Þjóðviljinn - 17.01.1963, Page 8
w
3 SfÐA
MÓÐVTLJINN
Finnrrtudagur 17. janúar 19ö3
i
j3
Álvkiun Alþýðusambandsþingsins um
kjaramá! sjómanna
Sjémem munu sækfa
fram fll feæftra kjara
★ I dag er íimmtudagur 17.
janúar. Antóníusmessa. Tungl
í hásuðri kl. 6.07. Tungl
fjærst jörðu. Árdegisháflæði
kl. 10.25. Þjóðhátíðardagur
Monako. Stofnað Eimskipafé-
lag Islands 1914. Lúmúmba,
forsætisráðherra Kongó. myrt-
ur 1961.
til minnis
★ Næturvarzla vikuna 12.-18.
janúar verður í Lyfjabúðinni
Tðunni, Laugavegi 40A. Sími
1-79-11.
★ Neyðarlæknir vakt alla
daga nema laugardaga kl. 13
— 17. Sími 11510.
★ Slysavarðstofan i heilsj-
vemdarstöðinni er opin allan
sólarhringinn. Næturlæknir á
sama stað kl 18—8 sími
15030
■fr Slökkviliðið og sjúkrabif-
reiðin sími 11100.
★ Lögre.glan sími 11166.
★ Holtsapótek og Garðsapó-
tok eru opin alla virka daga
kl. 9—19. laugardaga kl. 9—
16 og sunnudaga kl. 13—16.
★ Sjúkrabifreiðin Hafrar-
firði sími 51336
★ Kópavogsapótek er ið
alla vi’-ka daga kl. 9.15—20
laugardaga kl 9.15—16.
sunnudaga kl. 13—16
★ Keflavíkurapótek er opið
alla virka daga kl. 9—19.
laugardaga kl. 9—16 >g
sunnudaga kl. 13—16
★ Útivist barna. Börn vngri
en 12 ára mega vera úti til
kl. 20.00. böro 12—14 ára tii
kl. 22.00. Bömum og ungling-
um innan 16 ára er óheimiil
aðgangur að veitinga- dani-
og sölustöður. eftir k!
20 00
söfnin
★ Bókasafn Dagsbrúnar er
opið föstudaga kl. 8—10 e.h
laugardaga kl. 4—7 e.h. oa
sunnudaga kl 4—7 e.h
★ Þjóðmin.jasafnið og Lista-
safn ríkisins eru opin sunnu-
daga. briðjudaga. fimmtu-
daga og laugardaga kl 13.30
— 16
★ Bæjarbókasafnið Þing-
holtsstræti 29A. slmi 12308
Cftlánsdeild Opið kl 14—22
alla virka daga nema laug-
ardaga kl 14—19 sunnu-
daga kl. 17—19 Lesstofa
Opin kl. 10—22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10
—19 sunnudaea kl 14—19
Útibúið Sólheimum 27 er
opið alla virka daga. nema
laugardaga, frá klukkan 16—
19.00.
Otibúið Hólmgarði 34 Opið
kl. 17—19 alla virka daga
nema laugardaga Otibúið
Hofsvallagötu 16 Opið kl.
17.30—19.30 alla virka daga
nema laugardaga.
★ Tæknibókasafn IMSl er
opið alla virka daga nema
laugardaga kl. 13—19
Krossgáta
Þjóðviljans
★ Nr. 75. Lárétt: 1 á jurt, 3
lítil, 6 samtenging, 8 eins, 9
ílát, 10 frumefni, 12 ending,
13 ötulir 14 frumefni, 15 sk.st.,
16 hávaða, 17 fákur. Lóðrétt:
1 hegning, 2 fjöldi, 4 karl-
nafn, 5 mjóir, 7 lambið, 11
straumurinn, 15 eldsneyti.
★ Listasafn Einars Jónsson-
ar er lokað um óákveðinn
tíma.
★ Minjasafn Reykjaví'-”i
Skúlatúni 2 er opið alla
daga nerna mánudaga kl.
14—16.
