Þjóðviljinn - 15.11.1962, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. nóvember 1962
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 3
Bretar og EBE semia
fyrsta lagi með vori
AAA^^VVVAVVVVA^VVVVVWVAVVVVVVVVVAAVAVVVVVVVVVWVVVVAVVV\VV^VVVVVVVVVVVVWVVVVVVVVVVVVV\VVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV^
i
BRUSSEL 14/11 — Samningaviðræðum Breta við
Efnahagsbandalagið lýkur sennilega á laugardag,
og eru litlar líkur taldar fyrir því, að samkomulag
náist. Fullyrt er í stöðvum EBE í Brussel, að drög
að samningi ijiuni varla verða tilbúin fyrr en í
febrúar eða marz á næsta ári, svo að sjálfur
samningurinn yrði þá í fyrsta lagi undirritaður
næsfa vor.
Mörg vandamál eru óleyst enn
í samningum Stóra Bretlands við
ráðherranefnd Efnahagsbanda-
HOLLYWOOD 14/11 — Hinn
heimsfrægi leikari, Charles
Laughton, liggur nú þungt hald-
inn á sjúkrahúsi, og er honum
vart hugað Iíf. Leikarinn sem
er á 64. aldursári þjáist af
krabbameini.
lagsins. Gert er ráð fyrir, að við-
ra^ðum ljúki á laugardag, og
litiar líkur eru taldar fyrir því,
»ð samningar takist fyrir jól.
Helztu vandamálin, sem samn-
inganefndimar eiga við að glíma,
eru í fyrsta lagi tengsl sam-
veldislandanna við EBE, í öðru
lagi hvemig haga skuli inn-
flutningi frá þeim samveldislönd-
um. sem hvorki verða fullgild-
ir eða aukaaðilar að bandalaginu
Landbúnaðarmálin voru helzta
umræðuefnið á samningafundun-
um í sumar. Skömmu áður en
idðræðum var slitið, hafði Bret-
iand fallizt á ákvarðanir EBE
um gjöld í sameiginlegan land-
búnaðarsjóð. En samningar um
þessi mál strönduðu, er Frakkar
lögðu fram nýjar tillögur öllum
á óvænt, og gátu Bretar ekki
fallizt á þær. Ekkert samkomu-
lag hefur enn orðið um þessi
mál. Hefur jafnvel leikið grunur
á, að Frakkar hafi lagt tillögum-
ar fram beinlínis til að spilla
fyrir samkomulagi.
Fáa mun víst hafa gmnað fyr-
ír rúmu einu ári, er Bretar lýstu
yfir, að þeir hefðu áhuga á að
ganga í EBE, að svo seint og
erfiðlega myndi ganga fyrir Breta
að ná samningum við bandalag-
ið, Kunnugir telja nú, að varla
verði • tilbúin drög að samkomu-
lagi fyrr en í fyrsta lagi í febr-
úai eða marz, og samningar
verði aldrei undirritaðir fyrr en
og í þriðja lagi landbúnaðar-1 vori, — ef verður þá nokk-
málin,
Gagnkvœm aðdáun þeirra
Kennedys og 4denauers
WASHINGTON 14/11 — Ad-
enauer, kanslari V-Þýzka-
lands kom i opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna i dag
og var fagnað með viðeig-
andi lúðrablæstri og heiðurs-
verði á flugveliinum. Kenn-
edy forseti var ekki mættur
þar. en tók hins vegar á móti
kanslaranum við Hvíta húsið
með 19 fallbyssuskotum.
Kennedy lýsti því yfir við mót-
tökuathöfnina. að Adenauer
vaeri framsýnn maður. sem
kæmist í mannkynssöguna
fyrir einstakt friðarstarf sitt.
Adenauer þakkaði Kennedy
fyrir hlýleg ummæli, og sagði,
að Kúbuaðgerðir hans hefðu
verið ómetanlegur stuðningur
við friðinn í heiminum.
Bandaríska blaðið New
Vork Times segir í leiðara
1 dag, að Spiegelmálið sé
alvarlegasti álitshnekkir, sem
V-Þýzkaland hafi orðið fyrir
frá stríðslokum og minnir á,
að einmitt nú. er kanslarinn
heimsæki Bandaríkin, sé ólg-
an hvað mest heima fyrir
vegna þessa máls
j ur samningur undirritaður.
