Þjóðviljinn - 29.12.1962, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.12.1962, Blaðsíða 12
Dauða- slys í fanga- klefa Á aðfaranótt þriðja jóladags lézt ungur mað- ur, Magnús Ólafsson, í fangaklefa lögreglunnar á Seyðisfirði. Með ein- hverjum hætti komst eldur í dýnu fangans og var hann látinn, þegar að var komið. Réttar- rannsókn hefur enn ekki leitt í Ijós, með hvaða hætti þetta varð. Lík Magnúsar var flutt til Reykjavíkur í gær til krufningar til úrskurðar um dánarorsök. Magnús Ólafsson var Seyðfirð- ingur, 21 árs gamall, og átti for- eldra og systkini þar á staðnum. Hann var settur í gæzluvarðhald um nóttina sökum ölvunar. Rétt- arrannsókn hófst á Seyðisfirði klukkan fjögur í gærdag. Setu- dómari í málinu er Ólafur Þor- láksson, fulltrúi sakadómarans í Reykjavík, en bæjarfógetinn á Seyðisfirði, Erlendur Björnsson hafði óskað eftir að víkja úr dómarasæti, þar sem hann er yfirmaður lögreglunnar á staðn- um. f gær mættu fyrir réttinum bæjarfógeti, héraðslæknir og slökkviliðsstjóri bæjarins, en ekki upplýstist, hvað olli íkveikjunni. Laugardagur 29. desember 1962 — 27. árgangur — 284. tölublað. Myndirnar eru frá jólaskemmtun Sðsíalistafélags Reykjavíkur í Iðnó í fyrradag, þriðja í jólum. Stærri myndin er tekin meðan stóð á dansinum; á hinni sést jólasveinninn syngja með börnun- um. (Ljósm. Þjóðv. A. K.) steinbítsriklingi Rétt fyrir jólin var brotizt inn fiskhjall í Laugarnesi og stolið þaðan 80—100 kílóum af hákarli og 40—50 kílóum af steinbíts- riklingi. Var hákarlinn skyrhá- karl skorinn niður í stórar lengj- ur. Lögreglan biður þá sem kynnu að hafa orðið varir við ferðir þjófsins eða fundið lykt- ina af þýfinu að gefa sig fram. UrsBif í deildakeppni 'O'rslit í deildakeppninni í Skyndihappdrætti Þjóðviljans urðu sem hér segir: 10. B Vogar 103% 9. Kleppsholt 100% 1. Vesturbær 97% 11. Smáíbúðarhverfi 92% 5. Norðurmýri 90% 13. Blesugróf 90% 14. Herskólahv. 89% 3. Skerjafjörður 84% 15. Selás 82% 10. A Heimar 80% 4. B Skuggahverfi 76% 4. A Þingholt 75% 7. Rauðarárholt 75% 8. A Teigar 73% 2. Melar 72% 8. B Lækir 71% 6. Hlíðar 67% 12. Sogamýri 60% Úrslif kjör- dœmakeppni Urslit í kjördæmakeppninni í Skyndihappdrætti Þjóðviljans ■rðu sem hér segir: 'srðurland vestra 104% eyltjavík 85% usturland 81% "’.eykjanes 72% Vesturland 60% ^uðurland 54% Norðurland eystrn 43% Vestfiröir 40% iskver .5%umáramótin Á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarúívegfs- ins í fyrrakvöld var samþykkt fiskverð fyrir árið 1963 og gengur nýja verðið í gildi um áramótin. Einstakir verðflokkar hækka nokkuð misjafnlega mikið en miðað við þá gæðaflokkun sem var á síð- ustu vertíð samkvæmt skýrslu ferskfiskeftirlitsins mun verðhækkunin nema að meðaltali um 9,5%. 1. flokkur A, þorskur og ýsa, slægð með haus, hækkar úr kr. 3.21 kg. í kr. 3.60 eða um 39 aura kílóið, sem er rösklega 12% hækkun. 1. fl. B hækkar úr kr. 2.89 kg. í kr. 3.16 eða um 27 aura og 2. fl. hækkar minnst, verður kr. 2.59 kg. Vegna þessarar misjöfnu verð- hækkunar gæðaflokkanna verður verðmunur á milli þeirra tals- vert meiri en áður. Verðmunur á 1. fl. A og 1. flokki B verð- ur nú 14% en var áður 10% og verðmunur á 1. flokki B og 2. flokki verður héreftir 18% en var hinsvegar áður 10%. Ríður nú meir á því en nokkru sinni 'm Til sjós og iands Haraltíur Teitsson, fyrrverandi ritstjóri Nýrra vikutíðinda, kaus nýlega við stjómarkjör í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Sjómannsferill þessa manns hefur verið mjög stuttur. Hann fór eina eða tvær ferðir sem dagmaður í vél á einu skipa Eimskipafélagsins. Starfandi sjómenn! Herðið róðurinn gegn landliði og gerð- ardómsmönnum! Takið þátt í stjórnarkosningunni. Listi starf- andi sjómanna er B-listi. Kosið í dag kl. 10 —12 og 2 — 9 í skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. m fyrr, að ferskfiskeftirlitið ræki'®* hlutverk sitt vel, þegar verð- munur gæðaflokkanna eykst. Orsök fiskverðshækkunarinnar nú er fyrst og fremst aukin nýting, því að verð á útfluttum fiski hefur lítið hækkað frá því sem var við síðustu verðákvörð- un. 1 yfimefndinni, sem endanlega ákvað fiskverðið eiga sæti þeir Gunnlaugur G. Bjömsson banka- fulltrúi, formaður, Helgi Þórar- insson framkvæmdastjóri, Rvík., Guðlaugur Stefánsson framkv.- stjóri Vestmannaeyjum, Sigurð- ur Pétursson útgerðarmaður, R- vík og Tryggvi Helgason sjó- maður, Akureyri. Fékk yfimefnd- ín málið til meðferðar 18. des- ember, en áður hafði Verðlags- ráðið haldið 20 fundi um fisk- verðið á tímabilinu 3.