Þjóðviljinn - 15.12.1962, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 15.12.1962, Blaðsíða 8
8 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1962 ic I dag er laugardagurinn 15. desember. Maximinus. 8. vika vetrar. Tungl í hásuðri kl. 3.47. Árdegisháflæði kl. 7.55. Síðdegisháflæði kl 20.18. ti! minms ★ Næturvarzla vikuna 8.—15. desember er í Vesturbæjar- apóteki, sími 22290. ★ Neyðarlæknir vakt alla daga nema laugardaga kl. 13 — 17. Sími 11510. ★ Slysavarðstofan i heilsu- verndarstöðinni er opin allan sólarhringinn. næturlæknir á sama stað kl. 18—8. sími 15030 ★ Slökkviliðið og sjúkrabif- reiðin sími 11100. ★ Lögreglan sími 11166 ic Holtsapótek og Garðsapó- tek eru opin aiia virka daga tek eru opin alla virka daga kl. 9—19. laugardaga kl. 9— 16 og sunnudaga kl. 13—16. ★ Sjúkrabifreiðin Hafrar- firði sími 51336. ★ Kópavogsapótek er > i3 alla vi’-ka daga kl. 9.15—20 laugardaga kl. 9.15—16. sunnudaga kl. 13—16. ★ Keflavíkurapótek er opið alla virka daga kl. 9—19. laugardaga kl. 9—16 og sunnudaga kl. 13—16. ★ Útivist barna. Börn yngri en 12 ára mega vera úti til kl. 20.00. böm 12—14 ára til kl. 22.00. Bömum og ungling- um innan 16 ára er óheimill aðgangur að veitinga- dan> og sölustöðun. eftir kl. 20.00 ★ Bókasafn Dagsbrúnar et opið föstudaga kl. 8—10 e.h laugardaga kl. 4—7 e.h. og sunnudaga kl. 4—7 e.h. ★ Þjóðminjasafnið og Lista- safn ríkisins eru opin súnnu- daga. briðjudaga. fimmtu- daga og laugardaga kl. 13.30 — 16. ★ Bæjarbókasafnið Þing- holtsstræti 29A. sími 12308 Útlánsdeild. Opið kl. 14—22 alla virka daga nema laug- ardaga kl 14-H9. sunnu- daga kl. 17—19 Lesstofa Opin kl. 10—22 alla virka daga nema laugardaga kl. 10 —19. sunnudaga kl 14—19 Útibúið Hólmgarði 34. Opið kl. 17—19 alla virka daga nema laugardaga, Útibúið Hofsvallagötu 16 Opið kl. 17.30—19.30 alla virka daga nema laugardaga. ★ Tæknibókasafn IMSf er opið alla virka daga nema laugardaga kl. 13—19. Listasafn Einars Jónsson- ar er lokað um óákveðinn tíma. Krossgáta Þjóðviíians ic Nr. 52. — Lárétt: 1 árs- tíð, 6 bullara, 8 keyr, 9 klukka, 10 meiðsli, 11 verk- færi, 13 einkennisstafir, 14 máttleysis, 17 salerni. Lóðrétt: 1 krókur, 2 tvíhljóði, 3 tjón- inu, 4 átt, 5 átrúnaður, 6 vél, 7 illar, 12 rúmfatnaður, 13 vínstúka, 15 menntastofnun. 16 frumefni. ★ Minjasafn Reykjavíbni Skúlatúni 2 er opið alla daga nema mánudaga kl. 14—16. ★ Þjóðskjaiasafnið er opið alla virka daga kl. 10—12 og 14—19. ★ Ásgrtmssafn Bergstaða- stræti 74 er opið briðjudaga fimmtudaga og sunnudaga kl. 13.30—16. ★ Bókasafn Kópavogs. Útlán þriðjudaga og fimmtudaga i báðum skólunum. ★ Landsbókasafnið. Lestrar- salur opinn alla virka daga klukkan 10-12, 13-19 og 20-22. nema laugardaga klukkan 10- 12 og 13-19. Útlán alla virka daga klukkan 13-15. skipin ■jc Jöklar. Drangajökull er í Hamborg og fer þaðan til Bremerhaven, Gdynia og R- víkur. Langjökull fór í gær frá Rvík til Cuxhaven, Ham- borgar og Reykjavíkur. Vatna- jökull fer frá Palo í dag til London, Rotterdam og Rvik- ur. ic Hafskip. Laxá losar sem- ent í Skotlandi. Rangá fór frá Roquetas 13. þ. m. til Vest- mannaeyja. ic