Þjóðviljinn - 27.06.1962, Blaðsíða 3
Hópferð íslendinga til mótsins skipulögð
• Senn eru síðustu forvöð fyrir íslendinga að
skrá sig til þátttöku í tiltölulega ódýra ferð héð-
an á hina árlegu Eystrasaltsviku, sem haldin
verður í hafnarborginni Rostock og nágranna-
sveitum í Þýzka alþýðulýðveldinu dagana 7.—
15. júlí næstkomandi.
„Eystrasaltsvikan“ er jafnan sett á aðaltorginu í Rostock, hinni ört
vaxandi hafnarborg í Þýzka alþýðulýðveldinu. Gefst þátttakendum
gott færi á að kynnast umsvifamiklum framkvæmdum í bok-ginni,
hafnargerðinni miklu og athafnalífi í skipasmíðastöðvunum. Mynd-
in er frá Rostock og sér yfir elzta borgarhlutann og gömlu höfn-
ina. Fremst á myndinni er nýlegt stórhýsi við breiðgötuna „Langa-
s.træti“.
'Eystrasaltsvikan er nú haldin
hátíðleg í fimmta skipti. í fyrsta
sinn var efnt til bessa alþjóð-
lega vináttumóts sumarið 1958.
Var þá þegar mikil þátttaka í
mófnu o g hefur aukizt með
hverju árinu sem liðið hefur.
Til þátttöku í Eystrasa’tsvik-
unni er boðið þeim þjóðum. sem
lönd eiga að Eystrasalti: Þjóð-
verjum (austur Qg vestur), Dön-
um, Svíum, Finnum, Pólverjum
og- Eystrasaltsþjóðum Sovétrikj-
anna. E.nnig Norðmönnum og
íslendingum.
Fjölbreytt hátíð á
baðströndinni
„Eystrasaltið á að vera friðar-
Fimm sumarleyfisferðir á
fagrar og framandí slóðir
Ferðaskr'fstofan Landsýn, sem
tók til starfa í fyrravor, er nú
að hefja sumarstarfsemi sína og
ræddi framkvæmdastjóri henn-
ar, Örn. Erlendsson, af því til-
efni við fréttamenn fyrir helg-
ina.
Aðalstarfsemi skr.’fstofunnar
er fólgin i því að skipuleggja
hópferðir til útlanda með ís-
lenzkum fararstjórum og hefur
hún frá upphafi gert sér far um
að skipulegeja hópferðir á þær
slóðir, sem lítt hafa verið sótt-
ar t;i þessa af íslenzkum ferða-
mönnum. Hefur þar einkum
verið um að ræða sérlega ódýr-
ar ferðir til Austur-Evrópuland-
anna, en skrifsto.fan skipuleggur
einnig sérstæðar ferðir til landa
í Vestur-Evrópu og Norður-Afr-
íku. >á ieggur ferðaskr'fstofan
áherzlu á að fá þaulkunnuga
fararstjóra til þess að annast
leiðsögn og útvegar ódýr en góð
hótelherbergi og aðra fyrir-
greiðslu.
í sumar hefur Landsýn skipu-
lagt fimm ferðir og hefst hin
fyrsta þe.'rra 7. júlí n.k. Er
það ferð á Eystrasaltsvikuna,
um Austur-Þýzkaland og Tékkó-
slóvakíu. Er nánar sagt frá iþeirri
ferð á öðrum stað i blaðinu.
'i
Alpalönd — Vínarborg —
Ungverjaland
28. júlí hefst 19 daga ferð um
Alpa’.önd og til Ungverjalands.
Flogið verður til Hamborgar og
gist þar en síðan haldið með
lest til Vínarborgar, þar sem
dvalið verður í þrjá daga og
borgin og nágrenni skoðuð. Síð-
an verður haldið til Ungverja-
lands, Búdapest skoðuð og dval-
izt á sumarhóteli við hið.fagra
Balatonvatn i nokkra daga. Síð-
haf“ er kjörorð Eystrasaltsvik-
unnar, en tilgangur hennar er
fyrst og fremst sá að efla pers-
ónuleg og gagnkvæm kynni með
þátttakendum frá hinum ýmsu
þjóðlöndum, jafnframt því sem
boðið er upp á ánægjulega dvöl
í fögru umhverfi og margvisleg-
ar skemmtanir. Á Eystrasalts-
strönd Þýzka a’.þýðulýðveldisins
eru sem sé einhverjar beztu og
frægustu baðstrendur norðan-
verðrar Evrópu, þar sem ein-
stakt færi gefst til sól- og sjó-
baða.