★ Þjóðskjalasafnið er opið
alla virka daga kl. 10—12 og
14—19.
★ Ásgrímssafn Bergstaða-
stræti 74 er opið hriðjudaga
fimmtudaga og sunnudaga
kl. 13.30—16
★ Bókasafn Kópavogs. Otlán
þriðjudaga og fimmtudaga i
báðum skólunum.
★ Landsbókasafnið. Lestrar-
salur opinn alla virka daga
klukkan 10-12, 13-19 og 20-22.
nema laugardaga klukkan 10-
12 og 13-19. Otlán alla virka
daga klukkan 13-15.
skipin
ic Jöklar h.f. Drangajökull
fór frá London í nótt áleið-
is til Rvíkur. Langjökull fór
frá Gdynia í gærkvöld áleiðis
til Reykjavíkur. Vatnajökull
er væntanlegur til Reykjavík-
ur á morgun frá Rotterdam.
★ Eimskipafélag Islands
Brúarfoss fer frá Hamborg í
dag til Reykjavíkur. Dettifoss
fer frá Hafnarfirði í kvöld til
N.Y. Fjallfoss fer frá Gdynia
í dag til Helsinki, Turku og
Ventspils. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 15. þ.m. frá
Kotka. Gullfoss er í Rvík.
Lagarfoss fór frá Hafnarfirði
í gær til Glaucester. Reykja-
foss er í Hamborg, fer þaðan
tii Esbjerg, Kristiansand,
Osló, Gautaborgar, Antwerp-
en og Rotterdam. Selfoss er í
N.Y. Tröllafoss fór frá Siglu-
firði í fyrradag til Vest-
mannaejfj#. Tungufoss. fór. írá
Akureyri í gærkvöld til Siglu-
fjarðar.
★ Skipadeild SÍS. Hvassafell
er í Reykjavík. Arnarfell er i
Aabo. Jökulfell lestar á Norð-
urlandshöfnum. Dísarfell fór
í gær frá Hornafirði áleiðis
til Bergen, Kristiansand.
Malmö og Hamborgar. Litla-
fell er í olíufluíningum í
Faxaflóa. Helgafell lestar á
Eyjafjarðarhöfnum. Hamrafell
fór 11. þ.m. frá Batumi áleið-
is til Islands. Stapafell fór
í gær frá Reykjavík til Aust-
fjarðahafna.
★ Skipaútgcrð ríkisins. Hekla
er á Austfjörðum á suðurleið.
Esja er í Álaborg. Herjólfur
fer frá Veslmannaeyjum kl.
21 í kvöld til Reykjavíkur.
Þyrill er vænlanlegur til
Kaupmannahafnar í kvöld frá
Hafnarfirði. Sk.jaldbreið fer
frá Reykjavík kl. 15 í dag til
Breiðafjarðarhafna og Vest-
fjarða. Herðubreið er i Rvík.
★ Hafskip. Laxá fór frá
Gdansk 15. þ.m. til Akraness.
Rangá er í Gdynia, fer þaðan
til Gautaborgar og íslands.
★ Þjóðverjar hafa ekki síður
skapað dularverur en vér Is-
lendingar og eru þær einnig
ýmist illar eða góðar. Ein er
sú dularvera þýzku þjóðtrúar-
innar, sem flest gott hefur
látið af sér leiða þar f landi
og enn lifir ótrúlega góðu
lífi í hugum fólksins, og það
er Das Heinzannshen. Hvert
eðli hennar er og hvernig hún
kemur fram við mannfólkið
hefur verið tekið saman ný-
legg og sett á kvikmynd, er
sýnd verður á vegum félags-
ins Germanía í Nýja bíó á
morgun, laugardag. Myndin
flugið
★ Loftleiðir. Snorri Sturluson
er væntanlegur frá N.Y. kl.