Eimskipafélag lslands. Brúarfoss kom til New York 12. þ. m. frá Dublin. Detti- foss fór frá Hafnarfirði í gær- kvöld til Rvíkur, Akraness og Keflavíkur og þaðan til Rotterdam, Hamborgar, Dubl- In og New York. Fjallfoss fer frá Leith í dag til Rvík- ur. Goðafoss fór frá Vest- mannaeyjum í gær til Rostock, Gdynia, Ventspils og Finn- lands. Gullfoss kom til Rvík- ur 10. þ. m. frá Kaupmanna- höfn og Leith. Lagarfoss fer frá New York 20. þ. m. til Rvíkur. Reykjafoss fór frá Gautaborg 10. þ. m. til Vest- mannaeyja og Rvíkur. Selfoss fer frá Reykjavík á morgun til Dublin og New York. Tröllafoss fer væntanlega frá Gdynia í dag til Antwerpen. Rotterdam, Hull og Rvíkur. Tungufoss fór frá Hjalteyri í gærkvöld til Raufarhafnar. Þórshafnar, Eskifjarðar og þaðan til Belfast, Hull og Hamborgar. ic Skipaútgerð ríkisins. Esja er i Rvík. Hekla er á Norð- urlandshöfnum. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 21.00 í kvöld til Rvíkur. Þyrill kom til Krossaness í gær á leið til Siglufjarðar. Skjaldbreið er á Norðurlandshöfnum. Herðu- breið er á Austfjörðum á norðurleið. ic Skipadeild SÍS. Hvassafell fer frá Norðfirði í dag til Seyðisfjarðar. Arnarfell er i Rvík. Jökulfell lestar á Vest- fjörðum. Dísarfell er í Stettin. Litlafell fer væntanlega 20. b. m. frá Rendsburg áleiðis tíl Reykjavikur. Helgafell kemm til Rendsburg í dag, fer þaða’- áleiðis til Hamborgar og Leith Hamrafeil er væntanlegt ti’ Rvikur 20. þ. m. frá Batumi. Stapafell losar á Austfjörðum. Cornelia B XI. lestar á Skaga- fjarðarhöfnum. flugið ic Millilandaflug Loftleiða. Snorri Sturluson er væntan- legur frá New York kl. 6. Fer til Luxemborgar kl. 7.30. Kemur til baka frá Luxem- borg kl. 24. Fer til New York kl. 1.30. Snorri Þorfinnsson er væntanlegur frá Hamborg. Kaupmannahöfn, Gautaborg og Osló kl. 23. Fer til New York kl. 0.30. ic Frá Guðspckifclaginu. Jólabazarínn er á morgun, sunnuda \ 1 16. desember kl. 3 síðdegis í Guðspekifélags- heimilinu, Ingólfsstræti 22. Þar verður ýmislegt á boð- stólum svo sem jólaskraut, kökur. leikföng, dúkkuföt, barnafatnaður og margt fleira. ic Alþingismönnum boðið á Hart í bak. Því ég spái að þingmenn fái núna ef þeir hrökklast út á skak undan Jökli hart i bak. - há - Athugasemd við dóm Vegna fréttatilkynningar frá sakadómi Reykjavíkur, sem birtist í dagblöðum borg- arinnar í gær, þar sem m. a. var sagt írá dómi sakadóms Reykjavíkur yfir Sigurði Erni Hjálmtýssyni vegna vanskila, vill Sigurður ö. Hjálmtýsson koma eftirfarandi á framfæri: 1. Hann hefur áfrýjað dóm- inum, þar eð hann telur sig hafðan fyrir rangri sök. 2. Kærandinn, sem jafn- framt var annað aðal-vitnið í málinu, svo og hitt aðal-vitn- ið hafa báðir hlotið dóm íyrir auðgunarbrot. 3. Málið á rætur sínar að rekja til ágreinings, viðskipta- legs eðlis, milli dómfellds ann- ars vegar og þeírra tveggja aðila hins vegar, sem um getur í lið 2 hér að framan, um það, hvort upp hafi verið gerð skuldaskipti þeirra á milli þar sem m. a. er um að ræða útlagning pcninga af hálfu dómfelids í þágu kær- anda og skuldajöfnun í sam- bandi við bifreiðasölu, fyrir kæranda, með öðrum orðum: kröfur og gagnkröfur og er því ágreiningurinn í eðli sínu hreinlega einkamálalegs eðlis, en ekki refsiréttarlegs. 