Þjóðviljinn - 09.08.1962, Qupperneq 3
frrtt
Taugaveikibróðir
Upprunninn
í andabúi
• Eftir mikil rannsóknarstörf, unnin að KelduYn
og í Reykjavík,- telur borgarlæknir að fullyrða
megi ,,með hokkurn veginn öruggri vissu“ að upp-
runa taugaveikibróðurfaraldursins, sem gengið
hefur hér að undanförnu, megi rekja í andabú í
Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd.
Erá þessu er skýrt í frétt
frá bcrgarlæknisembættinu sem
Þjóðviljanum barst í gærdag, og
•er svohljóðandi:
Eins og frá hefur verið skýrt,
liefur sleitulaust verið leitað að
uppruna faraldurs þess, sem geng
ið hefur hér að undanförnu og
hlmennt er kallaður taugaveiki-
bróðir. Við rannsókn á sýnishorn-
um, sem Tilraunastöðin að Keld-
um og Rannsóknarstofa Háskól-
ans hafa unnið að í sameiningu,
hefur ræktast frá nýklöktum and-
•arungum úr' ándabúi í Minni-
■Vátnsleysu, , yatnsleysuströnd,
sams konar sýkill, Salmonella
typhi murium, og sá, er valdið
hefur faraldrinum.
Má með nokkurn veginn ör-
uggri vissu fullyrða, að hér sé
fengin skýring á uppruna veik-
innar, að þvf er varðar flest
sjúkdómstilfellin, en smitunar-
leiðir eru þó ekki full kannaðar
enn.
Fuglum á andabúi því, er hér
á í hlut, verður öllum eytt, og
andabúið lagt niður. Er þar með
tekið fyrir þessa uppsprettu veik-
innar.
Mjög víðtækar rannsóknir hafa
verið gerðar á hænsnabúum og
hænueggjum, en þær hafa ekki
leitt í ljós, að sýkingarhætta
stafi af þeim.
Nánari tilkynning u.m gang
.málsins verður birt síðar.
iifsvör á Ákureyri
nær 25 milljónir króna
AKUREYRI — Niðurjöfnun útsvara lauk hér á Akur-
eyri í síðustu viku. Jafnað var niður tæpum 25 millj.
króna á 2789 gjaldendur, 2714 einstaklinga og 84 félög.
Sami álagningarstigi er nú not-
aður í kaupstöðum um, land allt
cg voru útsvörin lækkuð um
5% frá honum. Eru innifalin í út-
svarsupphæðinni 8,5% fyrir van-
höldum, ranglega álögðum út-
svörum, niðurfellingum og iækk-
unum við leiðréttingar.
1 fyrra voru álögð útsvör 24.
591.300.00 kr. á 2768 gjaldendur,
einstaklinga og félög. Voru veltu-
útsvör á fyrirtæki innifalin í
þeirri upphæð, en þau hafa nú
verið lögð niður og í stað þeirra
er komið svonefnt aðstöðugjald,
sem iagt er á sérstaklega auk út-
svaranria.
Hæstu útsvör félaga bera nú:
Samb. ísl. samvfél. kr. 589.100
Slippstöðin h.f. — 282.500
Kaupfél. Eyfirðinga — 202.300
Amaro h.f. — 168.200
tltgerðarfélag KEA — 146.100
Linda h.f. — 109.200
Hæstu útsvör einstaklinga bera:
Kristján Kristjánsson — 87.200
Valtýr Þorsteinsson — 60.200
Brynjólfur Kristinsson — 56.200
Vilhelm Þorsteinsson — 53.100
Helgi Skúlason — 47.700
Baldur Ingimarsson — 46.900
Tómas H. Traustascn — 46.200
Öskar Hermannsson — 42.900
Friðþj. Gunnlaugsson — 39.200
Baldvin Þorsteinsson — 38.500
Sverrir Valdimarsson — 37.700
Oddur C. Thorarensen,
, Bjarmast. 9 — 37.300
Oddur C. Thorarensen,
Hafnarstr. 104 — 35.800
Skattstjórinn á Akureyri hefur
lokið álagningu aðstöðugjalda og
bera þessi fyrirtæki hæst gjöld:
Kaupfél. Eyfirðinga kr. 1.444.200
Verksmiðjur SlS — S52.200
Útgerðarfél. Ak. h.f. — 475.500
Slippstöðin h.f. — 108.900
Kaffibrennsla Ak. — 104.000
Amaró h.f. — 103.300
Af einstaklingum bera þessir
hæst aðstöðugjöld:
Valgarður Stefnásson kr. 78.000
Valtýr Þorsteinsson — 50.000
Kristján N. Jónsson — 46.000
Brynjólfur Brynjólfss. — 41.000
Tómas Steingrímsson — 32.200
O. C. Thorarensen,
Bjarmast. 9 — 30.600
Haust í Þjórsárda!
Einn sat ég, einn
hjá affaravcgi
um hádegi í haustrauðri sól.
Og stigháir fákar
með fjúkandi manir
fram hjá mér þutu
áh myndar og hljóðs.
Og vitund mín gróf sig
í myrkur og moldu
með sóttheitum unaði
svita og blóðs.
Og hjarta mitt sló
undir stálcfnum stakkl
hins sterkasta manns.
Mín leyndasta kennd
og minn dimmasti draumur
Iýstu sem eldur
úr augum hans.
Steinn Steinarr.
