Þjóðviljinn - 15.12.1962, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 15.12.1962, Qupperneq 12
Samdi ekki allt um Helga Að gefnu tilefni skal það hér með vottað, að mér er kunnugt um að Stefán Jónsson fréttamað- ur hefur ekki samið nema suma af gamanþáttunum. sem Karl Guðmundsson leikari hefur flutt á undanförnum árum um Helga Sæmundsson, formann Mennta- málaráðs. Guðmundur Jakobsson. ■Þjóðviljanum barst ofanskráð yfirlýsing í gær. og mun skýr- ingar á henni að leita í ritdómi sem Alþýðublaðið birti í gær- morgun um sögu Stefáns Jóns- sonar Mínir menn. Höfundur rit- dómsins er Helgi Sæmundsson. og hellir hann sér yfir bókina og höfundinn. Gráskinna hin meiri kom«n nt f dag kemur í bókaverzlanir Gráskinna hin meiri sem Bóka- útgáfan Þjóðsaga gefur út en prófessor Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson rithöfund- ur hafa tekið saman. Verk þetta er tvö stór bindi. hið fyrra end- urprentun þjóðsagnasafnsins Gráskinnu en í hinu eru nýjar frásagnir Útkomu þessarar bók- ar verður getið nánar hér ! blaðinu á morgun. Kjördæma■ kepphi Áustfirðingafjórðungur 39" „ Reykjavík 34% Réykjaneskjördæmi 33% Norðurland, vestra 32% Vesturland 31% Suðurlandskjördæmi 23% Vestfirðir 20% Norðurland, eystra 17% Jæja, þá er nú höfuð- staðurinn fallinn úr efsta sæti. Austfirðingar skutu þeim ref fyrir rass og er það vel af sér vikið að hoppa úr neðsta sæti í efsta sæti. Hvort munu papeyjarbuxur hafa veriö þar að verki? Þá hefur Norðurland vestra hoppað um tugi prósenta og Vest- firðingar sótt sig drjúgum. Allsstaðar er þakkarverð hreyfing. En í heildina er prósentu- talan of lág og við verð- um að herða sóknina, fé- lagar, því að óðum nálgast lokadagur. En við viljum færa Aust- firðingum þakkir í þetta Hin óþrotlega flæðarmús Laugardagur 15. desember 1962 — 27. árgangur msrse 275. töluþlað. Fyrr á tímum þótti flæðar- mús hinn eigulegasti gripur á Vesturlandi og Vestfjörðum. Enda dundu þar tíðast músabyljir. Þann þraut aldrei fé, sem komst yfir þetta merkilega kvikindi, sem seiddi gull úr sjó. Músin var látin í hveiti- stokk og kúrði þar í hári af óspjallaðri meyju ásamt stoln- um gullpeningi Þó að minnzt sé á fjárafl- anir fortíðarinnar, þá mun nú slíkt ekki vera til staðar a Vesturlandi og Vestfjörðum í dag. En við erum illa sviknir af afkomendum hinna miklu galdramanna fortíðarinnar, ef þeir bregðast ekki vel við fjáröflun blaðsins og vilji láta kalla sig ættlera með skömm eina. Við viljum þakka Akurnes- ingum fyrir harða sókn á liðnum dögum en snjóþungi mun vera á Snæfellsnesfjali- garði eða hvað? Óðum dregur að lokadegi og við viljum biðja félagana á þessum slóðum að herða sókn- ina og gæta að sér í tíma. Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans. 1 Vesturlandskjördæmi: Guðmundur M. Jónsson, Rein, Akranesi, sími • 630. Olgeir Friðfinnsson Borg- arnesi. Jenni R. Ólafsson Stykkis- hólmi. Skúli Alexandersson, Hell- issandi. Benjamín Guðmundsson, Ólafsvík. Bjöm Guðmundsson, Graf- amesi. 