4. Dómarinn fellst á það með dómfelldum, að hann hafi staðið að nokkru leyti skil á fjárhæðinni, kr. 41.000,- 00 sem málið rcis af en ekki allri. Dómarinn telur sannað, að um refsivorð vanskil sé að ræða á kr. 29.000,00, en dæm- ir þó dómfelldan til að greiða kæranda kr. 34 300,00 Mis- munurinn á kr. 29.000,00 og kr. 34.300,00 er kr. 5.300,00 og hlýtur það samkvæmt niður- stöðu dómsins, að vera krafa einkamálalegs eðiis og þvi sakadómi óhcimiit að dæma um hana. Þetta sýnir, eitt með öðru, glögglega einka- málalegu hlið málsins. Reykjavik 14. desember 1962. SigiiriVur Ö. Iljálmtýsson. D C3 o blöd og tímarit ★ Jólablað Fálkans er komið út, 76 blaðsíður að stærð. Er það stærsta jólablað, sem Fálkinn hefur gefið út. Af efni blaðsins má nefna: ,,Eng- in þjóð les einungis góðar bækur“, viðtal við Gunnar Gunnarsson skáld, „Hjá vondu fólki“, frásögn af för blaðamanns og ljósmyndara Fálkans um Snæfellsnes, „Sæmundur fróði var aldrei í Sorbonne", grein eftir Jökul Jakobsson, „Jólasveinar einn og átta“, spjall um jólasvein- ana í gamla daga og rætt við fimm nútíma jólasveina, „Jólin í mínu ungdæmi“, Sveinn Sæmundsson ræðir við Kristin Pétursson og Svein Halldórsson, „Hinn árlegi heilaþvottur", skopgrein um jólin eftir Hans Moser. Fjór- ar sögur eru í blaðinu: „Faðir minn á himnum" jóia- saga eftir Gunnar Gunnars- son, „Heimkoman", jólasaga eftir Paul örum, „Jólanótt við Glendarock“, saga byggð á sönnum atburðum. Fjölmargar getraunir eru í blaðinu t.d. „Jólagetraun Fálk ans“, þar sem lesendur eiga að þekkja kjörorð tíu verzl- ana hér í bæ, tveggja síðna jólakrossgáta, myndagáta og ótalmargt fleira. Fálkinn hóf fyrstur blaða á íslandi útgáfu sérstakra jólablaða og hefur jólablað hans ævinlega selzt upp á örskömmum tíma. bazar Hádegishitinn ic Á hádcgi í gær var all- hvasst norðvestan á Stór- höfða en annars mátti heita norðlæg átt um allt land. vísan Eftir marga hildar hríð held ég fargan þryti. Hafði argan heljarlýð huslað varga bryti. bg. hart í bak Sólmánuður Framhald af 7. síðu ið út. — Það var eitt kvöld á þessum vetri, að í bókakynn- ingu Útvarpsins las Lárus Pálsson úr Sólmánuði og meðal annars Maríuvers úr Skálholts- ljóðum. Má mér ekki gleymast sá lestur. Fannst mér þá marg- ir vildu þessi vers kveðið hafa, svo fögur og einföld voru þau og svo forkunnlega lesin af þessum fágæta flutningmanni. Verðug skyldi vanda vé þín, drottins mær, hof, cr háreist standa, hcigilund, scm grær, ljóð í ástarcldi skírð, söng, cr megi þóknast þér, þinni björtu dýrð. Þannig vinnur Þóroddur frá Sandi í garði listar sinnar. Fáa veit ég, sem ganga á vit hennar hátignar listgyðjunnar, af slíkri lotningu og alaöru sem hann. Til hennar dirfist hann ekki ó- þveginn að líta, en er albúinn þess að hlýða duttlungum henn- ar og láta henni til reiðu allt það, sem hún vill af honum krefjast. Þess vegna vílar hann ekki fyrir sér að yrkja undir hinum dýrustu háttum, stund- um svo dýrum, að manni óar hvílíka ögun og járnvilja þarf tfl