Skemmtanir eru mjög fjöl-
breyttar á Eystrasaltsvikunni.
Frægar hljómsveifir leika, ein-
leikarar og einsöngvarar koma
fram, dansflokkar, kórar o,s.frv.
Ekki má gleyma íþróttamótun-
um, því að íþróttakeppni
Eystrasaltsvikunnar er orðin
einn af meiriháttar íþróttavið-
burðum á’.funnar ár hvert.
Keppt er í knattspyrnu, frjáls-
um íþróttum, hjólreiðum og
sundi, svo að dæmi séu nefnd.
Ferð liéðan 7. júlí
Það er ferðaskrifstofan ..Land-
sýn“, sem skipuleggur ferð héð-
an á Eystrasaltsvíkuna. Verður
flogið t.l Kaupmannahafnar 6;
eða 7. júlí, en íslendingarnir
munu búa í Kiihlungsborn, á
hóte’.um við hina frægu bað-
strönd skammt utan við Host-
ock-borg.
Mikil síld er
við Eyjar
VESTMANNAEYJUM 26/6 —
Rejmir kom hingað í dag með
850 tunnur af síld oz Ófeigur
II með 500. Urðu þeir varir
við mikla síld, en hún er stygg
og erfitt að fást við hana.
Síldin er vestan við Eyjar á
þeim slóðum þar sem Reynir
hefur aflað töluvert á fjórðai
þúsund tunnur undanfarna daga.
Bátarnir fara nú norður á
síid jafnóðum o.g þeir eru til-
bún'r. Gul’.borg og Eyjaberg
sig’.du í dag með eigin afla tiL
Bretlands. Gylfi fer sennileea í
kvöld með dragnótrfisk á Bret-
lands- o" Danmerkurmarkað.
Síldarsðltendur
óþreyjufullir
SIGLUFIRÐI 26/6 (Frá
fréttaritara) — Síldarsalt-
endur hafa nú lokið öllum
undirbúningi og biða nú
bara óþreyjufulbr eftir því
að Sí’.darútvegsnefnd leyfi
að söltun hefjist.
T augaveikibróðir hagar
sér ekki eins og faraldur
Hópferðavagnar í Dutyrovnik.
an verður ek.'ð um marga feg-
urstu staði Alpafjalla í Austur-
riki. Norður-Ítalíu og Sviss, en
farið heim með lest um Þýzka-
land og Kaupmannahöfn. Þessi
ferð mun kosta 17.500 krónur.
Fararstjóri verður Hjalti Krist-
ge.rsson hagfræðingur. Þátttak-
endur þurfa að skrá sig fyrir
18. júlí.
rí_ Gr-V tutiW
Spann — Marokko — Fans
önnur 19 daga ferð um Mar-
okkó, Spán og Frakkland hefst
24. ágúst. Flo.gið verður til
London og gist þar. Frá Bret-
landi verður farið yfir til Belg-
íu og síðan ek.ð suður Belgíu og
Frakkland til Spánar. Því næst
heldur ferðin á.fram suður Spán
; með tveggja daga viðkomu í
Madrid og ennfremur verður
staðnæmzt í Cordoba og Sevilla.
Frá Spáni verður siglt yfir til
Tangier í Afríku og ekið t-1
Casablanca, höfuðborgarinnar
Rabat, Meknes og Fez o,g þess-
ar borgir skoðaðar. Heimleiðis
verður ha’.dið um Miðjarðar-
hafsströnd Spánar, um Malaga
og Granada og síðan norður
Frakkland tii Parísar, þar sem
dvalizt verður í elnn dag og
flogið heim um London. Ferðin
mun kosta kr. 16.950. Fararstjóri
verður Hjálmar Ólafsson lektor
í Amsterdam. Þátttakendur
þurfa að skrá sig fyrir 4. ágúst.
