
veita flugvélunum harða
samkeppni.
Skip framtíðarinnar munu
'annaðhvort ferðast djúpt und-
ir yfirborðinu, óháð veðri o.g
sjógangi, eða þau munu þjóta
yfir hafflötinn án óþægilegra
hreyfinga fyrir farþegana.
Margir verkfræðingar gera
sér miklar vonir um nytsemi
hinna nýju „fljúgandi diska“.
Þeir eru í tæplega meters
hæð yfir sjávaryfirborðinu.
Þessi farartæki eru borin
uppi af einskonar loftpúða,
og þau þurfa talsvert mikið
eldsneyti. Þróun í smíði far-
þegaskipa bendir til þess að
í framtíðinni verði notuð að-
allega hin svokölluðu skiða-
skip. Þau snerta hafflöt-
inn rnjög léttilega, fara með
allt 'að 160 km. hraða á
klukkustund og eru mjög svo
þægileg farartæki. Rússar
hafa fyrir allmörgum árum
tekið slík skip í notkun, og
eiga nú orðið slík skip af
stórum gerðum.
Bætt siglingatæknj ][
Þá hafa verið smiðaðir kaf-
bátar með sérstökum burðar-
flötum, sem hægt er að draga
upp eftir þörfum. Þeir eiga
að geta náð mun meiri hraða
en aðrir kafbátar. Þegar þess-
ir kafbátar leggjast á sjáv-
arbotninn eru burðarfletirnir
settir niður. Hraðinn næst
með því iað nota lo.ftstraum
til að koma sjónum á hre.vf-
ingu og minnka þannig mót-
stöðu hans.
★ * ★
Það er ekki aðeins um að
ræða umbætur í tæknilegum
útbúnaði kafbáta, heldur
einnig ,í siglingatækni og allri
stjórntækni skipa. Öryggi í
siglingum verður aukið með
radarútbúnaði og öll störf um
borð gerð einfaldari. Banda-
riski kjarnorkukafbáturinn
,,Seawolf“ hefur 100 manna á-
höfn. Innan skamms verður
ekki iþörf nema 12 manna á-
hafnar á jafnstórt skip. Þetta
mun leiða til bess að stórir
kafbátar verða í vaxandi
mæli notaðir til vörufiutn-
inga.
Fimmtudagur 21. júní 1962 — ÞJÓÐVILJINN —