Deilur um austur-
viðskipti
Á miðvikudag var sérstaklega
rætt um viðskiptin við sósíalísku
iöndin i ráðherranefnd EBE. Áð-
ur hafði verið ákveðið, að inn-
flutningur á fjölmörgum vöru-
tegundum frá þessum löndum
skyldi bannaður frá og með 1.
nóvember, en nú var öllum á-
kvörðunum frestað fram undir
jól. Hins vegar var öllum aðild-
arlöndum bandalagsins bannað
að gera nokkum viðskiptasamn-
ing við sósíalisku ríkin fyrst um
sirin.
Það em einkum V-Þjóðverjar,
sem vilja halda áfram viðskipt-
um austur á bóginn. Hafa þeir
átt ágæt viðskipti við Pólverja
og vilja fá að gera nýja samn-
inga við þá.
U Þant eykur flug-
styrk SÞ í Kongó
NEW YORK 14/11 — Talið er
sennilegt, að Ú Þant, aöalritari
SÞ, muni leggja til við aðildar-
þjóðirnar, að bönnuð verði öll
kaup á kopar og kóbolt frá Kat-
anga, þar eð Tsjombe hefur nú
svikið öll loforð sín um sam-
írá Ú Þant um að senda fleiri
sænskar orustuþotur til styrktar
liði SÞ í Kongó. Svíar eiga nú
6 flugvélar í liðsafla SÞ, og
sagðist stjómin mjmdu taka
þessa beiðni til athugunar. Sams-
konar erindi hafa verið send
stjómum Italíu, Pakistan. Grikk-
lands og Filippseyja.
Yfirmaður upplýsingaskrifstofu
Katanga í New York, sagði við
blaöamenn í dag, að Tsjombe
hefði viðurkennt, að gerðar hefðu
verið árásir úr flugvélum í Norð-
ur Katanga. Hefði það verið
nauðsynlegt vegna Kongólóbúa,
sem umsetnir væru af hersveit-
um Kongóstjórnar.
sr.
329 vansköpuð
börn í Bretlandi
LONDON 10/11 — Brezka heil-
brigðismálastjómin tilkynnti
fyrir nokkrum dögum, að á
tímabilinu 1. janúar 1960 til
31. ágúst 1962 hefðu fæðst 329
vansköpuð börn í Bretlandi af
völdum Thalidomide-svefn-
lyfja. 244 af þessum vansköp-
uðu bömum eru enn á lifL
Auk þessa hafa fæðst 1515
börn, sjúk að meirá eða minna
leyti og með ýmis konar lík-
amlega ágalla, vegna þess að
móðirin hafði neytt hinna
hættulegu lyfja, meðan barnið
var í móðurlífi.
Talsmaður heilbrigðismála-
stjórnarinnar lagði áherzlu á,
að tölur þessar væru ekki jafn
háar og þær, sem áður hefðu
fram komið eftir óáreiðanleg-
um heimildum. Flest vansköp-
uðu börnin geta búið hjá for-
eldrum sínum, en nokkur
vterða stöðugt að vera undir
læknishendi.
I
dag er útrunninn frestur-
inn, sem U Þant, aðalritari
SÞ, hafði gefið Tsjombe í
Katanga til að standa við
loforð sín um sameiningu
Katanga og annarra hluta
Kongó. U Þant hefur hótað
Tsjombe nýjum refsiaðgerð-
um, standi hann ekki við
gefin heit. En hvað verður.
þegar á reynir? — Árangur
af starfi SÞ i Kongó er
svo grátlega lítill, að segja
má, að Ú Þant standi nú i
sömu sporum og Hammar-
skjöld gerði fyrir tveimur og
hálfu ári, er lið SÞ kom fyrst
til Kongó að beiðni Lúm-
úmba, forsætisráðherra. Þá
hótaði Hammarskjöld vald-
beitingu og gaf Tsjombe
nokkurra daga frest til að
hugsa ráð sitt. Tsjombe
hlýddi ekki, og heimurinn
beið í ofvæni eftir að sjá,
hvort Hammarskjöld beitti
valdi sínu. En aðalritarinn
gugnaði á seinustu stundu, og
á þvi andartaki hófust þreng-
ingar SÞ í Kongó, sem áttu
eftir að kosta hann sjálfan
lífið.