þess að skila heilu kvæði, oft löngu, í svo ramfelldum skorðum, án þess að úr verði tapkvæði. Skal það aldrei átal- ið af minni hálfu hvaða form hver og einn velur sér, þá er hann vill tjá hug sinn af alúð og einlægni, — og hljómur samrímsins getur verið freist- andi. Nú hef ég fyrir því engar sannanir að það hafi nokkru sinni hent Þórodd frá Sandi að láta málið yrkja fyrir sig, en þó veit ég að sannara og léttara hefði orðið kvæðið Fjór- tán ára stúlka, bls. 17, ef skáldið hefði ekki Jmýtt sér * þann fjötur aö yrkja það undir tvöföldu §amrími. En stundum var það í gamla daga, þá er gefinn var í vinargjöf, kistill vel skafinn, þá var gefandi þó ekki ánægður fyrr en hann var einnig svo vel grafinn, sem verða mátti. Sem sagt: þetta er einkamál hverju sinni. En aftur á móti kemur ekki til mála að ætla að náðst hefði betur markið með öðrum hætti en á er hafður, þá er Þóroddur yrkir hyllingarkvæði sitt til Davíðs frá Fagraskógi, enda verður ekki annað sagt en að þar hafi Þóroddur mikið loft undir vængjum í hrifni sinni og dragi arnsúg á ílugnum. Ekki má ég skiljast svo við þessar línur, sem tæpast ber að skoða sem ritdóm, frekar sem kvittun fyrir góða bók, að ég ekki geti þess að frágangur allur er góður, þó ég vissulega fallist aldrei á þá sparsemi, hvort heldur er hjá Menning- arsjóði eða öðrum, að tíma ekki að hafa auða síðu í Ijóða- bók, milli seinasta kvæðis og efnisyfirlits. Það er jafn smekk- laust hvar sem er, en ekki er það höfundi að kenna. Próf- arkalestur er með slíkum á- gætum að fágætt er, og mega þeir kenna nokkurrar öfundar, sem að jafnaði hafa burft að horfa upp á hinar fáránlegustu og ókennilegustu orðskreyting- ar í þeim kverum sem þeir hafa látið frá sér fara. Ég vil að lokum þakka Þór- oddi Guðmundssyni alveg sér á parti og innvirðulega fyrir kvæðin tvö: Á Þingvelli, bls. 64, og Móðirin góða bls. 99. Heyrði ég hann frumflytja þau ljóð bæði, við þökk og hrifn- ingu margra áheyrenda. Eru bau mér hugfólgin síðan. Guðmuntlur Böðvarsson. ÍC NÝTlZKU > HÚSGÖGN H N 0 T A N húsgagnaverzlun Þórsgötu 1. Takið eftir Úrvals æðardúnssængur fást ávallt á Sólvöllum, Vogum. Góð jólagjöf, sem seint mun gleymast. Póstsendi. ___Sími 17 Vogar. ítvarpid 13.00 Óskalög sjúklinga. 14.40 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 16.30 Danskennsla. 17.00 Þetta vil ég heyra: Jökull Jakobsson rit- höfundur velur sér hlj ómplötur. ’8 00 Útvarpssaga barnanna: Kusa í stofmnni. 8.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga. 20.00 Leikrit: „Ég man þá tíð“ eftir Eugene O’Neill; Bogi Ólafsson þýddi; Þorsteinn Ö. Stephensen gerði út- varpshandritið. — Leik- stjóri: Indriði Waage. Leikendur: Valur Gísla- son, Arndís Björnsdóttir. Brynjólfur Jóhannes- son, Sigríður Ilagalín, Margrét Guðmunds- dóttir, Gísli Alfreðsson, Jón Aðils, Guðmundur Pálsson, Þórunn Magn- úsdóttir, Jón Júlíus Jónsson, Arnar Jónsson og Stefán Thors. 22.10 Danslög — 24.00 Dag- skrárlok. ÓDÝRT! ÓDÝRT! Telpukópur (alull) Stærðir 4—12 ára. — Verð aðeins frá kr. 445.00. SMÁSALA — Laugavcgi 81

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.