8.00. Fer til Glasgow og
Amsterdam kl. 9.30. Þorfinnur
karlsefni er væntanlegur frá
Helsingfors, Kaupmannahöfn
og Osló kl. 23.00. Fer til N.Y.
kl. 0.30.
vísan
★ I Staksteinum Morgun-
blaðsins 15. jan. s.l. er vak-
in athygli á grein, sem birt-
ist nýlega í Alþýðublaðinu
og er eftir dr. Björn Sigfús-
son, háskólabókavörð. Telur
höfundur Staksteina ekki sízt
ástæðu til „að vekja athygli
á því, að í grein sinni lítur
þessi gamalreynda Þjóðvarn-
arkempa Atlanzhafsbandalag-
ið nýjum augum“ (Innan
sviga skal þess getið, að dr.
Björn er einn umsækjenda
um prófessorsembætti við
Heimspekideild Háskólans).
Fyrir NATÖS fylgd og vörn
fýsir niarga að deyja.
Hcyrirðu, Gylfi, hvað hann
Björn
hefur nýtt að segja?
Ari
útvarpið
Fastir liðir eins og venjulega.
13.00 Á frívaktinni.
14.40 Við sem heima sitjum.
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla
í frönsku og þýzku.
18.00 Fyrir yngstu hlustend-
urna (Margrét Gunnars-
dóttir og Valborg Böð-
varsdóttir).
18.30 Óperettulög.
19.00 Tilkynningar.
20.00 Úr ríki Ránarv, VI. er-
indi: Merki.ngar fiski-
stofna og hagnýting —
(Aðalsteinn Sigurðsson
fiskifræðingur).
20.35 Píanótónleikar í út-
varpssal: Rögnvaldur
Sigurjónsson leikur tón-
verk eftir Franz Liszt.
20.50 Svipmynd írá 17. öld: —
Samfelld dagskrá um
Jón Ólafsson Indíafara
og reisubók hans. Jón
R. Hjálmarsson skóla-
stjóri bjó til flutnings.
Lesarar með honum eru
Gestur Magnússon og
Runólfur Þórarinsson.
21.35 Tívólí-músik eftir Lum-
by: Sinfóníuhljómsveit
Kaupmannahafnar leik-
ur; Lavard Frisholm
stjórnar.
22.10 Úr ævisögu Leós Tol-
stojs, ritaðri af syni
hans, Sergej; VI. (Gylfi
Gröndal ritstjóri).
22.30 Harmonikuþáttur.
(Re.ynir Jónasson).
23.00 Dagskrárlok.
er í litum og alllöng, enda
hefur gerzt mikil saga af
þessum hugstæðu dularverum,
en af þeim sökum verða ekki
aðrar fræðslumyndir sýndar
þetta skiptið. Kvikmyndin er
ekki síður fullorðnum en
bömum til fróðleiks og
skemmtunar.
Auk ævintýramyndarinnar
verða sýndar íréttamyndir frá
s.l. hausti.
Sýningin hefst kl. 2 e.h„ og
er öllum heimill aðgangur.
börnum þó aðeins í fylgd með
fuliorðnum.
hádegishifinn
★ Klukkan 11 árdegis í gær
var suðvestlæg átt á íslandi;
víða allhvasst og rigning vest-
an lands, en þurrt á Aust-
urlandi; hiti 1—8 stig, hlýjast
í Fagradal.
farsóttir
★ Farsóttir í Reykjavík vik-
una 30. des. 1961—4. jan. 1963
samkvæmt skýrslum 44 (42)
starfandi lækna.
Hálsbólga 146 (67), Kvefsótt
120 (140) Gigtsótt 1 (0) Iðra-
kvef 30 (7) Ristill 1 (2) Influ-
enza 2 (4) Heilahimnubólga
1 (1) Mislingar 177 (183)
Hettusótt 12 (7) Kveflungna-
bólga 1 (8) Skarlatssótt 7 (6)
Munnangur 3 (8) Hlaupabóla
6 (2).
féiagslíf
+ Ungmcnnafélag Islands
sýnir kvikmyndina frá lands-
mótinu á Laugum í Breiðfirð-
ingabúð föstudaginn 18. ian
kl. 8 e. h. Ungmennafélögjm
utan af landi. sem staddir eru
í Reykjavík, er boðið að sjá
myndina.