Nýjar aðgerðir
SÞ í Kongó
K
' jami Kongómálsins var
frá upphafi barátta gegn
nýkoloníalismanum. Rfkasta
hérað landsins klauf sig út
með Tsjombe í broddi fylk-
ingar, í þeim eina tilgangi
að veita einokunarhringum
Union Miniére áframhaldandi
aðstöðu til námureksturs.
Auðfélagið greiddi Tsjombe
hundruð milljóna króna, til
þess að hann gæti komið upp
öflugum her og flugvéla-
sveitum. öllum var ljóst að
kongóska samfélagið stóðst
ekki fjárhagslega, ef Katanga
var rifið út úr þjóðarheildinni.
Þá hóf Lúmúmba baráttu sína
fyrir sameiningu Kongó, bar-
áttuna gegn erlendri ásælni,
baráttuna gegn alþjóðlegum
kapítalisma í Kongó.
Lúmúmba var það fljótt
ljóst, að ráðamenn SÞ voru
of tvístígandi til að verða að
nokkru gagni. Hann sagðist
því mundu biðja um hjálp
Sovétrík j anna. ef Vestur-
veldin væru staðráðin í að
styðja Tsjombe leynt og Ijóst.
Þegar vestræni heimurinn
heyrði þá hótun, ætlaði
allt um koll að keyra: „Lúm-
úmba er kommúnisti — hann
er Rússadindill"! hljómaði um
öll Vesturlönd.
Það er margsannað, að her-
stjóm SÞ dró vísvitandi taum
óvina Lúmúmba og gerði hon-
um ókleyft að stjóma landinu.
Forsætisráðherranum var hvað
eftir annað meinaður aðgang-
ur að útvarpsstöð landsins,
meðan andstæðingar hans
höfðu aðgang að öðmm stöðv-
um. Löglega kjörinn foringi
Kongóbúa, hann sem hafði
meiri hluta þingsins á bak
við sig, var hnepptur í varð-
hald og pyntaður, án þess að
yfirmenn SÞ hreyfðu legg né
lið. Að lokum var hann myrt-
ur í fangelsinu.
Hersveitir Sameinuðu þjóðanna koma til Kongó. Það er tím-
anna tákn, að nær allir hermenn í liði SÞ hafa verið fri
hlutiausum ríkjum seinustu árin. Þjóðir utan hernaðarbandai*
Iaga hafa tekið að sér hlutverk sáttasemjara í heiminum.
A“
M
orð Lúmúmba vakti gíf-
heim og krafizt var aðgerða
gegn morðingjanum Tsjombe.
leppi vestrænna auðmanna.
Reiðin bitnaði ekki hvað sízt
á Hammarskjöld og vestræn-
um ríkisstjómum, sem vegna
aðgerðaleysis og óbeins stuðn-
ings við Tsjombe voru ábyrg-
ar um morðið. Á þingi SÞ
tókst að fá samþykkt, að
beita skyldi vopnavaldi gegn
Tsjombe.
Hammarskjöld hóf tvívegis
stríð gegn hersveitum Tsjom-
bes. í bæði skiptin átti hann
sigurinn vísan, en aðalritar-
inn hikaði; nýlenduveldin
með Breta í fararbroddi
þrýstu á Hammarskjöld og
kröfust þess, að Tsjombe yrði
látinn í friði. Hammarskjöld
gat ekki ákveðið í hvom fót-
inn hann ætti að stíga. Að-
staða hans var orðin von-
laus, þegar leigumorðingjum
Tsjombes tókst loks að myrða
hann yfir frumskógum Afríku.