I
Sovétríkin — Pólland
3.—23". september verður 'fárrri
21 dags ferg til Sovétríkjanna
o.g iPóllands. Flogið verður t:l
Kaupmannahafnar og síðan siglt
um Eystrasalf með viðkomu í
Stokkhólmi og Helsinki til Len-
ingrad. X Leningrad verður dval-
izt í 2 daga og borgin skoðuð
en síðan haldlð til Moskvu. Þar
verður staðið við í 3 daga en
þvínæst ekið með lest til
Svartahafs og dvalizt í hinum
heimsfræga baðstað Sochi við
rætur Kákasusfjalla í 6 daga.
Frá Sochi verður haldið he.m-
leiðis með lest allt til Kaup-
mannahafnar með viðdvöl í
Framhald á 10. síðu.
Þjóðviljinn sneri sér í gær til
Jóns Slgurðssonar borgarlæknis
og leitaði hiá honum upplýs-
inga um útbreiðslu sjúkdóms
þess, sem hefur verið að
stinga sér niður hér i Reykja-
vik og nefndur er taugaveikl-
bróðir. Er hér um að ræða sér-
stakt afbrigði, svokallaðan músa-
týfus. Lét borgarlæknir blað-
inu í té eftirfarandi upplýsing-
ar:
Sjúkdómsins varð fyrst vart í
Kópavogi snemma í maí, en sl.
þrjár v.'kur hefur orðið vart
við hann hér í Reykjavík, nokk-
ur dr.eifð tilfelli. Vitað er með
vlssu um 14., sjiíiflinga hér en
grunur leikur á um fleiri. Hafa
1'6 sjúklingar með einkenni veik-
innar verið lagðir inn í borg-
arsjúkrahúsið, þar af 3 úr Kópa-
vogi og Hafnarfirði.
Einkenni veikinnar eru upp-
köst, niðurgangur, magaverklr
Og hiti. Leggst hún misjafnlega
á fólk og verða sumir allilla
haldnir en aðrir velkjast lítið.
Getur veikin staðið yfir nokkra
daga.
Til þess að ganga úr skugga
um, hvort um er að ræða tauga-
veikibróður eða venjulegt iðra-
kvef, þarf að rækta frá saur
sjúklinganna eða gera blóðrann-
sókn, Annast rannsóknarstofa
Háskólans við Barónsstig þessar
bakteríurannsóknir.
Reynt hefur verið að grafast
fyrir um uppruna sjúkdómsina
með því að athuga, hvers sjúk-
lingarn.'r hafa neytt og hvar
þeir hafa gert matarkaup og
rannsökuð hefur verið mjólk svo
og neyzluvatn. Ennfremur hefur
farið fram skoðun á starfsfólki
nokkurra stofnana, er fást við
matargerð. Ekkert af þessu hef-
ur þó borið árangur. Athyglis-
vert er, að ve:kin hagar sér
ekki eins og faraldur og heldur
ekki sem venjuleg matareitrun.
Fólk á öllum aldri hefur sýkzt
en fátt a.f ungum börnum og
gamalmennum.
Borgarlæknir tók það fram.
að ástæða væri til, þótt ekkt
væri vitað um smitleiðir sjúk-
dómsins, að brýna fyrir fólkl
fyllsta hreinlæti hvívetna,
einkum í sambandi við mat-
reiðslu o.g meðferð matvæla,
ennfremur að þvo sér vel um
hendur fyrír máltíðir og sér-
staklega eftir notkun tsalerna.
Fólk með framangreind sjúk-
dómse'nkenni má ekki vinna
við meðferð matvöru utan heim-
ilis unz gengið hefur' verið úr
skugga um, að aí því stafi ekki
smithætta. Er fólki bent á að
sjóða vel allan mat eftir því
sem við verður komið.
Fimmta Eystrasalts-
vikan 7.-15. júlí
Miðvikudagur 27. iúní 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (J