Þjóðviljinn - 09.08.1962, Page 4

Þjóðviljinn - 09.08.1962, Page 4
BJORN BJARNA og Verkalýðshreyfingin BANDALAGIÐ I skýrslu sinni til 4. þings Alþjóðasambandsins, W.F.T.U., sem haldið var í Leipzig í okt. 1957, sagði aðalritari þess, Louis Saillant meðal annars þetta um Efnahagsbandalagið: Með virk- um stuðningi einokunarhringa Bándaríkjanna reynir auðvald Evrópu, með Efnahagsbandalag- inu, að jafna innri mótsetningar og að auka arðrán sitt á auð- ■ lindum Vestur-Evrópu og viss- um löndum Afríku. Undir þess- um kringumstæðum getur efna- hagsleg pólitísk samsteypa þess- ara sex ríkja ekki þýtt annað fyrir verkalýð þeirra en að lífs- kjör hans verði jöfnuð niðurá- við. Skerðing á þjóðlegu sjálf- stæði þeirra gefur þýzku auð- hringunum frjálsari hendur“. 1 aðalályktun þingsins er verkalýðnum svo bent á leið- ina til að mæta þessari nýju hættu, en þar segir meðal ann- ars: „Þessar kringumstæður gera það nauðsynlegra en nokk- ' urntíma áður fyrir verklýðinn og samtök hans að skapa ein- ingu, á vinnustaðnum og í samtökum sínum bæði þjóðlega og alþjóðlega”. Á 5. þinginu, sem haldið var í Moskvu, í des. 1961, var því slegið föstu að áhrifa Efnahags- bandalagsins væri farið að gæta í versnandi lífskjörum verka- lýðsins í viðkomandi löndum. í baráttústefnuskrá 5. þings- ins segir meðal annars: „1 Vestur- Evrópu í skjóli Efnahagsbandalagsins, herða auðhringarnír tökin á kostn- að minni fyrirtækjanna. Þeir loka verksmiðjum og nám- um og auka arðrán sitt á verkalýðnum". 1 þessu máli sem öðrum, er varða' hágsmuni verkalýðsins, stóð Aiþjóðasambandið -vörð og benti á aðsteðjandi hættu - en það sama verður því miður ekki sagt um verkalýðssamtök VesUir-?y@^p^ij s,þau sem eru innán AÍþjÓðSsáritbands ffjálsra verkalýðsfélaga, I.C.F.T.U. Flest þeirra tóku þegar í upphafi af- stöðu með Efnahagsbandalaginu en reynsla undanfarinna ára hefir nú breýtt afstöðu sumra þeirra ér áður stóðu með því. Sem dæmi um þá breyttu af- stöðu. serri réynslan hefir knú- ið fram, má nefna aðalritara Gaselco, sambands gas- og raf- virkja í Belgíu, Jacques Yerna. Hann skrifar langa grein í viku- blaðið „La Gauche", 1. júní s.l., þar sem hann skorar á verka- lýð Efnahagsbandalagslandanna að sameinast í einhuga baráttu gegn síharðnandf þrælatökum auðhringanna. Hann segir þar meðal annars: „Blekið varnaum- ast þornað á Rómar-samningn- um“, þegar auðhringarnir byrj- uðu að endurskipuleggja sam- tök sín og samræma árásarað- gerðir sínar á hendur verka- lýðnum. En verkalýðssamtökin voru varbúin að mæta þess- um samræmdu aðgerðum auð- hringanna á lífskjörin, vegna skorts á samstarfi og alþjóð- legri einingu þeirra. Viðbrögð auðhringanna,. sem þrátt fyrir - allt t.sitt; sktaþ ;um frjálsa sam- keþþríi setja héilar framleiðslu- greinar í öllum löndum Efna- hagsbandalagsins undir eina stjórn, ættu að geta orðið verkalýðnum áminning um að samhæfa betur s>nar starfsað- ferðir. „Að berjast sameigin- lega eða falla sem einstakling- ar, eru þeir kostir, sem verka- lýðshreyfing Evrópu á um að velja í dag“, segir greinarhöf- undur að lökum. Reynslan af Efnahagsbandalag- inu, sem knúið hefir fram þau skoðanaskipti, sem fram koma í skrifum þessa belgíska verka- lýðsforingja, virðist hafa haft sín áhrif, einnig í þeim löndum sem enn eru ekki orðin aðilar, en hafa sótt um aðild, eins og Danmörku. Jakob Rasmussen Stavros Niarchos, keppinautur og fyrrv. mágur gríska skipa- kóngsins Onassis, lét smíða handa sér hraðskreiðustu snekkju heims, til þess að íerðast mtlli lúxusíbúðar sinn- ar- á eyju í Miðjarðarhafinu ■cg' .skrifstqfunnar í Píreus. Vegaléngdin á milli er 90 kílómetrar. Snekkjan náði 100 km. hraða á klukkustund. Nú hefur Niarchos boðið þetta farartæki til sölu eftir litla notkun. I snekkjunni eru tveir hreyflar, 3500 hestöfl hvor. Þessum olíuskipakóngi þótti olíueyðslan allt of mik- il. ★ Ivo Andric, Nóbelsverðlauna- hafi fyrir bókmenntir 1962, hefur ánafnað heimabyggð sinni Herzegovíníu helming verðlaunanna (um 18 milljón- um dinara eða um 750 þús- und kr.). Fénu á að verja til að setja ó stofn almennings- bókasöfn og bókmenntarann- sóknastofnanir í héraðinu. Andric Raymond S. Hareld, 31 árs gamall bandarískur liðþjálfi í hernámsliðinu í Wiesbadcn í Vestur-Þýzkalandi, hefur beð- ið um hæli sem pólitísku.r flóttamaður í Tékkóslóvakíu. í íylgd með honum Var ung þýzk stúlka, sem einnig baðst hælis í Tékkóslóvakíu. Hareld sem er blökkumaður, er vél- fræðingur að mennt. ★ Julius Nyerere, fyrrv. forsæt- isráðherra Tanganjíku, verður í framboði' ff'komandi forseta- kosningum í landinu af hálfu flokks síns TANU. Tanganjíka verður lýðveldi hinn 9. des- ember n.k. * Eisenhcwer, fyrrv. Banda- ríkjaforseti, hefur lýst yfir andúð sinni á því kappsmáli Bandaríkjamanna að verða fyrsti.r til að komast til tunglsins. Skoðun sína setur Eisenhower fram í grein í blaðinu Saturday Evening Post. Flann kveðst vera mjög hlynntur geimrannsóknum, en kostnaðurinn við fyrstu tungÞ feröina verði svo gífurlegur að ekki sé rétt að hraða sér um of. ★ J. Vincent Kéogh, fyrrverandi dómari við hæstarétt New York-ríkis hefur verið dæmd- úr í tvéggja ára fangelsi fyr- ir mútuþægni. Keogh haföi tekið við 35.000 dollara greiðslu ásamt lögfræðingi nokkrum fyrir „að beita áhrif- Fauikner um sínum“ í máli, er höfðað var gegn verkalýðsleiðtogan- urn Antono Coralo. ★ William Faulkner, bandaríski nóbelshöfundurinn sem nú er nýlátinn, var sagður hraustur drykkjumaður, en fór aldrei úr andlegu eða líkamlegu jafnvægi, þrátt fyrir mikla viskídrykkju, og hafa ýmsar sögur um það birzt nú, eftir dauða hans. Hér kemur ein: Ferðamenn laumuðust . að kvöidíagi til einkabústaðar' ■ hins fræga ritþöfundar. í- fyrrasumar. Beindu þeir vasa- Ijósum að skaldinu þar sem það sat að drykkju á svölum hússins og vildu nú sjá hvern- ig „ei.nkalíf" þess færi fram. Nóbelsskúldið stóð upp frá borðinu, tæmdi úr þvagblöðru sinni yfir handriðið og hróp- aði til óboðnu gestanna: „Þarna sjáið þið einkalífið, piltar“. ★ skrifar í blað dönsku sjómanna- samtakanna, Ny Tid, grein um Efnahagsbandalagið og segir þar meðal annars: „Hugmyndin um jnarkaðsbandalag Evrópu, eða Bandaríki Evrópu, er síður en svo ný af nálinni eða nokkuð sem ekki hefir verið áður reynt. Hitler talaði líka um Bandaríki Evrópu og þá eins og nú voru öfl innan dönsku ríkisstjórnar- innar og stóratvinnurekstursins sem reyndu að beina dönsku þjóðinni inn á þessa lífshættu- legu braut“. Síðar í greininni segir: „Fyrir Þýzkaland þýðir þessi bandalagshugmynd fram- kvæmdina á draumi Hitlers og þýzku auðhringanna um sam- einaða Evrópu þar sem auð- hringarnir hefðu öll völd og ótakmarkaða möguleika til að framkvæma þýzku hefndarpóli- tíkina". Að lokum segir greinarhöf- undur: „Leið okkar getur ekki legið með sexveldunum, við eig- um um annað og betra að velja. Við verðum að efla og byggja upp atvinnu- og efnahagslíf okkar í vinsamlegum samskipt- um við sósíalistisku löndin, með efnahagslegri samvinnu við all- ar þjóðir, einnig utan Evrópu, en þau samskipti verða að vera á grundvelli jafnréttis og sjálf- stæðis. Það verður að vera Ieið Danmerkur". Við svipaðan tón kveður einn- ig í blöðum verkalýðshreyfing- arinnar í brezku samveldislönd- unum. í tímariti Kjötiðnaðar- mannasambands Ástralíu birtist s.l. vetur grein með yfirskrift- inni „Efnahagsbandalagið er al- varleg hætta fyrir okkur“. Þar er því slegið föstu að ef Bret- land gangi í Efnahagsbandalag- ið muni það valda algeru hruni í matvælaframleiðslu Ástralíu og eigi hún þá aðeins eina leið opna, verzlun við sósíalistisku ríkin. I S i * I » • *" •* > * i ’ * •=• • I bælkingi, er indverska verkalýðssambandið, A.I.T.U.C., gaf út s.I. vetur og fjallar um þau áhriif er tengsl við Efna- hagsbandalagið myndu hafa á lífskjör verkalýðsins á Indlandi, er þetta niðurstaðan: „Við meg- um undir engum kringumstæð- um verða herfang þessarar valdapólitíkur eða tengjastEfna- hagsbandalaginu á nokkurn hátt, þótt sterk öfl séu að verki og reyni að draga okkur í þá átt“. Svona mætti halda áfram að fletta blöðum verkalýðs- hreyfingarinnar og víðast hvar er afstaðan hin sama til Efna- .hagsbandalagsins. Allt það, sem þar er sagt á ekki sfður við gagnvart okkur hér heima og verðum við því að vera vel á verði gagnvart þeim óhappa- mönnum, innan og utan verka- lýðshreyfingarinnar, sem vilja fjötra okkur á ldafa Efnahags- bandalagsins. Alþýðusamband- ið hefir varað okikur við en við megum ekki sofna á verð- inum. Alþjóðasamband verkalýðs- félaga, W.F.T.U. hefir ákveðið að kalla sarnan ráðstefnu á hausti komanda til þess að revna að skipleggja vörn verka- lýðsins gegn árásum Efnahags- bandalagsins. Ráðstefnan verð- ur haldin í Leipzig 31. okt. til og með 2. nóv. Til hennar hefir verið boðið 26 verkalýðs- samböndum í Evrópu og 16 ut- an Evrópu. Mörg þeirra sam- banda, sem boðin hefir verið þátttaka, eru utan Alþjóða- sambandsins. Flelrl flöldamorðlngjar dregnlr fyrir dómstólana BONN 7/8 — Tólf fyrrverandi SS-mönnum og Gestaiiómönnum verður innan skamms stefnt fyr- ir rétt í Bonn, sökuðum um morð cða þátttöku í morðum á um 170.000 gyðingum í heimsstyrj- öldinni síðari. Hinir ákærðu nazistar tóku þátt í fjöldamorðum í fjölda- fangabúðum í Kulmhof við Poz- nan í Póllandi á árunum, 1941— 1945. I ákæruskjalinu, sem er um 202 síður að lengd, segir að um 1000 gyðingar hafi verið fluttir til fangabúða þessarra á hverj- um degi. Varðmennirnir hafi rek- ið þá upp á yfirbyggða vörubíla. Síðan var þeim lokað og þeir einangraðir og útblástursgas bíl- anna notað til að myrða fangana. Líkunum var ýmist brennt eða þau grafin í skóglendi í grennd við fangabúðirnar. BONN — Vestur-þýzka sam- göngumálaráðuneytið hefur fund- ið sig knúið til að kvarta opin- berlega yfir ferðamannapésa sem vestur-þýzka flugfélagið Luft- hansa hefur gefið út í samvinnu við Air-France. Kvarta hinir háu herrar yfir því að nöfn borga og bæja á svæðinu fyrir austan landamæri Austur-Þýzkalands eru rituð á' pólsku. Þrátt fyrir það að svaeði þetta er nú pólskt, skorar samgöngu- málaráðuneytið á Lufthansa að „rannsáka málið gaumgæfilega'’. Ekki lætur ráðuneytið undir höf- uð leggjast að vekja athygli á því að enda þótt Lufthansa sé sjálfstætt fyrirtæki, sé mikill hluti af tekjum þess kominn undir ríkisstjórninni. il! *<-» 4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 9. ágúst 1962 - <y -jt

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.