★ Félag Þingeyínga í Reykja-
vík heldur skemmtifund f
Templarahúsinu í kvöld, 17.
janúar, kl. 20.30. Félagsvist.
Hljómsveit leikur til kl. 1.
★ Æskulýðsfélag Laugarncs-
sóknar. Fundur í kirkjukjall-
aranum kl. 8.30 í kvöld. Fjöl-
breytt fundarefni. Séra Garð-
ar Svavarsson.
+ Minningarspjöld Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra, fást
á eftirtöldum stöðum: Bóka-
búð Isafoldar, Austurstræti —
Bókabúðin, Laugarnesvegi 52
— Bókaverzlun Stefáns Stef-
ánssonar. Laugavegi 8 —
Verzlunin Roði. Laugavegi 74
— Reykjavíkur Apótek. Lang-
holtsvegi — Garðs Apóter
Hólmgarði 32 — Vesturbæ
ar Apótek — t Hafnarfirði
Valtýr Sæmundsson, öldu-
götu 9.
SAMllÐAR-
'0RT
Slysavarnafélags fslands
kaupa flestir. Fást hjá slysa-
varnadeildum um !and allt.
t Reykjavík í Hannyrðaverzl-
uninni Bankastræti 6. Verzl-
un Gunnþórunnar Halldórs-
dóttur. Bókaverzluninni Sögu
Langholtsvegi og í skrifstofu
félagsins í Nausti á Granda-
garði.
Ályktanir Alþýðusambands-
þingsins í nóvember eru birtar
í Vinnunni, tímarit.i sambands-
ins, jólaheftinu, meðal annars
efnis frá þinginu.
Hér er birt ályktun sú er þing-
ið gerði um kjaramál sjómanna:
Síðastliðin 2 ár hafa verið
miklir átakatímar um kjaramál
sjómanna. Með gengislækkunar-
lögum 1960 var kveðið á um það,
að fiskverð til sjómanna skyldi
haldast óbreytt, eins og það var„
þegar lögin voru sett. Samkvæmt
lögunum voru sjómenn dæmdir
til að búa við það fiskverð, er
var kr. 1.66 pr. kg. af þorski, en
útgerðarmenn fengq það ár kp.
2.63 pr. kg. Á þann hátt féll
fullur þriðji hluti af aflaverð-
mæti sjómannahlutanna í hend-
ur útgerðarmanna.
Á sjómannaráðstefnu A.S.t.
haustið 1960 var samþykkt að
leggja til við félög sjómanna að
segja þá upp kjarasamningum
sínum, til að freista þess að fá
þetta leiðrétt, og jafnframt að
samræma hina mörgu og mjög
breytilegu samninga.
Ályktun um kjaramál
sjómanna
Kjörin var sameiginleg samn-
inganefnd félaganna. Nær öll fé-
lögin sögðu upp fyrri samning-
um.
Þegar ekkert gekk né rak í
samningunum, var hafið verk-
fall um miðjan janúar 1961 í
flestum útgerðarstöðum landsins.
Stórt skarð var þó brotið í
raðir sjómanna í þeim átökum,
þar sem veiðistöðvarnar á Suð-
urnesjum brugðust þátttöku. en
þar er nær þriðji hiuti útgerðar
landsins á vetrarvertíð.
Síðar hættu félögin á Vest-
íjörðum þátttöku í deilunni.
Eftir 10 daga verkfall voru
samningar gerðir. Var þá um
samið, að sjómenn fái sama verð
fyrir aflahlut sinn og útgerðar-
menn fá og almennt fiskverð
hækkað úr kr. 2.63 í kr. 3 11 pr.
kg. 1 þeim kjarasamningum var
nú felld niður þátttaka sjómanna
í útgerðarkostnaði, en hlutur sjó-
manna í heildarafla bátanna
lækkaður mikið, eða úr ca. 35
til 40% í 29.5 til 37%, breytilega
eftir stærðum báta og veiðiað-
ferðum.