—18. des- ember og var búið að ná sam- komulagi um ýmis atriði, svo sem hlutföllin milli verðflokk- anna. Eldur í skúr við Tómasarhaga Um kl. 6 í gærmorgun kom upp eldur í skúr við Tómasar- haga, en í honum voru kyndi- tæki fyrir trésmíðaverkstæði Öla Kristjánssonar, Tómasarhaga 3. Slökkviliðinu tókst fljótlega að láða niðurlögum eldsins en tals- verðar skemmdir urðu. Fiskimatsmanna- hópurinn í S.R. i ! Æsifrétt Morgunblaðsins send át um aliar jarðir Menn eru hættir að f urða sig | á samsetningunni á Sjómannafé- ! lagi Reykjavíkur, en hér koma! nokkur nöfn opinberra starfs- manna, fiskimatsmanna hjá Fisk- mati ríkisins. Þessir menn virð- ast óvenju áhugasamir að hjálpa starfandi sjómönnum að velja stjórn í Sjómannafélagi Reykja- víkur, því þeir eru allir fimm búnir að kjósa í stjórnarkosn- ingunum sem nú standa yfir! Hér kemur fiskmatsmannahóp- urinn: Jón Helgason (X) Jón Magnússon (X) Sigurður Óskarsson (X) Steingrímur Magnússon (X) Sveinn K. Valdimarsson (X) o. fl. Starfandi sjómenn! Þessir menn hafa það verkefni að skammta sjómönnum lífskjörin þegar þeir koma úr róðri, með því að vega og meta aflann sem dreginn er úr sjó hverju sinni, skipa honum í 1. 2. og 3. flokk. Þeir ættu stöðu sinni samkvæmt að vera í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, en láta starfandi sjómenn um Sjómannafélag Reykjavíkur. Kosið er í dag, laugardag kl. 10-12 f.h. og 2-9 e.h. og á morg- un, sunnudag, klukkan 2-9. Vinningur austur í sveit TAUNUS 12M bfflinn, sem dregið var um í happdrætti Krabbameinsfélagsins fyrir jól- in kom á nr. 14729. Rétt eftir að númerið var birt gaf sig fram ungur maður austan úr Hruna- mannahreppi, Brynjólfur Geir Pálsson frá Dalbæ, og var hann eigandi miðans. Hann mun sækja vinninginn í dag. nTKTlU cl UUctUllIL JlOSpivcl I Skömmá sftir að flokks- þingi Sósíalistaflokksins lauk birti Eyjólfur Konráð Jóns- son ritstjóri Morgunblaðsins hrikalega frétt á forsííðu í blaði sínu og kvaðst hafa komizt yfir „leyniplagg" frá þinginu sem sannaði að kommúnistar ætluðu að taka völdin á íslandi. Það vakti almennan hlátur þegar í Ijós kom að „leyniplagg“ þetta var raunar aðalsamþykkt þingsins og fjallaði um leið íslands til sósíalisma, hvernig íslenzkir sósíalistar ætluðu að vinna meirihluta kjósenda til fylgis við stefnu siina og á hvem hátt þeir hygðust síð- an framkvæma hana. Hafði flokksþingið samþykkt sér- stakar ráðstafanir til þess að kynna ályktunina sem bezt, svo að hún færi helzt ekki fram hjá nokkrum ís- lendingi, og var auglýsing Morgunblaðsins mikil og ó- vænt liðveizla. En upphlaupi Eyjólfs Kon- ráðs lauk ekki með almenn- um hlátri íslendinga. frétt Morgunblaðsins var send út um allan heim af bandarísku fréttastofunni Associated Press. Þannig barst Þjóðvilj- anum nýlega úrklippa úr blaðinu „The Province" í Vancouver þar sem greint er frá því að Morgunblaðið hafi komið upp um leynileg áform Kommúnistaflokksins um að taka völdin á íslandi! Sama frétt hefur eflaust birzt í þúsundum blaða um allan heim sem eru áskrifendur að fréttum Associated Press, og hrekklausir lesendux i fjar- lægum löndum munu hafa það fyrir satt að Eyjólfur Konráð hafi bjargað íslend- ingum frá kommúnistísku valdaráni! Til þess að fullkomna myndina má geta þess að fréttaritari Associated Press á íslandi er einn af blaða- mönnum Morgunblaðsins, og hann hefur auðvitað ekki haft fyrir því að senda neina leiðréttingu! Red stiieme to seize Iceland power alleged REYKJAVIK, Tceland (AP) • The Reykjavilc newspaper Morgunbladid reports'What it says were secret Communjst party plans to take over the govemment o£ Iceland. Morgunbladit gives- this ac- count: The Communists reallzed they could not achieve power by democratic mean's on this island o£ about 180,000 popula- tion and were not slrong enough for an armed revolu tion. Therefore, the resolution proposed-formation o£ a “na- tional íront,” consisting of Communlsts, fellow travellers and co-operative elements in political parlles and unions. . The plan called for íorma- tion ot a- national íront gov- emment which they would se- cure by forming a political po- lice íorce and pútting their officials in key positions. Þetta litla dæmi bregður ekki aðeins upp mynd af heiðarleik Morgunblaðsins heldur sýnir það einnig hversu mikið er að marka ýmsar þær „fréttir“ af fjar- lægum atburðum sem frétta- stofurnar senda frá sér. 4 i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.