1 Vestf jarðakjördæmi: Halldór Ólafsson, isafirði. Sigurvin Jónsson Bolunga- vík. Helgi Björnsson, Hnífsdal Friðgeir Magnússon Þing- eyri. Gunnar Valdimarsson, Bíldu- dal. Þorgeir Sigurðsson, Hólma- vik. VR-fundur sam- ;ir mótmæli arna Við f járlagaafgreiðsluna í gær samfylktu þingmcnn Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokks ins til að fella tillögur, sem þingmenn Alþýðubandalagsins l’luttu um áfengisvarnir og barnavernd og fleir'i félagsleg mál. Lúðvík Jósepsson flutti tillögu um einnar milljón króna fram- lag „til þess að vinna gegn áfeng- is- og tóbaksneyzlu æskufólks. Dómsmálaráðuneytið úthluti fénu til félagssamtaka í sam- ræmi við starf þeirra að þess- um málum“. Tillagan var felld að viðhöfðu nafnakalli með 31 atkvæði gegn 25. Greiddi hver einasti viðstaddur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins atkvæði gegn þessari merku tillögu, en allir þingmenn Alþýðubandalagsins og Fram- sóknar (nema Björn Pálsson sem sat hjá) tillögunni atkvæði. Einar Olgeirsson og Geir Gunnarsson fluttu þá tillögu, að varið skyldi 1 Vj milljón „til þess að styrkja félagsstarfsemi og skemmtanir æskulýðs scm haldn- ar eru án þess að vín sé veitt, af hálfu félagsheimila og annarra aðila, enda sé tryggt að verðiagi öllu við skemmtanahaldið sé í hóf stillt, og sé styrknum út- hlutað samkvæmt reglum er fé- lagsmálaráðuneytið setur“. Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðuflokk- urinn felldu einnig þessa til- lögu. Sömu þingmenn, Einar og' Geir, fluttu tillögu um einnar milljón á veit- ingahúsum frá 26. |).m. I króna framlag „til rekstrar dag- heimila fyrir börn þeirra mæðra J er vinna utan heimilis, úthlut- að samkvæmt reglum ejr fjár- . málaráðuneytið setur.“ íhaidið og Alþýðuflokkurinn felldu þá tillögu. Einar og Björn Jónsson fluttu tillögu um hækkun úr 215 þús. í 500 þús. til sumar- dvalarheimila, dagheimila og vistheimila fyrir börn úr bæjum og kauptúnum, gegn jöfnu fram- lagi annars staðar að. Sjálfstæð- isflokkurinn og Alþýðuflokkur- inn létu sig ekki muna um að fella einnig þessa litlu tillögu. Sömu þingmenn, Einar og Björn, fluttu tillögu um hækkun fram- lags til mæðrastyrksnefnda svo hægt væri að hækka framlagið til mæðrastyrksnefnda utan Reykjavíkur i 75 þús. kr. íhaldið og Alþýðuflokkurinn felldu þessa tillögu. Geir Gunnarsson flutti tillögu um að 60 þúsund krónum yrði varið sem þóknun til myndlist- armanna sem kynna skólafólki sýningar sinar. íhaldið og Al- þýðuflokkurinn feildu þá tll- lögu. Á fjölsóttum fundi í Verzl- unarmannafélagi Reykjavík- ur í fyrrakvöld var einróma samþykkt að mótmæla ein- dregið framkominni tillögu um afgreiðslutíma verzlana hér í borginni og lögð á- herzla á að með samþykkt margra liða í tillögunni yrði stigið stórt spor afturábak í verzlunarháttum á íslandi. í framsöguræðu benti formað- ur VR, Guðmundur Garðarsson. m.a. á að ekkert samráð hefði verið haft við félagið í sam- bandi við undirbúning og samning hennar, enda þótt VR hefði ávallt lýst sig reiðubúið til sanngjarnra viðræðna um lokunartíma sölubúða. Átaldi formaður þessi vinnubrögð sér- staldega. Aðrir ræðumenn á fundinum tóku í sama streng, en í lok um- ræðna var svofelld ályktun gerð samhljóða og samþykkt að hún skv’di send sem svar VR við bréfi borgarráðs: ..Verzlunarmannafélag Reykja- víkur mótmælir eindregið tillögu hð samþykkt um afsreiðslutíma verzlana í Reykjavík o.fl., sem lögð var fvrir borgarráð Reykja- v'kur 4 des s.l. Sérstaklega vill félagið mót- maeia beirri málsmeðferð, sem v’ðhöfA hefur ver’ð með bví að l eefa félaginu ekki kost á að fia’la um þetta mál frá upp- hafi. Flefði bá ef til vill mátt porða bví að iafn einhliða oe f’-áleitar tillögur hefðu ' komið ryrir augu borgarráðs og neyt- “nda sem raun ber vitni. Félagið t.elur að með samþykki margra liða í fyrrnefndri tillögu í vrði stigið stórt spor aftur á | bak í verzlunarháttum á fs- : landi. Nægir í þvi sambandi að I benda