Kjarasamningar sjómanna
voru þá samræmdir að mestu.
Síðastliðið vor hófu svo út-
gerðarmenn undir forystu L.t.Ú.
átök við sjómannasamtökin til
að lækka mjög mikið kjörin við
síldveiðar, og voru Iækkunar-
kröfur L.t.Ú. um 10 til 25%,
breytilegt eftir veiðiútbúnaði
skipanna.
Mikil mistök voru hjá L.I.Ú.
um uppsögn samninganna. Engin
lögmæt uppsögn hafði borizt til
fíölda útgerðarstaða síldveiði-
bátanna, svo að nær þriðji hluti
veiðiskipanna var gerður út frá
þeim stöðum. Einnig var ólög-
mæt uppsögn L.t.Ú. gagnvart yf-
irmönnum. L.I.Ú. beitti því ekki
verkbanni í venjulegri merk-
ingu, en skuldbatt útgerðarmenn
að hefja ekki síldveiðamar á
þann hátt, að þeir gæfu út 300
þús. króna tryggingarvíxil, sem
félli á þá til greiðslu, sem freist-
uðu þess að hefja veiöar.
Sameiginleg samninganefnd
sjómannasamtakanna innan A.S.
1. fór með samingana. Samstaða
félaganna var mjög góð og ekk-
ert lát á henni. Þegar samning-
ar höfðu staðið vikum saman,
og milli 10 og 20 skip hafið síld-
veiðar í banni L.I.Ú., leitaði
Landssambandið til ríkisstjómar-
innar um aðstoð, sem ekki stóð
á.
Sunnudaginn 24. júní gaf rík-
isstjórnin út bráðabirgðalög um,
að síldveiðikjör sjómanna skyldu
ákveðin með gerðardómi, og með
lögunum var félögunum bannað
að hefta það, að skip færu til
veiða.
A.S.t., Sjómannasambandinu og
F.F.S.Í. var í lögunum sameigin-
lega gefinn kostur á að tilnefna
einn mann í gerðardóminn af 5.
A.S.t. og F.F.S.t. höfnuðu því
að eiga hlut að gerðardómnum.
Gerðardómurinn lét svo ekki sitt
eftir liggja og ákvað að lækka
kjör sjómanna úr 40 til 41.5% af
afla í 34.5 til 35.5%, sem er um
12—14°/( lækkun.
Nú fyrir vetrarsíldveiðamar,
er gerðardómslögin voru úr gildi
falin, voru hafnir samningar um
síldveiðikjörin að nýju. Þegar
ekkert gekk lýstu sjómannafélög-
in, sem að samningum stóðu, yf-
ir verkfalli frá 1. og 2. nóvember,
en það voru íélögin í Vest-
mannaeyjum og við Faxaflóa,
Breiðafjörð og á Akureyri, alls 12
félög.
L.I.Ú. lýsti nú einnig yfir verk-
banni frá 11. nóvember. Um
miðjan nóvember var skarð brot-
ið í raðir sjómanna. Félagið á
Akranesi tók sig út úr og samdi
þar við útgerðarmenn um mikið
lægri kjör en samninganefndim-
ar léðu máls á að semja um.
Síðan fóru í kjölfar þess félögin
á Hellissandi og Tálknafirði.
Hinn 20. nóvember var svo
gerður samningur eftir meiri-
hlutasamþykkt sjómanna með at-
kvæðagreiðslu í þeim félögum,
sem í deilunni voru til enda.
Samkvæmt þeim samningum
lækka kjör sjómanna á síldveið-
um frá því, sem þau voru í
fyrri samningum, úr 40—41.5%
af afla til skipshafna í. 36.5 til
39%, en það samsvarar 5 til 8%
tekjulækkun.
Hins vegar koma nokkur ný
ákvæði í samninga, svo sem
greiðsla í sjúkasjóði félaganna og
Framhald á 9. síðu.
QSD
o
Germanía sýnir ævintýrakvikmynd
A
I
i