Nú um helgina fer Sósíalista- j
íélag Reykjavíkur í skemmti- j
l'erö austur í Þjórsárdai undir
lciösögu Björns Þorsteinssonar
sagnfræðings. Hér skulu í
flýti hripaðir nokkrir fróð-
leiksmclar um Þjórsárdr|'., en
hvatki er missagt í fræðum
þessum þó leiðréttir Björn það
á sunnudaginn kemur.
Þjórsárdalur byggðist á land-
námsöld. og segir Landnáma,
að Þorbjörn. sem nefndur var
laxakarl, hafi numið hann og
Gnúpverjahrepp að Kálfá.
Emna ku.nnastur af íbúum
dalsins á þessu.m tímum mun
vera Gaukur Trandilsson, sem
bjó á Stöng. Lítur að því gam-
alt viðlag, sem allir kunna:
Önnur var öldin, er Gaukur
bjó á Stöng;
þá var ei til Steinasitaða
leiðin löng.
Af Gauk þessu.m var til
saga. sem nú er glötuð. I
F'Iateyjarbók standa skrifuð
þessi skilaboð til ritarans:
Láttu hér rita Gauks sögu
Trandilssonai', mér er sagt að
herra Grímu.r eigi hana. Þau
urðu afdrif Gauks, að fóst-
bróðir hans Asgrímur Elliða-
grímsson drap hann — hvort
sem það hefur verið fyrir
kvennamál eða eitthvað mikil-
vægcra, Lætur Njáluhöfundur
Ásgrím afsaka þann verknað
sinn með þelm orðum, „en
það mu.nu margir mæla, að
eigi dræpi ég Gauk fyrr en
mér væri nauður á“. Ekki
hafa aðrar sagnir farið af
sögu. þessari. Þó má g°ta þess,
að Húnvetningur nokkur, sem
Vigfús hét og var kallaður
Geysir. kvaðst hafa átt sög-
una en lánað hana og aldrei
séð síðan. Ef satt er, sýnir
þetta betu.r en flest annað, að
aldrei skyldu menn lána bæk-
ur. En þess ber að gæta, að
Vigfús lifði fram yfir miðja
síðustu öld, og er heldur ó-
sennilegt, að afskrift sögunnar
hafi leynzt svo lengi án þess
að verða norrænufræðingum
að bráð.
Næst Gauk mun trúfíflið
og uppskafningurinn Hjalti
Ekeggja'on vera kunnastur
þeirra dalveria. Þekktastu.r er
Hjalti af afskiptum sínum af
kristriilöke.nm,' og vísa- ,hans
Vil ek eigi gqð geyia hefu.r alla
daga síðan verið Isleridingum.
ku.nn og hugbekk ei.ns og aðr-
ar níðvísur. Helzt er haldið,
að Hjalti hafi búið á Skelja-
stöðu.m, og er sagt að hann
h."fi látið gera kirkju á bæ
si'num og takið blýi. Kemur
það heim við það. að á Skelja-
strðum hafa fu.ndizt nokkrár
blýplötur.
I Þjórsárdal hefur um eitt
skeið verið blómleg byggð en
nú er þar helzt að iíta hrika-
lega auðn. Um eyðingu Þjórs-
Háifoss í iÞjórsárdal.
árdals eru margar sagnir rg
fæjtar áiæiðanlegar, en slíkt
í’æð.ir Björn betur á sunnu-
dag. Geta fróðleiksfúsir sósíal-
istar leitað sér allra nánari
upplýsinga í ritgerð þeirri, er
Brynjólfur Jónsson frá Minna-
núpi reit í árbók Fornleifafé-
lagsins 1885. Telu.r Brynjólfur
18 eyðibyli fyrir innan Skriðu-
fell og sést á því að mikil
umskipti hafa hér orðið.
Þjórsárdalur hefur orðið vin-
sæll með ferðamönnum eink-
um eftir að upp voru graín-
ar bæjarrústirnar á Stöng,
hmu forna býli Gau.ks Trand-
ihsonar. En dalu.rinn hefur
einnig orðið íslenzkum lista-
mönnum hvöt til dáða. Ás-
grímur Jónsson hefur sótt í
Þjórsárdal og rnálað þaðan
margt fagurra mynda. Steinn
Steinarr yrkir eitt sinna
snilldarkvæða um haust í
Þjórsárdal og Hannes Hafstein
ímyndar sér að hann sé stadd-
ur á Skeljastöðum ;og sjái dal-
inn eyðast. Hannes kveður:
Þá allt í einu
finnst ísköld hrylling.
1 lofti hreinu
dylst lævís trylling,
og þrumur boða með undra
óm
um albjart hádegið skapadóm.
Svo steypist svartnætti
sárkalt yfir,
og Heljar illvætti
hátt nú lifir.
Svo a).lt er grenjandi gnýr og
org,
sem gnauði Helvítis sölutorg.
Auk þess, sem hér er á
drepið, er ýmislegt fleira í
Þjórsárdal, sem gleður ferða-
mannsins auga, og skal frek-
ari upptalningu sleppt. Er
þess að vænta, að sósíalistar
í Reykjavík noti þetta tæki-
færi til að kynnast í fyrsta
sinn eða enn á ný þessum
furðudal, og gleðjast um leið
í góðum félagsskap samherja
sinna.
Hjálparfoss i Þjórsárdal er af mörgum talinn einn ifegursti
foss landsins. I ■ I i i
111 O.D'j) l n.j *....... ; ujii i.!11
TT
tr
Fimmtudagur 9. ágúst 1962 ~ ÚJÓÐVILJINN
(3 l