á þá staðreynd að öll j verzlunarþjónusta myndi stór- hækka oS sú hækkun að sjálf- sögðu lenda á neytendum. Auk þess lengist vinnudagur af- greiðslufólks stórlega, en slik þróun stangast á við árangur annarra vinnustétta þjóðfélags- ins, sem bætt hafa kjör sin sam- fara fækkun vinnustunda. f þessum iið tillaganna felst ó- tviræð viðurkenning á því að verzlunarfólk geti ekki í dag lifað mannsæmandi lífi af laun- um sinum með svipuðum vinnu- stundafjölda o.g aðrar stéttir og því eigi að fara Þá leið að lengja vinnudaginn með hlut- fallslegri kauphækkun. Þessari aðför mótmælir félagið eindreg- ið V.R. mun fylgjast með fram- gangi þessa máls og er sem á- vallt áður reiðubúið til sann- gjarnra viðræðna um lokunar- tima sölubúða en álítur tillög- ur tvimenninganna til borgar- ráðs óraunhæfar, einhliða og ó- líklegar til samstöðu þeirra að- ila sem málið snertir". ^æilð bæjarmálin W Félag óháðra kjósenda í Kópa- vogi gengst fyrir kaffikvöldum í Þinghól við Reykjanesbraut hvert mánudagskvöld. Ætlazt er til að meðlimir og stuðnings- menn félagsins komi þar saman og ræði bæj.armálefnin yfir kaffibollanum. Einhver af bæj- arfulltrúum félagsins verður við- staddur og gefst mönnum því gott tækifæri til að koma sko.ð- unum sínum og málefnum á framfæri. Húsið er opnað kl. 20.30 og að sjálfsögðu eru allir velkomnir hvort sem þeir vilja ræða stór mál eða smá, eða bara fá sér gott kaffi og meðlæti ódýrt. Á annan í jólum, 26. þ.m., leggja um 400 starfsmenn veitingahúsa niður vinnu hafi samn- ingar ekki tekizt um kaup og kjör fyrir þann tíma. Nær verkfallsboð- un þessi til allra gisti- og veitingahúsa hér í borg, um 45 talsins. Félag starfsfólks í veitingahús- um sagði upp samningum við Samband veitinga- og gistihúsa- eigenda sl. haust. Gengu samn- ingarnir úr gildi 1. desember sl. Samningsumleitanir hafa stað- ið yfir að undanfömu, en engan árangur borið og hefur deilunni nú verið vísað til sáttasemjara. Jafnframt hefur Félag starfs- fólks í veitingahúsum boðað verk- fall í veitinga- og gistihúsum, sem fyrr segir, og kemur það til framkvæmda 26. þ. m. eða á annan í jólum, ef samningar hafa ekki tekizt fyrir þann tíma. Aðalkröfur Félags starfsfólks í veitingahúsum eru þær, að starfsfólkið fái sama kaup og starfsfólk sjúkrahúsanna hefur fyrir hliðstæða vinnu, en kaup stúlknanna á veitingahúsunum er 14—20% lægra en kaup 6tarfs- stúlkn_a á sjúkrahúsum. Þá sem- ur félagið og fyrir næturverði í gistihúsum og birgðaverði (kjall- arameistara). Sem fyrr segir nær verkfalls- boðun Félags starfsfólks í veit- ingahúsum til allra gisti- og veitingahúsa í Reykjavík, 45 tals- ins, og tekur til um 400 manna. Auk þess mun vinna matsveina og þjóna á gisti- og veitinga- húsunum að sjálfsögðu falla nið- ur, ef starfsstúlkumar leggja niður vinnu. Framangreindar upplýsingar fékk Þjóðviljinn í gær hjá skrif- stofu Fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Reykjavík. félaginu kl. 16 12 f. h. í dag í dag, laugardag, er kosið í stjórnarkosningunni í Sjómanna- félagi Reykjavíkur frá 10—12 ár- degis. Sjómenn! Munið að kjósa, meðan þið eruð í landi, það er of selnt, þegar komið er út á sjó. Listi starfandi sjómanna er B-Hsti. — X-B. Sýningu Helga S. Bcrgmann málaramcistara að Týsgötu 1 fe nú senn að Ijúka. Þar eru sýndar fjölmargar skoptcikningar o málverk. Hcr fyrir ofan er ein myndanna á sýningunni: Fr Vcstmannaeyjum. (Ljósm. Þjóðv. A. K.)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.