TIItoH fiCrrtKfl |nn9ft
ldrei hefur verið sannað
endanlega, að Tsjombe
hafi myrt Hammarskjöld. En
þáverandi yfirmaður SÞ í
Kongó, Irlendingurinn O’Bri-
en, var ekki í vafa um, að
svo væri. O’Brien sagði sig
úr þjónustu SÞ til að fá frelsi
til að segja öllum heiminum
frá svívirðilegri tvöfeldni
Vesturveldanna i Kongómál-
inu. Vesturveldin segjast vilja
vinna að sameiningu Kongó,
sagði O’Brien, en á sama tíma
styðja þau lepp sinn, Tsjombe,
og koma í veg fyrir að sam-
þykktir Sameinuðu þjóðanna
nái fram að ganga! Uppljóstr-
anir O’Briens vöktu gífurlega
athygli. Aldrei frá stríðslokum
hafa menn séð ljósara dæmi
um mátt hins alþjóðlega auð-
magns, er getur farið öllusínu
fram, í trássi við einróma al-
menningsálit í svo ti' öllum
heiminum.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
beðið mikinn álitshnekki
í Kongó. Og takist auðfélög-
unum að sigra SÞ endanlega,
mun það hafa mjög skaðleg
áhrif á framtíðarstarf sam-
takanna. En Kongómálið er
einnig mikilvægt frá öðrum
sjónarhóli. Katanga er lykill-
inn í baráttu hvítu ofstækis-
mannanna, sem reyna afl
verja völd sín í Afríku. Kat-
anga er brimgarðurinn, sem
á að hlífa hvítu mönnunum
fyrir frelsisbylgjunni, sem
nú veður yfir alla Afríku og
mun einnig ná til Ródesíu og
Suður-Afríku. Þetta vita þeir
báðir, Roy Welensky i Ródes-
íu og Verwoerd í Suður-Afr-
íku, enda styðja þeir Tsjombe
á allan máta. Tsjombe er t.
d. heiðursfélagi i svertingja-
hatursflokki Welenskys.
Það er von hvítu mannanna
í Afríku, að almenningur ann-
ars staðar í heiminum haldl,
að svertingjamir geti ekki
stjómað sér sjálfir. Katanga-
ævintýrið, verk hvíta auð-
valdsins, heppnaðist vel að
þessu leyti. Þeim tókst sem
sagt að eyðileggja kongóska
lýðveldið strax í fæðingu en
foringjum Kongóbúa var um
kennt. Þessvegna er Katanga
ennþá lykiimál í Afríku.
u
Þant á nú leik í erfiðu
tafli. Tsjombe hefur stói>
bætt aðstöðu sina með þvi að
svíkja öll sín fyrri loforð og
gerða samninga. Hann hefur
fengið marga OAS-menn úr
Alsírstríðinu sem leiguliða í
hersveitir sínar og eignazt
franskar og þýzkar sprengju-
flugvélar, orustuflugvélar frá
S-Afríku og 400 franskar eld-
flaugar fyrir flugvélar. Og
hann hefur að undanfömu
fengið 2.040 millj. ísl. króna
stuðning árlega frá námufé-
laginu Union Miniére.
Ekkert bendir til þess, að
Vesturveldin hafi breytt af-
stöðu sinni til Kongómálsins.
Ú Þant mun því hafa í hyggju
að reyna efnahagslegar refsi-
aðgerðir að þessu sinni.
Reynslan verður að skera úr}
hvort það verður nema kák
eitt. — ra.
WWWWWVWWWVWWWVWWVWWVWVWWWWWVWWWWVW'VVWWWWW'WWVWVWWVVWWWWWWVWWWWVWWWVWVWAAÍ
Tsjombe, valdamaður í . -t-
anga sprangar um götur EI-
isabethville ásamt belgískum
ráðgjafa sínum.
starf við stjómina í Leopold-
ville til sameiningar Kongó.
Sænska stjómin tilkynnti i
moigun, að borizt hefði beiðni
Hið síunga og sívinnandi Nóbelsverðlaunaskáid okkar Haildór Kiljan Laxness
1, hefir alltaf eitthvað nýtt á prjónunum, og gefur aðdáendum sínum aldrei tækifæri til að láta sér leiðast eða
!• % iÉtÉliÍf ms ■■ m glÍlÍÍii- sofna á verðinum DD IÁy A CTAC A 1 fej
\ \ PivjOINlAS ■ OFAN SOLSN j nýtt verk eftir Laxness, er komið út, háð- og gamanle ikrit. Halldór Laxness hefir alla tíð verið á undan sínum
\ tíma, og hann er það ennþá, og þetta nýjasta skáldverk hans mun fljótlega krefjast endurlesturs.
i Fyrsta útgáfa verksins er í litlu upplagi — komið strax í U N U H Ú S, Helgafelli. Sími 16837.
h ■ j^^^MWjatrÆW 1 !